Þjóðviljinn - 22.06.1943, Side 1
Muníð skemmfunina í hvöld fyrír Sovéfsöfnunína
í dag eru tvö ár liðin síðan Þýzkaland Hitlers réðist á Sov-
étríkin.
Tvö ár síðan sterkasta herveldi heimsins réðist á verka-
mannaríkið, ríki sósíalismans, í þeim tilgangi að mola það sund-
ur og leggja síðan undir sig allan heiminn.
Þýzku nazistarnir ráðgerðu að leggja Sovétríkin undir sig
á nokkrum mánuðum, en í dag, eftir tveggja ára styrjöld er
Hitler fjarri þessu takmarki en nokkru sinni fyrr,
í' tvö ár hefur hinn rauði her rússneskra verkamanna og
bænda staðið svo að segja einn gegn hinum þýzka landher og
með hetjubaráttu sinni brotið sóknarmátt hans á bak aftur og
þar með veitt hinum sameinuðu þjóðum ómetanlegan tíma til
þess að búa sig undi úrslitasóknina til þess að leggja þýzka
fasismann að velli.
Fyrir hetjubaráttu sína þessi tvö ár liafa sovétþjóðirnar
áunnið sér aðdáun og virðingu alls heims.
Orustan um Stalingrad var orustan um Evrópu. Ósigur
Hitlers við Stalingrad var upphafið að falli þýzka fasismans.
Þegar fregnin um árás Hitl-
ers á Sovétríkin barst út um
heiminn 22. júní fyrir tveim
árum síðan, voru þeir marg-
ir, sem álitu, að þýzki her-
inn, sem fram að þeim
tíma virtist ósigrandi, myndi
ekki verða lengi að brjóta
viðnám rauða hersins á bak
aftur.
Sovéthatararnir höfðu
dyggilega unnið að útbreiðslu
þeirrar skoðunar að Sovétþjóð
irnar væru undirokaðar og
myndu grípa fyrsta tækifæri
til þess að steypa kúgunar-
stjórninni af sér- Sovéthatar-
ar höfðu sagt með virðuleik
þess manns, sem guð hefur
útvalið til að bera sannleik-
anum vitni, að rauði herinn
vær bara ónýtt skrap.
En Hitler og sálufélagar
hans urðu fyrir hinum sár-
ustu vonbrigöum. Engin
fimmta herdeild fannst í
Sovétríkjunum, þótt þær
hefðu auðveldað Hitler sigur-
inn í lýðræðisríkjum Vestur-
Evrópu. Allar þjóðir Sovét-
ríkjanna sameinuðust sem
einn maður til varnar gegn
hinum þýzka innrásarher. Að
vísu flæddi þýzki herinn yfir
mörg frjósömustu héruð Sov-
étríkjanna og gaf út tilkynn-
ingar um að nú væri aðeins
eftir að uppræta síðustu leyf-
ar rauða hersins. En rauði
herinn reyndist ósigraður og
hélt áfram að berjast. Og í-
búar hernumdu héraðanna
mynduðu skæruliðasveitir og
hófu hetjubaráttu sína, stað-
ráðnir í því að hætta eigi fyrr
en fjandmennirnir hefðu ver-
ið hraktir með öllu burt úr
Sovétríkjunum.
Með árás sinni á Sovétrik-
in sameinaði Hitler öll sterk-
ustu öfl lýðræðisins í heim-
inum til baráttu gegn fasism-
anum. England hét Sovétríkj-
unum tafarlaust fullum
stuðningi í stríðinu gegn
Hitler og nokkru síðar sam-
j einuðust Bandaríkin einnig í
| baráttunni gegn heimsvalda-
| stefnu þýzka fasismans og
I Framhaíd á 4. síðu.
500 þúsund námu-
verkamenn í Banda-
ríkjunum gera verkfail
aðnýju. Yfirvofandi
verkfall einnigí stál-
iðnaðinum
Þær fréttir bárust frá London
í gærkvöld að námuverkamenn í
Bandaríkjunum hefðu aftur lagt
niður vinnu. Voru það 500 þús-
und námumenn sem taka þátt í
verkfallinu.
Þetta er þriðja verkfall námu-
manna á skömmum tíma.
Jafnframt var frá því sagt að
yfirvofandi væri einnig verkfall
í stórum hluta stáliðnaðarins.
Hér er um mjög umfangsmikl
ar vinnudeilur að ræða, sem
Fyrsfa dag þíngsíns var rætf um
sjálfsíædí Islands
Hið almenna kennaraþing, sem haldið er þessa dagana hér
í bænum til þess að ræða um tunguna og þjóðernið, var sett
í hátíðasal Háskólans s.l. laugardagskvöld.
Ingimar Jóhannesson, forseti Sambands ísl. barnakennara,
setti þingið með stuttri ræðu.
í setningarræðu sinni gerði
hann grein fyrir aðalverkefni
þingsins: að ræða um verndun
íslenzkrar tungu og þjóðernis.
Því næst flutti norski blaða-
íulltrúinn S. A. Friid ræðu um
frelsisbaráttu norsku kennar-
anna og norsku þjóðarinnar allr-
ar. Skýrði hann þá frá hvernig
öll norska þjóðin, bæði börn og
fullorðnir, hefur sameinazt í bar
áttunni fyrir frelsinu og norskri
menningu. Var ræða hans hin á-
Framhald á 4. síðu.
geta haft alvarleg áhrif á hern-
aðarframleiðslu Bandaríkjanna,
takizt ekki að leysa þær á
skömmum tíma.
Loffárás á Frícd-
ríchshafen
Fjöldi Lanchesterflugvéla
gerðu í gær loftárás á þýzku
borgina Friedrichshafen. Er
þetta fyrsta loftárásin á þá borg
ef undanskildar eru árásir
franskra flugvéla fyrsta styrj-
aldarárið.
Arásin beindist aðallega gegn
verksmiðj uhverfum borgarinnar
þar sem framleidd eru radío-
miðunartæki o. fl. Voru verk-
smiðjurnar lagðar í rústir.
í Friedrichshafen hafði hið
þekkta loftfar „Zeppelin greifi“
bækistöð sína fyrir stríð.
ÁVABP
Síðan söfnunin handa Rauða krossi Ráð-
stjórnarríkjanna hófst, hafa safnazt um 135
þúsund krónur, eða rúmlega andvirði 5000
sterlingspunda, en það er sú upphæð, sem
forstöðumenn söfnunarinnar settu í upphafi.
Þar sem þessu marki hefur nú verið náð,
hefur forstöðunefnd söfnunarinnar ákveðið
að ljúka hinni almennu fjársöfnun formlega
og valið til þess daginn í dag, þegar tvö ár
eru liðin frá því, er innrás var hafin í Ráð-
stjórnarríkin. Jafnframt vill nefndin taka það
fram, að sérhverjum þeim, er þátt hefur
tekið í söfnuninni, er frjálst að halda henni
áfram, í samráði við* nefndina, sem mun sjá
um fyrirgreiðslu söfnunarf járins, þar til söfn-
uninni er að fullu lokið.
Nefndin leyfir sér loks að þakka hinum
fjölmörgu mönnum og konum, er á einn
eða annan hátt hafa léð söfnuninni lið,
Reykjavík, 22. júní 1943.
Söfnunarnefndin.
Fyrirskipun V. Þór um að kaupa síld til ríkis-
verksmiðjanna fyrir lægra verð, er liður í
skemmdarstarfi Framsóknar gegn sjávarútveg-
inum, sem verksmiðjustjórnin á að
virða að vettugi.
Það hefur vakið liina mestu undrun og gremju, að Vil-
hjálmur Þór, atvinnumálaráðherra, hefur þvert ofan í tillögur
meirililuta ríkisverksmiðjustjórnar fyrirskipað, að ríkisverksmiðj
urnar skuli kaupa síld lægra verði en aðrar síldarverksmiðj-
ur í landinu. í þessu fer hann eftir tillögum formanns verk-
smiðjustjórnarinnar, en enginn vafi er á því, að hér er Fram-
sóknarflokkurinn að verki. Framsóknarflokkurinn sér þarna leik
á borði að láta ráðherra sinn, V. Þór, ríða á vaðið með þá kaup-
lækkun, sem hann dreymir um að koma fram, og það á að
byrja á hlutarsjómönnum þeirra skipa, sem leggja upp hjá síld-
arverksmiðjum ríkisins.
Framsókn telur það líka mæla
með þessu háttalagi, að ef fyrir-
skipunum V. Þór sé hlýtt, þá
tækist þar með að lama stórkost
lega rsl. útveg, en þó einkum eig
endur smærri skipa, því að
stærri skipin komast að hjá
einkaverksmiðj unum.
Það eru auk sjómannanna eig
endur skipa innan við 50 tonn
brúttó, sem Framsókn miðar nú
skeytum sínum að, það eru smá-
útvegsmennirnir um allt land,
'sem einkum verða hart úti ef
Framh. á 2. síðu