Þjóðviljinn - 10.03.1944, Síða 8

Þjóðviljinn - 10.03.1944, Síða 8
Næturlæknir læknavarðstofunni í Austurbæjarbamaskólanum, sími 5030. Ljósatími ökutækja er frá kl. 6,30 að kvöldi til kl. 6,50 að morgni. Útvarpið x dag: 20,25 Útvarpssagan: ,,Bör Börsson efti ir Johan Falkberget, X (Helgi Hjörvar). 21,00 Útvarpstríóið: Klarinett-tríó í B- dúr eftir Beethoven (clarinett: Vil- hjálmur GuÖjónsson; cello: Þor- hallur Arnason; píanó: Fritz Weisshappel). 21,15 Orgelleikur í Dómkirkjunni. (Páll ísólfsson). 21,35 Spurningar og svör um íslenzkt mál (Björn Sigfússon). 22,00 Symfóníutónleikar (p)ötur) : Sym- fónía nr. 5 eftir Tschaikowsky. Nœtarakstur: Bifreiðastöðin Hreyfill, sími 1633. Menntaskólanum í Reykjavík hefur ver ið iokað um óákveðinn tíma vegna mið- stöðvarbilunar. Leiðrétting. í blaðinu í gaer misprent- aðist í trúlofunarfregn nafn Ingunnar Oskar Sigurðardóttur, Austurbæjarskól- anum. tSkíðaferð í Þrymheim á laugardaginn. Farmiðar í Aðajstræti 4 (uppi) í kvöld ki. 6—6,30. LeikkvSld tlenntaskólans Kviklynda ékkjan Eins og undanfarinn ár, efna menntaskólanemendur til leik- sýningar á þessum vetri. Leikurinn, sem þeir hafa að þessu sinni valið er Kviklynda ekkjan (Den vægelsindede) eftir Holberg. Tveir nemendur hafa þýtt leikinn, þeir Ásmundur Sigur- jónsson og Sveinn Ásgeirsson. Sýningar hefjast væntanlega um eða eftir mánaðarmótin. ' Við æfingar leiksins hafa að- stoðað þeir Þorsteinn Ö. Step- hensen og Lárus Pálsson. Leikendur eru: Ásmundur Sigurjónsson, Dóra Haralds- dóttir, Stefán Hilmarsson, Ein- ar G. Kvaran, Jón P. Emils, Einar Pálsson, Álfheiður Kjart- ansdóttir, Kristín Helgadóttir og Guðjón Steingrímsson. Hampiðjan Framhald af 1. síðu. um bartt við. Síðastliðið ár voru framleidd um 170 tonn og starfa nú við fyrirtækið, ef netahnýting er talin með, um 00 manns, og greiddi árið sem leið um hálfa milljón í vinnulaun. 1 tilefni afmælisins liefur Hamp- iðjan afhent fjársöfnunarnefnd dvatarheimilis sjómanna 10 þús. kr, gjöf. Gjöfinni fylgdi eftirfar- andi bréf: „Til stuðnings því göfuga marki, sem þér hafið sett yður, að koma upp dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn, leyfum við okkur að færa yður í tilefni af 10 ára afmæli Hampiðjunnar, meðfylgjandi fjár- hæð, sem lítinn vott þess þakk- lætis, er við teljum okkur vera í, til liinna fjölmörgu sjómanna og útgerðarmanna, sem við höfum haft svo náin kynni og viðskipti vdð á undanförnum árum. Ef það skyldi verða ákveðið, að gefa lierbergjum á heimilinu heiti, þá vihlum við mælast til þess, að eitt herbergið yrði kennt við Hampiðjuna, og í því mynd af upphafsmanni og fyrsta forstjóra félagsins, Guðm. S. Guðmundssyni, sem dó 20. maí 1942, en.hann vár um tíma sjómaður. Myndina mun- þJÓÐVIL! Þrjár listsýningar vænt- anlegar á næstunni Þrjár listsýningar verða haldn ar um páskana í sýningarskála myndlistarmanna. Verður ein þeirra sýning á amerískum listaverkum, vatns- litamyndum og svartlist. Lista- verk þessi eru ókomin til lands ins svo ekki er hægt að ákveða hvenær sýningin verður opn- uð. Hinar sýningarnar verða á listaverkum þeirra Jóns Þorleifs sonar og Guðmundar Einarsson- ar 'frá Miðdal. Verður sýning Guðmundar opnuð 8. apríl og verður opin til 17. apríl. Enn er ekki ráðið hvenær sýning Jóns Þorleifssonar verð- ur opnuð, fer það eftir því hve fljótt amerísku listaverkin koma til landsins. ‘Sýningu á listaverkum Mark úsar ívarssonar er nýlega lok- ið, höfðu þá þrjú þúsund gest- ir komið á sýninguna. Ágóði sýningarinnar rann í minning- arsjóð Markúsar ívarssonar. Skíðamót Reykjavfkur hefst á sunnudaginn Skíðamót Reykjavíkur hefst n. k. sunnudag og heldur á- fram laugardaginn 18. og sunnu daginn 19.þ.m. Þátttakendur eru 115 frá 6 félögum. KR sendir flesta menn á mót ið, eða 41, ÍR 32. Ármann 32, Skíðafélag stúdenta 8, Skíðafél. Reykjavíkur 1 og Skíða- og skautafélag Hafnarfjarðar 1. í svigi og bruni í A-flokki (16—25) ára keppa frá í. R. Jóhann Eyfells, Haraldur Árna- son og Magnús Kristjánsson, frá KR Björn Blöndal, Georg Lúð- víksson og Jón M. Jónsson og frá Skíðafélagi stúdenta Tóm- as Jónsson, Gísli Ólafsson og Magnús Árnason. Allt eru þetta þekktir skíðamenn, sem borið hafa fleiri eða færri sigra úr být um, og verður þarna um mjög tvísýna og spennandi keppni að ræða. í skíðagöngu, A- og B-flokki eru 16 þátttakendur og skíða- stökkum A- og B-fl. 13 þátt- takendur. Aðeins tveir þeirra eru A-flokksmenn, þeir Björn Blöndal og Magnús Kristjáns- son. í C-flokki eru 33 þátttakend- ur í bruni og 30 í svigi. í svigi öldunga (35 ára og eldri) eru 6 þátttakendur og í bruni öld- unga 5 þátttakendur. I svigi og bruni kvenna B_fl. eru 5 keppendur og 15 í C-fl. í svigi drengja eru 21 þátt- takandi og 22 í bruni drengja. um við afhenda yður síðar, ef til kæmi. Með ósk og von um það, að heimilið megi rísa upp sem fyrst, og vcita sem flestum góðum drengjum hvíhl og ánægjustundir, eflir vel unnið dagsverk“. Ríkisframlag til íþróttamála Framh.af 3. síðu fimi- og sundkennsla og tilsögn í öðrum íþróttum) og tekur þátt í greiðslum með bæjar- og sveitarfé- lögum, vegna kostnaöar við íþróttakennslu, sem hvern annan kostnað við aðrar námsgreinar í öllum barna- og framhaldsskól- um landsins. Eg hygg að þegar allar fjár- veitingar frá ríkissjóöi til f- þróttamála árið 1944 séu fram taldar, þá. vanti lítið á, að krónutalan sé rúml. um 1 y2 milljón. Þessum fjárveit- ingum má skipta í tvennt. í fyrsta flokki eru fjárgreiöslur samkvæmt lögum (t. d. til í- þróttakennslu í skólum) og í öörum flokki koma fjárveit- ingar til íþróttamannvirkja og íþróttastarfsemi, sem fé þarf til á hverjum tíma. í ár verða fjárgreiðslur til hins síðari flokks um kr. 1400.000.00. Þá finnst mér rétt vegna þess að minnst er í nefndri blaöagrein á styrkveitingar til í. S. í., að skýra frá fé sem því hafa verið veitt á undan- förnum 5 árum: 1939 Kr. 8000.00 1940 — 8000.00 1941 — 10000.00 1942 — 22000.00 1943 — 25000.0Q (Árið 1940 var seinasta skip^i, sem styrkurinn var veittur frá Alþingi, eftir það var hann veittur úr ríkis- sjóði). Enginn má skilja þessar lín ur mínar þannig, að þær séu skrifaðar til þess að frægja einn aðiljan á kostnað hinna, heldur ber aö skilja þær sem nánari fræðslu á því hvað lagt sé fram til íþróttamála. Virðingarfyllst Þorsteinn Einarsson. Ath. Það sem ég leitaði eftir í fjár lögum 1944 var þaö sem lagt er fram til hinnar frjáisu starfsemi, en ekki þaö sem veitt er samkv. lögum, þó ég hinsvegar viti aö félögin njóti oft góðs af slíkum mannvirkj um. Þessar upplýsingar Þor- steins gefa nokkurt yfirlit yf- ir þær framkvæmdir sem nú eru á döfinni hjá ríkinu sam- kvæmt lögum og er það vel, en því má tæpast blanda sam an við það sem íþróttahreyf- ingin fær. Ritstj. Iþr.s. Vafnavcxtír í Mýrdal Frá Vík í Mýrdal hafa borizt þær fréttir að vatnavextir hafi verið þar undanfarið og vald- ið skemmdum á brúm. TJARNAR BÍÓ Æskan vill syngja (En trallande janta)' Sænsk söngvamynd. Alice Babs Nilsson, Nils Kihlberg, Anna-LLsa Ericson. Sýnd kl. 5, 7 og 9. KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN wuwwvwuvwvwwwwwt NÝJA BÍÓ Hefdarfrúin svonefnda C„Lady for a Night“) JOAN BLONDELL, JOHN WAYNE, Sýnd kl. 9. DRAUGASKIPIÐ (Whispering Ghosts) Brenda Joyce Milton Berle. Aukamynd; Viðhorf á Spáni. (March of Time) Bönnuð börnum yngri en 12 ára. Sýnd kl. 5 og 7 Framhald á 2 síðu. nauðsynlegrar eflingar atvinnu lífsins í bænum, og þess arðs sem bæjarfélagið hafði af hluta fjáreign sinni í H.F. Valur, hefði bæjarstjórn auðveldlega getað stutt að útvegsaukningu 1 bæn- um, án nokkurrar verulegrar áhættu. En hún gerði það ekki. Hinsvegar samþykkti bæjar- stjórnin seint á árinu 1941, að tilhlutun hv. forseta bæjar- stjórnar, prófessors Guðmundar G. Hagalíns, að selja H. F. Val með gögnum. og gæðum burt úr bænum. Með þessum verknaði hefur Alþýðuflokkurinn sem ábyrgur bæjarstjórnarmeirihluti ásamt Sjálfstæðisflokkpum, sýnt hvers bæjarbúar mega af honum vænta. Alþýðuflokkurinn hefur nú tileinkað sér ýmis mikilvæg atriði úr trúarjátningum íhalds- ins í atvinnumálum frá árun- um 1926—8, og framkvæmt þau á mjög raunsæjan hátt. Stærðarhlutföll fiskiflotans í árslok 1943 miðað við tölu bsej- arbúa, er langtum óhagstæðara atvinnulífi bæjarins, en nokkru sinni fyrr, jafnvel ekki einu sinni á þrengingarárunum 1926 —8. Enda er svo komið, að f jöldi manna leitar nú suður á land og víðgr í atvinnuleit. Isfirðingum leikur eflaust hugur á því að vita, hver út- vegsþróun hefur orðið í þeim þremur bæjum, sem nefndir eru hér að framan, og hvort útvegur þeirra hefur vaxið ör- ar en ísafjarðar. Eftirfarandi tafla sýnir mis- muhinn: 1915 1943 tala skipa smál. tala skipa smál. Akranes 2 32 19 938 Keflavík 0 0 25 729 Vestm.eyj. 2 33 80 2272 Isafjörður 23 810 20 696 Hvað veldur þessum mismun? Er Isafjörður orðinn verr sett- ur til fiskveiða en áður var? Framh. af 2. síðu. anna á milli. Ilann var eins og allir vissu sem þekktu hann frábær gáfumaður, las og flutti ræður sín- ar afburða vel og skörulega, og allur var maðurinn hinn glæsileg- asti og góðmannlegasti svo að mjög bar af. Af þessum sökum kom séra Gísli ávalt upp í huga mínum þegar dr. Einar Ól. Sveinsson hóf sína Njálu lestra í útvarpinu, og vissulega vildi ég feginn fá að heyra Einar lesa upp Njálu öðru sínni. Aðstöðumunur þeirra séra Gísla Skúlasonar og dr. Einars Ól. Sveinssonar við Njálulesturinn var sá, að séra Gísli las sinn lestiir á hestbaki bókarlaust, en dr. Einar í útvarpið, og skal ég ekkert um það segja hvort hann hefur haft bók fyrir framan sig eða ekki. Mér þykir rétt að geta þéss, að )>að eru aðeins tveir menn sem ég hef kynnzt, sem hafa getað lesið viðstöðulaust og orðrétt upp heila kafla úr bókum utanbókar, eins og það er orðað, það eru ])cir séra Gísli heitinn og Guðmundur bóndi Jónsson í Nesi í Selvogi, og virtist mér hann jafnvígur á hvort heldur vera bundið eða óbundið mál og er lestur hans hinn prýðilegasti á að hlusta, Það er fögur list að lesa vel. list sem allir ættu að keppa að að læra. Það cr ótvírætt menningar- og vitsmunamerki að vera góður lesari, og það verður tæplega. góð- ur lesari sem mikið les í hljóði af lestri sínum, og það er jafn nauð- synlegt að þekkja lestrarmerkin og bókstafina. Það er áreiðanlega almannaróm- ur, að Njálulestur dr. Einars .01. Sveinssonar í útvarpinu liafi verið einhver sá allra-bezti sem þaðan hefur heyrzt, auk þess sem efnið var öllum hugsandi áheyrendum kærkomið, af lestri dr. Einars ættu allir að læra sem huga hefðu á að vanda lestur sinn. Um leið og ég þakka dr. Einari fyrir lesturinn, vil ég óska þess — og mæli þar áreiðanlega fyrir munn fjölda hlustenda — að lestur hans megi halda áfrain sem eitt dag- skráratriði útvarpsins. Við eigum nóg af íslendingasögum handa honum að lesa, landsmönnúm til gagns og ánægju. Þ. Jóns. Er ísfirzkri sjómannastétt að fara aftur, eða hvað er það annað, sem veldur? • Har. Guðm. Okkar innilegasta þakklæti vottum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför JÓHÖNNU, dóttur okkar og systur. Guðrún Þorkelsdóttir, Sigurjón Snjólfsson og systkini. I I ísfirzk útgerð Bæjarpósturinn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.