Þjóðviljinn - 24.11.1943, Side 1

Þjóðviljinn - 24.11.1943, Side 1
Barnaskóiunmn lokað vegna inflúensu Ákveðið hefur verið að loka barnaskólunum hér í bænum fram yfir næstu helgi. Ákvörðun þessi var tekin í samráði við héraðslæknir. Um 40% barnanna vantaði í stærstu barnaskólunum, Austur- bæjarbarnaskólanum og Mið- bæjarbarnaskólanum. Ennfrem- ur vantaði nokkra kénnara. Inflúensan er væg og fer hratt yfir, venjulega liggja menn ekki jengur en 2—3 daga. • Verða gjafir til vinnu- itælis fyrir berklasjúkl- inga skattfrjálsar? Frumvarp um að gjafir til vinnuheimilis berklasjúklinga skuli vera skattfrjálsar, var áf- greitt til þriðju umræðu í neðri deild í gær. Allverulegur ágrein ingur er um málið, vilja sum- ir þingmenn halla sér að frum- varpi ríkisstjórnarinnár um al- menna heimild til að draga frá skattskyldum tekjum gjafir til líknarstarfsemi, innan þeirra takmarka sem þar eru sett. Öðr- um finnst illa til fallið að gefa auðmönnum kost á að gefa fé á kostnað ríkissjóðs. Málið á eftir eina umræðu í neðri deild og þrjár í efri deild. Poul Robeson heiðraður Hinn heimsfrægi söngvari Paul Robeson var nýlega gerð- ur að heiðursborgara í amer- ísku stórborginni Boston. Til- efnið var hinn glæsilegi leikur hans og söngur í leikritinu Ot- hello eftir Shakespeare, sem ný lega var sýnt lengi í Boston. Þessi atburður er eftirtektar- verður, þegar þess er gætt hvað svertingjum hefur lengst af verið sýndur lítill sómi í Bandaríkjunum og meira að segja einatt sætt ofsóknum. Er vonandi að þetta sé tákn um að kynþáttahatur verði skamm líft héðan af í Bandaríkjunum. Síðan Bandarkin fóru í stríð- ið hefur nokkrum sinnum kom- ið til múgæsinga meðal hvítra manna gegn svertingjum. Hefur jafnan komið í Ijós, að erind- rekar Hitlers stóðu á bak við. EFiin uirlur firir Hrðmfi iifiðrís slr’tt Sfórkosllegf fjón hlauzf af vðfdum árásarínnar Þótt aðeins væru liðnir 3 dagar síðan Berlín varð fyrir harðri loftárás, var enn í fyrrakvöld gerð á hana öflugasta árás sem á hana hefur verið gerð frá upphafi stríðsins. Hefur aldrei verið gerð meiri árás á nokkra aðra borg Þýzkalands. Varpað var á borgina yfir 2300 tonnum af sprengj- um. Árásunum var einkum beint að járnbrautarstöðv- um miðborgarinnar. Segja ílugmennirnir að 20 mínútum eftir að árásin hófst, hafi þeir séð mestu sprengingar, sem þeir hefðu nokkum tíma verið vitni' að. Fullyrða flugmennirnir að í þessari árás hafi verið unnin mesti loftsigur stríðsins. Þjóðverjar játa, að feikilegt tjón hafi orðið á mönnum og mannvirkjum. Hafi samgöngur um borgina víða stöðvazt og miklar skemmdir orðið á opin- berum byggingum. Borgin er rafmagnslaus og gaslaus, og í gær sáust enn loga eldar víða um hana. Fréttaritarar erlendra blaða í Þýzkalandi segja, að mikið tjón hafi m. a. orðið á Kansl- arahöllinni, við Alexanderplats og í Friedrichsstrasse. Fáar orustuflugvélar Þjóð- verja sáust yfir borginni og skothríð úr loftvarnabyssum bagaði árásarflugmönnunum lítið. Það voru aðallega kanadísk- ar flugvélar frá stöðvum á Eng landi, sem tóku þátt í ábásinni. Á sama tíma voru gerðar árás- Framhald á 8. síðu Ein af hinum stóru flugvélum, sem taka þátt í loftsókuinni gegn Þýzkalandi. Útvarpsumræður um f járlögin eru í kvöld i Útvarpsumrœður um fjárlög- in fara fram á Alþingi í kvöld. Ræðutími hvers flokks er 35 mínútur og hefur ríkisstjórnin jafnlangan ræðutíma. Af hálfu Sósíalistaflokksins talar í kvöld Brynjólfur Bjarna- son. Rikið kaupir hlutabré! Útvegsbankans Sameinað Alþingi samþykkti í gær eftirfarandi tillögur um kaup á hlutabréfum Útvegs- bankans, þau er keypt voru á sínum tíma fyrir sparifjárinn- stœður. Með því að ríkisstjórnin hef- ur nú, að tilhlutun f járveitinga- nefndar Alþingis, látið fram fara mat á hlutabréfum Ut- vegsbanka íslands h. f. og nið- urstöður matsins sýna, að bréf- in standa ekki lægra en í nafn- verði, ályktar Alþingi að fela ríkisstjórninni að kaupa við nafnverði fyrir hönd ríkissjóðs, af hinum upprunalegu eigend- um eða erfingjum þeirra, ef þess er óskað fyrir 31. desem- ber 1944, hlutabréf þau í greind- um banka, er keypt voru með hluta af sparisjóðs- og innstæðu skírteinainneignum í íslands- banka, þegar hann hætti störf- um, enda greiðist bréfin með ríkisskuldabréfum til 10 ára með 4% ársvöxtum. Rússar taka bæinn Vasilievsk „Gomel búm að míssa hernaðairlegí gíldi" segja Pjódverjair Sókn rauða hersius fyrir sunuan Kremensjúg gengur vel. Komust Rússar í gær að jámbrautinni milli Kremensjúg og Snamenka. Tóku þeir 8 víggirta staði á þeim slóðum í gær og jámbrauíarbæiim Vasiliefsk. Er rauði herinn nú í um 20 km. fjarlægð frá hinni mikilvægu jámbrautarstöð Snamenka. Sunnar í Dnépr-bugðunni unnu Rússar einnig á í gær og tóku 10 hemaðariega mikilvæga staði milli Dnépropetrovsk og Nikopol. Lánsheimíid til handa ríkisstjórninni Frumvarp um heimild fyrir ríkisstjóm til að taka 10 milljón króna lán til að borga erlendar skuldir var afgreitt til þriðju umræðu í neðri deild í gær. Ríkisstjórnin lýsti því yfir að hún mundi ekki nota þessa heimild nema eftir því sem heimilt yrði að borga lánin er- lendis, en það er 8,6 milljónir haustið 1944 og ca. 6.4 milljónir á árinu 1945. Verkamenn styðja endurkjör Roosewelts United Automobile Workers, stærsta verkamannafélag Banda ríkjanna, skoraði nýlega á alla meðlimi sína, að beita sér fyr- ir því, að Roosevelt yrði kosinn , forseti í fjórða sinn í forseta- kosningum á næsta ári, sömu- leiðis, að Henry Wallece yrði endurkosinn sem varaforseti. Skorað var á ríkisstjórnina að sýna afturhaldsöflunum í tvo heimana. Frumvarpið um skipa- smiðastððfna komið til annarrar umræðu Frumvarp til hafnarlaga fyr- ir Reykjavík fór til þriðju um- ræðu í efri deild í gær. Frum- varp þetta er sém kunnugt er samið af nefnd þeirri, er athug- að hefur mö^uleika á að byggja skipasmíðastöð í _ Reykjavík. Frumvarpið fjallar um hafnar- mannvirki í Elliðaárvogi vegna skipasmíðastöðvarinnar. Rússar tilkynntu í gær, að þeir hefðu yfirgefið nokkra staði á suð-vestur hluta Kíeff- vígstöðvanna, eftir að þeir höfðU valdið Þjóðverjum afar miklu tjóni. Hafa Þjóðverjar haldið þarna uppi hamslausum i áhlaupum undanfarið, er víg- línan nú um. 10 km. frá Brusi- loff, sem er um 60 km. fyrir austan Sítomír. Á norðurhluta Kíeff-vígstöðv anna heldur sókn rauða hers- ins áfram. Rússar vinna einnig á í nágrenni Rikitsa. Rauði her- Framh. á 8. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.