Þjóðviljinn - 08.03.1944, Blaðsíða 1
Verður stjórnarskrá
in afgreidd frá Al-
þingi í dag ?
Stjómarskrárfrmnv. kemnr
tii umræðu í neðri deild í dag,
og verði engar breyttngar gerð-
ar á því, verður það sennilega
afgreitt frá Alþingi á þeim
fundi.
Efri deild afgreiddi stjómar-
skrárfrumvarpið á mánudag, en
hafði breytt ákvæðinu um synj
unarvald forseta, og verður því
frumvarpið að fara til neðri
deildar.
Þjóðverjaf hefja gagnáhlaup
luepsunna er beðll með Innpðsiia ?
LONDON. — General News Service.
Það er eftirtektarvert, að óþolinmæði Rússa út af hinum
væntanlegu nýju vígstöðvum er aftur orðin áberandi.
Sérfræðingar rauða hersins gagnrýna biturlega þá menn
meðal hinna vestrænu Bandamanna, sem halda því fram, að
styrkleiki „vesturveggs“ Hitlers hljóti að frest-a innrásinni.
Alexander Werth, fréttaritari
brezka útvarpsins og Sunday Ti-
mes í Moskvu, símar, að meðal
Hússa gæti vaxandi kvíða vegna
hins öfluga áróðurs, sem settur hef
ur verið - af stað af litlum, en á-
hrifaríkum klíkum .í Bandaríkjun-
um og Bretlandi um leið og Schaeht
og fleiri þjóðhöfðingjar hafa hafið
friðarsókn.
Eftix-farandi ummæli Harolds
Kings, fréttaritara Reutei’s í
Moskvu, hafa vakið töluverðar um
ræður hér:
„Það er útbreidd skoðun meðal
Rússa, að innrásardeginum hafi
verið frestað“.
Menn verða að athuga, að leið-
togar Sovétríkjanna gera allt, sem
í þeirra valdi stendur til að treysta
vináttuna við Bandamenn. En þó
að rauði herinn hafi sæmt bi-ezk-
bandarísku hex’leiðtogana æðstu
heiðursmerkjum sínunx, heiðri, sem
mjög fáum veitist, og J)ó að allar
opinberar ræður og blaðaummæli
séu mjög hjartanleg, er ekki hægt
að leyna því, að sovétþjóðirnar
skoða tafarlausa innrás sem ein-
ustu sönnun fyrir einlægni okkar
og samvinnuvilja.
I Jxessu sambandi hafa nokkur
atriði í ræðu ChurehiHs vakið tals-
verða furðu hér. Einkum Jner upp-
lýsingar, sem óvinirnir gætu skil-
ið sem svo, — og ekki aðeins óvin-
irnir, því að Jxað virðist liggja í
auguin uppi —, að af |>ví að áætlað
er, að loftsóknin fari vaxandi í vor
og sumar og liún er „undirstaða
innrásax’áætlananna“, þá'muni inn-
í’ásin hefjast áður en loftsóknin hef
ur náð hámarki í sumarp
Bendir það, að við ætluni að
„gera hernaðarframleiðslu ómögu-
lega í öllum þýzkum borgum“, eins
og gefið hefur verið í skyn, til þess
að Jxessi grunur um töf og frestun
Sókn 1. úkrainska hersins í Vestur-Úkraínu miðar
áfram hröðum skrefum, einkum í vestur og suður, og
eru Rússar nú aðeins fáa kílómetra frá Tamopol. Jafn-
framt lengist víglínan óðum. í gær tók rauði herinn
aftur yfir 200 þorp og bæi.
I»jóðverjar gerðu mörg og hörð gagnáhlaup á þess-
um vígstöðvum í gær með skriðdrekum og fótgönguliði
og hrandu Rússar þeim öllum með miklu tjóni í liði
Þjóðverja.
Rússar sækja fast í áttina til
Tarnopol. Er talið, að orustan
,um hana hefjist þá og þegar.
Rússneskar sprengjuflugvél-
ar héldu í gær uppi hörðum á-
rásum á liðsflutninga Þjóðverja
að baki víglínunni.
Af öðrum vígstöðvum er lít-
ið að frétta. Er þar aðeins get-
ið um framvarðaviðureignir.
í fyrradag eyðilögðu Rússar
78 skriðdreka fyrir Þjóðverjum
og skutu niður 71 flugvél.
Brezkur herforingi segir, að von
Maniistein hafi reynt í margar vik
iir að hindra, að Rússar byrjuðu
aftur sókn gegn járnbrautinni milli
Lvoff og Odessa, sem þeir hafa nú
rofið. Einn liðurinn í því áformi
hans var hin harðvítuga vörn inni-
króaða hersins hjá Korsún. Síðan
hefur von Mannstein reynt að
halda rauða hernum í skefjum á
öllu svæðinu milli Rovno og Sveni
gorodka og hefur það kostað hann
afar mikið af mönnum og hergögn
um. Og í lok síðastliðinnar viku
álitu Rússar tíma til kominn að
hefjast handa og er óvíst að von
Mannstein hafi grunað hvar þeir
mundu bera niður, enda þótt Þjóð
verjar vilji, þrátt fyrir hrakfarirn-
sé réttur, þar sem ekki mundi vera
hægt að ná svo afar miklum árangri
með loftárásgm einum nema á
löngum tíma?
Hvorki sérfræðingum né almenn-
ingi hefur sézt yfir Jxýðingu hinna
opinberu upplýsinga bandaríska
hershöfðingjans Somervells. Hann
segir: „Yerið er að undirbúa í Bret-
landi fyrir innrásina mesta fjölda
hermanna, skotfæra og birgða, sem
nókkurn tíma hefur Jxekkzt í heim-
inum. Aldrei hefur áðm' Jxekkzt
annað eins samsafn af stórskota-
liði, flugher, vélahergagna og mann
afla“. Þess er minnzt, að Beavei’-
brook, sem þá var framleiðslui’áð-
herra, sagði fyrir tveimur árum síð-
an, að við hefðum nægan útbúnað
til að gera innrás tafarlaust og
eftirmaður hans, stóriðjuhöldurinn :
Lyttelton sagði í nóvember árið
1942, að hægt væri að vinna stríðið
í júní 1943.
Þegar við Jxessar upplýsingar frá
æðstu stöðiim bætast þær opinber-
lega játuðu staðreyndir, að herflug-
Framhald á 8. síðu
Brot á verðlags-
ákvæðum
Nýlega hafa eftirgreind verzlun-
arfyrirtœki verið sektuð sem hér
segir, fyrir brot á verðlagsákvœð-
um: ■—-
Kaupfélag Hellissands. Sekt og
ólöglegur hagnaður kr. .300.00, fyr-
ir of hátt verð á skófatnaði o. fl.
Kaupfélag Stykkishólms. Sekt og
ólöglegur hagnaður kr. 1.300.91. fyr
ir of hátt verð á salti o. fl.
Verzlunin Rafvirkinn, Reykja-
vík. Sekt og ólöglegur hagnaður kr.
294.00, fyrir of hátt verð á raf-
magnsvörum.
Ivær finnskar konur
skotnar, ákærðar
fyrir njósnir
Samkvœmt Stokkhólms-
tídningen hefur dómur nú ver-
ið kveðinn upp í lúnu víðtæka
finnska njósnarmáli, sem staðið
hefur síðan i fyrravor.
Tvær konur voru dæmdar til
dauða, hin fræga eistnesk-
finnska skáldkona Hella
Vúvlijoiki var dæmd í æfi.-
langt fangelsi og þýski blaða-
maðurinn Friedvich Ege sem
var ritari erlenda blaðamanna-
félagsins í Helsinke, var dæmd-
ur í fjögra árá fangelsi.
Hinar tvær dauðadæmdu
konur hafa þegar verið skotn-
ar. Allir hinir dómfelldu voru
sakaðir um „njósniú fyrir
Sovétríkin“.
ar, ekki viðurkenna, að Rússar
hafi komið }>eim á óvart. Hefur
þeim farizt mjög óhöndulega að
bera í bætifláka fyrir síðustu ó-
sigrana. Finna þeir sér helzt til
afsökunar, að Rússar hafi verið
óvenjulega mikið liðfleiri!
Talið er, að Þjóðverjar hafi nú
eftir um 50 herfylki í Dnéprbugð-
unni, er þykir ósennilegt, að Hitl-
er geti dregið það lengi úr þessu
að fyrirskipa allsherjar undan-
hald þeirra, ef hann vill forða þeim
frá innikróun.
FINNLAND
Finnska ríkisþingið sat á fundi
í dag, en ekkert hefur frétzt af
þeim fundi.
Þýzk blöð hræða Finna nú með
„ógnum bolsévíkka“. Segja þau m.
a. að Rússar ætli að flytja alla
finnska kai’lmenn til Síberíu og út-
rýma menntamönnum.
Frá ferdalagi
bískupsíns
Utanríkisráðherra íslands hefur
borizt svohljóðandi símskeyti frá
ræðismanni íslands í Winnipeg:
„Sigurgeir Sigurðsson biskup fór
fx’á Kanada í dag. Fyrir hönd ís-
lendinga í Kanada leyfi ég mér að
færa ríkisstjóra, yður og ríkisstjórn
inni allri Jxakkir fyrir að hafa sent
hingað svo virðulegan fulltrúa. —
Hann hefur hrifið hjörtu okkar
allra og treyst vináttuböndin ör-
ugglega“.
Reykjavík, 7. marz 1944.
' U tcmríkisráðwney tið.
Skemmtifundur í 11. deild
Sósíalistafélags Reykjavikur
var haldinn s. I. sunnudag á
Skólavörðustíg 19.
Hófst fundurinn kl. 8.30 um
kvöldið og stóð til kl. 1 um
nóttina.
Til skemmtunar var: Ræða,
upplestur, söngur, tvíleikur á
gítar og að lokum bögglaupp-
boð til ágóða fyrir Þjóðviljann.
Ágóðinn af skemmtuninni
varð 1250 kiónur og var honura
öllum varið til styrktar útgáfu
Þjóðviljans.
11. deildin hefur með þessari
skemmtun gefið öðrum deildum
Sósíalistafélags Reykjavíkur
glæsilegt fordæmi.
Skemmtunina sóttu 60—70
manns. Fór fundurinn hið bezta
fram og var deildinni til sóma.
Geypilegt flugvélatjén
Þjóðverja í fyrradag
í loftárás þeirri, sem Banda-
ríkjamenn gerðu á Berlín í fyrra-
dag, tóku þátt yfir 1500 banda-
rískar flugvélar.
Tilkynna Bandaríkjamenn nú
að þeir hafi skotið niður samtals
176 þýzkar orustuflugvélar í þess-
um leiðangri. Sprengjuflugvélar
skutu 93 niður, en orustuflugvélar
83.
Tyeimur af orustuflugvélum
Bandaríkjamanna tókst að fljúga
snöggvast lágt yfir borginni. Segja
flugmennirnir að á stórunx svæð-
um í suðvesturhluta hennar líti
hún út eins og yfirgefin borg. Stór
ir sprengjugígir séu óteljandi.
Eftirfarandi upplýsingar um níu Norðmenn, sem nazistayf-
irvöldin hafa líflátið síðustu dagana, hafa Þjóðviljanum borizt
frá norska blaðafulltrúanum.
Jacob Dybwad Sörnuie magister,
fæddur í Valdres 5. okt. 1898; sak-
aður um stai’fsemi fyrir óvinaríki,
þar sem hann hafi um meir en
tveggja ára skeið haft fréttaþjón-
ustu fyrir brezk yfirvöld.
Osmund Brönnum, fæddur að
Sandar við Sandefjord 23. marz
1907; dærndur til dauða fyrir að
reyna að flýja úr landi og fyrir
framhald kommúnistiskrar starf-
serni eftir að Þjóðverjar bönnuðu
stjórnmálaflokkana 1940. Þýzkir
verðir náðu honum, er hann var í
þann veginn að flýja yfir landa-
mærin til Sviþjóðar.
Báðir þessir voru skotnir eftir
að dauðadómurinn hafði verið
staðfestur af Rediess lögregluhers-
höfðingja og Terboven neiaði náð-
un. —
Ennfremur hafa þessir menn ver
ið dærndir til dauða og tcknir af
lífi:
Petter Bruun, verkamaður (30
ára) og Ilaakon Sunde, sjómaður
(32 ára). Þeim var gefið að sök
starfsemi fyrir óvinaríki og skemd-
arverk, þar á meðal sprengingar og
morðtilraunir. Það er hin venju-
lega ákæra Þjóðverja gegn J>eim,
er þeir kalla „kommúnista“. Gesta-
polögreglan hefur verið á hælum
Petters Bi-uun frá J>ví um haustið
1942, eftir ái’ásina á lögrcglustöð-
ina í Henrik-Ibsen-götu í miðhluta
Osló. 911 }>á fórst einn hinna verst
Framh. á 8 síðu.