Þjóðviljinn - 07.03.1944, Page 8
TJAKNAI *IÓ
NtJA BlÖ
Úi® bopglnni
Næturakstur: Aðalstöðin, sími
1383.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
6,3Ö að kvöldi til kl. 6,50 að morgni
Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
19,00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
20,00 Fréttir.
20,20 Tónleikar Tónlistarskólans.
Strengjasveit leikur undir
stjórn dr. Urbantschitsch:
Norræn lög:
a) Sibelius: Canzonnetta.
b) Atterberg: Serenade.
c) Grieg: 1) Við vögguna. 2)
Síðasta vorið.
d) Helgi Pálsson: 1) Prelú-
díum. 2) Vals.
20,50 Erindi: de Gaulle og ósigur
franska hersins 1940 (Eiríkur
Sigurbergsson viðskiptafræð-
ingur).
21.25 Tónleikar (af plötum).
21.30 Erindí: Vertíðarlok á vötnum
í Manitoba (Gísli Guðmunds-
son tollvörður).
Happdrættið. Sala happdrættis-
miða hefur gengið miklu örar í ár
heldur en undanfarin ár, og eru
horfur á því, að allt verði upp-
selt, áður en dregið verður á föstu
daginn kemur. Menn ættu því að
hraða sér að kaupa miða, áður en
það verður um seinan.
Ármenningar!
Skemmtifundur skíðadeild-
arinnar, er féll niður vegna
rafmagnsbilunar s. 1. miðvikudag,
verður haldinn í Tjarnarcafé ann-
að kvöld (miðvikudag) og hefst kl.
8,30 stundvíslega.
Dagskrá verður hin sama og áð-
ur hefur verið tilkynnt.
Fimm hundruð krónur til Slysa-
varnafélagsins frá kvenfélaginu
„Keðjunni“. Frú Elín Guðmundsson
varaformaður „Keðjunnar" og frú
Þórunn Jónsdóttir gjaldkeri, færðu
í dag félagi voru kr. 500,00 að gjöf
frá kvenfélaginu „Keðjunni“. Félag
þetta, sem stofnað var árið 1928,
innan Vélstjórafélags íslands, af
eiginkonum vélstjóra, hefur jafnan
látið sér mjög annt um að styðja
ekkjur innan félagsins, og nú hafa
þær sýnt sinn hlýja hug til slysa-
varnamálefnanna með því að senda
félagi voru áðurnefnda gjöf, sem ég
leyfi mér hér með að þakka kær-
lega fyrir.
Reykjavík 6. marz 1944.
f. h. Slysavarnafélags íslands.
Guðbjartur Ólafsson, p. t. forseti
Gjafir til vinnuheimilis berkla-
sjúklinga. Þessar gjafir hafa borizt
seinustu daga:
íshúsfélag ísfirðinga h.f., ísaf. kr.
10000,00; Ragnhildur og Kristján
Siggeirsson kr. 10000,00; P. H. Mog-
ensen, lyfsali kr. 1000,00; G. Á.
Björnsson & Co. kr. 1000,00; Starfs-
menn Landsímastöðvarinnar kr.
1885,00; Starfsmenn hjá Agli Vil-
hjálmssyni h. f. kr. 911,50; Starfs-
menn Edinborgar kr. 805,00; Starfs-
menn Garðyrkjunnar á Reykjum
kr. 585,00; Starfsmenn hraðsauma-
stofu Álafoss kr. 610,00; Frá Sauð-
árkrók kr. 551,00; Starfsmenn Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness kr. 480,00; Starfsmenn Bif-
reiðastöðvar íslands kr. 300,00;
Starfsmenn Búnaðarbankans kr.
220,00. Minningargjafir um Hrefnu
Albertsdóttur: Frá systkynum henn
ar kr. 1000,00; frá Gígí kr. 50,00.
Hringið í síma 2184 og
gerizt áskrifendur.
þlÓÐVILflN
Nýja btó sýnir:
Hefðarfrúin svonefnda
Aðalhlutverk:
Joan Blondell
Republickvikmyndafélagið hefur
allra kvikmýndafélaga mest tekið
svokallaðar „Wild West“ eða
„Cowboymyndir“, þ. e. myndir
sem fjallað hafa um lífið í Banda-
ríkjunum á landnámstímum 19.
aldarinnar. Það voru stórbrotnir
tímar og það var engum heiglum
heitt að ferðast um óbyggðir Ame-
ríku á þeim tímum, til þess þurfti
einbeitt og stórbrotið fólk. En
„Wild West-myndir“ hafa ekki
gefið raunsæja mynd af lífsbaráttu
Tilraunir gerðar til
að kveikja í húsum
Gerðar voru tvœr tilraunir í
fyrrakvöld til íkveikju liér í bœn-
um, en slökkviliðið gat þó lcotnið
í veg fyrir að alvarlegar skemmdir
'lilytust af.
Á Laugaveg 11 var kveikt í
tuskum inni í bakdyrainngangi og
lagði reykinn inn um húsið. Var
eldurinn slökktur áður en teljandi
tjón yrði af.
í Hafnarstræti 10 kviknaði í
kaffistofunni á neðstu hæð. Var
logandi tusku fleygt inn um
glugga, en slölckviliðinu tókst að
slökkva eldinn áður en skemmdir
yrðu miklar.
Þá kviknaði í út frá rafmagni
á Lokastíg (i og olli það litlum
skemmdum.
Það eru nú liðnir tveir mánuðir
síðan Lasfoss ’strandaði við Orl'ir-
isey og hafa vélsmiðjurnar Hamar
og Héðinn unnið að björgun skips-
ins. Hefur Bjarni Jónsson, verk-
stjóri í Hamri, stjórnað verkinu.
S.l. laugardag tókst að ná Lax-
fossi af skerinu og var hann flutt-
ur inn á innri höfn og lagt við
hafnargarðinn. Nokkrum dögum
áður hafði tekizt að rétta Laxfoss
við á skerinu og voru þá( settar
járnplötur í stærstu götin og aðrar
ráðstafanir gerðar til að takast
mætti að halda skipinu á floti.
Ekki er vitað hvenær Laxfoss
verður tekinn upp í Slippinn t.il
viðgerðar.
Þorrablót
Framh. af 2. síöu.
söng nokkur lög, og Björn Dúason
söng gamanvísur. Var þetta hin
bezta skemmtun, sem lengi hefur
verið haldin hér. A eftir var dans-
að bæði í Alþýðuhúsinu og Hótel
Siglunesi, var fullt á báðum stöð-
unum, enda sótti skemmtunina
hátt á 5. hundrað manns. Var
dansað til kl. (i um morguninn.
Skemmtunin fór hið prýðilegasta
fram og var félaginu til sóma.
(Mjölnir).
John Wayne
þessa fólks. Aðalefni allra þeirra
er það sarna: Einhverjum þorpara
hefur tekizt að ná völdunum í
einhverju þorpi og ræður þar lög-
um og lofum ásamt óaldarlýð sín-
um. Hann á vanalega stærstu
krána í bænum, þar sem bæjar-
búar eyða fé sínu. Ungur og mynd-
arlegur kúreki kemur til bæjarins,;
ákveður að binda enda á ósómann,
hefur kannski áður átt sökótt við
þorparann og ætlar sér að hefna
sín á honum. Hann fær beztu menn
bæjarins í lið með sér og þeim
tekst að sanna á þorparann glæpi
hans, hann sleppur þá kannski
undan á reiðskjóta sínum, en kú-
rekinn á líka reiðskjóta og veitir
honum eftirför og tekst loks að
koma honum fyrir kattarnef. Svo
má ekki gleyma ungri og fallegri
stúlku, sem þorparinn hefur á-
girnzt, en kúrekinn er bálskotinn
í, og svo endar myndin með hjóna-
bandi, eða eins og þeir segja í
Ameríku „happy end“ og þá er
allt gott.
Það þarf varla að taka það fram,
að slíkar myndir eru venjulega
nauðaómerkilegar, því ekki er við
öðru að búast. — En ég ætlaði að
tala um myndina sem Nýja Bíó
sýnir þessa dagana. Hún gerist í
Tennessee í Bandaríkjunum fyrir
síðustu aldamót, og fjallar um
unga dansmær (Joan Blondell),
sem er vel efnum búin, en af litl-
um ættum, og giftist þess vegna
manni (Ray Middleton), sem er af
góðum ættum, en á ekki túskild-
ing. Fjölskylda hans er á móti
ráðahagnum og að lokum reynir
hún að koma henni fyrir kattar-
nef. en það tekst ekki. Ungur og
myndarlegur maður (John Wayne)
kemur henni til hjálpar í and-
streými hennar og allt fer vel að
lokum. Þessi mynd er heldur
skárri en flestar aðrar myndir frá
Republic, einkum fyrir góðan leik
Joan Blondell, en annars er lítið
um hana að segja. d.
NOKKUR SETT ENSK
seljast mjög ódýrt (kr. 225,00)
Meðalstærðir og minni.
ÚLTÍMA
Skólavörðustíg 19, sími 3321.
Hríngur
Tekið á móti flutningi til
Hornafjarðar, Djúpavogs, Breið-
dalsvíkur og Stöðvarfjarðar síð-
degis í dag.
ÆSKAN VILL SYNGJA
(En trallande jánta)
Sænsk söngvamynd.
Alice Babs Nilsson,
Nils Kihlberg,
Ann^-Lisa Erícson.
Sýnd kL §, & ;og 3,
HEFÐARFRÚIN
SVONEFNDA
(„Lady for a Night“)
JOAN BLONDELL,
JOHN WAYNE,
RAY MIDDLETON
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
UsFHOOiltiii smiMw og oiais-
fjOFöos1 storo i llul oö oon-
Mi liiiaaor WiliosnMsiis I
örooilsiililon siínaooa
Á fundi í Verkalýðs- og sjó-
mannafélagi Olafsfjarðar. er hald-
inn var 3. marz, var eftirfarandi
samþykkt:
„Fundurinn samþykkir að skora
á Alþingi áð samþykkja tillögur
Alþýðusambands Islands urn ör-
yggismál sjómanna. Einnig mót-
mælir fundurinn tillögum Fiski-
þingsins' um skerðingu orlofsfjár“.
Á fundi trúnaðarmannaráðs
Verkalýðsfélags Skagastrandar 23.
febrúar s.l. var eftirfarandi sam-
þykkt:
„Trúnaðarmannaráð Verkalýðs-
félags Skagastrandar inælir með
því, að hið háa Alþingi samþykki
Söfnun handa dönsk-
um fióttamönrutn í
Svíþjóð. — Starfsemi
frjálsra Dana á
ísiandi
Eftirfarandi tilkynningu hefur
félagið „Prie Danske i Island“ sent
blaðinu:
Víða um heim safnast fé lianda
dönskum flóttamönnum. t Banda-
ríkjunum hefur t. d. Amerisk-
danska félagið (National Americ-
an-Danish Association) safnað
stórfé.
Færeyingar hafa gefið liundrað
þú'sund krónur þessum mönnum
til hjálpar. Svíar hafa og gefið
stórfé.
Frjálsir Danir á íslandi hafa
einnig safnað fé meðal Dana hér
á landi þessum löndum sínum í
Svíþjóð til hjálpar. Safnaðist álit-
leg upphæð, sem þegar er búið að
yfirfæra. Þessári söfnun þeirra er
nú lokið, en þeir halda enn áfram
sinni almennu söfnun til hjálpar
löndum sínum í heimalandinu eftir
stríð eða þegar tækifæri gefst. í
sambandi við þessa starfsemi
þeirra ráðgera þeir meðal annars
nú á næstunni að gefa út leikritið
Niels Ebbesen eftir Kaj Munk, en
hagnaður af þeirri útgáfu á að
notast sérstaklega til hjálpar börn-
um í Vedersö, þar sem séra Ivaj
Munk starfaði.
tillögur Alþýðusambands Islands í
öryggismálum sjómanna“.
Aðalfundur síma-
manna lýsir sig
fylgjandi lýðveld-
isstofnun
Aðalfundur Félags íslenzkra
símamanna var haldinn 2b. f. m.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
var eftirfarandi tillaga samþykkt:
„Aðalfundur Félags íslenzkra
símamanna lýsir yfir eindregnu
fylgi við stofnun lýðveldis á Is-
landi og skorar fundurinn á alla
símamenn að vinna að því að þátt-
taka í atkvæðagreiðslu um lýð-
veldismálið verðí sem fjölmennust
og á þann veg að hún megi verða
þjóðinni til sóma".
Félagið er með elztu stéttarfé-
lögum landsins og eitt af stofn-
endum Bandalags starfsmanna rík-
is og bæja og telur nú á þriðja
liundrað félagsmenn.
Stjórnina skipa nú: Agúst Sæ-
mundsson formaður, Maríus Helga
son varaformaður, Kristján Snorra
son gjaldkeri, Ilelga Finnboga-
dóttir ritari, Soffía Thordarson
fjármálaritari.
Handknattleiksmót-
ið húfst í gærkveldi
Landsmót í handknattleik inni
hófst, í gœrkvöld kl. 10. Taka þátt
í því 8 félög.
Keppt verður í 4 flokkum:
Kvennaflokki, meistaraflokki, I.
fl. og II. fl. karla, en samtals verða
þetta 25 lið, sem skiftast þannig
milliflokkanna: Meistarafl. 8, I. fl.
6 (K. R. og Haukar ekki með), II.
fl. 6 lið (K. R. og Fram ekki með),
og 5 kvennaflokkar, en það eru
flokkar frá Armanni, í. R„ Hauk-
um, Iv. R. og F. II. Auk þessara
félaga taka þátt í mótinu: Fram,
Valur og Víkingur.
í gær kepptu: Kvennafl. Ár-
manns og 1. R., II. fl. F. II. og í.
R„ meistarafl. Vals og Víkings.
I kvöld keppa: Kvennafl. Ilauka
og K. R„ I. fl. F. H. og Víkings,
meistarafl. Ármanns og K. R.