Þjóðviljinn - 13.04.1943, Blaðsíða 1
4 hverja kemur verð-
lækkunarskatturinn?
Verðlækkunarskatturinn,
sem nú er í frumvarpinu um
dýrtíðarráðstafanir, byrjar á
10 þús. kr. skattskyldum
grunntekjum og er þá 150 kr.
og fer síðan stighækkandi.
Þetta þýðir að penirigatekj
urnar miðað við síðasta ár,
sem skatturinn byrjar á, eru
rúmlega 20 þúsund króna
skattskyldar tekjur. Ein-
hleypur maður þarf að hafa
22,454 kr. tekjur síðastliðið ár
til þess að komast undir verð-
lækkunarskatt. Fjölskyldu-
maður með konu og 3 börn
þarf að hafa yfir 29,234 kr.
tekjur síðasta ár, til þess að
borga þennan skatt.
Þessi skattur lendir því
alls ekki á lágtekjumönnum.
Fasísfaherimir hafa nú aðeíns norðansfurhlufa landsíns
fíl umráða, og hafa míssf 50 þús. menn á nokkrum vikum
Hernaðartilkynningin frá Túnis í gærkvöld flutti
mikilvæga sigurfregn: Brezku herirnir er sóttu fram
úr suðri (8. herinn) og vestri (1. herinn) náðu saman
í gær milli bæjanna Sousse og Kairouan, en báðir þeir
bæir eru á valdi Bandamanna.
Fasistaherirnir eru á undanhaldi á öllum Túnis-
vígstöðvunum, og hafa nú aðeins norðausturhluta
landsins á valdi sínu, og minnkar yfirráðasvæði þeirra
með hverjum degi.
Er talið ólíklegt að þýzku og ítölsku herjunum
verði undankomu auðið frá Túnis, og muni reyna að
verjast meðan þess sé nokkur kostur.
Áttundi brezki herinn tók
hafnarbæinn Sousse snemma í
gærmorgun og sækir hratt fram
til norðurs. Hersveitir Rommels
halda undan í átt til fjallabelt-
isins sem er alllangt norður af
bænum, og er talið að fasista-
herirnir muni reyna fyrir al-
vöru að tefja sókn Bandamanna
er þangað kemur.
Bretar hafa tekið mikinn
fjölda fanga í sókninni. og eru
þeir flestir ítalskir. Kvarta
þeir sáran yfir því að Þjóö-
Verjar hugsi um það eitt að
bjarga trndan sínum mönnum
en skilji ítölsku hermenniha
eftir án allra farartækja.
Fasistaherimir hafa misst
50 þúsund hermenn síðan or-
usturnar við Marethvirkin hóf
ust, ef taldir em fallnir, særð-
ir og fangar. Hefur hvað eft-
ir annað komið fyrir að fanga
fjöldinn hefur tafið sóknarað-
gerðir einstakra brezkra her-
flokka, sem haft hafa sérstök
verkefni aö leysa og oft verið
fáliðaðir í ferðum.
Flugher Breta og Banda-
ríkjamanna heldur uppi' lát-
lausum árásum á herstöðvar
Möndulveldanna í Túnis og á
Sikiley. Flugvélar og kafbát-
ar Breta gera mikinn skurk
í skipum fasista á siglinga-
leiðum milli ítalíu og Túnis.
Frá Alþíngt
l að shipa lefofl 18 að
Fundur hófst í sameinuðu þingi kl. 5 síðd. í gær. A
dagskrá voru 14 mál en hér skal aðeins getið afgreiðslu
tveggja mála, enda eru það mál, sem mikla athygli vekja.
Þeir E. Olgeirss., Þóroddur
Guðm. og Lúðvík Jósepsson
íluttu þingsályktunartill. um
skipun nefndai’ til að rann-
saka Þormóðsslysiö. Allsherjar
nefnd klofnaði um málið,
meirihlutinn lagði til að till.
væri vísað frá með rökstuddri
dagskrá, þar sem málið sé í
rannsókn fyrir Sjódómi Reykja
vikur. En minnihlutinn Sig-
fús Sigurhjartarson leggur til
.að tili. verði samþ.
Við atkvæðagreiðslu, meö
nafnakalli, var rökstudda dag-
skráin samþ. með 22 gegn 13
atkv.
Þessi afgreiðsla er hin
furðulegasta og er full ástæöa
til að að mál þettá verði rætt
nokkru sinni.
Hitt málið er till. til þál.
um aukauppbót á styrki til
skálda, listam. vísindam. og
rithöf.
Fjárveitingan. klofnaði um
málið. Jónas frá Hrifia cg 5
aðrir nemdarmenn lögðu til
SPpÍfÍÍP"
„Vindurinn blés“. — Og fylgið fauk!
Stalín ræðir við
brezkan hers-
höfðingja
Litlar breytingar á austur-
vígstöðvunum.
Stalín, forsætis- og land-
vamaþjóðfulltrúi Sovétríkj-
anna, ræddi í gær við Martel
hershöfðingja, formann brezku
hemaðarsendinefndarinnar í
Moskva. Brezki sendiherrann,
Sir Archibald Clark-Kerr, var
viðstaddm'.
Engar mikilvægar breyting-
ar hafa orðið á austurvígstöðv
unum síðustu dægrin, en
rauöi herinn hefur bætt að-
stöðu sína við Bjelgorod og á
Kúbanvígstöðvunum og hmnd
ið nýjum árásum Þjóðverja á
Donetssvæðinu.
Mðlahuisiin rennuF ðt I sanðinn
Þjóðólfur, blað þeirra „Þjóðveldismanna“ kom ekki út í
gær, sem var þó hinn ákveðni útkomudagur blaðsins.
Ástæðan til þess mun vera „flokkadrættir“ í „flokknum“,
en eins og kunnugt er stofnuðu Þjóðveldismenn „flokk“ sinn
til þess að afnema alla „flokka“! Virðist þeim fyrst ætla að tak-
ast að afnema sinn eigin flokk!!
Eins og flesta rekur minni til,
var Valdimar Jóhannsson
fyrsti ritstjóri Þjóðólfs. Hann
mun hafa verið frekar fáliðaður
í fyrstu, en brátt settust að hon-
um ,,flóttamenn“ úr borgara-
fldkkunum og gerðust þeir brátt
harla uppivöðslusamir. Meðal
þeirra var Árni Jónsson frá
Múla.
Þótti Þjóðveldismönnum sem
hvalreki mikill hefði komið þar
á f jörur þeirra. Gerðu þeir Árna
að meðritstjóra Þjóðólfs og leið
eigi á löngu unz Árni hafði bol-
að Valdimar frá ritstjórninni.
Fór svo fram um hríð.
að till. yrði felld, en minnihl.
Þóroddur Gúðm., Lúðvík Jós-
epsson og F. Jónsson, að till.
yrði samþ.
Við atkvæðagreiðslu, með
nafnakalli var till. samþykkt
með 27 gegn 11 atkv.
Það verður að teljast vel
farið að Alþingi gætti sóma
síns og samþ. þessa sjálf-
sögðu till., en lét ekki Jónas
frá Eriflu komast upp með
fjar.dskap s:rm við listamenn.
Fyrir eigi alllöngu varð Árni
ósáttur við þá er stjórna útgáfu
þeirra Þjóðveldismanna og
Framh. á 4. síðu.
26 þjóðir taka þátt
m atvæla ráðstefn u í
Bandaríkjunum
Utanríkismálaráðuneyti
Bandaríkjanna hefur lýst því
yfir að 26 þjóðir hafi þegið
boð um að senda fulltrúa á
matvælaráðstefnu hinna sam-
einuðu þjóða, sem haldin
verður í Bandaríkjunum. Ráð
stefnan verður haldin í Hot
Springs, Vh’ginia og hefst 18.
maí. Utanríkismálaráðuneytið
skýrði frá því að Marvin Jon-
es dómari fjárkröfudómstóls-
ins muni veröa fyrir hinum 5
fulltrúum Bandaríkjanna. Full
trúarnir munu hara með sér
nokkra ráðunauta, sem hafa
serþckkingu í tcl.niskum mál-
um.
Landneminn, blað
ungra sósíalista,
nýkominn út
Ólafur Jóh. Sigurðsson
rithöfundur, tekur við rit-
stjórn blaðsins.
Fyrsta tölublað þessa árgangs
Landnemans er nýkomið út.
Blaðið er 16 síður, vandað að
efni og prýtt fjölda mynda.
Fyrst er stutt Ávarp til æsku-
lýðsins varðandi söfnunina til
Rauða kross Sovétríkjanna, Her
væðing skáldsins nefnist grein
eftir rússneska skáldið og her-
manninn Konstantín Simonoff,
þýdd af Eyjólfi Eyjólfssyni.
Þjóðfélag tónanna heitir snjöll
grein um tónlistina og unga fólk
ið eftir Jón Óskar, tvö ný kvæði
eftir Kristínu Geirsdóttur, þá er
þýddur kafli úr Þrúgúm reiðinn
ar, hinni heimsfrægú bók Stein-
becks.
Kaflinn er um vorið í Kali-
forníu, þar sem allt flóir af á-
vöxtum, um fólkið, sem sveltur
heilu hungri mitt í allsnægtun-
um cg frjöseminni. Skáidið lýs-
5'ramh. á 4. siSu.