Þjóðviljinn - 21.11.1943, Síða 7

Þjóðviljinn - 21.11.1943, Síða 7
Sunnudagur 21. nóvember 194S. ÞJÓÐVILJINN T „Nú förum við, vinir mínir“, sagði lúðan 1 lægri tón. „Ég kann bezt við mig heima“. -----Garðar klæddi sig og flýtti sér mikið, því að hann var hræddur um að litli fiskurinn væri að deyja úr leiðindum. Hann tók skálina og læddist niður stig- ann. Þegar hann kom niður 1 fjöruna, sá hann lúðuna og fylgifiska hennar steypa sér á höfuðið fram af bryggj- unni. Hann fleygði Ýsu litlu í sjóinn. Hún varð frels- inu fegin og greip sundtökin. Hinir fiskarnir fögnuðu henni. Nú höfðu þeir losað sig við lappirnar og voru eins og aðrir fiskar. Garðar lá á maganum á bryggjunni og horfði á þá. Seinast sofnaði hann. Lúðan sá það og hélt að hann mundi velta í sjóinn, svo að hún kallaði til hans: „En að þú skulir þora að sofna þarna, landfiskur! Þú, sem ekki kannt að synda, veslingurinn þinn. Það er bezt, að ég kenni þér að synda, því að það getur vel verið, að þú dettir ein- hverntíma í sjóinn“. Garðar óð út í sjóinn og lúðan kenndi honum sund- tökin. „Þér gengur vel. Þú ert eins vel syntur og ég, og miklu fljótari á fæti,“ sagði lúðan. Kristín kom niður að sjónum og ætlaði að reka Garð- ar heim með harði hendi. En þá sá hún bara á kollinn á honum upp úr sjónum. Hún skildi ekkert 1 því, hvernig hann hefði lært svona fljótt að synda, og hún hafði ekki séð nokkurn mann synda svona vel. Hún vissi ekki, að fiskarnir höfðu kennt Garðari að synda. Mamma hans varð ákaflega glöð. Nú þurfti hún ekki að vera hrædd um drenginn sinn framar, þó að hann væri niður við sjó. ★ Hér byrjar ný framhaldssaga: ÆVINTÝRl STRÆTISVAGNSINS (Þýtt). Það var einu sinni strætisvagn, sem var ákaflega þreyttur. Hann varð að vera á ferðinni allan liðlangan daginn, fram og aftur sömu leiðina — af torginu inn fyrir bæ og á torgið aftur. Það var laugardagur og fleira fólk var með vagninum en venjulega. Og því lengra sem leið á daginn, því meiri urðu þrengslin í vagninum. Síðasta ferðin var verst. „Nú spring ég“, stundi strætisvagninn. En fólk tróð sér inn samt, þar sem vagninn stanzaði. ÞETT4 Bærinn Helsingaeyri í Dan- mörku á myndarlegustu elli- heimili Norðurlanda. Þau voru' reist á árunum kringum 1920. Þá höfðu verkamenn fengið meirihluta í bæjarstjórn. Elli- heimili þetta er í þrennu lagi: Fyrst er nokkursskonar sjúkrahús, ætlað ósjálfbjarga gamalmennum. Þá eru gamal- mennaíbúðir (tvö herbergi og dldhús, ef um hjón er að ræða) og matreiða þau þá sjálf, en stofnunin leggur þeim til fæð- ið. Greiðir bærinn allan kostn- að af því. Ellilaun fá þessi gamalmenni ekki og renna þau til bæjarins. í þriðja lagi hefur bærinn reist . stórhýsi (200 íbúðir) til afnota fyrir aldrað fólk, sem er fátækt en vinnu- fært. Það greiðir jafnvel lítils- háttar leigu (10 kr. á mánuði) og sér um sig sjálft að öðru leyti. Það nýtur ellilauna. Þau eru í Danmörku veitt eftir 60 ára aldur. 1 ELÍ og RÓAR SAGAEFTIR NORSKV SKÁLDKONUNA NINI ROLL ANKER, »----------- Áður komið af framhaldssögunni--------------------------v R6ar Liegaard lœknir hafSi afeilið oið (onu oína, Önna, eem oar myndarlcg háomóSir, en »uo otjómoöm, aS lœknir oi oitt óoœnna. Þaa átta fjögar börn. Hann felldi hag til Ell Tofte, sem oar búotýra bróSur oíno en annaro liotmálari. Þaa gift- aot, fóra til Parloar og doöldu þar um hríS. Þar oann Ráar aS oíoindalegam rann- oóknum, oi; ;>::u hjónin bjaggust oiS aS sjá azskudraum hans rœtast — aS hann yrSi frœgur vísindamaSur. Elí fann, aS hann saknaSi barna oinna og hafSi áhyggj- ur af þeim. Þau k°nru aftur til bcejarins, þar sem hann hafSi gegnt lœknisstörfum og þaa stofnuSu heimili ásamt cldri dóttur lœknisins, Ingrid, og yngri oyni hano, Soerre. Ingrid er iSjusöm, þrálynd og dul, og stjúpunni tekot ckk' aS ná hylli hennar. Aftur á m&ti er Soerre henni eftirlátur. Adolf Anderoen, bakarasonurinn, er hrifinn af Ingrid, en föSur hennar þykir hún of gott gjáforS handa bakarasyn- inam. Ell Tofte þyk’r anda k»lt I sinn garS frá fólkina. I þorpina. Frú Liegaard fyrri hafSi oeriS cinsœl þar. BYRflÐ í DAG AÐ FYLGJAST MEÐ SÖGUNNI „ELÍ OG RÓAR“/ >-------------------------------------------------------------------/ að við bakarasoninn, sem alltaf er á næstu grösum“, sagði hún. „Það fífl“, sagði Róar. -----Júní kom. Stundum var norðaustan stormur sem reif og sleit birkilaufið. En svo komu sólskinsdagar. Hveitið fór að skjóta upp kollinum úti á akri og bláfjólan deplaði augunum. Ingrid Liegaard hafði fengið augnahárin aftur og horfði fag- ureyg á sumarið nálgast. Það var annríki á heimilinu, því að von var á gesti. Tore Tofte stúdent, frændi Elíar var væntanlegur. Hann átti að vera í litla herberginu hjá Sverre. Þar komust reyndar tæplega tvö rúm. Ingrid hafði boðizt til að lána herbergið sitt og sofa sjálf í borðstofunni. En það vildi Elí ekki heyra nefnt. Ingrid fór þessvegna að ræsta herbergi Sverres. Hugur hennar var á ferð og flugi. Og hún leit í litla spegilinn á kommóðunni öðru hvoru. — Auðvitað var hann montinn og leiðinlegur. Bara að Annik væri komin’ Elí var í stofunni og Ingrid heyrði hana syngja vorvísu. Hún gat sungið! Ingrio roðn- aði af illsku. Hana langaði til að flýja eitthvað langt, langt — helzt út í eyðiev og vera þar. Þegar hún hafði lokið við að ræsta herbergið og allt var crðið piýðilegt þar inni, fór hún til stjúpu sinnar. Hún stað- næmdi'd frammi fyrir henni, álút með hangandi hendur og sagði, að nú væri hún búin. Elí var að raða bókum i nýja bókahiliu sem hún hafði mál- að sjálf. „Þegar þú verður orðin kunn- ug Tcre, Ingrid, skaltu biðja hann að lesa fyrir þig kvaDi. í bessari hillu eru allar h.væða- bækurnar mínar. Tore er vit- iaus í alian skáldskap. Eg het grun um, að hann yrki sjálíur. En það máttu náttúrlega fkki rainnast á“. Hún var ör af tilhlökkun, það hlaut að verða svo gaman að fá að hafa drenginn ú heimil- inu svona lengi. „Ingrid! Lofaðu mér að sauma þér kjól. Ljósbláan kjól!“ Ing- rid leit undan. Það lá við að henni hitnaði sjálfri um hjarta- ræturnar, þegar hún mætti hlýju og glöðu augnaráði stjúpu sinnar. Ingrid neri vandræða- lega saman höndunum, sneri sér við og svaraði veikróma um leið og hún gekk út: „Ef þú vilt. En heldur rauðan, Elí“. „Nei, nei“, kallaði Elí. „Ekki rauðan! Hann á að vera blár, eins og fallegu, bláu augun þín“ Litlu seinna sagði hún Ingrid, að frú Helvig á Reistad hefði boðið þeim báðum að koma og drekka miðdegiskaffi. Nei! Ingrid svaraði fljótmælt, að hún færi ekki. Ætti hún að fá sér nýjan kjól, þá ætlaði hún að gera það strax. Hún þurfti að fara út og skoða kjólaefni. Frú Helvig sendi hestvagn eftir þeim, gamlan virðulegan vagn. Þunglamalegi ökumaður- inn á Reistad sat á vagninum og stjórnaði hestunum. Elí sat í vagninum við hlið Róars. Hhn hafði aldrei ferðast í slíku far- artæki. Þetta var eins og ævin- týri frá liðnum tímum. Hún leit á Róar og brosti. Þau námu staðar í útjaðri bæjarins. Róar þurfti að koma við hjá sjúklingi. Húsið var fá- tæklegt að sjá. Elí varð eftir í vagninum. Hún hlustaði í leiðslu á raddir barnanna í kring og hún heyrði hestana bryðja mélin. Það, sem henni var stöðugt efst í huga þessa daga, var frændi hennar Hún hlakkaði svo til að sjá hann. Róar kom aftur og settist hjá henni. Ökumaðurinn sveifl aði keyrinu og hestarnir lögðu af stað. Elí leit á Róar og sá að hann var þungbúinn. „Hvað er að?“ „Eg get ekki bjargað honum“. „Er það verkamaður?" spurði Elí. Hún mundi ekki eftir, að hún hefði heyrt neitt um þenn- an sjúkling. „Já, það er verkamaður. Hann á sex börn. Hann er bara fjörutíu og sjö ára gamall. Eg gerði allt, sem ég gat“. Fjörutíu og sjö ára. Jafngám- all Róari! Hún horfði út yfir akra og tún. Róar sat við hlið hennar, alvarlegur með saman- bitnar varir. Nú fyrst datt henni það í hug, að hann vrði að sjá og heyra margt þung- bært, sem hún hafði ekki hug- mynd um. „Eg hef aðeins einu sinni ver- ið við andlát — þegar mamma dó,“ sagði hún lágt. Hann leit á hana og svipur hans varð mildari. Hann kyssti hana á vangann. „Eg skal segja þér, Elí. Það er sárt, að vera ráðþrota. Hann liggur þarna inni og bíður dauð ans. Hann hefur óskerta líkams krafta. Fyrir fáeinum dögum var hann alheill. Hann lifir tæp lega af þennan sólarhring. Eg gat ekki fengið mig til að segja konunni, að hún skyldi vera vongóð. Eg bað hana bara að reyna að bera sig vel — hans vegna.“ Þau töluðu um dauðann. Með an þau óku gegnum ilmandi skóginn. Hún spurði. Hann svaraði. Hún hafði ekki augun af honum. Það var eins og hver mínúta, sem eftir var af þessari ferð væri dýrmæt. Það stóð hávaxin kona í grá- um, síðum kjól í húsdyrunum á Reistad. Hún var gráhærð og hárið greitt slétt upp frá enn- inu. Andlitið var fölt með ör- • smáum hrukkum, sem lágu eins og þéttriðað net í húðinni. Þetta hlaut að vera frú Helvig sjálf. Hún beið þeirra, þegar þau stigu niður úr vagn- inum og Elí mætti augum henn- ar. Þau voru skær. Þau voru eins og vakir í ís, hugsaði Elí því að andlitið var gamalt og stirnað, en augun lifðu, ung og snör. Frú Helvig bauð þau velkom- in og gekk á undan þeim inn í húsið. Þau komu inn í rúm- góða forstofu. Þar voru hvít- málaðir forneskjulegir stólar og bekkir. Þau fóru úr yfirhöfnum Þau gengu gegnum stofur með gömlum eikarhúsgögnum af þeirri gerð, sem tiðkuðust hjá efnuðum kaupmönnum um miðja nítjándu öldina. Róar kom við handlegginn á Elí og benti henni á eitthvert þessara einkennilegu húsgagna. En hún skeytti því engu. Það var grá- klædda konan, sem mest vakti eftirtekt hennar. Þetta var heimili sem brátt mundi líða undir 'lok. Henni fannst allt vera þegar fallið í dvala, en bregða blundi aðeins í svip, við fótatak gestanna. Þau voru nú kominn inn i þá stofu, sem beið eftir þeim. Hún var lík hinum, að öðru leyti en því, að þar voru blóm •á borði og vatn sauð í spegil- fögrum katli.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.