Þjóðviljinn - 10.08.1943, Page 2

Þjóðviljinn - 10.08.1943, Page 2
s Þ5OSv íLö iím xi >riðjudagur 10. ágúst 1943 tliMingarsjóðnr Guðmnndar J. ðsharssonar loftskeytamanns Hjónin Anna Jónsdóttir og Daníel Eggertsson, Hvallátrum, Kauðasandshreppi í Barðastrandarsýslu, hafa stofnað minning- arsjóð um fósturson sinn Guðmund J. Óskarsson loftskeyta- ntann, sem fórst með togaranum Jóni Ólafssyni síðastliðið haust. Ber hann nafnið: Minningarsjóður Guðmundar J. Óskarssonar loftskeytamanns. Er stofnfé sjóðsins að upphæð 5 þúsund kr. og var hann afhent- ur fjársöfnunarnefnd dvalar- heimilisins 5. ágúst, en þá var 25 ára afmælisdagur hins drukknaða sjómanns. Tilgangur sjóðsins á að vera sá, að styðja og styrkja fátæka aldraða sjó- menn, sem dvelja á heimilinu og verður nánar kveðið á um það í reglugerð fyrir sjóðinn, er samin verður síðar á þessu ári. Sjóðurinn tekur við minningar- gjöfum og öðrum gjöfum. Þorskabítur enn. Þá hefur fjársöfnuninni bor- izt 3 þúsund króna gjöf frá Þorskabít, en hann hefur áður gefið fleiri en eina stórgjöf til dvalarheimilisins. Gjöf þessari skal varið til minningar um bókamanninn Jón Þorvaldsson, Stað á Reykjanesi, enda verði nafnið við hann kennt. Aðrar gjafir sem fjársöfnunar nefndinni hafa borizt frá síð- ustu birtingu eru þessar: Kaupfélag Borgafjarðar. Borg arfirði eystra kr. 250,00. Safnað af Vilhjálmi Þór Valdemarssyni kr. 117,00. Safnað af Morgunbl. kr. 200,00. Til minningar um Þór arinn Ásgeirsson kr. 500,00. Út- gerðarfélagið Helgafell kr. 5000,00. Brynjólfur Gíslason, Bjargarstíg 2 kr. 100,00. Ónefnd ur kr. 120,00. Útvegsbankinn kr. 50 000,00. Með þökkum til allra gefenda. Bjöm Ólafs Mýrarhúsum. f Meísfaramóffd Framh. af 1. síðu. gerði Gunnar tilraun til að hækka met sitt í beggja handa kasti (samanlagt) og tókst með ágætum. Setti hann nýtt glæsilegt met með 26,22 m.; fyrra metið var 24,21 m. Hástökk 1. Oliver Steinn (FH) 1,80 m. 2. Sigurður G. Norðdahl (Á) 1,70 m. 3. Brynjólfur Jónsson (KR) 1,65 m. íslandsmeistari 1942: Jón Hjartar (KR) 1,65 m. 800. m. hlaup 1. Sigurgeir Ársælsson (Á) 2:5.0 mín. 2. Hörður HafliSason (Á) 2:7.1 mín. . 3. Árni Kjartansson (Á) 2:10.9 mín. íslandsmeistari 1942: Sigur- geir Ársælsson (KR) 2:4.5 mín. Spjótkast 1. Jón Hjartar (KR) 53.19 m. 2. Oddur Helgason (Á) 43.72 m. 3. Siguröur Finnsson (KR) 41.31 m. í slandsmeistar i 1942: Jón Hjartar (KR) 52.27 m. Framh. á morgun. Áskriftarsími Þjööviljans er 2184 KVENBLÚSSUR úr siki og prjónasilki. Verzlim H. Toft Skólavörðustíg 5 Sími 1035 52 nxnxmmxmía 52525152535252525252120 Hyndainnrammanir Sverrir Vörumóttaka til: Ingólfsfjarðar, Norðurfjarðar, Djúpuvíkur, Gjögurs, Drangsness, Hólmavík- ur, Óspakseyrar, Borðeyrar, Hvammstanga, Blönduóss og Skagastrandar eftir hádegi í dag Höfum opnað myndainn- römmunarvinnustofu. Alls- konar myndir og málverk teknar til innrömmunar. Fljót afgreiðsla. Vönduð vinna. Hédfnshðfðí h, t Aðalstræti 6 B. Sími 4958. »»>»♦»♦»♦>«♦»♦»♦♦♦♦♦♦♦♦»« 000000000««00<>0b0 DAGLEGA NÝ EGG, soðin og hrá Kaf fisalan Hafnarstræti 16.; VCXWft Morgunblaðið hneykslað Morgunblaðið er ákaflega hneyksl- að yfir því, að Þjóðviljinn hefur hald ið því fram, að stjórn síldarverk- smiðja ríkisins hafi sýnt óbilgimi í viðskiptum sínum við kyndarana og þar með orðið til þess að stöðva verksmiðjurnar og valda verulegu tjóni. Hvað annað, hví skyldi Morgun- blaðið ekki vera hneykslað, það hef- ur ætíð hneykslazt á öllum óskum og kröfum verkamanna um launabætur, það hefur ætíð gefið atvinnurekand • anum réttinn, þótt hann hafi verið með-ölíu réttlaus, og því skyldi blað- ið fara að bregða vana sínum í þessu máli. Það er fjarri því að þessi afstaða Morgunblaðsins sé óeðlileg. Hún sannar bara þá staðreynd, að verk- efni blaðsins er að berjast fyrir hags munum stóratvinnurekenda gegn hagsmunum verkamanna, og þessa baráttu heyir það vissulega af þó nokkrum myndarskap og lagni, eink um hefur því tekizt. furðu vel að villa á sér heimildir og telja mönn- um trú um að það sé blað allra stétta En virðulegi ,,kollega Moggi“, tím ar blekkingarinnar eru brátt á enda, íslenzkur verkalýður er nú búinn að læra stafrof stéttabaráttunnar, og allt þitt hjal um vinsemd við allar i stéttir hljómar í eyrum hans sem fals og fláttskapur, og .hvað verður þá um þína dýrð? Komdu með dæmi ef þú getur? Morgunblaðið segir: „Samningar eru í þeirra augum (þ. e. kommún- ista) einskisvirði. Þar ríkirsjónarmið nazista og annarra einræðisherra, sem segja að ekki beri að hika við að rjúfa samninga, ef það er hagur fyrir þá í augnablikinu". Vilt þú ekki, Moggi góður, sanna með dæmum að þetta sé skoðun þeirra manna, sem þú kallar ís- lenzka kommúnista, og viltu ekki nefna dæmi þess, að flokkur sá, sem þú kallar Kommúnistaflokk en heit- ir Sósíalistaflokkur, Ifafi rofið gerða samninga. Þú hefur oft talað um heiðvirði í blaðamennsku svo að þér hlýtur að vera ljúft að nefna óyggj- andi dæmi máli þessu til sönnunar. Komdu bara með dæmin og vertu ekki með undanfærslu. Ef þú getur það ekki, þá fara menn að neyðast til að trúa að leiðarar þínir séu bara bull og þvættingur. Þér hefur láðst að svara En úr því við erum farnir að ræða við þig í allri vinsemd, ,,kollega Moggi“, þá verður ekki hjá því kom- [ izt að minna þig á, að síðastliðinn föstudag buðum við þér í rökræður um sósíalisma. Að gefnu tilefni var þér boðið að gagnrýna og hrekja, ef þú gætir og þyrðir, meginkenningar sósíalista, t. d. þá kenningu, að at- vinnulífið ber að reka samkvæmt á- ætlun, og með það sjónarmið fyrir augum að fullnægja þörfum fjöldans, en að gróðasjónarmið einstakling- anna verði hins vegar að víkja. Þá var þess og óskað, að þú gerðir grein fyrir hvaða ráðum þú vildir beita til að koma í veg fyrir kreppu og til að koma í veg fyrir at.vinnuleysi hér heima að stríðinu loknu, og hvað þú teldir heillavænlegustu leiðina til að koma í veg fyrir stríð. Þú mátt vera viss um, að fjöldi manns bíður eftir að fá að sjá svör þín. Ef þau koma ekki, þá fara menn að trúa, að þú vitir sjálfur að þú ert að verja skipulag í atvinnu- og fjár- málum sem er orðið úrelt og dauða- dæmt. Við bíðum nú og sjáum hvað set- ur. Við erurn tilbúnir í rökræðurnar þegar þér þóknast að tala. Þér hefur láðst að svara til þessa, ef til vill er þér svarafátt, ef til vill þorir þú ekki að svara. Flokklaus blöð og blaðlaus flokkur Öll blöð Alþýðuflokksins hafa nú tekið upp harðvítuga baráttu gegn stefnu Guðgeirs Jónssonar og ann- arra mætra Alþýðuflokksmanna í bandalagsmálinu. Þau hafa meira að segja tekið upp baráttu gegn Sam bandi ungra jafnaðarmanna, sem gerzt hefur aðili að stofnun banda- lagsins, og gegn miðstjórn Alþýðu- flokk^ins, sem búin var að ákveða að gerast aðili að bandalagsstofnun- inni. Þá eiga þeir Alþýðuflokks- mennirnir Jón Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Alþýðusambandsins og Helgi Guðmundsson varaformað- ur Dagsbrúnar, sem báðir eru ein- lægir Alþýðuflokksmenn ekki upp á pallborðið hjá Alþýðublaðinu og öðrum blöðum Alþýðuflokksins. Dag eftir dag ráðast þessi blöð með heift- úðlegum svívirðingum á þá stefnu sem þessir menn tóku í málum Dags brúnar, í fullu samkomulagi við menn úr Sósíalistaflokknum. Og loks berst öll þessi blaðahersing við stefnu Alþýðuflokksins í sjálfstæðis- málinu. Vissulega eru þessi blöð án flokks, þau hafa verið tekin af Alþýðu- flokknum eins og Alþýðubrauðgerð- in og Iðnó af verklýðsfélögunum. Það er hægt að stela fleiru en hús- um. Og vissulega er Alþýðuílokkur- inn blaðlaus, nem^ hvað blöð sósíal- ista túlka stefnu hans. Þetta er ósköp einfalt, bara að vera á móti kommúnist- um Hér eru tvær sögur, ekki þjóðsög- ur, heldur bókstaflega sannar. Fyrir mörgum árum kom ungur maður á þing. Hann var Framsókn- armaður. Mann vildi kynna sér þing- mál gaumgæfilega, en þóttist naum- ast hafa tíma til að gera það svo vel sem hann vildi.' Hann tjáði einum af forustumönn- um flokksins vandræði sín og fékk , þetfa svar: ,,Hö, vertu ekki að eyða tíma í að setja þig inn í málin, þetta er ósköp einfalt, bara að vera á móti öllu sem kemur frá íhaldinu". Hin sagan er svona: íslenzkur stúdent í Kaupmanna- höfn, sem ölkær var úr hófi fram, mætti jafnan ölvaður á stúdentafé- lagsfundum. Síðar sagði hann svo frá, að sjaldan hefði hann fylgzt með málum á fundum þessum, en atkvæði greiddi hann ætíð. Hann gætti að hvernig Valtýr Guðmunds- son greiddi atkvæði, og lét ekki bregðast að vera á móti Valtý. Alþýðublaðið hefur nú tekið upp háttu þessara manna. Ritstjóri þess hugsar sem svo: Þeta er ósköp einfalt, bara að vera á móti kommúnistum. Eftir þessari einföldu reglu hefur . ( TÉKKÓSLÓVAKÍSK HERSVEIT BERST MEÐ RAUÐA HERNUM L. Svoboda ofursti, yfirmaður tékkoslóvakísku hersveitarinnar, er berst með rauða hernum, ritar í rússneska blaðið Krasnaja Svesda: „Tékkoslóvakíska hersveitin, sem berst gegn Þjóðverjum á austurvíg- stöðvunum er tákn einingar slav- nesku þjóðanna í baráttunni gegn fasismanum, er stöðugt hefur fylgt árásar- og landvinningastefnu. Þessi eining er ekki til orðin vegna hinnar sameiginlegu hættu og sameigin- legra hagsmuna í styrjöldinni, held- ur er hún eðlileg tjáning skyldleika slavnesku þjóðanna, friðsemi þeirra, sameiginlegu þjóðareðli og hugsun- arhætti náskyldra þjóða. Skyldleiki þjóða okkar kemur einnig fram í sameiginlegri menn- ingu, skáldskap og bókmenntum. Ættjarðarstyrjöldin mikla 1812 vakti bergmál meðal tékknesku þjóðarinn- ar og í tékkneskum bókmenntum. Tékkneska skáldið Jan Kolar lýsir í leiftrandi myndum vöm rússnesku þjóðarinnar gegn hinum erlenda inn- rásarher og segir að „skin eldslog- anna í Moskva muni lýsa slavnesku þjóðunum veginn". í frelsisstríðum Balkanþjóðanna á öldinni sem leið tók fjöldi tékk- neskra sjálfboðaliða þátt, með her Suður-Slavanna, og almenningsálitið meðal Tékka fagnaði sigri hinna slav nesku vopna. f heimsstyrjöldinni fyrri kom sam heldni Slavanna enn skýrar í ljós. Tékkarnir og Slavarnir sem neyddir voru inn í austurrísk-þýzka herinn, litu á Rússa sem bræður sína og gengu tugþúsundum saman Rússum á vald án baráttu, og öðluðust þann ig rétt til að berjast gegn Þjóðverj- um. Og nú, í þessari miklu styrjöld er Sovétríkin heyja ásamt öllum þjóð- um Bandamanna gegn hinu fasistíska Þýzkalandi og Bandamönnum þess, tekur einnig þátt tékknesk hersveit. Það er tákn þeirrar eðlilegu eining- ar er tengir Tékkóslóvaka Austur- slövum. Blóð rauðliðanna og tékknesku hermannanna staðfestir vináttuna milli þjóða okkar, sem eru reiðubún ar til ýtrustu fórna til að sigrast á hinum eilífa óvini, óvini alls mann- kynsins“. REGNBOGINN skáldsagan eftir pólsku skáldkon- una Wanda Wassilevska, er hlaut Stalínverðlaunin 1943, er nú komin út á ensku hjá hinu heimskunna út- gáfufyrirtæki Hutchinson. blaðið tekið afstöðu til sjálfstæðis- málsins, til Dagsbrúnarsamning- anna, til deilu kyndaranna á Siglu- firði, til bandalags alþýðunnar o. s. frv. Það er sjálfsagt. fyrir Alþýðublað- ið að halda svona áfram. Það er í góðum félagsskap með þjóðfíflinu og fyllibyttum. Múraravinna Nú þegar vantar múrara til múrhúðunar og annars við hitaveituna. Höjgaard & Schnltz A|s 000000000000

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.