Þjóðviljinn - 01.02.1944, Blaðsíða 1
Ifssar toinlp ilip hn-
í íífhverfuin Kíngíséffs
Bauði herinn er kominn yfir Lúgafljót á nokkrum
stöðum í sókninni vestur frá Novgorod. Höfuðmarkmið
sóknarhersins er bærinn Lúga. Annar her sækir í átt-
ina til hans, úr norðri, en hann er ekki kominn yfir
fljótið.
Norðar berjast Rússar við Þjóðverja í úthverfum
bæjarins Kingiséffs, sem er á eystri bakka Lúgafljóts
við jámbrautina milli Leningrad og Narva. Er hann að-
eins rúmlega 15 km. frá landamærum Eistlands.
Barísf
Engar stórbreylingar
á Ítalíu
Bandamönnum verður tölu-
vert ágengt á syðri vígstöðv-
unum. Eru þeir komnir inn í
ytri varnir Gústafslínunnar.
Á Rómvígstöðvunum hafa
Bandamenn stækkað brúarsporð
sinn. Þjóðverjar búast nú til
varnar um 23 km. frá strönd-
inni.
Þjóðverjar tilkynna, að tíu
ítalir hafi verið teknir af lífi
í Rómaborg fyrir skemmdar-
verk.
Aðalfundur
Dagsbrúnar
Aðalfundur verkamannafélags
ins Dagsbrún, var haldinn í
Iðnó í gærkvöld.
Fóru þar fram venjuleg að-
alfúndarstörf. Ennfremur vat
rætt uppkast að nýjum samn-
ingum fyrir félagið.
Verður nánar skýrt frá fund-
inum á morgun.
í sókninni vestur frá Nov-
gorod voru teknir yfir 4Ö bæir
og þorp í gær.
Sóknin frá finnska flóanum
vestur að Lúgafljóti gengur að
óskum. Voru þar teknir yfir 60
bæir og þorp í gær.
Fréttir hermdu í gærdag, að
Rússar væru komnir að ósum
fljótsins.
Her sá, sem tók Novo Sokol-
niki á sunnudaginn, hefur sótt
fram til norðáusturs og vest-
urs frá bænum og tekið nokkra
byggða staði. Taka Novo Sokol-
nikis var mikilvægur sigur, því
að bærinn er þýðingarmikil járn
brautamiðstöð.
lengra frá járnbrautjnni milli
Len'ingrad og Moskva.
í fyrradag eyðilögðu Rússar
28 skriðdreka fyrir Þjóðverjum
og 44 flugvélar.
Sænskur flotasérfræðingur ger
ir ráð fyrir_að Eystrasaltsfloti
Rússa muni brátt láta allmjög
til sín taka. Flotinn er öflugur,
og býst sérfræðingurinn við að
hann verði mjög þýðingarmikill
í bardögunum um litlu Eystra-
saltsríkin. Fyrst verði þó að
hreinsa tundurduflasvæði Þjóð-
verja, og muni það taka tölu-
verðan tíma.
Rússar tala ekkert um bardaga
á suðurvígstöðvunum, en Þjóð-
verjar segja frá öflugum árás-
um Rússa í Dnépr-bugðunni
nálægt Dnépropetrofsk, Kirofo-
grad og Tsérkassi.
Siglinganámskeið á
Norðíirði. - Ágæt út-
koma hjá Samvinnu-
félagi útgerðarmanna
Siglinganámskeiði er nýlokið
á Norðfirði. Þátttakendur voru
9.
Hæstu einkunn hlaut Símon
Guðjónsson, 93% stig. Næstur
varð Sigurður Gunnarsson,
hlaut 93 stig.
Aðalfundur Samvinnufélags
útgerðarmanna á Norðfirði var
haldinn í fyrradag.
Þessir voru kosnir í stjóm:
Ármann Magnússon, Vigfús
Guttormsson og Ragnar Péturs-
son.
Afkoma síðastliðins árs reynd
ist ágæt, hafði félagið selt fisk
fyrir rúmar 2 milljónir króna
á árinu.
Bátar á Norðfirði eru nú yf-
irleitt að búa sig á vertíð. Fara
Frh. á 8. síðu.
Þjóðverjar eru hraktir ae
Pjóðuiijasflfiunln 88 822 tr.
Þjóðviljasöfnunin er enn ekki komin nálægt
markinu, sem Sósíalistaflokkurinn setti sér með
henni, en það var að safna 150 þús. krónum, og
þarf nú að gera harða atrennu til að ná því sem
á vantar á skömmum tíma.
Söfnunin er nú sem hér segir:
Reykjavík 78 349.16 kr.
V estmannaey jar 3 000.00 —
Akureyri 1 325.00 —
Siglufjörður 1 300.00 —
Hafnarfjörður 1115.00 —
Selfoss 1000.00 —
Neskaupstaður 50000 —
Seyðisfjörður 335.00 —
Húsavík 296.00 —
Fáskrúðsfjörður 280.00 —
ísafjörður 235.00 —
TálknafjörPur 200.00 —
Vallahr. N.-Múl. 150.00 —
Raufarhöfn 127.00 —
Hveragerði 120.00 —
Borgarf jörður, N.Múl. 70.00 —
Landeyjar 60.00 —
Vopnafjörður 60.00 —
Samtals 88522.16 kr.
Mynd þessi af Stalin og Roosevelt var tekin á Teheranráð-
stefnunni.
Un Þonnrðsson seiArra I Woi
Agnar Kl. Jónsson settur skrifstofustjóri
í utanríkisráðuneytinu
Stefán Þorvarðarson, skrifstofustjóri utanríkisráðu-
neytisins, var á ríkisráðsfundi í gær skipaður sendiherra
íslands í London, í stað Péturs Benediktssonar er skip-
aður hefur verið sendiherra í Moksva.
Jafnframt var Agnar Kl. Jónsson settur skrifstofu-
stjóri í utanríkisráCuneytinu.
Svohljóðandi tilkynning um þetta barst Þjóðvilý-
anum í gær frá utanríkisráðuneytinu:
Þegar sendiherraembættið í
London varð laust nýlega fór
ríkisstjórn íslands þess á leit
við ríkisstjórn Stóra-Bretlands
að hún tæki á móti Stefáni Þor-
varðarsyni skrifstofustjóra utan.
J ríkisráðuneytisins sem sendi-
i herra íslands í London.
I Á sama hátt hefur ríkisstjórn
j íslands óskað eftir og fengið
viðurkenningu fyrir Stefáni Þor
varðarsyni sem sendiherra Is-
lands hjá norsku ríkisstjórninni
í London.
Á ríkisráðsfundi, sem haldinn
var í dag, hefur Stefán Þor-
varðarson því verið skipaður
| sendiherra íslands í Stóra-Bret-
1 landi og sendiherra íslands hjá
norsku stjórninni í London.
Jafnframt hefur Agnar Kl.
Jónsson, deildarstjóri í utanrík-
isráðuneytinu, verið settur skrif
stofustjóri þar“.
Stefán Þorvarðsson er fæddur
26. nóv. 1900, sonur Þorvarðar
Brynjólfssonar prests að Stað í
Súgandafirði og Önnu Stefáns-
dóttur konu hans.
Hann lauk lögfræðiprófi árið
1924 og starfaði þvínæst í utan-
ríkisráðuneytinu danska fram
til ársins 1929 að hann fluttizt
hingað heim og tók við fulltrúa
Framhald á 8. síðu.
|
40 ára afmæli
innlendrar stjórnar
í gær voru liðin 40 ár síð-
an fyrsti íslenzki ráðherrann
tók til starfa.
31. janúar árið 1904 var
Hannes Hafstein skipaður
fyrsti íslenzki ráðherrann á
Éslandi.