Þjóðviljinn - 09.04.1943, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 09.04.1943, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN Næturlæknir í læknavarðstöð Reykjavíkur, Austurbæjarskólanum, sími 5030. Næturvörður í Reykjavíkurapótekl ÍJtvarpið í dag: '18,15 Norsk minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni (séra Bjami Jónsson vígslubiskup). Karlakórinn Fóstbræður heldur samsöng í Gamla bíó 1 dag kl. 11,30 síðdegis og á sunnudaginn kl. 1,30 síð degis. Leikfélag Reykjavíkur hefur í kvöld frumsýningu á „Orðið“ eftir Kaj Munk. Félagið Berklavöm heldu skemmti fund í kvöld kl. 7,30 í húsi Verzlun- armannafélagsins. NÝJA BlÓ dBSW 1 HÞ TJARNAKKÉÓ 4R Hinn framlidni Heimsborgari snýr aifuir (International Lady) (Here Comes Mr. Jordan) Amerísk söngva- og lögreglu- Sérkennileg og spennandi mynd. mynd. GEORGE BRENT ROBERT MONTGOMERY ILONA MASSEY EVELYN KEYES CLAUDE RAINS. Sýnd kl. 5 — 7 — 9. BASIL RATHBONE. Sýnd kl. 5 — 7 — 9. t 1 LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR. ORÐIÐ EFTIR KAJ MUNK. Frumsýnmg í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 2 í dag. Herir Rommels enn á undanhaldi 1. brezki herinn um 45 km. frá Túnis Hinar sigruðu hersveitir Rommels flýja enn norður veginn til Sfax. Flugvélar Bandamanna halda uppi látlausum árásum á J»ær. 1. brezki herinn hefur hafið sókn í Norður-Túnis. Noregssöfnun Rithöf- undafélagsins Miimizt þriggja ára h.etju- legrar frelsisbaráttu og hörm- unga norsku þjóðarinnar í dag 9. apríl með því að efla Noregssöfnun Rithöfundafé- lagsins. Framlög til hennar verða Norðmönnum að liði þegar í stað. Söfnunin nemur nú 14000 krónum og hefur það fé þeg- ar verið afhent réttum aðil- um til ráðstöfunar. Framlögum verðm: veitt móttaka í bókabúð KRON, Alþýðúhúsinu, skrifstofu Dags brúnar, Víkingsprenti Garð- arstræti 17, afgreiðslu Morg- imblaðsins og afgreiðslu Þjóð- viljans. Framhaldsstofnfundur Verkamannafélags Akureyrar r Stofnun VerkJamanniafélags Akureyrarkaupstaðar lauk í gærkveldi. 40 verkamenn gengu inn á fundinum og hafa þá 250 menn gengið í félagið. Trpðfullt hús var á fundin- um og ágæt stemning. Marg- ii- ræðumenn tóku til máls, þ. á. m. fulltrúar Alþýðusam- bandsins, þeir Jón Rafnsson og Jón Sigurösson, og formað- ur félagsins.. Fundurinn kaus 3 menn í fulltrúaráð víerklýðsfélaganna á Akureyri. — Jafnframt sam- þykkti fundurinn áskorun til fulltrúaráðsins um að gang- ast fyrir sameiginlegum há- tíðahöldum 1. maí. 1. maí-nefnd verkalýðs- félaganna. Sveinafélag húsgagnasmiða hefur nú tilnefnt Kristján Sigurgeirsson sem fulltrúa í 1. maí-nefnd verklýðsfélag- anna. — Þjóðviljinn hefur áð- ur skýrt frá fulltrúum all- margar annarra félaga í 1. maí-nefndinni. Útvarp á íslenzku frá brezk um útvarpsstöðvum. Útvarp á íslenzku frá brezk um útvarpsstöðvum verður framvegis á sunnudögum kl. 15,15 (3,15 e. h.) eftir ís- lenzkum tíma. Varpað verður *út á 24,8 metra öldulengd. Rommel reyndist ekki fær um að halda stöðvum sínum hjá Wadi Akarib. í gær síð- degis gerðu hersveitir Romm- els harðar gagnárásir til að ná aftur stöðvum, sem 8 her- inn hafði tekið, en þær reynd- ust árangurslausar. Þjóðverjar hafa undanfarn- ar vikur reynt að hrekja Rússa af brúarsporðum vestan Don- etsfljóts, til að gera þeim erf- iðara fyrir með sókn, þegar til þess kæmi og bægja þannig frá hættu- þeirri, sem ógnar yfirráðum nazista á Balkan- skaga, en nú hefur rauði her- inn hafið harðvítuga árás við Donetsfljót, fellt 3000 Þjóð- verja í 4 orustum og eyðilagt 40 skriðdreka fyrir þeim. Her Meslennikoffs hershöfð- ingja við Kúbanminni hefur náð á vald sitt mikilsverðum her- stöðvum Þjóðverja. Rússar flytja nú aftur olíu sjóleiðis frá Bakú til Astrakan og þaðan upp Volgu. Einn aðal- tilgangurinn með sumarsókn nazista var að hindra þessa olíu- flutninga og ná olíunni í Baku á sitt vald — en það fór eins og kunnngt er. Möndulherirnir biðu mikið tjón. Bandamenn hafa tekið marga fanga og mikið af her- gögnum. Herir Bandamanna hafa nú náð saman og hafa þannig á valdi sínu samfellda landspildu yfir þvera Afríku, allt frá Rauðahafi vestur. að Atlantzhaíi. Áhœtfuþóbnan Framhald af 2. síðu. Það er vissulega öllum aðilum bezt að hér sé gengið hreint til verks, það kæmi í veg fyrir ó- þarfar hugmyndir um íslenzk- an embættisrekstur, og að á- kveðnir menn væru hafðir fyrir rangri sök. Verið getur að einhverjum finnist að nú séu ekki tímar til að gera kröfur um launabætur, en þá er því til að svara, hvað áhættuþóknuninni viðvíkur, að þar er aðeins farið fram á afnám misréttis. Hitt atriðið, um hinar sérstöku launabætur er sam- þykktar voru á Alþingi, er fyrst og fremst skuldheimta. Toll- gæzlumenn og aðrir sem ekki hafa fengið uppbætur á öll laun sín frá 1. júlí 1942, hljóta að telja til skuldar hjá þeim stofnunum sem hlut eiga að máli, og haga sér samkvæmt því. laili Mn Mr alsilli sfia i Dsssts sd slfl líbsiililt Orustan við brúarsporð við Donetsfljót, komst á nýtt stig í gær með því að rauði herinn hóf árásir fyrir sunnan Isjúm og náði á vald sitt mikilvægnm stöðvum. Þeir tóku og allmikið herfang. Breyfífigarfíllðgur Framh. af 1. síðu. Um leið og þessi verðlækkun kem ur til framkvæmda, skal með fram- lagi úr ríkissjóði greiða mjólkur- framleiðeudum verðmuninn frá nú- verandi verði, þangað til 15. maí 1943. Nú reynist vísitala framfærslu kostnaðar hærri en 220 eftir þann tíma, og skal ríkissjóður þá fram til 15, septemþer greiða mjólkurfram- leiðendum það, sem á vantar fulla verðlagsuppbót samkvæmt henni. Ennfremur skal með framlagi úr rík- issjóði greiða verðmuninn af þeim kjötbirgðum, sem til eru í landinu við gildistöku þessara laga. Uppbæturnar úr ríkissjóði skulu greiddar á þann hátt, að helmingnum verði varið til verðuppbótar í hlut- falli við magn vörunnar, en hinn helmingurinn gangi óskiptur til bænda, sem höfðu minna en meðal árstekjur 1942 (nettótekjur), stig- hækkandi í öfugu hlutfalli við tekj urnar, samkvæmt reglum, er nefnd sú, er um getur í 4. gr., setur. Ríkisstjóminni er heimilt að leggja fram úr ríkissjóði 3 milljónir króna í sjóð, er nefnist „Sjóður til eflingar íslenzkum landbúnaði“. Skal hann vera í vörzlu Búnaðarfélags Islands og skal verja honum samkv. nánari fyrirmælum í reglugerð, til samfelldra ræktunarframkvæmda og stofnunar byggðahverfa í sveit- um, til fjárhagslegrar aðstoðar við á- búendur byggðahverfanna, til véla- kaupa, til sameiginlegra nota og til stofnunar fyrirmyndarbúa. Um leið og ákvæði 2. mgr. um lækkun afurðaverðs kemur til fram kvæmda, skal Viðskiptaráð setja ný ákvæði um hámark þeirrar álagn- ingar, sem fram að því hefur verið leyfð, í samræmi við lækkaðan kostnað. Viðskiptaráð skal jafnframt gera ráðstafanir til þess, að öll á- lagning á vörur og þau verk er und- ir ákvæði verðlagslaganna heyra, skuli lækkuð samkvæmt framan- sögðu, enda þótt ekki hafi áður ver- ið sett hámarksákvæði um álagningu þeirra. Ákvæði þessarar greinar um verð- lag á landbúnaðarafurðum og ríkis- framlag falla úr gildi eigi síðar en 15. sept. 1943“. Hin tillagan varðar skattamál, eða það efni, sem var í I, kafla upphaf- lega frumvarps ríkisstjómarinnar, og er hún svohljóðandi: „Á eftir 18. tölul. komi nýr liður, sem verði 19. tölul. (7. gr.) svohljóð andi (liða- og greinatalan breytist samkvæmt því): Til þess að standast kostnað við væntanlegar endurbætur á lögunum um alþýðutryggingar, nr. 74 frá 1937, skulu eftirtaldar breytingar gerðar á gildandi skattalögum: Skattfrelsi það, sem félögum er veitt samkvæmt 1. málsl. 3. málsgr. 3. gr. 1. nr. 20/1942, skal niður falla. Þau félög, er um ræðir í 3. gr. a. 1. nr. 6/1935, sem sjávarútveg stunda, ennfremur einstaklingar og sameign arfélög, er stunda sjávarútveg sem aðalatvinnurekstur, skulu hafa skatt frelsi samkv. 2. málsl. 3. mgr. 3. gr. 1. Grcía Árna Ágústssonar Framh. af 3. síðu. „Er til ríkis kominn kannske karlssonur úr garðshominu.. “ Tíminn hefur svarað þess- ari spumingu játandi. Og nú em það ekki aðeins skáldin. heldm- heilax þjóðir, sem hugsa sjálfar og draga álykt- anir af atburðum síðustu tíma, sem skynja að lif þeirra og framtíöai’heill er tengt ör- lagaböndum við þær hugsjón- ir, sem hafa fæn, milljóna- r.auö til frelsis. Þvílík með- vitund þjóöanna mun að sjálf- sögðu skapa úreltri veröld eðlileg sögulok. Arni Agústsson um dýirtídarmálíiK nr. 20/1942, enda skal allt varsjóðs- tillag og frádráttur lagður í nýbygg ingasjóð, sbr. b.—g.-lið 14. gr. sömu laga. Þegar nýbyggingarsjóður sam- kv. framansögðu er orðinn jafnhár vátryggingarverði skips eða skipa skattþegns, eða ef nýbyggingarsjóð- ur er orðinn 1 milljón krónur, miss- ir viðkomandi skattþegn það skatt- frelsi, er um ræðir í næsta málslið hér á undan. Þessi takmörkun á skattfrj álsu nýbyggingars j óðsf ram- lagi gildir þó ekki fyrr en sjóðurima hefur náð 200000 kr.“ Með fyrri tillögunni eru settar reglur sem leiða til þess, að verð landbúnaðarvara verði nokkru lægra heldur en fjárhagsnefnd leggur til, e. lítri mjólkur ca 127 au. í stað 130 aur., en þó nokkru hærra verð en ríkisstjómin hefur lagt til að yrðí sett. Samkv. till. hennar verður mjólkurverð 123 aur. pr. lítra. Hvað snertir það verð, er bænd- um yrði greitt og þær uppbætur, sem þeim er ætlað að fá úr ríkis- sjóði er í þessum tillögum gert ráð fyrir því, að greiddar verði uppbæt- ur á allar þær kjötbírgðir, sem í landinu eru, ca. 1700 tonn. Hinsveg- ar eru uppbætur á mjólk, samkv. tillögunni nokkm lægri en hjá nefnd inni og mun það muna ca. 10%. En á móti því kemur það, að tillagan setur sérstakar reglur um úthlutun ríkissjóðsuppbótanna, sem tryggja það, að hinir smærri bændur, þ. e. þeir, sem hafa minna en meðalárs- tekjur fá hlutfallslega meira af upp- bótunum. Þannig eru hinir smærri bændur betur settir ,en þeir væm samkv. tillögu fjárhagsnefndar. Þá felur tillagan í sér að ríkissjóð- ur leggi fram 3 milljónir kr. í sjóð til eflingar íslenzkum landbúnaði. Margir munu segja, að þegar sé bú- ið að leggja landbúnaðinum nóg fé úr ríkissjóði. Það er alveg rétt, að á undanfömum ámm og þó sérstak- lega á imdanfömu ári, hefur tugum millj. kr. verið ausið í landbúnaðinn. En sá stóri ókostur hefur verið á þessum fjárframlögum, að þau hafa ekki verið miðuð við það að breyta búnaðarháttum í landinu. Mikið af framlögunum hafa verið ákveðin í samkeppnisbaráttu Sjálfstæðisfl. og Framsóknar um sálir bændanna. Slík fjárframlög, sem ekki eru miðuð við það að lyfta upp atvinnuvegin- um, heldur til þess að kaupa sér fylgi, verða með því sniði, að allt féð sé borgað út einstaklingum til ráðstöfunar eftir eigin geðþótta. Með þessari tillögu er farið inn á nýjar brautir. Það er gert ráð fyrir, að 3 millj. kr. verði varið til þess að gjör breyta atvinnuháttum í sveitum. Það verður að vísu ekki ákaflega mikið gert með einum 3 millj. kr.( en þetta er þó fyrsta skrefið. Fénu á að verja til samfelldra ræktunar framkvæmda og stofnunar byggða- hverfa og til fjárhagsaðstoðar við á- búendur byggðahverfanna framan af. Enginn vafi er á því, ef farið er inn á þessar brautir, þá munu á nokkrum árum bættir landbúnaðar- hættir gera hvorttveggja í senn: að lækka framleiðslukostnað landbún- aðarafurða og bæta lífskjör bænda. Lokaákvæði þessarar greinar legg ur fyrir Viðskiptaráð að takmarka almenna vöruálagningu til samræm- is við þá tekjulækkun, sem dýrtíðar- lögin leggja á launamenn og bænd- ur. Seinni tillagan er svipuð að efni og I. kafli í frv. eins og ríkisstjóm- in lagði það fyrir þingið, að öðru en því, að útgerðarfélög, sem eiga eina millj. kr. í nýbyggingarsjóði fá ekki að draga frá skattskyldum tekj um framlög sín í hann og einstakling ar og sameignarfélög, sem útgerð stunda, fá að leggja V3 hluta tekna í nýbyggingarsjóð í stað % hluta áður. Hinsvegar gerir tillagan ráð ’fyrir því, að þær tekjur, sem fást við þess ar breytingar, verði ekki notaðar sem eyðslufé, heldur verði þær látn- ar til varanlegra hagsbóta með því að leggja þær fram til þess að stand- ast kostnað af lagfæringum þeim, er bráðnauðsynlegt er að gera á alþýðu- tryggingunum. Gert er ráð fyrir, að hér verði um 3 millj. kr. að ræða.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.