Þjóðviljinn - 09.09.1943, Side 2
2
Þ J O Ð VIL J IN N
Fimmtudagur 3. sept. 1943.
Happdættishús
Laugarneskirkju
Hefur nokkur efni á að neita sér
um möguleikann á að eignast slíkt
hús sem þetta, þegar það kostar
ekki nema
5 krónur-
©OOOOO0OOOOOOOOOO
íslendingar
Innilegt þakklæti fyrir vinsemd
og heiður mér veittan á ferð
minni um íslandsbyggðir. Sér-
staklega: Norðfirðingum, Vopn-
firðingum, Akureyringum, Sigl-
firðingum og íþróttafélögunum.
Jóhannes Kr. Jóhannesson.
JSOOOOOOOOOOOOOOOO
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
ooooooooooooooooo i
Bréf til heiðins húsnæðis-
leysingja.
Heiðraði herra!
í Bæjarpósti Þjóðviljans 5. sept-
ember skrifið þér grein um happ-
drætti Hallgrímskirkju. Þessi grein
er ekki meir en í meðallagi vinsam-
leg í garð okkar, sem þar eigum hlut
að máli. Og þar eru nokkur atriði,
sem mig mundi langa til að ræða
við yður í fullri góðgirni.
Þér nefnið yður mann, sem hús-
næðisleysið hafi gert heiðinn. M. ö.
o. þér hafið verið lærisveinn Jesú
Krists, en yfirgefið lífsskoðun hans
og lífsstefnu, vegna þess, að þér haf-
ið um skeið orðið húsnæðislaus í
Reykjavík. Þér hafið þó vafalaust
vitað, að til var húsnæðisleysi í heim
inum, áður en þér urðuð sjálfur hús-
næðislaus. Og þér hljótið líka að
vita, þótt ekki væri nema af afspurn,
að til er í heiminum eymd, sem er
ægilegri, hroðalegri og jaínvel enn
sárari en húsnæðisleysi Reykjavíkur
og er þó satt að segja ekki á það
bætandi. En það er ekki eins dæmi,
að menn finni þá fyrst alvarlega til
vandamálanna er þau snerta þá
sjálfa eða þá, sem þeim eru kær-
astir. Nú eru það húsnæðismálin, er
komu yður til að endurskoða trúar-
hugmyndir yðar. Og þó verð ég að
segja, að ef þér hafið aldrei fyrr orð
ið að heyja innri baráttu m. a. vegna
þeirrar eymdar, et mannlífið á til,
þá hefur kristindómur yðar kostað
minna en trúarsannfæringin kostar
flesta kristna menn. Það er ef til vill
einmitt þess vegna, sem þér byggið
kristindómnum út úr hjarta yðar,
um leið og þér fáið ekki inni í íbúð-
arhúsum Reykjavíkur. En einu sinni
var mannssonur, sem hvergi átti
höfði sínu að að halla, þótt refir
ættu greni og fuglarnir hreiður.
Hann fann áreiðanlega eymd mann-
anna, engu síður en þér. Þó gerðist
hann ekki heiðinn. Hann gerðist höf-
Málverkasýning
ÞORVALDAR SKÚLASONAR og
GUNNLAUGS SCHEVINGS
í sýningarskálanum við Kirkjustræti.
Opin daglega kl. 10 til 10.
ATVINNA
Nokkrar saumastúlkur, aðstoðarsaumastúlkur og
lærlingar í kjólasaum geta komizt að á saumastofu
mmm.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
HENNY OTTÓSSON
Kirkjuhvoli.
winn
undur kristindómsins. Og hann fann
þá lausn á vandamálum mannlegs
samfélags, sem dugir. Hversu ófull-
komnar tilraunir, sem gerðar eru til
þess að feta í fótspor hans, leiða
þær alltaf af sér blessun. Hann vís-
ar líka veginn út úr því böli, sem
leiðir af húsnæðisskorti í Reykja-
vík, því að af hverju stafar það böl
öðru en því, að mönnum, sem guð
hefur skapað sem félagsverur, tekst
ekki að skipta gæðum jarðar bróður-
lega milli sín? En af hverju tekst það
ekki betur, nema af því, að þeir eru
enn of fjarlægir Kristi í hugsun og
breytni? Kristur er mönnunum svo
óendanlega miklu meiri í siðferði-
legri breytni. En nú er það sannað
mál af sögu mannkynsins, að háar
hugsjónir hafa aðdráttarafl, þrátt
fyrir allt, og færa mennina' ofar í
siðferðilegu tilliti. Þess vegna mun
sambúð mannanna verða því betri,
því meir, sem hugarfar þeirra mót-
ast af Jesú fró Nazaret. Allar mis-
fellur í þjóðfélaginu eru mér því
staðfesting þeirrar skoðunar, að heim
urinn þurfi að verða enn betur krist-
inn. Og ég hygg, að hvorki þér né
ég sjálfur séum undanskildir þeirri
þörf.
Það félag, sem sérstaklega hefur
það hlutverk á hendi að boða kenn-
ingu Krists, *er kirkjan. Á henni eru
vitaskuld miklir gallar. En ég tel
þann mann blindan, sem ekki hefur
á þessum tímum komið auga á það
siðferðisþrek, sem sú trú veitir, er
kirkjan boðar.
Píslarvottar þessara stríðsára munu
reynast nýtt útsæði kristninnar. Og
ef þér væruð kunnugur því sjálf-
boðastarfi, sem kristin kirkja vinn-
ur t. d. með þjónustu sinni við flótta-
fólk frá einræðislöndunum, ber ég
það traust til yðar, að ég tel víst, að
þér munduð ekki vilja fullkomlega
afneita þeim anda, er slíku verki
stjórnar.
Hér í Reykjavík, sem og annars
staðar á íslandi er kristin kirkja
starfandi. Eg veit, að þér munuð
ekki bera á móti því, að sé sú starf-
semi á annað borð einhvers virði,
er henni ætlaður alls ónógur húsa-
kostur. Ef þér viljið kynna yður
starfsskilyrðin betur en almenningi
nokkurntíma eru kunn, eruð þér
hjartanlega velkominn til messu í
Hallgrímssókn, og vænt þætti mér
um, ef þér gerðuð mér þá ánægju
að koma heim til mín og ræða málið
í fullri vinsemd. Við höfum enga á-
stæðu til annars en að tala saman
í bróðurhug.
Oft hefur bygging Hallgrímskirkju
verið rædd í sambandi við húsnæð-
ismál. Það er satt að segja eins og
ekkert sé hægt að gera í því efni, án
þess að reka sig á, þó að ýmiskonar
aðrar byggingar, önnur happdrætti
eða sgmskot fói óátalið að halda á-
fram. Fyrst og fremst er það kirkjan
sjálf, sem á að taka efnið frá hús-
næðisleysingjunum. Helgafell spurði
lesendur sína: „Á að byggja Hall-
grimskirkju nú þegar?“ Þessi spurn-
ing var þóttur úr vísindalegri skoð-
anakönnun, sem sérmenntaðir menn
áttu að útbúa, svo að hún yrði sem
gleggst. Nú efast ég ekki um, að þeir
séu allir sæmilega menntaðir menn,
þótt ekki sé hægt að hrósa þeim
fyrir það, að þeir risti of djúpt í
þessu viðfangsefni. Það hefur nefni-
lega engum manni komið til hugar
að reisa Hallgrímskirkju undir eins.
Það hefði ekki verið svo illa til fund-
ið af þessum skoðanakannanaspek-
ingum, að þeir hefðu grennzlazt eftir
því fyrst, hvort það ætti að byggja
Hallgrímskirkju nú þegar. Þá hefðu
þeir vafalaust haft spurninguna
r svona: „Á að byggja af Hallgríms-
kirkju part, sem samsvarar að efni-
við einu íbúðarhúsi fyrir tvær fjöl-
skyldur eins og byggingum hefur ver-
ið hagað hér á seinni árum?“ — Nú
hafa þeif, sem vildu hindra þessa
byggingu, fengið ósk sína uppfyllta,
en ég fæ ekki séð, að það hafi bætt
mikið úr húsnæðisvandræðum borg-
arinnar. ■ En sleppum nú byggingar-
málinu sjálfu. Það er í rauninni utan
við umræðuefni okkar. En happ-
drættið okkar hefur heldur ekki far-
ið varhluta af árekstri við húsnæð-
ismálin. Húsaleigunefndin var búin
að horfa á húsið standa autt í allan
fyrra vetur. Sennilega hefur það þá
verið eina ónotaða eða lítt notaða
húsið í bænum?
Þegar Hallgrímskirkja átti að njóta
góðs af húsinu, vaknaði nefndin.
Betra seint en aldrei Þá gerði happ-
drættisnefndin sjálf ráðstafanir til
þess, að húsið yrði notað, en um leið
vandlega séð um, að það skemmdist
ekki. En hvað kemur þá upp úr dúrn
um? Nú er sumstaðar kjamsað á
þeirri slúðursögu, að nú getum við
ekki losað húsið aftur, og verðum
því svikarar við þann, sem hljóti
húsið í happdrættinu. Auðvitað er
allur slíkur áróður ekkert annað en
bláköld lygi. En hann sýnir, hvernig
starfað er af þeim, sem helzt unna
kirkjunni ógagns, Hallgrími Péturs-
syni háðungar og sjólfum sér með-
aumkun seinni kynslóða.
Nú eruð þér saklaus af því að hafa
imprað á þessum hlutum. En þér
mælið gegn happdrætti okkar, að
mér skilst af þrem ástæðum:
1. Það sýnir litla guðselsku að
kristnir menn skuli ekki gefa nægi-
lega af fé sínu svo ekki þurfi að fá
fé frá heiðingjum og vantrúuðum.
2. Hallgrímskirkjuhappdrættiðspill
ir fyrir því, að lokið sé við Lauga-
neskirkju, sem orðið hafði á undan
að byggja hús og efna til happdrætt
is.
3. Með happdrættinu er verið að
nota sér neyð þeirra, sem eru hús~
næðislausir og storka þeim.
Þessum röksemdum vil ég svara í
réttri röð:
1. Það er alveg satt, að það er einn
votturinn um mannlegan veikleika,
e/ grípa þarf til nokkurra annarra
ráða en beinna fjárframlaga í þessu
skyni. Það væri skemmtilegt, ef ís-
lenzka þjóðin tæki sig til og gæfi
nægilegt fé til Hallgrimskirkju,
Lauganeskirkju, barnaspítala, sjó-
mannaheimilis og annarra nauðsyn-
legra hluta, sem tryggja andlega og
þjóðfélagslega menningu. En þó að
allir skilji þörfina fyrir barnaspítala
þarf að hafa skemmtisamkomur o. fl.
til þess að koma honum upp. Og þótt
allir'unni menntun, þurfti að setja
upp happdrætti og kvikmyndahús
fyrir háskólann. Það er orðinn
almennur skilningur, að tombólur og:
bazarar, skemmtisamkomur og happ
drætti séu réttlætanlegar aðferðir til
að safna fé til þeirra stofnana, sem
taldar eru almenningi nytsamar.
Flestir líta á þetta sem eina aðferð-
ina við að gefa. Og margur er sá,
sem finnst tíkallinn of smár til að
láta hann á samskotalista, og þykir
fullt eins viðfeldið að kaupa einn
happdrættismiða fyrir hann. — Þér
sjáið ekkert að athuga við það, að
Lauganeskirkja njóti góðs af slíkri
fjársöfnunarleið. Eg vona að þér
unnið Hallgrímskirkju sama réttar.
2. Það er rangt til getið hjá yður,
að Lauganeskirkja hafi orðið fyrri
til með húshappdrætti. Bæði í blöð-
um og útvarpi hafði verið lýst yfir
því, að við hefðum fengið leyfi fil
slíks happdrættis, og værum að búa
undir það. Þetta drógst á langinn
aðallega sökum þess, að happdrættis;
nefndin vildi ekki fara í kapphlaup
um efniskaupin við menn, sem áttu
hálfbyggð hús. Og sumt af efninu
var ekki fáanlegtt Lauganeskirkja
hafði á sama tíma haft tvö bílahapp-
drætti, og þeir, sem kunnugir eru
okkar happdrættisundirbúningi, vita,
að það var fullur vilji ó því að rek-
ast ekki á þau happdrætti með því
að hafa samskonar fyrirtæki í
frammi samtímis. — Annars getið
þér spurzt fyrir um það í stjórnar-
ráðinu, hvenær hvor söfnuður fyrir
sig hafi fengið happdrættisleyfið.
Þá sjáið þér hvor er á undan. Raun-
ar tel ég lítið unnið með því, að far-
ið sé að ota tveim söfnuðum hvorum'
á móti öðrum í þessu máli. Og það
er fjarri mér að hafa á móti því, að
þér gerið allt, sem í yðar valdi stend-
ur fyrir Lauganeskirkju, að því einu
tilskyldu, að þér látið aðra njóta
sannmælis.
3. Mér skilst á yður, að við Hall-
grímsprestar verðum ekki öfunds-
verðir af að flytja drottinlega kveðju
í Hallgrímskirkju, ef „tíkallar hinna
húsnæðislausu" bergmála frá veggj-
unum. Eg er ekki viss um, að þetta
reynist eins átakanlegt og þér hygg-
ið. Fyrst og fremst er á það að líta,
að húsnæðisleysi all-flestra stafar
ekki af tíkallaleysi. Húsaleiguokrið
hér í Reykjavík og íbúðabraskið ger-
ir auðvitað mörgum erfitt að kom-
ast að sæmilegum kjörum, og sum-
Framhald é 3. síðu.
= I
mmMMMmmnmmimmM
l"IIIMI1||lll,l, MMM, MmMMMMMMMMMHMmill MMM M, IMMIIII, MMMMil .MIMMMMMMMMMMMM.MMIMMMIM.MMMMMM Ml
B E N Z I N
Skrifstofa Laufásvegi 2, sími 4493.
Benzínstöðin Geirsgötu, sími 2368.
Höfum nú aftur hafið sölu á benzíni og smumingsolíum.
Benzínnotendur! Gætið hagsmuna yðar með viðskiptum
við óháð, alíslenzkt félag.
NÆGAR BIRGÐIR! ÁVALT LÆGSTA VERÐ!
Nafta h. f.
IIIMMMHMMMIMMIMHHIIMMIMIMIM|mMMIMIIIMIIIIMIIIHIIIIIMl4MIIMIIMIIIIIiaiMMIMIIIIHIMHIIIflMIHIIIIIHMHIIIII)HHMIIIIIMMHllH»»IHHIIHIIMIIIMIHI»IIHIIIMIMIHMIHMHM,IMHIIIMHIIIII„IIIHMIMMI|IMIIIIIMMIII|IMIIIMIIMMIIIMHMMIIIIHMI,lll‘mmiimimMIIHMIIIHIIMMIMMIMMIMIIMIIIIIIII
irj
I dag er slðasti soludagur í 7. flokki.
MMIMIMMIIMIMMMMMMMIIIIMIMMin)
Happdrœttið.
mMMmMMmmmmMmiimMimmmiMmiMmmmmmmmmmmMmmmmMiimmMmmimmmMMiiiii
IMIMMIIIIII|IMMIINI!I:|I>IIIMMMIIIIMMMIIIIMIIMIMMIMIIMIMIIIIIIMIMMMIII.IIIIMIIIIIIIIIIIIMIMMMIIII„„MIIIIM,MIIIMMMMMIMMM
mmmiimmiiimmmimmmMmmMmHHHmmmmmiiiHimmmHHimma