Þjóðviljinn - 08.07.1943, Page 2

Þjóðviljinn - 08.07.1943, Page 2
2 ÞJÓÐVILJI-'N Fimmtudagur, 8. júlí 1943 TILKYNNING um breytingar á Fossvogsleið frá og með föstudegin- um 9. þessa mánaðar. Lækjartorg — Fossvogur: A. Um Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Múlaveg, Laugarásveg, Langholtsveg og Breið- holtsveg, — til baka um Sogamýrarveg, Tunguveg, Bústaðaveg, Grensásveg, Suður- landsbraut, Laugaveg, Lækjartorg — kl. 8, 13.20, 15.20, 17.20, 19.20, 21.20, 23.20. B. Um Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, Grensásveg, Bústaðaveg, Tunguveg, Sogamýr- arveg — og til baka um Breiðholtsveg, Lang- holtsveg, Laugarásveg, Múlaveg, Suðurlands- braut, Laugaveg, Lækjartorg, — kl. 14.20, 16.20, 18.20, 20.20, 22.20. STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR H.F. er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. sept. næstk. og tekur skrifstofa mín við umsóknum. Borgarstjórinn í Reykjavík, 6. júlí 1943. Bjarni Benediktsson. Uppboð verður haldið á Korpúlfsstöðum þriðjudaginn 13. þ. m., og hefst kl. 5 e. h. Þar verða seldar landbúnaðarvélar og tæki, ef við- unandi boð fást. Greiðsla við hamarshögg. Skrá yfir munina sem seldir verða, fæst á skrif- stofum bæjarins, og á Korpúlfsstöðum eru munirnir til sýnis. Borgarstjórinn. Ungllnga vantar til að bera ÞJÓÐVILJANN til kaupenda. Afgreiðslan, Austurstræti 12. Sími 2184. .Anauð vér hötum. því andinn er frjáls, hvort orðum hann verst eða sverðunum stáls' Málgagn de Gaulle i London bannað Brezka ríkisstjómin hefur bannað útkomu „Le Marseille- aise“, málgagns frönsku þjóð- frelsisnefndarinnar í London, með því að neita því um pappír. Sem önnur höfuðástæða er til- fært að blaðið hafi verið fjand- samlegt í garð Bandaríkja- manna. Þjóðviljinn birti nýlega grein úr þessu blaði, einmitt um af- stöðu Bandaríkjanna til frelsis- fylkingar Frakka. Það er auðséð að ekki má mikið segja, svo það fari ekki í taugarnar á afturhald inu í Bandaríkjunum og Bret- land.i. Hinsvegar virðist ekki skorta pappír í Bretlandi í þau fasista- > blöð, sem t. d. afturhaldsklíkan í hinni svokölluðu „pólsku stjórn“ þar gefur út. Þar eru bandamenn Breta, Rússar, dag- Er leyfilegt að leggja ekki útsvar á útborgaðan arð hlutafélaga til hlut hafanna? Háttvirti ritstjóri! Eg óska eftir að fá að birta eftir- farandi spumingu í Bæjarpósinum. og jafnframt svar við henni við fyrsta tækifæri. Er það lögum samkvæmt, þá er niðurjöfnunarnefnd leggur ekki út- svar á arð útborgaðan af hlutafélög- um (á hér sérstaklega við útgerðar- félög) til félaga sinna á árinu? Eg vil taka til dæmis: Fram- kvæmdastjóri fyrir fyrirtæki er hlut- hafi í vikðomandi félagi. Hann hefur árslaUn krónur 30000,00 og hefur fengið í arð á árinu 60 þús. krónur, árstekjur samtals 90 þús. krónur. Er nú lagalega rétt að framkvæmda- stjórinn borgi aðeins útsvar af 30 þús.? Því hefur verið haldið fram af við- komandi aðilum að hluafélagið borg aði úsvar fyrir þann arð sem það horgaði út á árinu. Því spyr ég, að ég hef staðið í þeirri meiningu, að skattaívilnanir togarafélaga væru það miklar að þau vart borguðu út- svör fyrir sjóðsaukningum hvað þá arðsútborgunum. Eg óska því herra ritstjóri að þér upplýsið þetta mál fullkomlega, þegar þér hafið tæki- færi til. Tilefnið er að í dag kom út útsvarsskráin í Hafnarfirði og er umrætt atriði þar að sjá í fyrsta sinni, jafnframt því að útsvarsstigi okkar fær 10% hækkun yfir Reyk- víkinga. Hafnarfirði 30. júní 1943. A. Svar ritstjóra! Bæjarpósturinn hefur la^t þessar spurningar fyrir fulltrúa Sósíalista- flokksins í niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur og hann hefur gefið þau svör, að umrædd álagningarregla muni hafa verið upp tekin í þeirri nefnd fyrir nokkrum árum, sennilega lega svívirtir og tekið undir við áróður Göbbels. — En afturhald ið virðist ekki vera eins við- kvæmt fyrir pappírsnotkuninni, þegar tilgangurinn er svona þokkalegur. * Það er freistandi að tilfæra í sambandi við þetta bann á hinu þróttmikla og rökvísa blaði frjálsra Frakka í London um- mæli, sem blaðið Dagur á Akur- eyrir hefur nýlega um slíka sem þá, er nú hafa bannað það. Þau hljóða svo: „Það er kostur við stjórnmála- menn enskumælandi þjóðanna, að þeir meta sanngirni og þrótt í röksemdaleiðslum um samn- ingamál meira en þann rétt, sem leiðir af hernaðarmætti stór- þjóða.“ í þeim tilgangi, að koma í veg fyrir tvöfalda álagningu á hlutafjárarð. Að sjálfsögðu verður reglan algerð endileysa, þegar um fyrirtæki er að ræða, sem komast yfir 200 þúsund í hreinar tekjur, og hefur yfirleitt orð- ið til þess hér í Reykjavík, að ýta undir það, að einkafyrirtækjum sé breytt í hlutafélög. Hinsvegar hefur hver niðurjöfnunarnefnd lagalegan rétt til að ákveða eftir eigin vild gjaldstiga, er hún fer eftir við álagn- jngu útsvaranna. Ljótur atvinnuvegur. Herra ritstjóri! Má ég biðja Bæjarpóstinn að birta eftirfarandi línur. Vegfarendur í bænum og nágrenni hans hafa oft undanfarið mætt setu- liðsmönnum á hestum sem íslending- ar hafa leigt þeim. Margir þessara manna hafa farið vel með hestana og engu ver en hin- ir íslenzku eigendur þeirra, en með- ferð sumra þeirra á hestunum hefur verið þannig að mönnum hefur blöskrað á að horfa. Hestarnir hafa verið barðir og píndir áfram. Setuliðsmönnunum hafa oft og ein att auðsjáanlega verið leigðir þreytt ir vagnhestar til reiðar. Eg er þeirrar skoðunar, og ég veit að margir eru mér sammála í því efni, að þeir menn, sem leigja þreytta vagnhesta til reiðar, aðeins til þess að fá fyrir það nokkrar skitn ar krónur, ættu alls ekki að hafa rétt til þess að eiga hest. Slíkir menn hefðu gott af því að vera látnir í grjótvinnu eða eitthvað þess háttar og þess á milli látnir hlaupa í hringi suður á íþróttavelli, barðir áfram með svipum. — Þeir hafa þó málið til þess að skýra frá því á eftir hvemig þeim geðjaðist að slíkri meðferð. Nú vil ég spyrja: Eru engin lög, sem ná yfir þessa hestaníðinga? Eg á þar við íslendingana, sem leigja hestana. Framh. á 4. síðu Saga um tvö ðrcígabðrn Öreiga- og sveitarómagason- urinn hlustar þegjandi í fátæk- legri baðstofunni á tal lúinna foreldra. Faðirinn segir: Faðir minn vann að jarðabótum í Dal í áratugi. Eg vann að jarðabótum í Dal. Eg er ekki að segja að ég hafi verið duglegur. En pabbi var duglegur „Túnið í Dal ber vott um verkin hans föður míns, og reyndar mín líka, þó lítið sjái það á mér.“ Árni stórbóndi í Dal fékk jarðabótaverð- laun úr sjóði Kristjáns ní- unda áður en hann dó. Björn Árnason stórbóndi í Dal er arftaki föður síns og öreigasonurinn lendir þar meira af ásetningi en af tilviljun hrakningsins. En samtalið í baðstofunni hefur áhrif á allt líf hans og allan ásetning. Hann ætlar að greiða fá- tækraskuldina. — Bjöm í Dal á dóttur, Bergþórú, en smábóndinn og öreiginn í næsta koti á líka litla stúlku: „Stúlkuna frá heita landinu“, Dísu, með har- monikuna og grátandí gleð ina. Eyvindur velur, en á- setningur hans kornungs hefur áhrif á valið. Saga hins nýja kvemáthöfund- ar okkar Oddnýjar Guðmunds- dóttur: SVO SKAL BÖL BÆTA er frásögnin um þetta. — Hún er ógleymanleg smámynd úr ís- lenzku sveitalífi, streymd upp- reisnarþrá öreigasonarins, merl- uð hugðnæmum hrifum sak- lausrar ástar tveggja umkomu- lausra barna. Ef þú lest þessa sögu skilur þú betur hinn umkomulausa vegfaranda, sem þú mætir. Ef þú lest hana dæmir þú ekki fyrr en þú hefur kafað dýpra. „Svo skal bðl bæta“ er frumsmíð nýrrar skáldkonu, — og við eigum þær ekki svo margar. Gáfaðar stúlkur og gáf- aðir piltar taka með sér góða bók í sumarfríið. Inc. Dómar. í fyrradag var kveðinn upp dómur yfir manni nokkrum, sem hafði stolið veski með 100 krónum o. fl. smádóti — peningunum eyddi hann í óreglu. Var hann dæmdur í 30 daga fang- elsi skilorðsbundið og sviptur kosn- ingarétti og kjörgengi. Þá var og í gær kveðinn upp dóm- ur yfir öðrum manni, sem hafði tek- ið við 175 kr. af hermanni og lofað að útvega honum vín, en skilaði hvorki peningunum né víni. Var hann einnig dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið og svipt ur kosningarétti og kjörgengi. oDœjax^áyfa'i'Z'ítin I dag er nœstsíöasti söludapr í 5. flokki Happdrættið

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.