Þjóðviljinn - 19.08.1943, Page 2

Þjóðviljinn - 19.08.1943, Page 2
2 Þ JOÐ VILJIN ISI Fimmtudagur i9. ágúst 1943, Hjartanlega þakka ég ykkur öllum, sem með gjöf- um, kveðjum, heimsóknum og á annan hátt glödduð mig og gerðuð mér ógleymanlegt sjötíu ára afmælið Sérstaklega þakka ég ykkur börnum og tengda- börnum mínum fyrir sífellda umhyggju ykkar fyrir mér og ekki sízt við þetta tækifæri. Guð blessi líf ykkar allra, kæru vinir! Eiríkur Ágúst Jóhannesson, Hrafnkelsstöðum. lðnskólinn Hafnarfjörður! Unglinga vantar strax til að bera Þjóðviljann til kaupenda í Hafnarfirði. DAGLEGA NÝ EGG, soðín og hrá Kaffisalan Hafnarstræti 16. S.G.T." dansleikur í Listamannaskálanum í kvöld kl. 10. Aðgöngumiðasala kl. 5—7. Sími 3240. Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Kl. 12 nýtt skemmtiatriði: Veitt verðlaun fyrir dans-keppni. Hafið þér gleymt að gerast áskrifandi að nýju Tekið á móti áskriftum tól næstu mánaðarmóta. Hr. dr. med. Snorri Hallgrímsson Pósthólf 673, Reykjavík Undirritaður óskar hér með að gerast kaupandi að bókinni Heilsu- rækt or mannamein. — Andvirðið, kr. 95.00 að viðbættu póstkröfu- og burðargjaldi, mun ég greiða við mót- töku. Nafn ................. ............ Heimili ........................... Póststöð .......................... Innritað verður í Iðnskólann í Reykjavjk í skrif- stofu skólans kl. 19—20 alla virka daga frá og með mánudegi 23. ágúst til laugardags 25. september. Vegna þrengsla verður ekki tekið við nemendum til innritunar eftir þann tíma. Skólagjald fyrir fyrri helm- ing vetrarins, kr. 125 og 136 greiðist við innritun. Námsskeið til undirbúnings inntökuprófi og milli- bekkjarprófum hefjast miðvikudag 1. september kl. 18. l»átttökugjaldið, kr. 20,00 fyrir hverja námsgrein, ffreiðist við innritun. Skólastjórinn. Talið við afgreiðsluna, Austurstræti 12, sími 2184. TOBRALCO-EFNI j röndótt, rósótt og með - myndum, í svuntur, sloppa og barna- kjóla nýkomið Verzlun H. Toft Skólavörðustíg 5 Sími 1035 Handknatiieiksmótið Nýlega er lokið handknatt- leiksmóti Armanns sem lauk með sigri Víkings. Ennþá hefur ekki tekizt að skapa þann áhuga fyrir þessari íþrótt, sem hún verðskuldar, hvorki meðal keppenda eða á- horfenda, og kemur þar margt til. Að þessu sinni voru 4 lið sem kepptu. Má segja að þau hafi ver ið í tveim styrkleikaflokkum eða Víkingur og Valur sér í fl. og Ármann og Fram sér í fl. Meðan keppendur eru svona misjafnir verða leikirnir aldrei þetta, sem kallað er spennandi Keppnin er enn ung og margir keppenda, sem alls ekki virðast hafa kynnt sér reglur leiksins en það heíur hinsvegar þau áhrif að leikur verður of harður og ódrengilega leikinn og þar af leiðandi leiðinlegur bæði fyrir keppendur og áhorfendur. í þessari keppni kom þetta oft fram, og olli jafnvel meiðsl- um, en þetta eru ef til vill bvrj- unarörðugleikar, sem eldast af þegar meiri þroski og reynsla er fengin, en ég efa að okkur takist að afla leiknum vinsælda ' fyrr en á þessu hefur verið ráðin bót. Við þessa erfiðleika bætist svo það. að skilyrði til æfinga eru lítil og nærri hægt að segja engin. Yfirleitt voru leikirnir í þessu móti allt of ójafnir nema leikur Víkings og Vals, sem var nok- uð jafn, og leikur Ármanns og Fram, en hann var alltof harka- lega leikinn og gengu Framarar þar á undan með slæmt eftir- dæmi, og voru leikir þeirra um of harðir. Svipað má segja um síðari hálfleik Víkings og Vals, og þurfa hvorugir aðra að öf- unda af þeim aðförum. Lið Víkinga leikur létt og er öruggt í vörn, en leggur ekki að jafnaði eins í sóknina, aftur á móti lagði Valur of mikið í sókn ina og lék þar af leiðandi alltof opið í vörninni, og er ekki ólík- legt, að þessi ranga leikaðferð hafi kostað Val sigurinn að þessu sinni. Lið Ármanns vant- ar auga fyrir staðsetningum og að allir leiki nógu vel með. Knötturinn gengur heldur ekki nógu beint fram og fljótt, og er þessi galli raunar áberandi hjá flestum liðunum, þó eru Valur og Víkingur beztir á þessu sviði og kemur knattspyrnan þai að góðu haldi, en margir þeirra manna eru knattspyrnumenn. Dómararnir munu ekki enn hafa. fengið þá reynslu og æfingu i að dæma sem skyldi og sennilegt er að taka verði miklu strang- ar á öllu handalögmáli, sem einkennir leikinn og liðin á augnablikum. Enn er Alþýðublaðið ílokks laust og Alþýðuflokkurinn blaðlaus EÍns og nýlega var getið um í Bæj arpóstinum fékk Alþýðuflokkurinn nokkurra daga hlé fyrir árásum Al- þýðublaðsins. En ekki var hann Ad- am lengi í paradís, og ekki fékk Al- þýðuflokkurinn lengi að vera í friði fyrir Alþýðuþlaðinu. Lauslega áætl- að, virðist helming Alþýðublaðsins í gær varið til beinna árása á Alþýðu- flokkinn og Alþýðuflokksmenn. Að- alárásarefni blaðsins eru: 1) Hatröm ádeila á kommúnista fyrir að kljúfa verklýðshreyfinguna á Akureyri á síðasta hausti. Þegar Alþýðublaðið talar um að kljúfa verklýðshreyfinguna á Akureyri, a það við þá ákvörðun og framkvæmd Alþýðusambandsins, að sameina þessa verklýðshreyfingu innan Al- þýðusambands íslands, en klofning kallar Alþýðublaðið þetta, af því að Erlingur Friðjónsson gat ekki unað sér innan Alþýðusambandsins, eftir að það var komið á heilbrigðan grundvöll. Það voru fulltrúar verklýðsfélag- anna úr öllum stjórnmálaflokkum, sem lögðu fyrir Alþýðusambands- stjórn að framkvæma það starf á Akureyri, sem Alþýðublaðið kallar klofningu verklýðshreyfingarinnar. Þar var stjórn Alþýðusambandsins skipuð fjórum Alþýðuflokksmönn- um. fjórum sósíalisitum og einum ut- anflokksmanni, undir , forustu Al- þýðuflokksmannsins Guðgeirs Jóns- sonar, sem framkvæmdi fyrirmæli Alþýðusambandsþingsins. Það var Alþýðuflokksmaðurinn Jón Sigurðs- son og sósíalistinn Jón Rafnsson, sem fóru til Akureyrar og lögðu síð- ustu hönd á sameiningu, sem Alþýðu blaðið kallar klofning. 2) Alþýðubiaðið hamast enn á öll- urp þeim fjölda Alþýðuflokksmanna. sem voru því andvígir að segja upp Dagsbrúnarsamningunum. Sérstak- lega hitta örvar þess varaíormann Dagsbrúnar Helga Guðmundsson og Jón Sigurðsson framkvæmdarstjóra Alþýðusambandsins. 3) Alþýðublaðið er nú á „sigur- sælu“ undanhaldi í baráttunni við Alþýðuflokkinn í sjálfstæðismálinu. Það er leiðinlegt að Alþýðuflokk- urinn skuli þannig hafa jnisst blað sitt, en bót er það í máli að Þjóð- viljinn mun halda uppi málstað hinn ofsóttu Alþýðuflokksmanna. ! Þrír framsóknarmenn Það voru þrír framsóknarmenn sem stjórnuðu verkfalli kyndara við ríkisverksmiðjurnar á Siglufirði á dögunum. Lesið dagvinnugreinar Jónasar sáluga Jónssonar, greinar Tímans og Alþýðublaðsins um verk- fall kommúnista í verksmiðjunum. Er það ekki ómerkilegasta blaðið í veröldinni? Árum saman barðist Alþýðublað- ið fyrir kröfunni: Átta stunda vinnu- dagur með óbreyttu dagkaupi. Þar kom að Dagsbrún fékk kröfuna um átta stunda vinnudag viðurkenndan. og ekki aðeins með óbreyttu dag- kaupi, heldur hækkaði dagkaupið úr 14,50 í 16,80 kr. um tímann og vinnu- tíminn var styttur um tvo tíma. Þetta er einn mesti sigur sem verka- menn hafa unnið, enda stóðu þeir sameinaðir í baráttunni, án tillits til stjórnmálaskoðana. En þegar þessi sigur er unninn. bregður svo við að Alþýðublaðið tekur til að hamast gegn Dagsbrún og þeim sem félaginu stjóma, af þvi að þeir eru ekki allir Alþýðuflokks- menn. Skyldi nokkurt blað í veröldinni vera eins ómerkilegt og Alþýðublað- ið? Mds Inap í ráði er að reisa Jóni Ara- syni Hólabiskupi minnisvarða að Hólum og verði hann ai- hjúpaður 7. nóv, 1950, en þá eru 400 ár Iiðin frá því Jón biskup Arason var hálshöggv- inn af danska konungsvald- inu. Aö aflokinni minningar- guösþjónustu aö Hólum 15. þ. m. boöaöi Hólanefnd til fundar til þess að ræða um fjársöfnun og framkvæmd þessarar hugmyndar. Þá munu hafa safnast um 2000 kr. en áð'ur mun hafa veriö búiö að' safna um 4000 kr. i þessu augnamiöi. Hringið í síma 2184 og \ gerizt áskrifendur ad fímarífínu Réffí ooooooooooooooooo MUNIÐ Kafíisöluna Hafnarstræti 16 ooooooooooooooooo KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN Unolinaa vantar til að bera Þjóðviljann tii kaupenda í nokkrunt bæjar- bverfum. Aígrefdslara Ausðrarsfjrasfi 12 Síuú 2184.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.