Þjóðviljinn - 09.04.1943, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 09.04.1943, Qupperneq 1
 FrclslM Mia ket- if slai i krlf ár „Yér höfum enn ekki sígrað, en enginn ef- asf um leíkslokín" - segír Hákon konungur Hákon Noregskonimgiir hefur í tilefni af því, að í dag, 9. apríl, eru liðin 3 ár síðan Þjóðverjar réðust inn í Noreg, sent Norðmönnum svohljóðandi kveðju: „Eg veit að á þessum þriggja-ára minningardegi um innrás- ina í Noreg, minnumst vér allir með innilegri þökk allra þeirra manna, sem hafa fómað lífi sínu fyrir föðurlandið, og að vér, sem nú lifum fjarri fósturjörð vorri, Noregi, sendum heitustu þakkir vorar til allra þeirra hraustu manna, kvenna og bama á heimavígstöðvunum, sem þjáðst hafa þessi löngu ár. Vér höfum enn ekki unnið sigur, en enginn af oss hefur nokkru sinni efast um leikslokin". NORSKA MINNINGAR- GUÐSÞJÓNUSTAN. Norska minningarguðsþjón- ustxmni, sem haldin verður í dómkirkjunni í dag, verður útvarpað. Hefst hún kl. 6,15, en ekki kl. 6 eins og áður hafði verið tilkynnt. Coca-cola kallar á Hriflu! Olfseyrun gægjast fram undan sauðargærunni! „Aumt er að eiga Jiræl að einkavin“, sagði Hákon jarl, er Karkur sveik hann. Aumt er að hafa Vísi að einkamálgagni, má veslings rilds- stjómin segja. Svo illa leikur hann hana í gær, einmitt þegar henni lá mest á. Vísir hefur undanfama daga óskapazt gegn fjárhagsnefnd neðri deildar, líklega út af því, að hún skyldi drýgja þann glæp að reyna að finna leið til samkomulags um afgreiðslu dýrtíðarmálanna. Mænir blað- ið nú upp á hvem á fætur öðmm til „bjargar“, — sem sé til þess að hindra samkomulag í þinginu og festir loks augun á: Jónasi frá Hriflu!! „Þrátt fyrir frumhlaup fjárhagsnefndar neðri deildar Alþingis er enn tími til þess að afmá þau spor, sem nefndin hefur markað í snjóinn við meðferð málsins, og ekki má telja ólíklegt, að til þess verði meirhluti innan þings. Vitað er að Framsóknarflokkurinn er mjög mótfallinn tillög- unum og mun fulltrúi flokksins í fjárhagsnefnd hafa sætt liarðri gagnrýni fyrir fmmhlaupið á fundum flokksins. Formaður flokksins hefur nýlega lýst yfir því, að hentugasta leiðin út úr ógöngunum sé sú, að núverandi ríkisstjóm sitji áfram og njóti stuðnings þingflokkanna til að vinna bug á vandamálum dýrtíðarinnar. Þetta er vitanlega hárrétt og önnur lausn er ekki til í málinu“. Það vantar ekki einlngu andans og band friðarins milli Coca-cola- blaðsins og Hriflu-Jón^sar. Það liggur við að manni detti í hug að ein- hvemtíma hafi Jonas hvíslað í eyra Bimi: Nefndu mig þegar mikið liggur við. Og nú er stundin komin! — Kúgunarlögin gegn verkalýðshreyf- ingunni eru í hættu — og Coca-cola kallar á Hriflu! En hitt er svo aftur annað mál, hvort ákallið dugar. Tveif þingmenn Sósíalistaflokksins Aki Jakobsson og Lúðvík Jósefsson flytja breytingartillögur um dýrtíðarmálin Önnur er um skatta, er veiti 2V>—3 milljónir króna til endurbóta á alþýðutryggingunum. Hin er um gxunn verð á landbúnaðarafurðum, 45% grunnverðhækkun og vísitölu 220, ennfremur sjóðstofnun fyrir landbún- aðinn. Einar Olgeirsson talaði í gær um dýrtíðarmálin. — Umræður halda áfram í dag. Fundur hófst í neðri deild kl. V/> síðdegis í gær. Á dagskrá voru dýrtíðarmálin. Fyrstur tók Eysteinn Jónsson til máls en því næst Einar Olgeirsson og gerði ýtarlega grein fyrir afstöðu sinni í fjárhagsnefnd til dýrtíðarmálanna og færði rök fyrir því samkomulagi, er þar var gert. Ræðumaður veittist allhart að ríkisstjóm, og benti á hin fögm loforð hennar þegar hún tók við völdum, og sýndi fram á hvað þau stingju í stúf við dýrtíðartillögur þær sem ríkisstjóm leggur nú fram og ganga svo mjög á hagsmuni og réttindi verkalýðsins. Þá gerði ræðum. og nokkur skil hinum fjarstæðukenndu fullyrð- ingum Skúla Guðmundssonar um að kaup hafi hækkað meira en landbúnaðarafurðir frá því árið 1939. Af öðrum þingmönnum tóku til máls þeir Jón Pálmason, Ingólfur Jónsson, Páll Zoph- oníasson og Sig. Kristjánsson. Jóhann Sæmundsson félagsmálaráðherra tók til máls og flutti mjög athyglisvrða ræðu. Þar sem hann m. a. sannaði með tölum að kaupgjald hefur hækkað minna en framfæzlukostnaður síð- an 1939 en landbúnaðarafurðir hafa hækkað meira en kaup. Kl. 7 síðd. óskaði forsætisráðherra eftir að umr. yrði frestað til morg uns og var það gert. Fundur hefst kl. V/% síðd. í dag og halda þá umræður áfram. x- - v. I ' 5^»» rr ■ • 1V * i Tveir þingmenn Sósíalistaflokks- ur ákveðið samkvæmt fyrirmælum ms, þeir Áki Jakobsson og Lúðvík 4. gr„ skal ríkisstjómin ákveða verð Jósefsson báru í gær fram tvær breytingatillögur við lögin um dýr- tíðarráðstafanir, sem verið hafa til umræðu undanfama tvo daga í neðri ’deild. Önnur tillagan er um það, hvem- íg útsöluverð landbúnaðarafurða skuli ákveðið á tímabilinu fram til '15. september og með hvaða hætti greiða skuli verðuppbætur úr ríkis- sjóði og er hún svohljóðandi: „Við 17. tölul. Meginmál liðarins orðist svo: Þar til verð landbúnaðarvara verð þeirra þannig: Smásöluverð dilkakjöts og annarra tegunda kjöts, mjólkur og mjólkur- afurða, garðávaxta og grænmetis skal fundið með því að leggja til grundvallar það verð, sem var á þessum afurðum janúar—marz 1939, að viðbættri 45% grunnverðsuppbót ásamt verðlagsuppbót samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar, þó aldrei hærri vísitölu en 220. Verð, sem þannig er fundið á hverri vöru- tegund, skal ganga strax í gildi. Framh. á 4. síðu. Laugarnesspílalabiruními Svo giftusamlega tókst til, þegar Laugamesspítalinn brann til kaldra kola í fyrra- kvöld, fórst enginn þeirra, sem voru í spítalanum. — All- ir voru komnir út fjórum mín- útum eftir að eldsins varð vart. — Aðeins einn maður, sem fór inn í eldinn, til þess að athuga hvort allir sjúkl- ingar hefðu komizt út, meidd- ist nokkuð í andliti. Talið er að upptök eldsins hafi átt sér stað í eldhúsi. Slökkviliðið var kvatt á vett- vang kl. 8,17, en þá var ame1- ríkst slökkvilið komið á stað- inn. Húsið var þá alelda, svo auðséð var að húsinu yrði ekki bjargað. Slökkviliðinu tókst aö hindra að eldurinn næði til annarra húsa. Spítalinn var tryggður hjá Sjóvátryggingafélagi íslands fyrir 800 þús. krónur. Photo by U. S. /rmy Signalcorps.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.