Þjóðviljinn - 21.01.1944, Blaðsíða 2
2
ÞJÓÐVILJIN N
Föstudagur 21. ijanúar 1944.
Leikur að dauðanum
r
I
Hla sagðar og vel sagðar
lygasögur
Allir þekkja menn sem semja
og segja meinlausar lygasögur
svo vel, að unun er á að hlýða.
1 þessum hópi eru menn eins og
okkar ,,VelIygni-Bjami“ og Miinc
hausen Þjóðverjanna. Þetta eru
menn sem hlotið hafa náðargáfu
kýmninnar í ríkum mælí, en sú
gáfa er manni góð.
En svo er til önnur tegund
manna sem líka semur lygasög-
ur, ekki til að þjóna eigin og
annarra kýmnisgáfu, heldur til
að gera sjálfa sig stóra á ann-
ara kostnað.
Þessir menn eiga að réttu sam-
heitið skítmenni, en ólíkt er það
með þeim, að sögur sumra þeirra
eru illa sagðar og leiðinlegar,
aðrar vel sagðar og býsna áhrifa-
ríkar.
Hér kemur illa sögð saga
í einni hinni „stóru ræðu“, sem
„lengi mun getið í þingsög-
unni“ að því er Alþýðublað-
ið hermir, sem Stefán Jóhann
flutti um sjálfstæðismálið, sagði
hann eftirfarandi lygasögu:
„Fyrir nokkrum árum var
rætt um það í miðstjórn komm-
únista á íslandi, hvað gera skyldi
ef til stríðs kæmi milli Rússa
annars vegar og hinna engilsax-
nesku þjóða hins vegar. Einar
Olgeirsson lagði þá til að sjó-
menn 'yrðu kvattir til að sigla
togurunum til Rússlands og að
olíugeymarnir við Skerjafjörð og
á Klöppinni yrðu sprengdir í loft
upp“.
Þannig sagði Stefán frá. Al-
þýðublaðið birtir frásögnina,
sennilega sem sýnishorn af þeim
ræðum sem lengi muni getið í
þingsögunni.
Göbbels gerði betur
Þegar Einar Olgeirsson svar-
aði Stefáni í fyrradag, sagði i
hann að rétt væri að minna
Stefán á miklu skemmtilegri og
áhrifaríkari/ lygasögu um komm-
únista, en þá sem honum hefði
tekizt að búa til. Sagan væri
svona:
Fyrir nokkrum árum var rætt
í miðstjóm kommúnistaflokks
Þýzkalands hvernig bylting
kommúnista þar í landi skyldi
hafin. Þá var lagt til að byrja
skyldi á að kveikja í þinghúsinu.
Tillagan var samþykkt og fram-
kvæmd, en fyrir frábæran dugn-
að slökkviliðs nazista tókst að
slökkva eldinn í þinghúsinu, en
brunastaðurinn var sýndur árum
saman sem dæmí um fólsku komm-
únista. Sömuleiðis tókst að bæla
starfsemi kommúnista í Þýzka-
landi niður fyrir glæsilega fram-
göngu nazista.
Þessi saga var sögð þannig, að
henni var trúað víða um heim,
einnig hér á landi, og talað var
um hvort rétt væri að bíða þess
að loga tæki við Austurvöll,
hvort ekki ætti að grípa fyrir
kverkar kommúnistanna áður.
Þeir eru miklu slyngari, Göbb-
els og Göring, en Stefán. Þó lík-
iega takist þeim nú ekki að
vinna „hið menningarsögulega
hlutverk“ að útrýma kommún-
ismanum. Kannski Stefán reyni
að taka við þar sem þeir gef-
ast upp.
Alþýðublaðið segir frá
Þegar Alþýðublaðið hefur sagt
frá þessari samkeppnisherferð
Stefáns við þá Göbbels og Gör-
ing, bætir það við:
„Einar Olgeirsson gerði ekki
svo mikið sem tilraun til að kalla
fram í fyrir Stefáni Jóhanni,
þegar hann kom með þessar upp-
lýsingar, hvað þá heldur að
hann treysti sér til að andmæla
þeim einu orði. Enginn flokks-
manna hans þorði heidur að
hreyfa andmælum“.
Togarínn Júpiler «ír Hafnarfírðí lœtur í haf
ofhlaðínn — Hvað gerír skípaeftirlílíð?
Um játt er meira hugsað oy rneira rœtt þessa dagana, en ojhleðslu
togaranna.
llugrekki. sem stojnar fjölda manna í líjshœttu er ekki lengur
hœgt að telja hugrekki. heldur er það glatpsamleg jávísi.
Ojhleðsla togaranna virðist þegar hafa gengið það langt, að cigi
verði hjá þvi korjiizt að grípa í taumana aj jullri, alvöru.
Skal hér skýrt jrá einu'atviki í þessu sambandi, sem gerðist í des-
í lestunum og hafa nú aðeins
eina í stað tveggja og þriggja
áður og minnka ísinn. — Þá er
þess ennfremur að gæta, að áð-
ur var fiskurinn látinn með
haus og þar af leiðandi var
meira loft í lestunum.
Þessi stutta frásögn Alþýðu-
blaðsins segir í öllu sínu yfirlæt-
isleysi furðu mikið um Alþýðu-
blaðið. Frásögn Stefáns varð
að gera sennilega með því að
segja að Einar Olgeirsson hafi
ekki gripið fram í fyrir Stefáni,
og þar næst að hvorki Einar né
aðrir kommúnistar hafi svarað.
Auðvitað vissi Stefán Pétursson,
sem var fréttaritari Alþýðublaðs-
ins á Alþingi þegar nafni hans
var að flytja sína illa gerðu
lygasögu, að Einar var á mæl-
endaskrá en röðin ekki komin að
honum þegar þessum fundi lauk.
Auðvitað vissi hann, að Einar
mundi tala daginn eftir og þeg-
ar blað hans kom út var Einar
búinn að tæta ræðu Stefáns svo
sundur að þar stóð ekki steinn
yfir steini. En í Alþýðublaðinu
skal það standa svart á hvítu, að
Einar hafi ekki svarað.
Stefánarnir hafa vissulega lært
af Göbbels og Göring, en klaufa-
lega nota þeir sér lærdóminn.
Enn um „spámannu
Siðan Alþýðuflokkurinn tók
upp þá „stefnu“ að berjast gegn
yfirlýsingum sínum og stefnu-
skrám, hafa flestir venjulegir
menn yfirgefið hann. Foringjarn-
ir láta sig það þó litlu skipta, en
halda áfram á hinni nýju braut,
sumir í krafti Staunings sáluga,
aðrir í krafti Rutherfords eða
Hallesbys.
Jónas Guðmundsson er einna
frægastur af „spámönnum“ Al-
þýðuflokksins, en nú er annar að
ryðja sér til rúms sem slíkur,
það er Sigurður Einarsson.
Hann hefur nú nýlega talað urn
„ósýnilega flutninga“ í útvarpið
og var ræða hans öll í spámanns-
stíl. Vitnaði hann oft í fyrri
«,,spádóma“ sina sem hann taldi
að hefðu þegar ræ£t, og þá var
áuðvitað ekki að efast um óskeik-
ulleik hans nú. En dósentinn
gleymdi að minnast á síðasta
,,spádóm“ sinn í útvarpinu áður
en honum var veitt lausn ,,í náð“
árið 1941. „Spádóm“ þennan
birti hann tveimur vikum áður
en Þjóðverjar réðust á Sovétrík-
in og var efni hans eitthvað á
þessa leið: Ef Þjóðverjar ráðast
á Rússa munu verða þar skjót
umskipti. Rauði herinn er litils
megnugur, hershöfðingjarnir ó-
reyndir (því hina hafði Stalin
iátið drepa) vopnin ilia gerð og
óhentug og síðast en ekki sízt,
ember s. I.
SAGAN AF JÚPÍTER
Þáð mun hafa verið 12. des.
s. 1. að togarinn Júpíter frá
Hafnarfirði kom inn af veiðum
um kl. 3 e. h.
Vinna var þegar hafin við
skipið. Þeim, er unnu við skipið,
og öðrum er nærstaddir voru
virtist það vera allt of mikið
hlaðið. Fengu þeir vitneskju
um að taka ætti 20 tonn úr skip,-
inu áður en það léti í haf.
Byrjað var að taka fisk upp
úr lestinni og láta hann á dekk-
ið. Var fiskurinn látinn í trog,
og mun hafa verið í því ca.
1 tonn, og var það híft upp á
bryggju. Látið var í annað trog
hálft og kranamanninum síðan
skipað að hífa, en hann and-
mælti því, þar sem aðeins væri
krókað í annan enda trogsins.
Var honum sagt að hann skyldi
hífa, því fiskurinn ætti að fara
aftur ’ á dekkið, og gerði hann
það.
Var síðan bundið yfir lúg-
urnar og fiskurinn látinn vera
á dekkinu.
Skömmu síðar fór skipið áleið
is til Englands og var fiskur-
inn enn á dekkinu. Mun hafa
ef alþýða Sovétríkjanna fær
vopn í hendur mun hún tafar-
laust gera uppreisn gegn stjórn
kommúnista. Það getur varla lið-
ið meira en hálfur mánuður frá
innrás Þjóðverja þar til Sovét-
ríkin hafa gefist upp“. Hvemig
hefur nú þessi spádómur þessa
vitrings Alþýðuflokksins ræzt ?
Vill ekki Hannes litli homagægir
velta því fyrir sér áður en hann
skrifar lofgerðarrollu næst um
framsýni Sigurðar Einarssonar?
k.
„Þolir engan samjöfnuð“
Alþýðublaðið hittir vissulega
naglann á höfuðið er það telur
ræðu Stefáns Jóhanns á fundi í
sameiþuðu þingi s. 1. föstudag
með einsdæmum. Það er vissu-
lega einsdæmi að alþingismaður
berjist gegn sinni eigin tillögu
þegar hún kemur til umræðu,
um leið og hann berst gegn sinni
eigin þjóð Slíkt þolir áreiðanlega
engann samjöfnuð. k.
verið látið í vetiri vaka, að
henda ætti fiskinum í sjóinn,
þar sem hann væri skemmdur.
Var það haft sem ástæða fyrir
því að fiskurinn væri ekki tek-
inn í land.
Nú er það vitað, að tekinn
hefur verið upp fiskurinn sem
vai' ejstur í lestinni — nýjasti
jiskurinn.
Haji hann verið orðinn það
skemmdur að ástœða haji ver-
ið til að fleygja honum, hvað
mun þá haja verið um neðsta
jiskinn í lestinni?
Það mun hafa verið sam-
kvæmt kröfu eítirlitsmanns, að
taka átti upp. úr skipinu þessi
20 tonn. Síðan mun hann hafa
fallizt á að tekið yrði upp ca.
10 tonnum minna af fiski, þar
sem togvírar skipsins voru sett-
ir í land.
Það verður því ekki komizt
hjá því að spyrja: Hvers vegna
sleppir hann skipinu án þess
að kröfum *hans hafi verið full-
nægt?
Hvað var ggrt við fiskinn,
sem var á dekkinu þegar skip-
ið jór?
Er það raunverulega svo að
skipaeftirlitið „sjái í gegn um
fingur“ við frekju útgerðar-
manna?
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
hefur nú gert ráðstafanir til
þess, að atburður eins og þessi
með Júpíter endurtaki sig ekki
í Hafnarfirði.
RADDIR SJÓMANNA
Engum er kunnara en sjó-
mönnum sjálíum, hverju er
helzt ábótavant í þessum efn-
um. Allmargir sjómenn hafa
rætt við Þjóðviljann um þessi
mál og verður hér drepið á
nokkur atriði er þeir hafa rætt
um.
ALLT AÐ 9000 KÖRFUR í
STAÐ CA. 3000 ÁÐUR
Þess munu vera dæmi að nú
séu látnar 8—9 þús. körfur af
fiski í togara, sem áður voru
látnar í rúmar 3 þús. körfur.
Þetta hefur verið hægt að
gera með ! því að fækka hillum
STÆKKUN LESTANNA
Þá hafa flestir togaranna ver-
ið stækkaðir aftur með því að
taka hálf forboxin, sem ætluð
voru til kolageymslu, þilja þau
innan og fylla með fiski. —
Það virðist augljóst mál að
þetta raskar hinum upphaflegu
hleðsluhlutföllum skipanna.
♦
ÍSKLEFINN
Þá er það að „ísklefinn“r
fremstu stíur í forlest, eru í
mörgum togurum fylltar af
fiski. Afleiðingin er vitanlega
sú, að skipið „liggur á nösum“.
Áður munu þessar stíur oft-
ast hafa verið tómar eða því
sem næst.
OF ÞUNG YFIRBYGGING
Enn er eitt, sem raskar jafn-
vægi og hleðsluhlutföllum tog-
aranna, og það er steinsteypan
á brúm togaranna. Hún veldur
því óhjákvæmilega að yfirbygg-
ing togaranna verður of þung'
samanborið við kjalfestu þeirra,
og gerir skipin hættulega völt í
sjó.
HLEÐSLUMERKIN
Hleðslumerki togaranna eru
nú rétt á móts við vindur þeirra.
Margir sjómanna eru þeirrar
skoðunar að þetta sé ekki hinn
rétti staður fyrir hleðslumerkin
og ættu þau að vera framar á
skipinu, til þess að ná tilgangi'
sínum sem bezt, þar sem of-
hleðslan er fyrst og fremst að
framan og togararnir „liggja á
nösunum“.
AÐ NÁ LANDI
Hættulegasta ofhleðsla togar-
anna er þó af veiðum til landá.
Áður en skiþin sigla með afl-
ann, eru veiðarfæri þeirra og
ýmislegur útbúnaður tekinn í
land. Mun láta nærri að þessi
útbúnaður vegi a. m. k. um 20
tonn.
Séu skipin ofhlaðin, þrátt fyr-
ir þá léttingu, hvað mun þá hafa
verið á leið af veiðum til lands?
Þess munu dæmi, að þegar
lítið vantar í skipin er kastað,
og aflinn verður meiri en hægt
Framhald á 8. síðu.