Þjóðviljinn - 16.10.1943, Side 4
MóinmjiNN
Maðurinn minn og faðir okkar
GUÐLAUGUR RUNÓLFSSON, Bragagötu 34 B,
Orbopglnnt
Naeturlæknir er í Læknavarðstöð
Reykjavíkur, sími 1530.
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
ÁRMENNINGAR!
Stúlkur — Piltar! Sjálfboðavinna í
Jósefsdal um helgina. Farið frá
íþróttahúsinu kl. 4 og kl. 8 í dag,
og í fyrramálið kl. 8. Uppl. í síma
3339, kl. 12—1 í dag.
Áttræður var í gær Sigurður Helgi
Jónsson frá Kvíavöllum á Miðnesi.
Hann dvelur nú hjá dóttur sinni á
Háaleitisveg 23 hér í bænum.
Ljósatími bifvéla og bifhjóla er í
dag frá kl. 5,40 (17,40) síðdegis til
kl. 6.50 að morgni.
HJÓLREIÐAMENN! Munið að
rétta hendina út og gefa stefnumerki
þegar þið beygið til vinstri eða
hægri, og að rétta hendina upp, til
merkis um að þið ætlið að stanza.
NÝJA Btó
liáninn líður
(The Moon is Down)
Stórmynd eftir
Steinbeck.
sögu John
Aðalhlutverk:
Sir Cedric Hardwicke
Dorris Bowdon.
Henry Travers.
Bönnuð fyrir börn yngri en
116 ára.
s
s
ISýningar í dag kl. 3, 5, 7 og 9.
5ala aðg.m. hefst kl. 11 f. h.
TIAINIUM
Takíd undíri
(Priorities on Parade).
Amerísk söngva- og gaman-
mynd.
ANN MILLER,
BETTY ROHDES,
JERRY COLONNA.
JOHNNY JOHNSTON.
AUKAMYND:
NORSKUR HER Á ÍSLANDI
(Arctic Patrol)
Sýning kl. 3, 5, 7 og 9.
ala aðgöngumiða hefst kl. 11
I
[
LEIKFELAG REYKJAVÍKUR
„LÉNHARÐUR FÓGETI“
©ftir Einar H. Kvaran.
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 4 til 7 í dag.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lén-
hard fógeta annað kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Minningargjafir og áheit. Skrá
yfir minningargjafir og áheit til
Vinnuheimilissjóðs S. í. B. S.: Em-
il Thoroddsen áheit 100 kr. Ónafn-
greind frú 100 kr. Lilja áheit 20 kr.
F. E. R. 51 50 kr. Jóhanna Bjöms-
dóttir 40 kr. N. N. minningargjöf
um Karl Matthíasson 100 kr. Anna
Petersen áheit 100 kr. Sigrún Rósen-
berg áheit 100 kr. Ónefndur áheit
100 kr. Björg Ásgrímsdóttir 50 kr.
Guðjón Jóelsson 50 kr. Ágúst
Guðm. og Friðrik Ágúsasson 240 kr.
N. N. Lóa 200 kr. Carl D. Tulinius
250 kr. N. N. 75 kr. Guðbjörg Jóns-
dóttir Ránarg. 24 20 kr. Setuliði 20
kr. Setuliði 20 kr. Anna Kristjáns-
son 50 kr. Ingibj. Sigurðardóttir,
minningargjöf um Bryndísi Thor-
steinsson 40 kr. Guðni Kárason, Mið
tún 14 50 kr. Jón Guðmundsson,
Bergstaðastr. 20 40 kr.Alur T. Odd-
son áheit 50kr. Frá Össu áheit 10
kr. Frá Gugguáheit 5 kr. N. N., afh.
af H. Guðm. 100 kr. Starfsfólk prent
sm. Gutenberg 1000 kr. N. N. 10
kr. — Með þökk.
Stjórn S. í. B. S.
Samtíðin, októberheftið, er kom-
ið út fyrir nokkru. Þar er m.a. þetta
efni: Islenzk tunga eftir Richard
Beck prófessor í Norður-Dakota.
Viðhorf dagsins frá sjónarmiði skatt
greiðenda eftir Pétur Gunnarsson
stórkaupm. Molar úr djúpi minning-
anna eftir Guðbjörgu Jónsdóttur frá
Broddanesi. Glundroði falla og glöt-
un orðlistar eftir Bjöm Sigfússon
meistara. Ratarinn — hið nýja
undratæki í baráttunni gegn loftárás
um. Strandvamir (smásaga). Þá eru
aeviágrip merkra samtíðarmanna
með myndum, bókafregnir o. m. fl.
Höfundur búreikning-
anna
Framh. af 3. síðu.
bendi alveg sérstaklega á þá
nauðsyn að framleiðendur og
neytendur semji um ágrein-
ingsmál sín á jöfnum, bróður-
legum vettvangi og leitast
þannig við að bera klæci
sátta og samlyndis á þau
vopn, sem fram á þennan
dag hefur beitt verið um
lausn þeirra misklíðarefna,
illu heilli.
Alexander Guðmundsson.
Jónasi frá Hriflu lízt
ekki á siðferðið
Jónas frá Hriflu hefur lagt
fram svohljóðandi fyrirspurn á
Alþingi
„Hvaða ráðstafanir hefur rík-
isstjórnin gert til að koma í veg
fyrir, að menn í hinum ýmsu
stéttum þjóðfélagsins stundi
óleyfilegar athafnir sem koma
í bága við borgaralegt sið-
ferði?“
Það veitir vafalaust ekki af
að athafnir vissra manna væru
rannsakaðar í þessu sambandi.
Það kváðu vera til menn, sem
stunda lygar, óhróður. róg, mút-
ur, fjármálaspillingu og fleiri
ódygðir jafnvel meir en atvinnu
sína.
Séra Sveínbjörn
Framh. af 2. síðu.
sér sjálf formann og skiptir að öðru
leyti með sér störfum."
Nefndinni sé ætlað að rannsaka.
1. Að hve miklu leyti séu réttar
umkvartanir neytenda um gallaðar
eða lélegar innlendar neyzluvörur.
2. Orsakir skorts á neyzluvörum
innanlands.
3. Hversu mikið af innlendum
neyzluvörum hefur á hverjum tíma
verið selt hinu erlenda setuliði.
Hversu mikið mjólkurmagn hefur
hin síðari ár farið til neyzlu og
hversu mikið til vinnslu mjólkuraf-
urða.
4. Rannsaka kostnað við sölu og
dreifingu neyzluvara innanlands og
gera tillögur um, hversu úr honum
verði dregið, þar sem nefndin telur
hann óeðlilega háan.
5. Gera tillögur um, hvaða ráðstaf
anir skuli gera tíl tryggingar fram-
leiðslu landsmanna, er viðskiptin við
hið erlenda setulið falla niður.
6. Gera tillögur um, hversu bezt
verði fyrirbyggður misskilningur,
sem rísa kann milli neytenda og
framleiðenda, og komið í veg fyrir
það, að ósannur og skaðlegur áróður
sé í frammi hafður til að vekja fjand
skap og tortryggni milli þessara að-
ila. Réttmæti þeirra blaðaskrifa,
sem fram hafa komið um þessi mál
séu rannsökuð ýtarlega og tillögur
Frá Neskaupstað.
Fjölmenn sjnmanna-
námskeíð standa
nú yfir
Samkvæmt símtali við Norð-
fjörð fara nú fram þar í bæ
fjölmenn sjómannanámskeið.
Námskeiðin eru þrjú, vél-
stjóra-, matsveina- og skipstjóra
námskeið. Alls eru á milli 60
og 70 þátttakendur í námskeið-
unum. Kennarar þeir,, sem veita
námskeiðunum forstöðu eru
þessir:
Herbert Þórðarson, skipstjóri
stjórnar skipstjóranámskeiðinu,
Helgi Kristjánsson vélstjóri
stjórnar vélstjóranámskeiðinu,
og Hermann Hermannsson fyrr
verandi bryti stjórnar mat-
sveinanámskeiðinu.
Hafin er í Neskaupstað smíði
á nýju og mjög vönduðu véla-
verkstæðishúsi. Húsið verður
20 m. á lengd og 10 m. á breidd
og nokkur hluti þess tvær hæð-
ir.
Teikningu af húsinu annaðist
Þórður Runólfsson vélaeftirlits-
maður.
Hin nýja sundlaug í Neskaup
stað hefur nú starfað í 2 mán-
uði og hefur aðsókn að henni
- verið sérstaklega góð.
Fiskafli hefur verið góður í
sumar og haust á Norðfirði en
veður til sjósóknar hamlað
veiði, einkum meðal smærri
báta.
4 skip úr Neskaupstað hafa
stundað siglingar með bátafisk
til Englands frá því um ára-
mót, og munu þau einu ís-
lenzku vélskipin, sem óálitið
hafa siglt til Englands í sumar.
gerðar um það, hvaða ráðstafanir
beri að gera, þar sem slík blaðaskrif
varða við landslög beint eða óbeint.
7. Fyrirsögn till. verði:
Tillaga til þingsályktunar um rann
sóknamefnd innlendra neyzluvara.
andaðist á heimili sínu 15. þ. m.
Margrét Jónsdóttir. Þórunn Guðlaugsdóttir.
Steinunn Guðlaugsdóttir. Jón Guðlaugsson.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að kon-
an mín og dóttir
PETRÍNA MAGNÚSDÓTTIR,
andaðist á Vífilstaðahæli 14. þ. m.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda.
Tómas Gíslason. Karítas Skarphéðinsdóttir.
Félag ísienzkra leikara.
Seinni KVÖLDVAKAN
í Listamannaskálanum
mánudaginn 18. október kl. 9 e. h.
Öll atriðin ný nema kvartettinn.
Ræða — Upplestur — Gamanþáttur — Einsöngur o. fl.
sem þessir leikarar annast:
Lárus Ingólfsson — Har. Björnsson — Brynjólf-
ur Jóhannesson — Gunnþórunn Halldórsdóttir —
Friðfinnur Guðjónsson — Valdemar Helgason —
Þóra Borg Einarsson — Emilía Borg — Alfreð
Andrésson — Anna Guðmundsdóttir — Pétur Á.
Jónsson, óperusöngvari — Har. Á. Sigurðsson.
Loks dunandi dans. Samkvæmisklæðnaður.
Aðgöngumiðar seldir í Listamannaskálanum
á morgun kl. 1—4.
11111111111111 ■■•••l 11111111111III lltllllllllllll IIIIIIII ■•lllllimiM II
| PiólBiliinn 8 síDhp |
3. skíladagur
I af söfnunarlistum fyrir f jársöfnunina til Þjóðviljans f
er í dag
i Þá eru allir flokksmenn og aðrir, sem að söínuninni {
{vinna, beðnir að mæta í skrifstofu Sósíalistaflokks-1
i ins, Skólavörðustíg 19, og skila af listunum.
í Skrifstofan verður opin. 10—12 og 1—7. — Þeir, 1
i sem ekki geta mætt í dag, eru beðnir að koma á morg- I
1 un klukkan 1—3. |
Enn eru nokkrir menn sem ekki hafa gert skil af}
{listum sínum. Það er sérstaklega skorað á þá að láta i
{ nú ekki bregðast að komá í skrifstofuna.
i Munið! í dag kl. 10—12 og 1—7 og á morgun !
jkl. 1—3. [
! SÖFNUNARNEFNDIN.
Reglur íytít raftna$nsnofendur
Nú þessa daga eru sendi-
menn frá Rafmagnsveitu Rvík-
ur að heimsækja rafmagnsnot-
endur í bænum og hafa þeir
meðferðis til afhendiitgar regl-
ur um, hvernig haga skuli raf-
magnsnotkuninni, þar til við-
bótin við Sogsstöðina er tilbú-
in, sem búizt er við að verði
um næstu áramót.