Þjóðviljinn - 14.03.1944, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 14.03.1944, Qupperneq 8
Næturlækmr læknavarðstofunni í Austurbæjarfaamaskólanum, sími 5030. Ljósatími ökutækja er frá ki. 6.30 að kvöldi til kl. 6,50 að morgni. NœturvörSur er í Lyfjabúðinni Iðunn. Nœturalcstur annast Bifreiðastöð íslands, sími 1540. ÚTVARPIi) í DAG. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Þingfréttir. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: de Gaulle og uppgjöf Frakklands (Eiríkur Sigur- bergsson viðskipafræðingur). 21.05 Tónleikar Tónlistarskólans: a) Sónata fyrir fiðlu og pí- anó eftir Debussy. b) Rondo í G-dúr eftir Moz- art. (Bjöm Ólafsson og Ámi Kristjánsson). 21.25 Tónlistarfræðsla fyrir ungl- inga (Róbert Abraham). Ljósatími ökutækja er frá kl. 6,50 að kvöldi til 6.25 að morgni. Næturakstur: Bifreiðastöð ís- lands, sími 1540. Austurvígstöðvarnari Framhald af 1. síðu. Sókn Rússa suður og suðvestur frá Úman gekk greiðlega í gær. í nánd við Proskúroff hrundu Rússar gagnáhlaupum og unnu á. Enn er barizt í Tarnopol. Rúss- ar tóku bæinn Skalat 20 km. fyr- ir suðvestan Tarnopol og margt bæja og þorpa á milli Tarnopol og Proskúroff. Samtals tóku Rússar yfir 300 bæi og þorp í Úkrainu í gær. KRÍM. Brezkur liernaðarsérfræðingur iét í gær þá skoðun í ljós, að hinir nýju sigrar Rússa í Úkrainu hefðu mikil áhrif á aðstöðu þýzka hers- ins á Krím. Hann sagði Rússa ekki vilja sóa mannslífum með því að ráðast beint framan að hinum öflugu varnarlínum Þjóðverja í Perekop- eiði, sem væri mjög vel fallið til varnar, en héldu þeiin þó stöðugt við cfnið og hefðu Þjóðverjar beðið mikið manntjón og ættu erfitt með að fylla í skörðin. En Rússar gætu vel leyft sér að bíða. Auk þess eflist skæruherinn á Krím dag frá degi. Því léngra sem líður og Rússar ná meir af Svartahafsströndinni á sitt vald, því minni horfur verða á að von Mannstein geti komið liði sínu undan frá Krím. MARSKÁLKAR SETTIR AF. Hitler liefur skipt um yfirher- stjórn á mið- og norðurvígstöðv- um austurvígstöðvanna. Hafa þeir marskálkarnir von Kiesler á mið- vígstöðvunum og von Kluge á norðurvígstöðvunum verið látnir víkjá fyrir öðrum. RÚMENAR SMEYKIR. Útvarpið í Moskva birti þá frétt í gær að margir rúmenskir hers- höfðingjar hafi sent Antonescu forsætisráðherra áskorun um að kalla rúmensku hersveitirnar á austurvígstöðvunum tafarlaust heim. Áður höfðu hershöfðingjarn- ir setið í marga daga á ráðstefnu í Budapest til að ræða um liorf- urnar á austurvígstöðvunum. Tyrkneska blaðið Ulus sagði í gær, að horfur Rúmeníu væru jafn- vel ennþá alvarlegri en Finnlands. FINNLAND. Finnskar fréttir herma, að Rúss- ar dragi að sér lið í nánd við Múr- mansk. Sænsk blöð segja, að þá og þeg- ar megi búast við að Finnar taki mikla ákvörðun. Sfcíðamóf Reyfejavífemr SiiomH leuhiauifiir urð al Uessa iliai iflaai EoMls dr 1.1. K. R. vann 3 sveitakeppnir en Ármann eina Á sunnudag hófst Reykjavíkurmót skiðamanna við KoIviðarhóL, en ganga og stökk fer fram um næstu helgi. Úrslit urðu sem hér segir: Svig A-flokkur Jóhann Eyfells í. R. 92,9 Björn Blöndal K. R. 93,0 Magnús Ámason S. S. 94,7 í sveitakeppni varð K. R. með beztan tíma 311,2 sek. 2. Skíðafélag stúdenta 322,3 sek. Keppt var um nýja bikarinn sem Almenna tryggingafélagið gaf, en Háskólinn ráðstafaði. V örubílst jóraf élagið „Þróttur“ gengur í Al- þýðusambandið Á fundi miðstjórnar Alþýðusam- bands íslands, sem haldinn var síð- astliðið föstudagskvöld, lá m. a. fyrir inntökubeiðni i sambandið frá Vörubílstjórafélaginu „Þrótt- ur“. Var samþykkt að veita félag- inu viðtöku í sambandið. Stjórn „Þróttar“ er skipuð þess- um mönnum: Friðleifur Friðleifsson, formaður. Einar Ögmundsson, ritari. Pétur Guðfinnsson, gjaldkeri. Jón Guðlaugsson og Sveinbjöm Guðlaugsson meðstjórnendur. í félaginu eru rúmlega SOO bif- reiðastjórar. Gjafir fil barnaspítala Hringsins skaftfrjálsar Eins og lesendum Þjóðviljans er kunnugt hefur Kvenfélagið Iíring- urinn undanfarið safnað fé tU byggingar barnaspítala hér í bœn- um. Alþingi hefur samþykkt að gjaf- ir til barnaspítalasjóðsins skuli vera skattfrjálsar. Unnið er nú að teikningu barna- spítalans og verður hann væntan- lega reistur á Landspítalalóðinni. Félagskonur hafa nú í undir- búningi stóran basar einhverntíma á næstunni til ágóða fyrir spítala- sjóðinn og jafnframt munu þær einnig safna til sjóðsins á annán hátt. Aðaifundur Blaðamannafélagsíns Framh. af 1. síðu. Stjórn Menningarsjóðs Blaða- mannafélagsins var endurkosin, en hana skipa Sigfús Sigurhjartarson, Jón Kjartansson og Jón H. Guð- mundsson. I Blaðamannafélagi Islands eru nú 32 meðlimir, allir starfandi við Reykjavíkurblöðiu nemá Sigurður Bjarnason alþm.. ritstjóri „Vestur- lands“. Svig B-flokkur Eyjólfur Einarsson Á. 95,5 Magnús Guðm.son S. S. H. 95,6 Þórir Jónsson K. R. 98,4 Ármann sigraði í sveitakeppn inni á 328,5 sek. 2. S. S. á 340,2 sek. Þar var einnig keppt um nýjan bikar, gefinn af Sjóvá- tryggingarfél. íslands. Svig C-flokkur Lárus Guðmundsson K. R. 77,4 Hjörtur Jónsson K. R. 82,2 Magnús Þorsteinsson K. R. 86,2 K. R. vann sveitakeppnina á 406,7 sek. 2. Ármann á 406,7. 3. í. R. á. 425,7. Keppt var um Cemia-bikarinn. Nýr bikar. Svig kvenna B-flokkur Sigrún Sigurðardóttir í. R. 57,8 Hallfríður Bjarnad. K. R. 58,9 Ásta Benjamínsdóttir Á. 59,4 C-flokkur Sigríður Jónsdóttir K. R. 44,3 Guðbjörg Þórðard. K. R. 46,0 Kristín Pálsdóttir K. R. 47,2 K. R. vann sveitakeppnina á 137,5 sek. og vann Laugarhóls- bikarinn sem gefinn var af Vá- tryggingarstofu Sigfúsar Sig- hvatssonar og keppt um hann fyrst núna. Brun kvenna B-flokkur Hallfríður Bjarnad. K. R. 29,2 Maja Örvar K. R. 29,8 Sigrún Sigurðardóttir í. R. 33,2 C-flokkur Sigrún Eyjólfsdóttir Á. 23,9 Margrét Ólafsdóttir Á. 26,7 Gunnh. Guðmundsd. í. R. 29,0 Brun karla 35 ára og eldri Ólafur Þorsteinsson Á. 52,5 Zophonias Snorrason í. R. 61,6 Steinþór Sigurðsson Sk. R. 74,3 Svig karla 35 ára og eldri Ólafur Þorsteinsson Á. 78,1 Steinþór Sigurðsson Sk. R. 96,5 Þorgr. Jónsson I. R. 111.5 Brun 13—15 ára Pétur Guðmundsson K. R. 25,6 Ingvi Guðmundsson K. R. 26,1 Grímur Sveinsson í. R. 29,4 Svig 13—15 ára Guðni Sigfússon í. R. 51,7 Flosi Ólafsson K. R. 54,4 Pétur Guðmundsson K. R. 55,0 Mótið gekk mjög vel þótt kalt væri í veðri og sóttu það nær 600 manns. Færi var held- ur hart og nokkuð hvasst, svo fresta varð sumum greinum nokkuð. TJARNAR BÍÖ Þessi Reufet (This Man Reuter) Amerísk mynd um ævi- starf Reuters, stofnanda fyrstu fréttastofu í heimi. EDWARD G. ROBINSON EDNA BEST Sýnd kl. 5, 7 og 9 KAUPIÐ ÞJÖÐVILJANN NÝJA BÍÖ Flugmifín „Erntr" (Eagle SquadronJ mikilfengleg stórmynd. Robert Staek Diana Barrymore. Jon Hall. Sýnd kL 7 og 9. Böm fá ekki aðgang. Blessuð fjölskyldan („The Mad Martindales“) Gamanmynd með JANE WITHERS og ALAN MOWBRAY Sýnd kl. 5. Ný ja btósýnir: Flugsveitin ,, Ernir“ Universal Aðalhlutverk: Robert Stack, Diana Barrymore. Leikstjóri: Arthur Lubin. Maður heyrir ekki ósjaldan sagt um stríðsmyndir, að þær séu „bölv- aðar áróðursmyndir', „ekkert í þær varið“. Það er að vísu satt, að allar stríðsmundir eru áróðurs- myndir, og hvernig ætti annað að vera, hvernig er yfirleitt hægt að taka mynd, sem fjalla á um styrj- öldina, án þess að í henni felist áróður á einn eða annan veg. En hitt er að vísu satt, að oft kemur það fyrir, að áróðurinn er dálítið barnalegur, svo að maður hlýtur að furða sig á því, hvers vegna Bandamenn eru ekki búnir að vinna stríðið fyrir löngu. Margar stríðsmyndanna, a. m. k. hinar amerísku, lýsa nazistunum sem hálfgerðum aulum, sem ekkert vit hafa á neinu, er viðkemur hernaði, > . * þeir gera lítið annað en flækjast liver fyrir öðrum. Myndin, sem Nýja Bíó sýnir um þessar mundir, er hér engin und- antekning. Þó er hún heldur í skárra lagi. Hún fjallar annars um amerísku licrdeildina í berzka flug- hernum (Eagle Squadron). Hún var stofnuð í október 1940 af nokkrum sjálfboðaliðum frá Banda ríkjunum, og gat sér góðan orð- stír, en mun nú hafa verið samein- uð ameríska flughernum í Bret- landi. Myndin segir frá 3 nýlið- um í herdeildinni, frá því þeir ganga í hana þangað til þeim eina þeirra sem er á lífi er veitt heið- ursmerki fyrir vasklega framgöngu í víkingaárás á Frakkland. Mynd- Nýr skíðabikar Sjóvátryggingarfélag íslands hefur afhent Shíðaráði Reykjavík- ur skíðabikar, scm keppt skal um á Skíðamóti Reykjavíkur. Bikar þessi, sem er stór og fag- ur silfurbikar, er verðlaunabikar fyrir beztu þriggja manna sveit í svigi karla, B-flokki. Var í fyrsta skipti keppt um bikar þennan síðastliðinn sunnu- dag og varð sveit Ármanns hlut- skörpust. Bikarinn verður að vinna fimm sinnum til eignar. in er yfirleitt vel tekin, en þó getur maður ekki gert að sér að brosa, þegar leikstjórinn getur ekki setið á sér að láta Þjóðverjana kenna á því. Flugvélar þeirra eru skotnar niður í tugatali, einn maður kál- ar nokkrum tugum þeirra. ein- göngu af því að þeir hafa ekki vit á því að fara í skjól, og maður skyldi varla lialda að það væri mikill vandi fyrir Breta að her- nema Frakkland, a. m. k. ekki ef þeir hefðu nokkur hundruð menn, svipaða amerísku flugmönnunum, — en sleppum því, allt þetta er afsakanlegt og sakar ekkert (a. m. k. ef maður trúir því þá ekki) og manni þykir í rauninni gaman að sjá nazistana bíða ófarir, jafnvel þótt það sé aðeins á mynd. á. Sambúð íra og Brela Allur farþegaflutningur lief ur verið stöðvaður milli írska fríríkisins (Eire) og Bretlands og eins milli Úlster og Bret- lands. En ekki hefnr enn farið fram stöðvun á farþegaflutn- ingi milli Úlster og Eire. Bandarísk blöð herma, að Eisenhower hafi krafizt þessar- ar ráðstöfunar til að fyrir- byggja að njósnarar öxulveld- anna í Eire geti fylzt með inn- rásarundirbúningnum. Brezk blöð hreifa því hvort rétt sé að Bretar sjái írum fyr- ir kolum, olíu og öðrum nauð- synjum úr því að þeir hafi tek* * ið neikvæða afstöðu til þeirrar óskar Bandarikjanna að þeir lokuðu sendisveitum möndul- veldanna. Kaapiun fuskur allar tegundir, hæsta veröi IIU S G AG N A VINNU STOFAN Baldursgötu 30. Sími 2292.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.