Þjóðviljinn - 04.05.1944, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.05.1944, Blaðsíða 1
MOIHHellð SHlFlF H lillilli !?. ig io. j Gert ráð fyrir að lýðveldisstjórnarskráin pngi í gildi 17. júní 1944, kl. 2. e.h. Þjóðhátíðarnefndin boðaði blaðamenn á fund sinn í Alþingishúsinu í gær og skýrði þeim frá aðaldráttun- um í tilhögun hátíðahaldanna 17. og 18. júní n.k., við stofnun hins íslenzka lýðveldis. Virðist nefndin telja það afráðið að gildistökudag- ur lýðveldisstjórnarskrárinnar verði 17. júní í ár. Lýð- veldisstjórnarskráin er endanlega samþykkt með þjóð- atkvæðagreiðslunni, en að henni lokinni ákveður Al- þingi gildistökudaginn. Hátíðahöldin hefjast í Reykja- vík kl. 9 að morgni hins 17. júní með því að sveigur verður lagður við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, flutt verður stutt ræða og þjóðsöngurinn leikinn. Því næst verður haldið til Þing- valla, og hefjast aðalhátíðahöldin kl. 1,30 e. li. Setur forsætisráðherra hátíðina með stuttri ræðu, biskup flytur bæn og verður sálmur sung- inn á undan og eftir bæninni. Hámarki nær hátíðin klukkan tvö, en gert er ráð fyrir að Alþingi mæli svo fyrir að lýðveldisstjórn- arskráin öðlist gildi 17. júní 19H, Daemafá ósvífní nazísfa lcl. 2 e. li. Verður þá öllum kirkju- klukkum landsins hringt í þrjár mínútur, en* að því loknu verður einnar mínútu alger þögn og um- ferðarstöðvun. Þá hefur lúðrasveit að leika Ó guð vors lands, og að ]np loknú setur forseti sameinaðs ])ings þingfund og lýsir yfir því, að lýðveldisstjórnarskráin sé geng- in í gildi. Forseti sameinaðs þings flytur þvínæst ræðu, og tilkynnir úrslit forsetakjörs. Hinn nýkjörni forseti íslands vinnur eið að stjórnar- skránni að Lögbergi, þar sem þing- ið situr og ávarpar þingheim með stuttri ræðu. Að loknum þingfundi fer fram fánahylling að Lögbergi. Stór og vandaður silkifáni verður dreginn að hún og allur þingheimur syng- ur fánasöng Einars Benediktsson- ar: llís þú unga íslands merki. Þessi athöfn, sem ætlaður er staður í brekkunni á eystri bakka Almannagjár, verður látin fara fram hvernig sem viðrar, og er gert ráð fyrir að hún muni standa hálfan annan klukkutíma. Þá verður hlé, en kl. 4y2 eða 5 heldur þjóðhátíðin áfram á sérstök um íþróttapalii sem reistur verður á völlunum. Skiptast þar á íþrótta- sýningar, söngur, hljóðfæraleikur, o. fl. Gert er ráð fyrir að íþrótta- sýningarnar taki hálfan annan klukkutíma, og sýna leikfimi 16 manna úrvalsflokkar karla og kvenna og 200 karlmenn hópleik- fimi. Þarna fara einnig fram úr- slit Íslandsglímunnar. Þessir liðir hátíðahaldanna geta enzt til kvölds, cn að þeim loknum verð- ur dansað á íþróttapallinum. HÁTÍÐAIÍÖLDIN í REYKJA- VÍK Daginn eftir, sunnudaginn 18. júní, hefjast hátíðahöldin í Reykja vík með skrúðgöngu, sem gert er ráð fyrir að þúsundir manna taki þátt í. Hefst gangan við háskól- ann og verður staðnæmzt fyrir framan stjórnarráðið. Þar heldur forseti íslands ræðu til þjoðarinn- ar og leikur lúðrasveit á undan og eftir. Framh. á 8. síðu. Rússar ráðast á flug- velii Þjóðverja bak við víglínuna • Rússneska herstjórnin skýrði enn frá því í gær, að engar verulegar breytingar hefðu orð ið á vígstöðvunum. Nálægt Stanislavoff var hrundið gagnáhlaupum Þjóð- verja. Þjóðverjar tala um harðar á- rásir rauða hersins syðst við Dnéstr. í gær réðst rauði flugherinn á þrjá flugvelli Þjóðverja að baki víglínunni. Einn er hjá Lvoff, annar hjá Sambor, rúm- lega 70 km. fyrir suðvestan Lvoff, og sá þriðji hjá Roman í Rúmeníu, við aðaljámhraut- ina frá Czernovitz til Ploesti. Fjöldi flugvéla var eyðilagð- ur á flugvöllunum. 447 iiafa greitt atkvæði um iýðveldismáíið 447 höfðu greitt atkvæði um lýðveldismálið kl. 9 í gærkvöld. Þar af voru 330 utanbæjarmenn Atkvæðagreiðslan fer fram á tveim stöðum, Góðtemplarahús inu frá kl. 10—12 f. h. og 1—4 e. h., og hjá borgarfógeta í Arn- arhvoli frá kl. 5—7 og 8—10 síð- degis. Sími skrifstofu lýðveldiskosn inganna er: 1521. Kunnugt er nú um nöfn 70 þeirra, sem fórust i hinu ægi- lega slysi í Björgvin. Eru það 50 karhnenn og 20 konur, frá 20 ára aldri til 85 ára. Manntjónið var miklu meira (upphaflega gizkað á 200), en ekki hefur ennþá fengizt endaniegt yfirlit, því að margir dmkknuðu í flóðbylgjunni og í Voginum og marg- ir era grafnir í rústum hinna fjölmörgu húsa, sem hmndu. ábyrgð á því, sem skeði, og á öll- ffl ina Ríkisstjórnin ætlar að fá verkfallið dœmt ólöglegtj Verkatnenn munti svara á víddgasidí hálf Vegavinnuverkfall hófst um land allt í gærmorgun, eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær. Ríkisstjórnin hefur með kauplækkunarkröfum sín- umum stöðvað alla vegavinnu á landinu. Verkamenn munu ákveðnir í því að svara þessari árás ríkisvaldsins á lífskjör þeirra á viðeigandi hátt. Ríkisstjórnin ætlar sér að fá verkfallið dæmt ólög- i legt. Þjóðviljinn mun skýra lesendum sínum frá því sem gerist í þessu máli. Gestapo ætlar nú að reyna að nota þennan hörmulega at- burð sem tilefni nýrra ofbeldis- verka gegn norsku þjóðinni. Nokkrum klukkustundum eftir slysið á meðan allir í Björgvin voru önnum kafnir við að hjálpa hinum særðu, gáfu Þjóð- verjar út ógnandi tilkynningar, þar sem þeir fullyrtu, að slys- ið stafaði af skemmdarverkun) Breta eða Norðmanna í þjón- ustu þeirra. Þjóðverjar hafa aldrei verið miklir sálfræðingar í viðskiptum við aðrar þjóðir, og auðvitað trúði engiim Norðmaður jafnbjánalegum ásokunum og þeim, að norskir föð- urlandsvinir hefðu framið slík ó- happaverk gegn löndum sínum, þó að auðvitað hugsi enginn norsk- ur föðurlandsvinur sig um tvisvar, ef liann getur framið skemmdar- verk, sem eingöngu bitna á Þjóð- verjum í Noregi. Það er öllum Ijóst, að Þjóðverj- arnir í Björgvin, eins og í Oslo í | desember síðast liðnum, bera alla , um þeim mönnum, sem fórust, jafn vel þótt hin upphaflega orsök kunni að vera skemmdarverk, framin í þýzkum hergagnavérk- J smiðjum. | Þrátt fyrir aðvarayir og umleit- ! anir af hálfu Norðmanna, nota Þjóðverjar mcð sinni vanalegu fyr- irlitningu fyrir norskum mannslíf- um og eignum, miðdepil stórrar hafnarborgar sem geymslustað fyr- ir feikilegar skotfærabirgðir. Glæpamannaforinginn á Victoria Terasse, böðullinn Fehlis, — eins og Norðmenn nefna hann —, kall- aði til sín kunna quislingablaða- menn eftir slysið í Björgvin og sagði þeim, að Gestapo hefði að lokum kofnizt að því, hverjir það voru, sem frcmdu hryðjuverk í Noregi og myrtu saklaust fólk í Noregi. Það voru Englendingar og norskir föðurlandsvinir. Og spreng- ingin í Björgvin væri síðasta verk þeirra. Seinna endurtók Rediess lög- regluforingi, verkfæri Himmlers í Noregi, sömu hótanir. Kauplækkunarkrafa ríkis- stjórnarinnar .felst í þeirri kröfu hennar, að eigi skuli gilda sömu ákvæði um skipt- ingu kaupsvæða og var á s.l. ári, en hún var þannig að kaup taxti þess verklýðsfélags gilti sem næst var'þeim stað er inn- an var sömu sýslu og vinnan er framkvæmd í. Hvernig þetta verkar skal skýrt með nokkrum dæmum. Verkamenn, sem vinna inn- an lögsagnarumdæmis Reykja- víkur, myndu fá greitt núgild- andi Dagsbrúnarkaup. En þeir Dagsbrunarmenn sem vinna í nærsveitunum myndu fá sama kauþ og gilti s.l. sumar, og væru á þann hátt sviptir ár- angri þeira sigra, sem Dags- brún vann s.l. ár og vinna fyrir ca. 16% lægra kaupi en Dags- brúnarmenn innan lögsagnar- umdæmis Reykjavíkur. Tökum önnur dæmi: Kaup verkamanna á Sauðárkróki er nú kr. 2.20 á klst. en var s.l. ár kr. 1.88. Samkvæmt kröfu ríkisstjórn- arinnar eiga þeir verkamenn, sem vinna í Sauðárkrókshreppi að fá greiddar kr. 2.20 á klst., en þeir sem vinna í nærsveit- unum utan félagssvæðisins kr. 1.88 á klst. eða 32 aurum lægra á klst. Sama gildir um aðra staði landsins. Verkamenn sem vinna utan starfssvæða verklýðsfélag- anna, ætlar ríkisstjórnin að svipta þeim kjarabótum sem fé- lögin hafa unnið frá því á s.l. ári. En verkamenn munu svara ríkisstjórninni á viðeigandi hátt. Þjóðviljinn mun birta á morg un skýrslu frá stjórn Alþýðu- sambandsins um málið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.