Þjóðviljinn - 21.01.1944, Qupperneq 3
Föstudagur 21. 'janúar 1944-
ÞJÓÐVILJINN
S
íþróttanef ndin
Með samningu íþróttalaganna og gildistöku þeirra 12 febr. 1940
hefur óneitanlega verið stigið stórt spor í íþróttamálum vorum. Eitt af
ákvæðum þeirra er um skipun íþróttanefndar ríkisins þar sem einn
þeirra er skipaður af í. S. f. annar af U. M. F. 1. og þriðji af kennslu-
málaráðuneytinu, allir til þriggja ára í senn. Þessi fyrsta nefnd liefur
nú fyrir nokkru lokið sínu þriggja ára starfi og í því tilefni gefið út all-
ítarlega skýrslu um störf sín.
Nefnd þessi hefur einnig stjórn íþróttasjóðs á hendi, enda er mikill
hluti starfs hennar að úthluta fé úr honum. Hefur á þessum þrem ár-
um verið mikið unnið að íþróttamannvirkjum og hefur nefndin auk
fjárveitinga veitt ýmsa aðra aðstoð við byggingarnar, svo sem teikning-
ar, útvegun efnis o. fl. Mun nefndin með sinn áhugasama framkvæmda-
stjóra, íþróttafulltrúa ríkisins Þorstein Einarsson, hafa unnið ötullega.
Ef skýrslan er athuguð, kemur í Ijós að fjárveitingar til íþróttamála í
landinu eru í fjórum opinberum stöðum, én það eru íþróttanefnd ríkis-
ins, í. S. í. og U.. M. F. í. auk þess mun Alþingi hafa veitt aukalega
án milligöngu íþróttasjóðs.
Frá mínu sjónarmiði hefðu allar fjárveitingar til íþróttamála átt
að vera á einum stað, hvort sem þær voru til verklegra framkvæmda,
íþróttakennslu eða annars sem að íþróttum lýtur. Þessi margskipting
hlýtur að verða til að dreifa en ekki til að sameina. Sameining og
samræming hlýtur þó að vera undirstaða allra félagslegra átaka, ekki
sízt þegar um áhugastörf er að ræða. Þessi nefnd hefði því átt að starfa
í beinu og nánu sambandi við yfirstjórn íþróttamálanna í landinu, sem
að sjálfsögðu á að vera eín, hvað svo sem hún er látin heita. Þetta hlýt-
ur bæði nefnd þeirri er fjallaði um íþróttalögin að hafa verið fullljóst
og sömuleiðis þingmönnum Alþingis, sem samþykktu þau. Enn hefur
ekki komið til neinna átaka um þetta atriði og lögin yfirleitt, og má vera
að það sé að þakka því, að velviljaðir menn íþróttahreyfingunni og sátt-
fúsir sitji í þessum trúnaðarstoðum. Þó má gera ráð fyrir að þessi atriði
og lögin yfirleitt verði endurskoðuð fyr en seinna, enda er það algengt
um nýjar lagasetningar, að þær séu endurskoðaðar fljótlega.
Samanburður sá, sexn gerður er í skýrslunni á ýmsum störfum
1. S. í. og U. M. F. í. hefði ekki átt að vera þar, auk þess sem sumt af
því er beinlínis villandi. Eftir skýrslunni gætu ókunnugir haldið að á
landinu væru nú 308 íþróttafélög, eða 157 í í. S. t. og 151 í U. M. F. í.
En mörg félögin eru í báðum samböndunum.
Um fjárveitingu nefndarinnar til U. M. F. í. og í. S. 1. mætti margt
segja, en að þessu sinni læt ég það bíða.
Nefndin hefur nú verið skipuð á ný og eru í henni þessir menn:
Daníeí Ágústínusson frá U. M. F. í. Kristján Gestsson frá í. S. 1 og
frá Kennslumálaráðuneytinu Guðm. Kr. Guðmundsson og er hann for-
maður nefndarinnar. Um þessa menn er ekki nema gott eitt að segja, þó
ég hinsvegar telji æskilegt að íþróttamenn sneiði eftir því sem hægt
er fram hjá þeim mönnum til sinna starfa. sem framarlega standa í
stjórnmálabaráttunni.
Að lokum óska ég svo að nefndin fái sem mest fé til umráða. því
þörfin er mikil og víða.
Leikfimi í verksmiðjum
ÍÞRÚTTIR
+ RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON
íþróli er leikur
áá
Þetta er einn af leikjum drengjanna qö Kongsbergi. — Það er Birgir
Ruud sem flýgur, en trúlcgt er, aö fótur hans sé fastari nú þessa dag-
ana, eftir síðustu fréttum að dœma — nazistur tóku hann fastan, ásamt
fleiri íþróttamönnum, er gengust fyrir skíðamóti í trássi við nazistana.
Taiið er, að slysahætta hjá
verksmiðjufólki aukist mjög
er líður á vinnudaginn, og af-
köst þess séu þá oft minni en
í byrjun hans, a. m. k í sum-
um starfsgreinum.
Orsökin er talin þreyta og
dvínandi eftirtekt. í Svíþjóö
hefur verið gerð mjög merki- i
leg tilraun til að vinna gegn
þessum alkunnu áhrifum
vinnunnar. Fyrir 5 árum var
hafizt handa í skóverksmiðj-
um samvinnufélaganna í Öre-
bro um iðkun leikfimi í 5
mínútur á hverjum degi, þeg-
ar eftir voru 2 klst. af vinnu-
tímanum. Verksmiðjufólkið
hætti vinnu og tók þátt í æf-
inaunum. Allar vélar voru
stöðvaðar, gluggar opnaðir og
hreint Ioft strevmdi inn í
vínnusalina. Hver* maður fór
úr sínum stað og tók sér |
stöðu í göngum milli vinnu- '
vélanna og æfingamar hóf-
ust undir stjórn kennara er
fenginn var til verksmiðj-
anna. Fólkið fagnaði hreyf-
ingxmni og árangurinn varð
sá, að það hresstist og varð
líflegra, vinnuþreytan rénaði
og þróttur þess og gleði óx.
Slík nýjung sem þessi ætti
aö komast á hér á landi. En
auk þess þarf í náinni fram-
tíð að koma upp hæfilega
stórum æfingaskólum ásamt
góðum baðtækjum við hverja
verksmiöju og hvert iðnaðar-
fyrirtæki, þar sem allt starfs-
fólkið gæti iökað nokkrar hoil
ar líkamsæfingar og fengiö
gott bað aö loknu dagsverki.
Vera má að það geti dreg-
’izt nokkuð að þessi skilyrði
skapist og örðugra er fyrir
lítil fyrirtæki en stór að hefj-
ast handa um þetta. Eigi að
Frh. á 8. síðu.
Skammt frá Osló er íþrótta-
félag sem heitir Kongsberg.
Það er stofnað 1920 og er
fyrsti formaður þess Tormod
Ruud sem elztur er af þeim
bræðmm. Þetta félag er dá-
lítið sérstakt. Það er ekki í
neinu sambandi og hefur
engar skyidur við íþróttasam-
tökin, en tilgangur þess er, að
safna þeim yngstu og koma
þeim í góðan félagsskap og
veita þeim alhliða þjálfun og
þaðan hafa beztu skíðamenn
komiö.
.Faðirinn Ruud hefur gefiö
land undir velli og lánar hús
til starfseminnar. Þegar strák
amir láta sem verst, færist
breitt bros yfir andlit hans,
og skemmtir hann sér vel þá.
í eftirfarandi grein segir
Tormod Ruud álit sitt á í-
þróttum sem leik og hinum
i hátíölegu íþi’óttamönnum.
Það versta sem ég þekki
em hátíðlegir íþróttamenn og
pólitíkusar.
Þeir hafa margt sameigin-
legt en þó mun ég aðeins
ræða hér um íþróttamennina.
íþróttamenn, sem iðka allar
sínar íþróttir eftir ákveðnum
l línum, sem hátíðlega og ná-
kvæmt fylgjast með öllum
sínum hreyfingum, sérhverri
smá vöðvahreyfingu líkam-
ans, sá sem rannsakar allt
með nákvæmni tímamælisins,
jafnvel brosið og leiknina í
íþróttunum, hann bíður á-
byggilega jafn mikiö tjón á
sálu sinni sem hann sækir
styrk í íþróttaæfingar.
Það er mögulegt og jafnvel
sennilegt aö hann nái betri
árangri, en það verður þá
honum það einasta. Hann
tekur á móti tilkynmngunni
um þennan ágæta árangur
sinn án þess að gleðjast eða
hrífast. Kurteis, hátíðlegur og
hreyfingarlaus stendur hann,
hinn hátíðlegi íþróttamaöur.
Eg hef aldrei hugsað mér að
; þetta væri tilgangur íþrótt-
I anna. íþróttirnar eru fram-
| hald af því skemmtilega lífi
og hinum létta leik æskuár-
anna. Fyrir mér hafa íþrótt-
irnar staðið sem hluti af þeim
leik sem við byrjuðum á sem
unglingar.
Því miður lítur út fyrir að
þróunin sé komin svo langt,
að mikill hluti íþróttaæskunn
ar er of hátíölegur til að
skilja þetta. Við, þessir „óhá-
tíðlegu“, við iðkum íþróttir
markvissara en leik og skilj-
um tilgang þeirra. En eins og
leikimir gáfu kröftmn drengj
anna eðlilega útrás, eiga í-
þróttimar einnig að gefa
þeim vöxnu hina sömu,
frjálsu hamingjusomu tilfinn
ingu.
Hversu vel man ég ekki
mótin hjá strákafélögunum
þar sem keppt var í öllum ó-
trúlegustu íþróttagi’einum.
Eg minnist eins móts. Þaö
átti að vera meiriháttar af-
mælismót. Heiðursfélagi félags
ins, Helgi Jövland, átti að
vera viðstaddur. Útnefning
hans sem heiðursfélaga má
fyrst og fremst þakka þeirri
miklu virðingu sem við höfð-
um fyrir olympíumeistaran-
um (tugþraut) og svo í öðm
lagi fyrír það að hann hafði
gefið félaginu fyrstu kúluna
og kringluna. Áður notuöum
við flata og hnöttótta steina.
Búningarnir glitruðu þar í
öllum regnbogans litum og
vom af öllum mögulegum
gerðum. Og hversu hreyknir
við vorum þegar við gengum
í skrúðgöngu fyrir tugþraut-
armeistarann og fieiri hátt-
setta íþróttamenn!
Við skildum ekki hlátur
þrælanna sem heilsuðu þess-
ari alvarlegu skrúðfylkingu,
fyrr en við litum á síðasta
mann í göngunni, Brynjolf
Hansen, þá um 7 ára aldur.
Þá fékk okkar óhagganlega
I alvara ekki svo lítið áfall.
Hann hafði sem sé gleymt
buxunum. En betra er aö
vera buxnalaus en ráðalaus,
hugsaði snáðinn. Þá fékk
hann sér öryggisnælu og tog-
aði peysuna niður að aftan og
framan og nældi saman milli
fótanna. Þetta leit vel út til
að byrja með en þegar komið
var á völlinn höfðu peysuboð-
angamir snúizt svo að það
var lítiö sem öryggisnælan
skýldi. Síðan byrjaði mótið.
Tíminn líður. Drengirnir
sem léku sér á vellinum í
skóginum fara að kom fram
• Framhald á 8. síðu.