Þjóðviljinn - 08.05.1943, Page 2
2
Laugardagur 8. maí 1943.
ÞJÓÐVILJIN N
sliMlitnlir
Þingmenn Sósíalistaflokks-
ins í Reykjavík boða til fund
ar í Sýningarskálanum við
Kirkjustræti, miðvikudaginn
12. maí kl. 8% e. h.
/
f
DAGSKRÁ:
Síðasta Alþingi og horfur
í íslenzkum stjórnmálum.
Sigfús Sigurhjartarson:
Lengsta þingið og starf
þess.
Brynjólfur Bjarnason:
Hvað líður samningum um
vinstri stjórn?
Einar Olgeirsson:
Hvað skal gera?
Aðgöngumiðar fást á afgr.
Þjóðviljans, Austurstræti 12 og
á Skólavörðustíg 19 (J. Bj.).
Verð aðeins ein króna.
Aðgangur er öllum heimill.
Sósíalistaflokkurinn.
Alþýduflokkurinn i gapasfokknum IIL
Allf skal fíf vínna ad komasf í rádherrasfólana
Eitt af þeim skilyrðum, sem Sósíalistaflokkurinn hefur sett
fyrir þátttöku í ríkisstjórn, er að róttæk breyting verði gerð á
framfærslulögunum.
Framsókn hefur þverneitað að ganga að þessu skilyrði. Al-
þýðublaðið tilkynnir — vafalaust fyrir hönd Alþýðuflokksins —
að það séu svik við alþýðuna af Sósíalistaflokknum að mynda
ekki „vinstri“ ríkisstjórn uppá þá sltilmála, sem fáanlegir séu.
Alþýðuflokkurinn er m. ö. o. reiðubúinn, samkvæmt þessari
afstöðu blaðs hans, til að ganga að skilmálum Eramsóknar.
jýllir, sem þekktu framkvæmd fátækralaganna fyrir stríð, vita
hve brýn þörfin var á algerum umbótum þá. Það þurfti að gera
þá höfuðbreytingu að framfærslustyrkurinn yrði skoðaður sem
skýlaus réttur hvers manns, er ekki gæti séð fyrir sér og sínum,
en ekki sem ölmusa, er látin væri í té með slíkri harfeýðgi að
margir kysu heldur að svelta heima en að fara á fund fátækra-
fulltrúanna til þess að biðja um þetta „náðarbrauð“. Jafnframt
yrði framfærslustyrkurinn að vera ákveðinn með lögum og það
ríflegum að til framkvæmda nægði, en væri ekki sá sultarpen-
ingur, sem hann enn er.' Og fleiri breytingar þarf að gera.
Þingmenn Sósíalistaflokks-
ins hafa hvað eftir annað bor-
ið fram frumvörp um breyt-
ingar á framfærslulögunum.
En þ j óðst j órnar f lokkar nir
sinntu slíkum tillögum engu.
Þvert á móti samþykktu þeir
1939, — á sama árinu og þeir
veittu auðmönnum skattfrelsi
og lækkuðú laun verkamanna
með valdboöi — að rýra enn
rétt styrkþeganna, þannig að
hægt væri að senda þá hvert
á land sem væri, iil að vinna
hvað sem væri, fyrir hvaða
kaup, sem yfirvöldin ákvæðu,
— þó það svo væri langt fyr-
ir neðan taxta verklýðsfélag-
anna.
Sósíalistaflokkurinn hefin’
auðvitað gert það að skilyrgf
fyrir þátttöku í ríkisstjóm.
aö þessi skemmdarverk þjóð-
.stjórnjartímabilsins væru af-
numin úr framfærslulöggjöf-
inni og hún samtímis endur-
bætt.
Og hver er sá alþýðumaður
eða alþýðukona, sem vill að
framfærslulöggjöfin sé ó-
breytt, réttleysið og harðýðgin
jafn mikið og áður, ef auð-
valdinu skyldi takast að ieiða
aftur kreppur og atvinnuleys'
yfir íslénzku þjóðina eftir
stríð?
Hvenær er tækifæri tii þess
aö knýja fram breytingar á
þessum lögum, ef ekki í sam-
bandi við stjómarsamn.ngana
nú?
AlþýÖa manna hefði þess-
vegna vænzt þess, að Alþýðu
flokkurinn stæöi fasc við hlið
’Sósíalistaflokksins, um kröf-
una um róttæka endurbót á
framfærslulöggjöíinn!, — og
þess hefði virkilcv» þurft mef,
því allir vita hv aíturha’ds-
sim Framsókn er i þessuni
málum, því frá henní hafa
komið tillögumar siðustu ár-
in, um að svifta styrkþega
kosningarétti og klæða þá í
einskonar fangaföt, þeim til
svívirðingar. En það varð öf-
ugt. í stað þess að Alþýðu-
blaðið, ef það vildi framfylgja
vilja verkamanna í Alþýðu-
flokknum, ætti að ráðast á
Framsókn, fyrir að vilja eng-
ar róttækar umbætur í þess-
um mannréttindamálum, þá
ræðst Alþýðublaðið á Sósíal-
istaflokkinn, fyrir að ganga
ekki í ríkisstjórnina með Fram
sókn, án þess að fá nokkru
framgengt í framfærslumál-
unum!
ÞaÖ /fer ekki hjá því, að al-
þýða manna fordæmi þá upp-
gjöf gagnvart afturhaldinu í
Framsókn, sem fram kemur í
þessu máli.
Alþýðuflokkurinn er settur
í gapastokkinn frammi fyrir
alþjóö, fyrir afstöðu sína í
þessu máli. Og það er Alþýðu-
blaðið, sem hefur komið hon-
um í hann, með. staðhæfingu
sinni um það, aö Sósíalista-
flokkurinn hafi lundrað mynd
um róttækrar umbótastjórnar,
meö því aö ganga ekki að skii
málum Framsóknar.
Alþýðuflokkurinn hefur að-
eins eina ’r'r. til þess að losna
úr gapas^ckknum:
Lýsa Tyfir að hann sé
alls ekT" reiðubúinn til að
mynda stjórn með Framsókn
ur>p á M- skilmáia, sem Fram-
sókn vilji ganga að — og
myndun róttækrar umbóta-
stjórnar í landinu, strandi því
enn á því, að Framsókn vilji
’ ' onga inn á þær róttæku
i3-1:-'--n*ur, sem verkalýðurinn
Þjákvæmilegar.
slíkri yfirlýsingu, væri
uo vísu allt skraf Alþýðu-
blað'ains um Sósíaiistaflokki-
inh lýst þvættingur, — en
vilji Alþýðuflokkurinn hlífa
Alþýðublaðinu, með því að
gefa ekki slíka yfirlýsingu, þá
situr hann áfram í gapastokkn
um.
eBcejaz/pósUiszmn
Sunnudagsmorgunn við Nýja bíó.
Bíó-málið
Herra ritstjóri.
Eg sendi þér hjálagðar myndir af
biðröðum við bíó, ef þú vildir birta
þær í bæjarpósti ásamt eftirfarandi
lesmáli.
Bíó-málið svokallaða, þ. e. sam-
þykkt bæjarins að kaupa kvikmynda
húsin Gamla Bió og Nýja Bíó, er á
heldur rólegri ferð.
Eftir að eigendur kvikmyndahús-
anna höfðu um fleiri mánaða skeið
lofað að svara bréfum borgarstjór-
ans, hafa þeir nú loks gefið í skyn
að þeir munu bráðlega láta fram
fara mat á eignum sínum.
Hafa þeir eðlilega lítinn tíma og
því minni áhuga á að sinna slíkum I
málum og sést það bezt á meðfylgj-
andi myndum, en þær eru fra að-
göngumiðasölu kvikmyndahúsanna
einn sunnudagsmorgun.
Annars mun jafnlítill áhugi vera
fyrir málinu hjá yfirvöldum bæjar-
ins, þótt svo hafi atvikazt að bæjar-
stjórn samþykkti tillöguna um
bæjarrekstur kvikmyndahúsanna.
Hefur nu heill stjórnmálaflokkur
klofnað vegna afstöðu eins forvígs-
manns harre um þetta mál.
H.
„Lög og létt hjal“
Pétur Pétursson annaðist útvarps
þáttinn „lög og létt hjal“ síðastliðinn
þriðjudag.'
Hann gat þess að þessi dagskrár-
liður sætti mismunandi dómum eins
og gengur og gerist. Sumum þætti
,,hjalið“ um of, aðrir vildu meira
hjal.
Pétur svaraði þessum aðilum
þannig að báðum var fullsvarað. En
þeir félagar Pétur og Jón Þórarins-
son eiga fullan rétt á, að heyra álit
blaðanna, á þesum nýja þætti
þeirra — lög og létt hjal —. Um
þáttinn er það skemmst að segja, að
'hann er ein hin beszt nýjung,
sem útvarpið hefur hafið, og mun
áreiðanlega stuðla að því að kenna
útvarpshlustendum betur, en ■ orðið
er, að njóta þess sem bezt er í tónlistar
flutningi útvarpsins. Ekki ættu þeir
félagar að skilja, eins og þeir gerðu
í síðasta þætti, þættirnir verða
skemmtilegri ef þéir rabba saman.
Sem sagt haldið þið áfram með
þáttinn — „lög og létt hjal“ — i
Sunnudagsmorgunn við Gamla bíó.
líkum stíl og verið hefur, með því
vinnið þið gott verk.
Þegar séra Sveinbjörn og
Ingólfur fundu hið eilífa
réttlæti!
Hann er stundum skemmtilegur
Tíminn, 'jafnvel þó Þórarinn litli
skrifi greinarnar.
X gær stendur að lesa í leiðara
blaðsins.
„Forráðamenn bænda hafa jafnan
stutt allar þær tilraunir, sem gerðar
hafa verið í þá átt að halda afurða-
verðinu og kaupgjaldinu niðri“.
■ Jú, enginn efast um að satt sé að
þeir h^ia alltaf stutt alla kaupkúg-
unarviðleitni auðvaldsins, Tíma-
menn, — en hvað afurðaverðið snert
ir, þá er dálítið öðru máli um að
gegna.
Eða meinar máske Tíminn að þeir
séra Sveinbjörn og Ingólfur á Hellu
hafi einmitt hitt á hið eilífa réttlæti'
í ákvörðun kjöts- og mjólkurverðs,
þegar þeir voru i kapphlaupinu um
að yfirbjóða hvorn annan hjá skamm
sýnustu bændunum? Og því eilífa
réttlæti, er þá fannst, skuli ekki
hagga þaðan í frá!
Tímamaðurinn kemur glóðvolgur
frá því að sprengja upp mjólkur-
verðið í haust, — með einræðisað-
ferðum og að hætti braskara, —
krossleggur hendurnar á brjóstinu,
gýtur augunum til himins og segir
(með Tímanum í gær):
Sjá, saklaus er ég af vexti dýr-
tíðarinnar, alltaf hef ég stutt allar
tilraunir til þess að halda niðri af-
urðaverðinu!!
•í-
Og ef einhver (t. d. Jóhann Sæ-
mundsson) sannar honum með ó-
rækum tölum, hve miklu meira land
búnaðarafurðir hafa hækkað en
kaupgjaldið, — þá hristir bara Tíma
maðurinn höfuðið með vandlætingar
svip og segir (líkt og séra Svein-
bjöm).
Það er ekkert að marka tölur, ég
breyti eftir heilögum innblæstri
(eins og Hitler í stríðinu), og hið
eilífa, óumbreytilega réttlæti birtist
í mér, þegar kosningahitinn gagn-
tekur mig. Amen! .
Brjóstheilir menn. Tímamenn!
Síðasti solpd ur í 3. ílokki er í dag Happdrættið