Þjóðviljinn - 04.04.1944, Side 1
ÞJðÐVIlJASÖFIWHI
-— ■ - .— I v £i
Kvenfélag Sósíalista-
flokksins gefur
15S7 kr.
Kvenfélag Sósíalistaflokksins
hélt ágœta skemmtun s. I. sunnu-
dagskoöld. Var þar lesið upp,
galdramaður sýndi listir sínar,
haldiS bögglauppboh, sungið og
að lokum dansað.
Ágóðann af k°öldinu gaf fé-
lagið Þjóðviljanum kr- 1557.
Fresturinn til að skila listum
í Þjóðviljasöfnunina er liðinn og
eru þeir, sem enn hafa eigi skdað
listum sínum áminntir um að
gera það nú þegar nœstu daga.
Ole Kíílerích, eínn af leíðfogutn dönsku neðanjarðarhreyf
íngarínnar, skýrír frá mótspyrnu Dana gegn nazísmanum
„Háttsettur rússneskur embættismaður í London,
sem hefur það starf að fylgjast með mótspyrnuhreyf-
ingunum sagði við mig nýlega, að neðanjarðarbarátt-
an í Danmörku væri bezt skipulagða andstöðuhreyfing-
in í herteknu löndunum, að Júgoslavíu frátalinni.“
Það er einn af leiðtogum dönsku neðanjarðarhreyf-
ingarinnar sem talar, blaðamaðurinn Ole Kiilerich,
fyrsti ritstjóri útbreiddasta leyniblaðs Danmerkur „Frit
Danmark“.
Mótstöðuhreyfing dönsku þjóðarinar gegn nazism-
anum hefur síðustu árin orðið það sterk og víðtæk, þó
lítið hafi um hana fregnazt af skiljanlegum ástæðum,
að hver sem kynnist henni af frásögn hr. Kiilerichs
mun ekki efast um að dómur hins rússneska embættis-
manns sé réttur.
Hatrið á nazistunum, innrásarhernum og innlend-
um þjónum þeirra er svo heitt, að „einnig við“, segir
Kiilerich, „búum okkur undir grimmileg reikningsskil.“
Sendiherrafrú Fontenay kynnti Ole Kiilerich er 37 ára, og hefur
Kiilerich íslenzkum blaðamönn stundað blaðamennsku frn 17 ára
um í gær. aldri, var lengi við slórblöðin
Berlingske Tidende og National-
tidende, — og var loks rekinn frá
því síðarnefnda.
Hann varð fyrsti ritstjóri blaðs-
ins „Frit Danmark“, þess leyni-
blaðs, er mestri útbreiðslu hefur
náð í Danmörku (en því má eklci
rugla saman við samnefnt mál-
gagn Frjálsra Dana í London), og
var ársbyrjun 1942 þar til í febrú-
ar 1943 að hann komst undan til
Svíþjóðar. Höfðu nazistar þá kom-
izt á snoðir um alla ritstjórnina,
og varð Kiilcrich að fara huldu
höfði síðustu tvo mánuðina í Dan-
mörku. Frá Svíþjóð flaug hann til
London og hefur síðan telcið þátt í
starfsemi Frjálsra Dana. Hingað
kemur Kiilerich til að halda fyrir-
lestra í félögum Dana og Norraena
félaginu, og mun dvelja hér sex
vikna tíma.
NEÐANJARÐARHREYF
INGIN
Frá byrjun ársins 1941 ber
nokkuð á neðanjarðarhreyfing-
unni, en eftir að Scavenius kom
til valda efldist hreyfingin mjög.
og þó sérstaklega eftir atburðina
29. ág. sl., er Ljóðverjar tóku alla
stjórn landsins í sínar liendur.
Leyniblöð spruttu upp og eru
nú milli 25 og 30, og komst Frit
Danmark upp í 70 þúsund eintök,
Framh. á 8 sffiu.
Hefur Aksel Larsen
tekizt að ftýja úr
fangabúðum ?
Aksel Larsen
Sá orðrómur hefur /jomizf á
kraik að danska korrlánistaleið-
toganum Aksel Larsen hafi tek~
izt að flýja úr fangabúðum í
Danzig, en þar hafa nazistar haft
hann í haldi undanfarið.
Staðfesting hefur engin fengizt
á orðrómi þessum enn sem kom“
ið er.
Ole Kiilerich
Tveir danskir nazistar og
Þjóóverji myitu Kaj Nunk
Uppvíst er orðið um morð-
ingja danska skáldsins Kaj
Munks, og er það danska lög-
reglan sem haft hefur upp á
þeim.
Eru það tveir danskir nazist-
ar og þýzkur maður frá Suður-
Jótlandi. í
Hafa nazistar komið þeim
öllum undan til Þýzkalands.
Nemendur Henntaskðlans
sýna, Kviklyfldu ekkjuna'
eftir Holberg
Á leikkoöldi Menntaskólanem-
enda í ktí°ld verður sýnt leikrit-
ið ,,Kviklynda ekkjan“ eftir
Ludvig Holberg, og fara nem-
endur skólans með öll hlutverk
leiksins.
Á undanfömum árum hafa
nemendur skólans sýnt leikrit eft
ir Holberg og mun þetta vera
fimmta leikritið sem þeir setja
á svið, eftir þennan höfund.
ÁgóÖanum af leikkvöldinu
verður variS til sundlaugarbygg-
ingar við skólaselið.
Diufl herim io m. trá tasi
15 hcriylhl umkríngd og uppræff hjá Kamenefs-Podolsfe
Rússar sækja á breiðri víglínu inn í Rúmeníu. Her-
sveitir Konéffs eru 10 km. frá borginni Jasí og hafa rof-
ið járnbrautina frá henni til Dorokvia.
Rauði herinn mætir lítilli skipulagðri mótspyrnu
í Rúmeníu.
Rússar eru að uppræta leifar 15 þýzkra herfylkja
fyrir norðaustan Kamenets-Podolsk.
Her Konéffs sækir inn í Rú-
meníu á um 80 km. langri víg-
línu. Tók hann um 50 bæi og
þorp þar í gær.
Rússar byrjuðu að brjótast
yfir Prúthfljót í fyrrakvöld.
Samtímis gaf Molotoff utanrík-
isþjóðfulltrúi Sovétríkjanna út
yfirlýsingu þess efnis, að þess-
ar hernaðaraðgerðir rauða hers
ins væru ekki framkvæmdar í
landvinningaskyni, heldur ein-
göngu af hernaðarlegri nauð-
syn.
Rauði herinn mætti í fyrstu
ákafri mótspyrnu af hálfu
þýzkra og rúmenskra hersveita
sem höfðu búið rammlega um
sig á vestri bakkanum. Þar
voru einnig þýzkar S-S -sveitir,
sem höfðu verið fluttar þangað
í skyndi að vestan.
Eftir harða viðureign tókst
Rússum að ná fótfestu á nokkr-
um stöðum á -vestri bakkanum,
Brast þá flótti í lið andstæðing-
anna. Flúðu S.S.-sveitirnar af
engu minna kappi en hinar áð-
ur en lauk. Skildu Þjóðverjar
og Rúmenar eftir heilmikið af
skriðdrekum og fallbyssum.
Undanfarið hefur oft verið
minnzt, á þýzka herinn, sem
varðist milli Dnéstr og Búg ná-
lægt Kamenets-Podolsk. Hefur
nú tekizt að umkringja hann
og er verið að eyða leifum
hans. Áður var ókunnugt um,
hvað þetta lið væri fjölmennt.
En nú er upplýst, að það hafi
upphaflega verið 15 herfylki.
Missa Þjóðverjar því þarna að
m. k. 150 000 menn. Annars eru
í fullskipuðu herfylki 15—20
þús. menn, en fá herfylki Þjóð-
verja eru nú orðið svo fjöl-
menn á austurvígstöðvunum,
eins og kom í ljós í lok inni-
króunarorustunnar hjá Korsún
fyrir skömmu.
SÚKOFF STÓRHÖGGUR
Síðan 1. úkrainski herinn
undir stjórn Súkoffs marskálks
hóf sókn sína fyrir mánuði síð-
an hefur hann fellt eða hand-
Framh. á 8 síðu.
Myndun dðnsku neðan-
jarSarhreylingarinnar
Næstu daga mun Þjóðvilj-
inn birta nákvæma frásögn
Ole Kiilerichs af myndun
liinnar öflugu andstöðuhreyf
ingar Dana gegn nazisman-
um.
Christmas Möller kynnir
Ole Kiilerich þannig: „Eg er
honum nákunnugur, og ég
veit um það ágæta starf sem
hann hefur innt af hendi
sem leiðtogi í andstöðubar-
áttunni. Það eru ekki marg-
ir Danir, sem hafa jafn ná-
kvæma vitneskju um það
sem gerzt hefur.“
Lesið greinaraar um
dönsku neðanjai'ðarhreyfing
una í Þjóðviljanum á morg-
un og fimmtudaginn.