Þjóðviljinn - 04.01.1944, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.01.1944, Blaðsíða 8
JLEIKFELAG reykjavíkur. „VOPN GUÐANNA“ eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag. Óvenju rðlegt gamlárskvðld En innbrotsþjófar voru þó á kreiki. jrrír ungir piltar handtaka erlenda þjófa Gamlárskvöld, var að þessu sinni eitt af þeirn rólegustu, sevi lög- reglan hefur lengi þekkt, sagði Erlingur Pálsson yfirlögreghiþjónn i við- tali við Þjóðviljann í gœr. Sá óvenjulegi atburður gerðist, að tveir 16 ára ■pilt.ar og einn 1S ára handtóliu erlenda sjómenn, er frömdu innbrot. Nœturvörður er í Laugavegsapóteki. Ljósatími ökjutœkja er frá kl. S að degi til kl. 10 að morgni. Útvarpið í dag: 20.20 Tónleikar Tónlistarskólans: Strengja- sveit leikur undir stjórn dr. Urbant- schitsch: a) Handel: Hirðingjasöngur úr „Messias". b) Corelli: Jólakonsert í g-moll. 20.45 Erindi: Uppreisn Catilínu gegn róm- verska lýðveldinu( dr. Jón Gíslason). 21.10 Hljómplötur: Kirkjutónlist. LEIÐRÉTTING. I afmælisgrein um Þorkel Clausen í Morgunblaðinu 26. nóv. s. 1. er sagt: „Hann er elztur Clausensbræðra". En l>ar sem ég tel að l>ar sé farið rangt með, vildi ég leið- rétta það, en það liefur ekki fengizt, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Vil ég því biðja Þjóðviljann að gera svo vel að taka af mér leiðréttingu. Þorkell er fæddur 20. nóv. 1883, en ég 6. apríl 1880, og því nokkru eldri. Reykjavík, 20. desember 1943. Iljörtur Clansen. Innbrot l fyrrinótt var brotizt inn í búð G Ólafssonar og Sandholt Laugavegi 34 og. stolið peninga- kassa með 150—200 kr. Fannst kassinn í gærmorgun á Grettis- götunni, brotinn og tómur. í fyrrinótt var einnig farið inn í ólæsta íbúð, stolið úri og 50—60 kr. úr fötum sofandi manns í einu herbergi og ca. 1700 kr. úr fötum er lágu í öðru herbergi. Guðmundur Jðnsson frá Narfeyri jarðsettur í dag Guömundur Jónsson frá Narf- eyri veröur jarösunginn í dag vestur í Stykkishólmi. Guðmundur var einn af braut- ryðjendum verkalýðshreyfing- arinnar og þekktur víðsvegar af verkamönnum fyrir starf sitt í þágu stéttarinnar og naut al- mennra vinsælda. Sjúkrahúsið að Brekku brennur Sjúkrahúsið að Brekku í Fljóts dal brann í fyrrinótt. Ekkert manntjón varö af eldinum. íbúð héraðslæknisins brann einnig, því hann bjó í sjúkra- húsinu. Er þetta tilfinnanlegt tjón fyrir héraðsbúa, því oft er erfitt um sjúkraflutninga ofan úr Héraði niður á firði að vetr- arlagi. Ailskonar veitingar á boðstóium. Hverfisgötu 69 MUNIÐ Kaffisöluna Hafnarstræti 16 Þessir þrír ungu menn eru þeir Egill Guðmundsson Bræðra borgarstíg 14, hann er 16 ára, Ólafur Guðmundsson Hofsvalla- götu 22, líka 16 ára og Páll Halldórsson Hólavallagötu 5, hann er 18 ára. Um kl. 2 á nýjársnótt heyrðu þeir brothljóð í Veltusundi, en þeir voru þá staddir þar í ná- grenninu. Brugðu þeir þá við og sáu 2 erlenda sjómenn hlaupa vestur Vallarstræti, eltu þá og náðu þeim í Grjótaþorpinu og handtóku þá eftir nokkrar stympingar og fóru með þá á lögreglustöðina. Höfðu þeir brotið rúðu í verzl- un Magnúsar Benjamínssonar og stolið 5 úrum, 7 hringum og cigarettuveski úr silfri. Tókst þeim þó að losa sig við 4 hringa og 3 úr á leiðinni. Þessir sömu sjómenn hafa einnig játað á sig þjófnaðinn í verzlun Jóns Sig- mundssonar. — Til marks um það, hve gaml- árskvöld nú var rólegt er það, að á tímabilinu frá kl. 8 að kvöldi til 4 að morgni tók lög- reglan 8 manns „úr umferð“ en undanfarið tekið milli 50—60 manns á sama tíma þegar verst hefur verið. Engar íkveikjutil- raunir voru gerðar og slökkvi- Um hádegi í fyrradag kvikn- aði í efri hæð hússin Hverfis- götu 59 B; Varð eldsins vart í íbúð Haraldar Eiríkssonar pípu- lagningarmanns, en þar voru 2 litlir drengir inni að leika sér. Er talið að þeir muni hafa farið óvarlega með eldspýtu. Móðir þeirra náði þeim út úr herberg- inu. Eldurinn magnaðist mjög fljótt og eyðilagðist efri hæðin og allt sem í henni var áður en eldurinn varð slökktur. Neðri liðið aldrei kallað út, en nokkr- um tómum tunnum var velt fyrir bifreiðar. Hafði lögreglan því ekki meira að gera en venju- lega á föstudags- og laugardags- kvöldum. EN ÞJÓFARNIR HÖFÐU SIG Á KREIK Sveinn Sæmundsson hafði ekki sömu friðsemdarsöguna að segja af þjófunum, þeir hafa verið starfsamir síðan á áramót- unum. Á nýársnótt var brotist inn í veitingastofuna Fróðá og stolið 126 kr. í peningum, 48 vindlinga pökkum og 8 bjórflöskum. Sömu nótt var stolið 2500 kr. úr fötum sofandi manns í ó- læstri íbúð. Sömu nótt var brotizt inn í gufupressuna Stjarnan Kirkju- stræti 8, óvíst hvort nokkru hef- ur verið stolið. í fyrradag kviknaði í bifreið á móts við Ásvallagötu 29, var eldurinn slökktur fljótt, en bif- reiðin skemmdist töluvert. í gær, kl. 19,49 kviknaði all- mikill eldur í miðstöðvarher- bergi í Borgartúni 4. Var hann fljótlega slökktur. hæðin og kjallarinn skemmd- ust töluvert af vatni. ELDUR í GUNNARSHÓLMA Klukkan 11,20 í gær hringdi Gunnar í Von og bað slökkvi- liðið um aðstoð við að slökkva eld sem kviknaður var í Gunn- arshólma. Fór slökkviliðsbifreið þegar uppeftir og gekk greið- lega að slökkva eldinn, en var þó uppfrá í 3 stundir. Efri hæð- in og risið skemmdist mikið af eldi, neðri hæð töluvert af vatni. ......... NÝJA BÍÓ ........ Svarti svanurinn (The Black Swan) Stórmynd í litum eftir sögu Rafael Sabatini. Aðaihiutverk: Tyrone Powder. Maureen O’Hara. Bönnuð börnum innan 14 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. ••••• TJARNAR BÍÓ ....* GLAUMBÆR (Holiday Inn) Amerísk söngva- og dans- mynd. 13 söngvar — 6 dansar. BING CROSBY FRED ASTAIRE MARJORIE REYNOLDS VIRGINIA DALE Ljóð og lög eftir Irring Berlín. Sala hefst.kl. 1. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem á einn eða I annan hátt heiðruðu mig á fimmtugsafmæli mínu f 21. des., með höfðinglegum gjöfum og skeytasend- | ingum, og gjörðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. s Halldór Ólafsson, | Fögruhrekku. Samkeppni I Teiknistofa landbúnaðarins efnir hér með til sam- keppni um uppdrátt að íbúðarhúsi á sveitabýli. 1. verðlaun 3000 krónur. 2. verðlaun 2000 krónur. 3. verðlaun 1000 krónur. Starfsmenn teiknistofunnar taka ekki þátt í sam- keppninni. Nánari upplýsingar um tilhögun og kröfur sam- keppninnar fást hjá forstöðumanni Teiknistofunnar. Tíl alhagunar fyrír verðbréfaeígendur Sérstök athygli verðbréfaeigenda er vakin á því, að vextir eru ekki greiddir af útdregnum bankavaxta-' bréfum Landsbanka íslands eftir gjalddaga þeirra. Þegar útdregin bréf eru innleyst, skulu fylgja þeim allir vaxtamiðar fyrir tímann eftir gjalddaga þeirra. Vanti slíka vaxtamiða, er upphæð þeirra dregin frá andvirði hinna útdregnu bréfa, hvort sem greiðsla á þeim kann að hafa farið fram eða ekki. Hér með er skorað á alla eigendur bankavaxta- bréfa að gæta þess að framvísa útdregnum bréfum til- greiðslu á réttum gjalddaga. í febrúarmánuði ár hvert er auglýst í Lögbirtingablaðinu númer þeirra bankavaxtabréfa, sem útdregin eru til innlausnar 2. janúar næst á eftir, svo og númer áður útdreginna bréfa, sem hafa ekki komið fram til innlausnar. Út- dráttarlistinn er sérprentaður og fæst ókeypis í bank- anum og útibúum hans og hjá flestum sparisjóðum landsips. Þess skal getið, að í ársbyrjun 1943 voru óinnleyst- ar rúmlega 200 þúsund krónur af bankavaxtabréfum, útdregnum til innlausnar 2. janúar 1942 eða fyrir þann tíma. Er hér um að ræða tilfinnanlegt vaxtatap fyrir eigeindur bréfanna. Hinn 2. janúar 1944 koma til innlausnar 4,4 millj. kr. af bankavaxtabréfum og er það langhæsta upp- hæðin, sem útdráttur hefur farið fram á til þessa. Er því sérstaklega nú áríðandi, að verðbréfaeigendur kynni sér útdráttarlistann, ef þeir vilja komast hjá 'vaxtatapi. LANDSBANKI ÍSLANDS. EINA ÍKVEIKJAN FRÁ JÓLA- TRÉ Kl. 15,51 í fyrradga var slökkviliðið kvatt að Kárastíg 1 til að slökkva eld er kviknað hafði út frá jólatré. Var eldurinn slökktur þegar slökkviliöið kom á vettvang. Er þetta eini eldurinn er slökkvi- liðiö hefur veriÖ hvatt til vegna íkveikju frá jófatré á þessum hátíöum. í fyrradag brann efri hœð hússins Ilverfisgata 59 fí og allt, sem í henni var. í gœr kviknaði í ejri liœð Gunnarshólma og skemmdist hún all- mikið af eldi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.