Þjóðviljinn - 14.04.1943, Qupperneq 1
8. árgangair.
Miðvikudagur 14. apríl 194.
85. tölublað.
Þad vcrdur efefeí faríd fram á neína fílslöfeun á feaupt
verfeamanna í maL Prjár milljónír feróna verda la$ð~
ar fram fíl alþýðufry$$ín$anna
Sósíalistaflokkurinn og Alþýðuflokkurinn lýsa yfir því, að þeir muni
bera fram tillögu um skatta á stríðsgróða við fyrsta tækifæri. Þeir verða
samþykktir, ef Framsóknarflokkurinn stendur við orð sín.
Svo sem fyrr var frá sagt höfðu afturhaldsmenn í Framsókn
og Sjálfstæðisflokknum sameinazt um það við 3. umr. dýrtíðar-
frumvarpsins að stórskemma það frá því sem verið hafði eftir
atkvæðagreiðsluna við 2. umræðu. Af þeirri breytingu, sem
afturhaldinu þar tókst að gera hefði leitt að ekkert hefði orðið
úr tryggingarsjóðnum gegn atvinnuleysi og skattar þeir, sem á
skyldu leggjast eftir 7. gr. áttu aðeins að koma Alþýðutrygg-
ingunum að litlu leyti að gagni.
Hér varð því að hafa skjót og ákveðin handtök ef duga átti.
Og það var gert.
í fjárhagsnefnd efri deildar náðist samkomulag milli fulltrúa
Sósíalistaflokksins, Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins um
eftirfarandi:
1. Sleppt skyldi úr frumvarpinu grein þeirri, sem heimilaði
ríkisstjórn að fara fram á það við verklýðsfélögin að þau fengju
verkamenn til þess að fórna um 12% af maíkaupi sínu með, því
að láta reikna maíkaupið eftir verðlagsvísitölu 1. maí 1 stað 1.
apríl, eins og samningar kveða á um. — Það verður því sam-
kvæmt frumvarpinu ekki farið fram á neinar tilslakanir á kaupi
við verkamenn.
2. Þrjár milljónir króna verða engu að síður veittar til alþýðu-
trygginganna af tekjum verðlækkunarskattsins, til þess að
standast kostnað við endurbætur á þeim.
3.. 7. greininni um varasjóðina og nýbyggingarsjóðina og skatta
álögin á þá verður sleppt úr þessu frumvarpi, en aðstaða smá-
útvegsmanna gagnvart skattalögunum bætt.
4. Ákvæðin um nefnd þá, sem ákveða skal verð á landbúnaðar-
afurðum og um bráðabirgðaverð á þeim, haldast. Sömuleiðis
verðlækkunarskatturinn.
Bresku herirnir í Túnis sækja nú fram í átt til Bizerta og
Túnisbogar, ásamt frönskum og bandarískum hersveitum, og
hafa þrengt fasistaherjunum saman á svæði í norðausturhom-
inu, sem ekki er nema tólfti hluti landsins.
Flugsveitir Bandamanna lialda uppi látlausum árásum á þá
flugvelli, sem þýzki og ítalski flugherinn hefur til afnota, og
hefur vörn fasista í lofti veikzt mjög síðastliðinn sólarhring.
Austasti armur Banda-
mannaherj anna eru sveitir 8.
Rússar gera harða ioftárás
i Königsberg
Míblar skemmdír á íðnaðarhverfum o§
mannvírhjum borgarínnar
Sveitir rússneskra sprengiflugvéla gerðu harða árás á þýzku
stórborgina Königsberg í fyrrinótt og er það öðm sinni á þrem-
ur sólarhingum að Rússar gera loftárás á þá börg. Var fyrri árás-
in gerð aðfranótt laugardags.
Árásin í fyrrinótt stóð tvær klukkustundir og komu upp eldar
í iðnaðarhverfum börgarinnar, en þar em m. a. hergagnasmiðjur.
Rafmagnsstöð borgarinnar og jámbrautarstöðvar urðu einnig
fyrir spengjum.
Framsóknarflokkurinn var
einn á móti þessu samkomu-
lagi. Mun honum einkum
hafa sárna'ð að’ fá ekki tæki-
færi til þess aö eyöileggja al-
veg framlögin til alþyðutrygg
inganna, eins og hann var
byrjaður á í neöri deild. —
Sósíalistaflokkurinn og Al-
þýöuflokkurinn sáu við fyrir-
ætlunum hans og hindruöu
þær meö þeirri afgreiöslu
málsins sem aö ofan greinir
og samþykkt var viö 2. og 3.
umræöu málsins í efri deild
og síöan sent til einnrar umr.
í neöri deild og fór hún fram
í nótt.
Nokkrar helztu breyti'ngar
um varasjóðshlunnindin voru
hinsvegar felldar niöur — en
þar sem meiri hluti' þings,
Sósíalistaflokkurinn, Alþýðu-
flokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn hafa lýst sam-
þykki sínu við þessar nauösyn
legu breytingar og aö tiyggi-
lega veröi frá þeim gengiö,
ennfremur að lagöur verði á
hár eigngaukaskattur, ætti
ekkert að vera því til fyrir-
stööu að þessir skattar veröi
samþykktir strax á næsta
þingi. Hefur Sósíalistaflokkur-
ihn skoraö á hina flokkana
aö undirbúa nú þegar og
flytja þessar tillögur sameigin
lega. Reynir þá á alvöru
Framsóknarflokksihs í þessu
máji.
Dýrtíöarfrumvarp ríkisstj órn
arinnar sætti harðvítugustu
mótmælum allra launþega, er
þaö kom fram. I því fólst
12% kaupskerðing á kaupi
launþega, auk þess réttinda-
skerðing og raunveruleg lög-
festing á kaupi.
Nú hefur þihgið gjörsam-
lega umsnúið þessu frum-
varpi, þannig áö öll kaupkúg-
un er gersamlega horfin úr
því, en í stáöinn komin sú
veigamikla og raunhæfa end-
urbót, sem í því felst að fá
3 milljónir króna sem fram-
Tvær flugvélanna sem árás-
ina gerðu fórust.
í fregn frá Moskvá í gær-
kvöld segir að orustuflugvél-
ar rauða hersins hafi lagt til
bardaga við sterkar þýzkar
flugsveitir, er komu til árása
á Kúrsk og Krasnograd. í
bardögum þessum skutu Rúss-
ar níöur 34 þýzkar flugvélar.
Vikuna sem leiö misstu Þjóö-
verjar alls 111 flugvélar i ár-
ásum á Leningrad og Moskva.
Framh. á 4. síðu.
lag til alþýöutryggi'nganna.
i En slíkt framlag hjálpar til
i að' gera fyrirhugaöar endur-
| bætur á þeim kleifar. 1 vetur
■ steindrap þingið tillögu Sósíal
J istaflokksins við' samningu
| fjárlaga um slíka upphæö til
alþýðutrygginganna. Nú hef-
ur hún fengízt fram, um leiö
og öllum kúgunar- og kaup-
lækkunarákvæðum dýrtíöar-
frumvarps stjórnarinnar er að
fullu í burtu kippt. — Er það
vissulega vel farið.
Þegar blaðið fór í pressuna,
hafði ríkisstjórnin enn engar
yfirlýsingar gefið um afstöðu
sína til frumvarpsns. En bú-
izt var vi'Ö samþykkt þess í
nótt og þingslitum 1 dag.
brezka hersins í strandhéruð-
unum, sem nú nálgast bæirrn
Enfidaville. Þangað sækja
einnig sveitir úr 8. og 1. brezka
hemum eftir veginum frá
Kairouan. Enfidaville er 75
km. frá Túnisborg.
Franskar hersveitir sækja
fram í hæöadrögunum fyrir
austan Ousseltiadalinn, og á
nyrztu vígstöövunum þokast
brezki herinn nær Bizerta.
Fréttariturum frá Noröur-
Afriku ber saman um að síð-
asti þáttur Túnisherferðarinn-
ar sé nú að hefjast. Er gert
ráð fyrir að bardagarnir um
síðustu virki fasistaherjanna
í Afriku geti orðið mjög harð-
ir. Hinsvegar er bent á að
Þjóðverjar og ítalir eigi orðið
örðugt um varnil' í lofti, vegna
vöntunar á hernaöarflugvöll-
um, og veiki það mjög alla
varnarstöðu þeirra.
Frá menntamálaráði
Utanfararstyrkjum úthlutað
Magnús Jónsson formaður menntamálaráðs.
Magnús Jónsson prófessor hefur nú verið skipaður formaður
menntamálaráðs.
Menntamálaráð hefur úthlutað styrkjum af fjárveiting-
unni 1943, samkv. 15. gr. II. b til náms íslendinga erlendis.
Þessir hlutu eftirtalda styrki:
Arnaldur Jónsson .... kr. 2400
Ása Jónsdóttir....... — 2400
Ásbjörn Magnússon .... — 1800
Ásgrímur Jónsson .... — 2400
Birgir Halldórsson .... — 2400
Bragi Magnússon ..... — 3600
Drífa Viðar ......... — 2400
Edda Kvaran ......... — 2400
Eðvarð Friðriksson .... — 1800
Eiríkur Ásbjörnsson .... — 3600
Hildur Kalman ....... — 2400
Hilmar Kristjánsson .... — 2400
Hjörtur Eldjárn ..... — 3600
Jakob Erlendsson .... — 1200
Jóhann Jakobsson .... — 3600
Jóhannes Bjarnason .. —' 1800
Jón M. Stefánsson ... — 1800
Lárus Jakobsson ..... — 1200
Magnús Guðmundsson — 1800
Margrét Eiríksdóttir .... — 5000
Nína Tryggvadóttir .... — 3600
Ólafur Jóh. Sigurðsson — 3600
Páll Sveinsson ........ — 1800
Ragnar Jóhannesson .... — 2400
Rögnvaldur Sigurjónss. — 5000
Sif Þórs .............. — 2400
Sigríður Valgeirsdóttir — 2400
Sigrún Helgadóttir .... — 2400
Sigurbjörn Þorbjörnss. — 3600
Sigurður Benediktsson — 3600
Sigurður Finnsson..... — 2400
Stefán Kristjánsson .... — 2400
Unnsteinn Stefánsson . — 3600
Valgeir Einarsson ..... — 1200
Þórhallur Halldórsson . — 3600
Þorsteinn H. Hannesson — 2400
Þorvaldur Skúlason .... — 3600