Þjóðviljinn - 28.04.1944, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.04.1944, Blaðsíða 1
Lesið grein Louis Ada- mics um Júgóslavíu á 4. og 5. síðu. 9. árgangnr. Föstudagur 28. apríl 1944. 93. tölublað. INN Enn á ný göngnm við til móts við 1. maí — hinn sameiginlega baráttudag alþýðu allra landa. Á þessum degi, frekar en nokkrum öðrum, minn- umst við bræðrabandanna, er tengja verkalýðinn og alla alþýðu yfir hauður og höf. Á þessum degi hyllum við herskara þá, er berjast fyrir velferð þjóðanna, hyllum hetjubaráttu hinna und- irokuðu þjóða, er þjást af kúgun og skorti, en sjá nú dag frelsisins nálgast. 1. maí næstkomandi fylkir alþýðan sér í kröfugöngu launþegasamtakanna til að kunngera einingu sína í bar- áttunni fyrir afnámi atvinnuleysisins, fyrir útrýmingu fátæktarinnar, fyrir menntun fólksins, fyrir íslandi al- þýðunnar. 1. maí næstkomandi fylkir alþýðan sér í kröfugöngu samtakanna til að fagna stofnun hins íslenzka lýðveld- is og örfa til þátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Verkamenn, sjómenn, verkakonur. Launþegar anda og handa. Alþýða Reykjavíkur. Sýnið volduga einingu fólksins 1. maí. Mætið þúsundum saman undir fánum samtakanna, undir fána föðurlandsins. Lifi eining alþýðunnar. Lifi hið íslenzka lýðveldi. Allir eitt í kröfugöngu samtakanna 1. maí. Reykjavík, í apríl 1944. 1. maí-nefnd Fulltrúaráðs verklýðsfélaganna í Reykjavík: Björn Bjamason Garðar Jónsson, Eðvard Sigurðsson, Jóhanna Egilsdóttir, Snorri Jónsson Lýðveldiskosningarnar 137 höfðu greitt[ atkvæði í gær 50 manns greiddu atkvæði í lýðveldismálinu í gær, að því er kosningaskrifstofa lýð veldiskosninganna tjáði Þjóð viljanum í gærkvöld. Hafa þá alls 137 greitt at- kvæði hér í bænum um lýð- veldismálið. Allmargir þeirra er at- kvæði greiddu í gær voru Reykvíkingar, en meiri hluti þeirra sem atkvæði hafa greitt eru þó utanbæjarmenn. Mikill undirbúningur Rússa Engin breyting á víg- stöðvunum Sovétherstjórnin segir ekki enn frá neinum breytingum á austur- vígstöðvunum, en Þjóðverjar segja, að rauði herinn sœki fram fyrir norðan Jassi í Bessarabíu. Reutersfrétt frá Moskvu segir Rússa mjög atliafnasama á víg- stöðvunum og að baki þeim. Sér- staklega eigi þeir annríkt við að lagfœra samgöngulciðir sínar. í Bessarabíu þurfa þeir að breyta sporvídd jámbrautanna, svo að þeir geti notað jámbrautarvagna sína á þeim. Milclar viðgerðir fara fram á brúm og vegum. Stjóm Verkamannafél. Dagsbrún: Sigurður Guðnason. Hannes M. Stephensen. Jón Agnars. Eðvarð Sigurðsson. Árni Kristjánsson. Stjórn Sjómannafél. Reykjavíkur: Sigurjón Á. Ólafsson. Sveinn Sveinsson. Sigurður Ólafsson. Ólafur Friðriksson. Garðar Jónsson. Framh. á 8. síðu. Inmrásarundírbuníngur Htsti tnMr Miuini Nota Þíóðmíaf Dantnörku fvrír varalídsstö3 ? Bandamenn fóru í gær fram úr öllum fyrri metum ínum í dagárásum á meginlandið. Veður var ágætt, og ar flugvélastraumurinn fram og aftur yfir Ermarsund töðugur frá birtingu og fram í myrkur. Herflutningar Þjóðverja til Danmerkur síðustu dag- na þykja benda til, að þeir ætli að nota landið sem araliðsmiðstöð í væntanlegum innrásarátökum. Snemma í gærmorgun hófu flug- vélar Bandamanna árásir á Norð- ur-Frakkland. Skotmörkin voru hernaðarstöðvar, flugvellir og járnbrautamiðstöðvar. Seinna um daginn barst leikur- inn einnig yfir til Belgíu, en há- marki náðu árásirnar síðari hluta dags er meir en 2000 flugvélar (þar af 500 stórar sprengjuflug- vélar) réðust á samgönguleiðir Þjóðverja í Austur-Frakklandi. Meðal borga, sem ráðist var á, voru Chambrai og Arras. Lítillar mótspyrnu varð vart af hálfu þýzkra flugvéla. í árásunum tóku þátt allar mögulegar tegundir flugvéla og flugmenn af öllum þeim þjóðern- um, sem berjast með Bandamönn- um. Á síðastliðnum sjö sólarhringum hafa verið gerðar yfir 30000 loft- árásir á meginland Evrópu. í fyrrakvöld réðust 1000 sprengjuflugvélar á borgir í Þýzka landi. Aðalárásirnar voru gprðar á Essen og Schvveinfurt. Var varpað yfir 2000 smálestum sprengna á Essen. Þar eru hergagnaverksmiðj- ur Krupps. , Á leiðinni til Essen fór mikill fjöldi sprengjuflugvéla svo norðar- lega, að Þjóðverjar héldu, að til- gangurinn væri að ráðast á Ham- borg og sendu allan þorra varnar- Framhald á 8. síðu. LEIÐBEININGAR TIL KJÓSENDA VARÐANDI LÝÐVELDISKOSN- INGARNAR Sýnishorn af kjörseðli áður en kosið er: Atkvæðagreiðsla 20.—23. maí 1944. I Þingsályktun frá 25. febrúar 1944, um niðurfelling dansk-íslenzka sambandslagasamningsins frá 1918: Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að niður sé fall- inn dansk-íslenzki sambandslagasamningurinn frá 1918. Ályktun þessa skal leggja undir atkvæði allra al- þingiskjósenda til samþyktar eða synjunar, og skal atkvæðagreiðslan vera leynileg. Nái ályktunin sam- þykki, tekur hún gildi, er Alþingi hefur samþykkt hana að nýju að aflokinni þessari atkvæðagreiðslu. já nei Stjómarskrá lýðveldisins íslands, samþykkt á Alþingi 1944. já nei Þeir, sem samþykkja þingsályktunina eða stjómar- skrána, setja kross fyrir framan „já“, en hinir fyrir framan ,,nei“. Þannig á kjörseðillinn að líta út, eftir að kjósandi hefur með atkvæði sínu samþykkt niðurfall sambands- lagasamningsins og greitt atkvæði með lýðveldisstjórn- arskrá íslands: Atkvæðagreiðsla 20.—23. maí 1944. I Þingsályktun frá 25. febrúar 1944, um niðurfelling dansk-íslenzka sambandslagasamningsins frá 1918: Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að niður sé fall- inn dansk-íslenzki sambandslagasamningurinn frá 1918. Ályktun þessa skal leggja undir atkvæði allra al- þingiskjósenda til samþyktar eða synjunar, og skal atkvæðagreiðslan vera leynileg. Nái ályktunin sam- þykki, tekur hún gildi, er Alþingi hefur samþykkt hana að nýju að aflokinni þessari atkvæðagreiðslu. X já nei Stjómarskrá lýðveldisins íslands, samþykkt á Alþingi 1944. X já nei Þeir, sem samþykkja þingsályktunina eða stjómar- skrána, setja kross fyrir framan „já“, en hinir fyrir framan ,,nei“. Munið að greiða atkvæði um BÁÐAR tillögurnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.