Þjóðviljinn - 13.05.1943, Side 1
8. árgangur.
Fimmtudagur 13. maí 1943.
105. tölublað.
SkiRUlagöFi uorn tasislaheriinn
i TinisuiistOiuiuuii lihio
Bandamenn hafa fefeíð 150 þilsund íanga á elnní vífeu.—
Yfirhershöfðíngí fasísfaherjanna. von Arním, handtefeínn
Stjómmálafundur Sósíal-
istaflokksins í Listamannaskál
anum í gærkveldi var ágæt-
lega sóttur, húsfyllir, og sýnir
það vel áhuga fjöldans, að á
fimmta hundrað manns skyldi
kaupa sig inn á þingmála-
fund.
Árni Ágústsson stýrði fund-
inum, sem hófst með því að
alþjóðasöngurinn var leikinn.
Sigfús Sigurhjartarson
skýrðí síðan frá gangi aðal-
málanna á síöasta Alþingi,
einkum dýrtíðarmálanna og
skattamálanna og orsakanna
til rógsherferöar afturhalds-
ins nú á hendur Alþingi.
Brynjólfur Bjarnason rakti
síöan gang samninganna um
Framhald á ,4. síðu.
Skipulagðri vörn fasistaherjanna er lokið á öllum
vígstöðvunum í Túnis, segir í tilkynningu frá aðal-
bækistöðvum Bandamannaherjanna í Norður-Afriku.
Brezkar hersveitir hafa sótt fram eftir ströndum
Bonskagans báðu megin, og mætzt nyrzt á skaganum,
án þess að veruleg mótspyrna væri veitt. Af liði fasista
verjast nú aðeins einangraðar sveitir í fjallahéruðum
skagans.
Bandamenn hafa tekið 150 þúsund fanga síðast-
liðna viku á Túnisvígstöðvunum. í gær var yfirhers-
höfðingi fasistaherjanna í Norður-Afriku, von Amim,
tekinn höndum á Bonskaga.
von Amim er séi’fræðingur
í skriðdrekahernaði og tók við
herstjói’n í Norðui’-Afríku í
marz s. 1. Hann er talinn einn
af hæfustu hershöföingjum
nazista.
Við Zagouan gafst 25 þús-
und manna lið upp fyrir
frönskum hersveitum. Ki’öfð-
ust Frakkar skilyi’ðislausrar
uppgjafar og afhendingu her-
gagna, og var gengið að því.
Fasistum refsað
Fimmtíu j franskir fasistar
hafa verið handteknir í Tún-
is.
Giraud hershöfðingi hefur
lýst því yfir, að allir þeir
Frakkar er haft hafi sam-
vinnu við þýzku og ítölsku
herina verði skoðaðir sem
landráðamenn, og dæmdir
miskunnarlaust eftír því.
t
Harðar loftárásír á Brjansk
og aðrar borgir á
austurvlgstððvunum
1 hernaðartilkymiingum frá
Moskva er aðaláherzlan lögð
á hinar miklu loftárásir, sem
sovétflugvélar gera nú dag og
nótt á samgöngumiðstöðvar
fasistaherjanna á miðvígstöðv
unum.
í gær var tíunda loftárásin
á tíu dögum í roð gerð á
Brjansk, og urðu miklar
skemmdir á járnbrautarstöðv-
um borgarinnar og járnbraut-
arlínum. Arásir voru gerðar
á margar borgir aðrar, þar
á meðal Orel og Karkoff.
Á Kákasusvígstöövuhum
halda áfram haröir bai’dagai’
Sekíír fyrir brof I
á verðlags-
ákvaeðum
Eftirfarandi frétt hefur blað-
inu borizt frá skrifstofu verð-
lagsstjóra.
Eftirgreindar verzlanir hafa
nýlega verið sektaðar sem hér
segir, fyrir brot á verðlagsá-
kvæðum:
Guðni Reyndal & Co (brauð-
gerð) 500 kr. sekt fyrir að selja
of létt brauð.
Verzlun Guðrúnar Þórðar-
dóttur, 300 kr. sekt fyrir að selja
vefnaðarvöru með of hárri á-
lagningu.
Veitingastofan, Bergþórugötu
2. 100 kr. sekt fyrir að selja öl
og gosdrykki of háu verði
Veitingastofan Alma, 200 kr.
sekt fyrir að selja bjór of háu
verði.
Veitingastofan Svalan. 1500
kr. sekt fyrir að selja bjór og
gosdrykki of háu verði.
og þokast sovétherinn stöð-
ugt nær Novoi’ossisk, en Þjóð-
verjar hafa komið upp mjög
fullkomnum varnai’virkjum
umhverfis borgina og hafa úr-
valaliö til vamar.
Æðsti herforingi Breta í för með Churchill
Churchill og Roosevelt Bandarikjaforseti hafa setið á löng-
um viðræðufundum nótt og dag síðan Churchill kom til Was-
hington, segir í brezkri fregn.
í för með Churchill eru fjórir af æðstu hershöfðingjum
Breta. Alan Brooke forseti herforingjaráðsins, Dudley Pount
flotaforingi, Charles Portal flugmarskálkur og Archibald Wav- ;
ell yfirhersiiöfðingi Breta i Indlandi.
Loftárásir á Sikiley
Flugsveitjh’ Bandamanna
gera daglega miklar áxásir á
helztu stöðvar flota og hers
á Sikiley. Hai’ðai' árásir hafa
einnig verið geröar á flota-
stöð ítala á eynni Pantellaria,
milU Túnis og Sikileyjar.
Göring og Himmler í Róm
Göring, yfirmaður þýzka
loftflotans, og Himmler, æðsti
míiður leynilögreglu Þjóð-
verja eru komnh’ til Ítalíu,
og hafa setið á ráðstefnum
við Mússolini í Róm.
Er taiiö að Mussolini krefj-
ist hjálpar þýzka/ flugflotans
til vamar ítalíu, og Himmler
eigi að skipuleggja ráðstaf-
anu* gegn hinrii sívaxandi i>-
ánægju og uppreisnarhreyf-
ingu, sem fai'in sé að láta
alvarlega á sér bera í Italíu.
Tilkynnt hefur verið að Stalín
og Sjang Kájsjek séu látnir
fylgjast með viðræðum Roose-
velts og Churchills jafnóðum.
í bandarískum og brezkum
blöðum er talið að mjög mikil-
vægar ákvarðanir verði teknar
á þessari Washingtonráðstefnu ;
I bandarískri útvarpsfregn í
gærkvöld segir að verið sé að ,
skipuleggja innrásina í Ev-
rópu.
Adalfundur Fcrdafélagsíns
Félagið telur nú 4247 félagsmenn
Næsta árbök verður um iRangárvaliasýslu,
samin af Skúla Skúlasyni ritstjóra
Aðalfundur Ferðafélags íslands var haldinn í Oddfellow-
húsinu s. 1. þriðjudagskvöld.
Félagið fer nú ört vaxandi og nemur félagstala þess nú
4247 félagsmönnum. Vöxtur þess á síðasta ári var um 15%.
Félagið hefur nú ákveðið tvær næstu árbækur sínar. Verð-
ur önnur rituð af Skúia Skúlasyni ritstjóra, en hin af Gunnari
Gunnarssyni skáldi.
Forseti félagsins, Geir Zöega,
gaf ýtarlega skýrslu um starf
félagsins á s. 1. ári.
Stjórnin var öll endurkosin
Geir Zoéga forseti og Steinþór
Sigurðsson varaforseti. Úr
stjórninni áttu að ganga Gísli:
Gestsson, Helgi Jónasson frá
Brennu, Jón Eyþórsson, Lárus
Ottesen og Pálmi Hannesson, en
þeir voru allir endurkosnir.
FERÐALÖG
Farnar voru 22 ferðir á s. 1.
sumri og voru þátttakendur í
þeim samtals 625. Er það nokkru
minni þátttaka en áður, sem
stafar aðallega af annríki
manna og ónógum bílakosti til
ferðanna. Félaginu hefur enn
ekki tekizt að fá fluttar inn 2
langferðabifreiðar, sem því er
mjög nauðsynlegt að fá til ferða
laganna.
ÁRBÆKUR
Þegar hefur verið ákveðtö
hverjar verða næstu árbækur
félagsins. Næsta árbók fjallar
um Rangárvallasýslu og skrifar
Skúli Skúlason ritstjóri hana.
yerður henni skipt niður í 55
höfuðþætti: 1. Landmanna-
hreppur og Holtin, 2. Rangár-
vellir, Hekla og Rangárvalla-
afréttir, 3. Landeyjar, 4. Hvol—
hreppur og Fljótshlíð og 5. Eyja-
fjöll og Þórsmörk. Verður kafl-
inn um Heklu skrifaður af Guð-
mundi Kjartanssyni jarðfræð-
ingi, sem hefur sérstaklega
kynnt sér Heklu og umhverfi
hennar og sögu Heklugosanna.
Óskar félagið þess, að allir
sem eiga góðar landlagsmyndir
úr Rangárvallasýslu, láti félags-
stjórnina vita og verður þeim
greitt fyrir myndirnar.
Árbók næsta árs á að fjalla
um Fljótsdalshéraðið og verður
hún skrifuð af Gunnari Gunn-
arssyni skáldi að Skriðuklaustrí.
’ FJÁRHAGUR FÉLAGSINS
GÓÐUR
Félagið á nú 15 þús. kr. í -sjóð-
um. Auk þess eru nú sæluhús-
in öll skuldlaus eign félagsins,
en þau kostuðu rúmar 40 þús.
kr.
Á síðastliðnu ári greiddi fé-
lagið 50—60 þús. kr. til ferða-
laga.
Útgáfukostnaður síðustu ár-
bókar nam um 30 þús. kr.
Nýtt sæluhús var reist við
Hagavatn á s. 1. sumri. Útsýnis-
skífa var gerð fyrir Þingvelli,
en henni hefur þó eigi verið
komið fyrir þar enn þá. Útdrátt-
ur úr Islandskvikmynd Damms
sjóliðsforingja hefur verið úti
um land. Verið er að prenta
nýtti íslandskort í Washington,
en fyrir slíkt hefur verið mikil
þörf undanfarið.
Á fundum félagsstjórnarinnar
hefur verið rætt um byggingu
nýrra sæluhúsa í umhverfi
Langjökuls og á Þórsmörk, en
ekki þótt tiltækilegt að ráðast í
þær framkvæmdir vegna kostn-
aðar.
f
/