Þjóðviljinn - 04.03.1944, Qupperneq 8
Næturlækmr er í læknavarðstöðinni í
Austurbæjarbarnaskólanum, sími 6050.
Næturvörður er í Lrfiigavegs Apóteki.
Ljóaatími ökutœleja er frá kl. 5.45 að
>degi til kl. 7.40 að morgni.
Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Karlakórinn
„Geysir“ syngur.
20.20 Leikrit: „Lygasvipir“ eftir
Stellan Rye (Haraldur Bjöms
on, Anna Guðmundsdóttir,
Gunnþórunn Halldórsdóttir,
Valdimar Helgason).
21.05 Takið undir! (Þjóðkórinn —
Páll ísólfsson stjómar).
Leikfélag Reykjavíkur sýnir á
morgun leikritið „Eg hef komið hér
áður“ eftir J. B. Priestley, og hefst
sala aðgö'ngumlðo kl. 4 í dag.
Skíðafélag Reykjavíkur ráðgerir
að fara skíðaför næstkomandi
sunnudagsmorgun kl. 9 frá Austur-
velli. .Farmiðar seldir hjá L. H.
Miiller til félagsmanna kl. 4 í dag,
en kl. 4—6 til utanfélagsmanna, ef
afgangs er. Félagið ráðgerir að
hafa skíðakennslu næstu sunnu-
daga. Nánari upplýsingar og listi
hjá Miiller.
Nætnrakstur annast bifreiðastöð-
in Hekla, sími 1515.
Jón frá Hvoli er 85 ára í dag, 4.
marz.
Norrænafélagið heldur norræna
tónleika í Gamla Bíó n.k. sunnudag
kl. 1.30. Strengjasveit leikur, undir
stjóm dr. Urbandtsehitsch og
Karlakórinn Fóstbærður syngur
undir stjórn Jóns Halldórssonar.
Aðgöngumiðar seldir í dag i Bókav.
Sigfúsar Eymundssonar.
Verður iónðs rekinn
Framh. af 1. síðu.
þessa ráðningu, og heimtuðu
þeir að þessi fundur yrði ó-
giltur og færðu þau rök til, að
láðst hefði að bóka tölu fundar-
manna, ekki töldu þeir atkvæða
tölur sem bókaðar höfðu verið
á fundinum næga sönnun þess
að nægilega margir hefðu mætt.
Formaður deildarinnar lét að
óskum þessara Framsóknar-
manna og boðaði fund að nýju,
urðu þá harðar umræður um
tillöguna og stóðu í 2 klukku-
tíma. Framsóknarmenn sem
þátt tóku í umræðunum tóku
allir fram að þeir mæltu ekki
bót þessum skrifum Jónasar, en
vildu helzt ekki láta tala svona
um hann af því hann væri ekki
viðstaddur. Eftir þessar umræð-
ur var tillagan samþykkt á ný
með 17 atkvæðum gegn 15.
Kaupf élögin ættu almennt
að fara að dæmi þessa félags
úr kaupfélagi Eyfirðinga, og
hjálpa ^þessum „þjónustu-
bundnu“ Framsóknarmönnum
— sem margir eru góðir sam-
vinnumenn, til að losna við
Jónas frá Samvinnunni. Það er
hvort sem er ekki í fyrsta sinn
sem Framsóknarmenn fá um-
beðna hjálp, til að losna við
Jónas, en þeir ættu bara ekki
að vera með mjög mikil ólík_
indalæti, á meðan verið er að
vinna verkið fyrir þá.
Nokkrir framsóknarmenn
sýndu þann manndóm að standa
með sannfæringu sinni, og til-
lögunni.
í keppoinni um skákmeistaratign
Bandaríkjanna 1942 urðu þeir
Kashdan og Reshevsky efstir og
háðu síðan einvígi um meistara-
titilinn. Fyrst leit út fyrir að úr-
slitin yrðu mjög tvísýn, því að
eftir fjórar skákir höfðu þeir feng-
ið tvo vinninga hvor. En eftir það
sótti Reshevsky sig jafnt og þétt
og tapaði engri skák eftir það og
vann einvígið með 7% :3%.
Reshevsky hefur verið skákmeist-
ari Bandaríkjanna óslitið síðan
1936. Hann er einn í tölu þeirra
fáu, sem til greina koma með að
keppa um heimsmeistaratitilinn.
Hann er Gyðingur að ætt, fæddur í
Póllandi 1912. Hann lærði að tefla
áður en hann lærði að lesa og var
eitt af hinum fáu undrabömum í
Verðuppbsturnar að
sliga ríkissjóð
—— TJARNAI BfÓ
NtJá BtÚ
i í VÍIQNG
• Ævintýri brezks kafbáts.
; Leikið af foringjum og liðs-
; mönnum í brezka flotanum
Sýnd kl. 7 og 9.
íÆSKAN VILLSYNGJA
(En trallande janta)
• Sænsk söngvamynd.
; Alice Babs Nilsson,
Í Niis Kihlberg,
S Anna-Lisa Ericson.
Sýnd kl. 3 og 5.
• Sála aðgöngum. hefst kl. 11
HEFÐARFRÚIN
SVONEFNDA
(„Lady for a Night“)
JOAN BLONDELL,
JOHN WAYNE,
RAY MIDDILTON.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9
Sala hefst kl 11, f. h.
LEIKFELAG REYKJAVÍKUR.
„Ég hef komið hér áður“
Sýning annað kvöld kL 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag.
Ileikfélag reykjavíkur
5 r
| „01 i smaladrengur"
Sýning á morgun kl. 4,30.
Kraftbrauðin
Hin margeftirspurðu brauð, sem framleidd eru
eftir fyrirmælum Jónasar Kristjánssonar læknis,
eru aftur komin á markaðinn.
ATH.: Fessi brauð innihalda eins mikil bæti-
efni og völ er á. Þau eru holl og kraftmikil og bæta
meltinguna. Borðið því aðeins kraftbrauð!
Útsölustaður Skólavörðustíg 28.
Sími 5239.
Aðrir útsölustaðir auglýstir síðar.
F. h. Sveinabakarísins
Karl Þorsteinsson.
Jarðarför dóttur okkar og systur
JÖRUNNAR SIGURJÓNSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 6. marz.
Athöfnin hefst að heimili okkar, Hverfisgötu 82,
kL 1 e. h.
Guðrún Þorkelsdóttir, Sigurjón Snjólfsson
og systkini.
Framh. af 1. síðu.
eiga eftir að reynast ríkiskass-
anum og reýndar allri þjóðinni
dýrir, ef slíkum greiðslum á
lengi að halda áfram.
VERÐA SKORNAR NIÐUR
VERKLEGAR FRAM-
KVÆMDIR?
Það vakti sérstaka athygli,
þegar ráðherrann barmaði sér
yfir væntanlegri fjárþröng rík-
issjóðs, að hann sagði að til
þess mundi ef til vill koma að
skera yrði niður ýms áætluð
útgjöld fjárlaganna, ef ekki
ætti að hætta niðurgreiðslu dýr-
tíðarinnar.
Ráðherrann virtist telja það
sjálfsagt, að fjárlagafyrirmæli
ættu að víkja fyrir vafasömum
heimildum ríkisstjórnarinnar
og mjög umdeildum, til gagns-
lausra og illaþokkaðra „dýrtíð-
arráðstafana“. Það má telja
víst, að verklegar framkvæmd-
ir yrðu fyrst skornar niður, ef
til niðurskurðar á útgjöldum
ríkisins kæmi og núverandi
stjórn hefði þar ein ákvörðun-
arrétt.
Það er hart, ef það á svo að
fara, að þser samþykktir, sem
gerðar haí'a verið á Alþingi
með fjárlagaafgreiðslu, eiga að
víkja eftir duttlungum Björns
Ólafssonar og Vilhjálms Þór,
til þess að hægt verði að halda
áfram milljónaaustri til vísi-
tölufölsunar og stórbænda-
styrkja.
ísfendingafélagið í New
York sendir rfkisstjðra
árnaðaröskir
Eftirfarandi frétt hefur Þjóð
viljanum borizt frá utanríkis-
ráðuneytinu:
„Hinn 27. f. m. sendi Grettir
Eggertsson, formaður íslend-
ingafélagsins í New York, rík-
isstjóra svo hljóðandi afmælis-
kveðju:
íslendingafélagið New York
minntist yðar hágöfgis á fundi
sínum í kvöld með ræðu er
Helgi P. Briem hélt og bað mig
færa yður hjartanlegar óskir
okkar allra um gæfu og gengi
á ókomnum árum og minn-
umst með þakklæti starfs yð-
ar frá upphafi.“
skákinni. Átta ára gamall ferðaðist
hann víða um og tefldi fjölskákir
með góðum árangri. Eftir að hann
náði fullorðinsaldri hefur hann tefit
á fjölmörgum skákmótum víðsvegar
um heim og oft hlotið fyrstu verð-
laun.
Kashdan er einnig Gyðingur og
er heimsfrægur skákmaður og einn
af fremstu skákmönnum Bandaríkj
anna, þótt á síðari árum hafi þeir
Reshevsky og Fine staðið honum
framar.
Hér birtist 5. skákin úr einvíginu
með athugasemdum eftir Reshev-
sky. í
NIMZO-INDVERSK VÖRN.
Reshevsky Kashdan.
Hvítt Svart.
1. d2—d4 Rg8— f6
2. c2—c4 e7—e6
3. Rbl—c3 Bf8 —b4
4. a2—a3
Með því að neyða svartan í manna
kaup, fær hvítur sterka stöðu á
miðborðinu og heldur báðum bisk-
upunum, en tvípeð hans geta orðið
veik.
4. Bb4 X c3
5. b2Xc3 c7—c5
Eg tel þennan leik betri en 5
d5.
G. e2--e3 0—0
7. Bfl —d3 Bb8—c6
8. Rgl— f 3 d7—dG
9. Ddl—c2!
Nauðsynlegur leikur í stöðunni. Ef
9. 0— 0, e6; 10. d5, e4 og svartur
fær ágætt tafl.
9. c6—e5
10. d4—d5 Rc6—e7
11. 0—0 Kg8—h8
Betra er ll.Rgö og ef 12. Rel, de7.
Ef þá 13. f4, e4, eða 13. e4, Rh5.
12. Rf3 —el!
Hér væri Rd2 verra vegna þess að
reiturinn e3 væri þá ekki valdaður
af drottningarbiskupnum.
12....... RfG —e8
13. f2—f4 e5x f4
Ef 13....f5 þá 14. e4!
14. e3 X f4 ....
14. HXf4 var líka gott.
14...... g7—g6!
Gerir kleift að losna við hinn
sterka kóngsbiskup hvíts.
15. Rel— f 3 Bc8— f5
16. Bd3Xf5 Re7Xf5
17. g2—g4! ....
Þó að þessi leikur sé viðsjáll, gef-
ur hann hvítum mikla möguleika.
17........... Rf5 — hG
18. f4—f5 RhG X g4
19. h2—h3 Rg4—e5
Bezt. Ef 19. Rgf6; 20. BhG, Hg8; 21.
Rg5 og svartur er mjög aðþrengdur.
20. Rf3 Xe5 d6xe5
21. Bcl—hG IIÍ8 —g8
22. f5—fG
Þetta var það, sem hvítur ætlaði
sér. Nú má svartur ekki drepa á
f6 vegna 23. Bg5.
22..... gG—g5
23. Dc2—f5 Hg8—gG
24. BhG—g8 Re8—dG?
í tímaþröng finnur Kashdan ekki
beztu leiðina. Miklu betra var 24.
... RXfG; 25. BXc5, (Ef 25. DX
e5, DXf6; HXf6, DXÍ6, Dg7 með
jöfnu tafli). Rd7; 26. Be3, f6 með
möguleikum á báðar hliðar.
25. Bf8—g7t Hd8—g8
26. Df5 X e5 " Dd8—d7
27. Hdl—el h7—h5
28. De5—e7 Dd7 Xe7
29. Hel Xe7 Ha8—d8
30. Hfl—el Kg8—h7
31. Kgl—g2 g5—g4
32. Hel—e5 g4 X h3f
33. Kg2xh3 Hg6—gl
34. He5Xh5t Kh7—g6
35. He7—e5 Hgl—hlf
36. Kh3—g4 Rd6—e4?
Svartur var í tímaþröng. Miklu
betra var 36....... Hglf; 37. Kf3,
Hflf; 38. Kg2, Hf5; 39. Hh6t; Kg5;
40. He3, þó að hvítur hef(Si mun
betra tafl þrátt fyrir það, vegna
þess hve svarti kóngurinn stendur
illa.
37. HhSXhl Re4—f2t
38. Kg4— f4 Gefið.
Ef 38...... RXhl, þá mátar hvítur
í 3. leik: 39. Hg5t, Kh6; 40. Hh5t,
Kg6; 41. Hh6 mát.
Skákþingi Reykjavík-
ur lokid
Skákþingi Reykjavíkur lauk
28. febr. s. 1. Skákmeistari
Reykjavíkur varð Magnús G.
Jónsson eftir mjög harða og
jafna keppni. Hann hlaut 6 Vz
vinning af 8. Ásmundur Ás-
geirsson hlaut 6 vinninga. Árni
Snævarr og Einar Þorvaldsson
hafa 5 vinninga hvor og bið-
skák, Sturla Pétursson 5 vinn-
inga, Pétur Guðmundsson 2%
vinning, Benóný Benediktsson
og. Óli Valdimarsson 2 vinn-
inga hvor og Aðalsteinn Hall-
dórsson 1 vinning.