Þjóðviljinn - 04.05.1944, Side 8
Nætnrlæknlr er í íæknávarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum, sími
5030.
Næturakstur: Hreyfill, sími 1633.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Ljósatími ökutækja er frá kl. 9,15
að kvöldi til kl. 3.40 að morgni.
Útvarpið í lag:
18.30 Dönskukennsla, 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Söngdansar.
20.50 Frá útlöndum (Björn Franz-
son)
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á
cello.
21.15 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (Björn Sigfússon)
21.40 Hljómplötur. Létt sönglög.
Tónlistarfélagið. Óperettan „í á-
lögum“ verður sýnd annað kvöld
kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó
í dag kl. 4—7.
Leiðrétting. I l'rásögn Þjóðviljans í gær
áf 1. maí-hátíðahöldunum hafði fallið út
lína neðst í aftasta dálki á annarri síðu,
þar átti að vera: Hajsteinn Ilalldórsson
jlutti ræðu, llósberg Snædal o. s. frv. Þá
eru lesendur beðnir að afsaka línurugl sem
varð á sömu síðu, en sem velviljaðir les-
endur munu liafa getað áttað sig á. Þá
leiðréttist ennfremur að formaður Þróttar
á Siglufirði er Gunnar Jóhannsson en ekki
Þóroddur Guðmuudsson.
Dregið var síðdegis í gær í happ-
drætti Umdæmisstúkunnar nr. 1
(Barnaheimilisssjóður) og Þing-
stúku Reykjavíkur (Skógræktin að
Jaðri).
Borgarfógetinn framkvæmdi út-
dráttinn og komu upp þessi númer:
11947 dagstofuhúsgögn.
10916 málverk, Gunnl. Ó. Scheving.
24549 málverk, Jóhannes Kjarval.
9083 rafmagnsþvottavél, amerísk.
8193 loðkápa (Pels).
29186 málverk, Jón Engilberts.
9083 rafmagnsþvottavel, amerísk.
20348 málverk,Snorri Arinbjarnar.
19889 málverkr Ben. Guðmundss.
26669 málverk, Matthías Sigfússon.
20580 Gullarmbandsúr, Omega.
20579 bókasamstæða.
469 pluss-kápa.
28473 veggklukka.
8510 kvæðasafn Davíðs Stefánss.
2141 orðabók Sigfúsar Blöndals.
3075 mynd, Jón Engilberts.
27308 mynd, eftir sama.
16196 mynd, eftir sama.
16217 mynd, eftir sama.
10271 fataefni.
19310 Iðnsaga íslands.
Munanna má vitja til Jóns Gunn-
laugssonar, Fríkirkjuveg 11.
Híiefalaikasnelstaramðt
ísiands
Hnefaleikameistaramót fs-
lands fór fram í amerísku
íþróttahöllinni við Hálogaland.
Þátttakendur voru frá Ár-
manni og íþróttafélagi Reyltja-
víkur.
Úrslit urðu þessi:
íslandsmeistari í fluguvigt
varð Friðrik Guðnason Á, vann
Björn Jónsson Á.
íslandsmeistari í Bantamvigt
varð Marteinn Björgvinsson Á,
vann Kristinn Gunnarsson Á.
Þungavigt utan meistara-
,keppni: Þorkell Magnússon Á,
vann Kristinn Bergþórsson ÍR.
íslandsmeistari í léttvigt varð
Stefán Magnússon Á, vann
Kristmund Þorsteinsson Á.
íslandsmeistari í veltivigt
varð Jóel B. Jakobsen Á, vann
Arnkel Guðmundsson Á.
íslandsmeistari í millivigt
varð Jóhann Eyfells ÍR., vann
Stefán Jónsson Á, 1 knock out
í 3. lotu.
íslandsmeistari í léttþunga-
vigt varð Gunnar Ólafsson Á,
vann Braga Jónsson Á.
íslandsmeistari í þungavigt
TJARNAK BfO
KfJA BÍ0
Geriö skyidu ykkar við
ístenzkra fýðveldið
m
Greiðíd laíkvæðí med! sambands«
aa
siitum ©g^siofmin^lýdvelclísi
Atkvæðagreiðslan um stofnun lýðveldisins og nið-
urfellingu sambandslagasamningsins við Dani er hafin.
Allir, sem búast við að verða fjarverandi frá heimilum
sínum 20. maí, ættu að greiða atkvæði tafarlaust. í
Reykjavík fer atkvæðagreiðslan fram í Templarahús-
inu við Templarasund kl. 10—12 og 1—4 alla daga og á
skrifstofu borgarfógeta í Arnarhvoli við Ingólfsstræti
kl. 5—7 og 8—10 alla daga.
Kosningaskrifstofan er á Hótel Heklu við Lækjar-
torg, þar eru veittar allar upplýsingar og fyrirgreiðsla
vegna kosninganna.
HVERSVEGNA ALLIR
ÞURFA AÐ GREIÐA
ATKVÆÐI
íslendingar hafa ekki háð
jálfstæðisbaráttuna með vopn
hönd, til þess hafa þeir verið
g eru of fámennir. Sjálfstæð-
smenning og samheldni í sjálf-
tæðisbaráttunni hafa verið
vopn henhar og verja, þetta
•tvennt hefur hún talið skapa
sér rétt til sjálfstæðis og hefur
erið viðurkennt af öðrum þjóð
um.
Atkvæðagreiðslan um lýð-
veldisstofnunina er einstakt
tækifæri til að sýna heiminum
að fslendingar „eiga eina sál“
1 þessu máli. Komi það í ljós,
að hver einasti atkvæðisbær
maður á íslandi greiði atkvæði
með stofnun lýðveldisins, —
—segir já við báðum spuming-
unum sem greitt er atkvæði um
— hafa íslendingar sýnt heim-
inum, á eins ótvíræðan hátt og
verða má, að þeir vilji og vei'ð-
skulRi að vera sjálfstæð þjóð.
Ilver sá, sem ekki greiðir at-
kvæði um stofnun lýðveldisins,
hver sá sem ekki segir já við
báðum spumingunum, sem
greitt er atkvæði um, vanrækir
skyldur sínar við þjóðina og
föðurlandið.
Þér, sem ekki verðið heima
á kjördag, munið að ynna skyld
una strax af hendi, atkvæði yð-
ar þarf að komast þangað, sem
þér eruð á kjörskrá, fyrir kjör-
dag. Ef þér dragið að greiða at-
kvæði getur það orðið of seint.
HVAÐ ÞARF TIL AÐ GREIÐA
ATKVÆÐI FYRIR KJÖRDAG?
Margir spyrja á þessa leið.
Spurningunni er fljótsvarað.
Hver sá sem telur að hann
verði fjarri heimili sínu þegar
atkvæðagreiðsla fer fram, getur
farið íil borgarfógeta -sýslu-
varð Guðmundur Arason Á,
vann Kristbjörn Þórarinsson
ÍR.
Áhorfendur voru eins margir
og hægt var að korna í húsið.
Félögin sem að mótinu stóðu,
Ármann og ÍR., eru herstjórn-
inni þakklát fyrir greiðvirkni
þá að lána húsið undir keppn-
ina.
manns eða hreppstjóra út um
land eða fulltrúa þeirra) og
greitt atkvæði, hann þarf að-
eins að segja til fulls nafns
(bæði eða öll nöfn, ef fleiri eru
en eitt), stöðu og heimilis, og
hvar hann telur sig vera á kjör-
skrá. Atkvæðið er síðan sent á
kjörskrárstað, og þar athugað
þegar kosningu er lokið, hvort
þetta nafn er þar á kjörskrá,
og hvort maður hefur kosið, sé
hann á kjörskrá og hafi ekki
kosið, fer atkvæð.ið með öðrum
atkvæðum í kassann, hafi hann
kosið eða finnist hann ekki á
kjörskrá, kemur atkvæðið ekki
til greina.
MUNIÐ AÐ GEFA UPPLÝS-
INGAR
Það er mjög áríðandi, að kosn
ingaskrifstofan við Lækjartorg
fái upplýsingar um alla þá ut-
anbæjarmenn, sem hér dvelja,
svo hægt sé að greiða fyrir
kosningu þeirra, og sömuleiðis
að hún fái að vita um alla þá
Reykvíkinga sem eru fjarver-
andi, svo hægt sé að greiða fyr-
ir að atkvæði þeirra komist
þangað fyrir kjördag.
Óvenjulegur leiðangur
biezkra , esquitoflugvéla
Yfirmaður berzka flughersins hef
ur sagt frá sjaldgæfri sendiferð,
sem Mosquitosprengjuflugvélar
voru nýlega sendar í.
Borizt Itajði á leynilegan hátt
jrétt urn það til London að Þjóð-
verjar geymdu þúsundir mihil-
vœgra shjala í húsi einu í Haag,
höfuðborg Ilollands. Fylgdi upp-
lýsingunum nákvœmur uppdrátt-
ur aj legu hússins og lýsing á 'því.
Þetta varð til þess, að nokkrum
sprengjuflugvélum af Mosquito-
gerð var falið að eyðileggja húsið,
— en aðeins þetta eina hús, ná-
grannahúsin máttu ekki verða fyr-
1 ir neinu tjóni.
Brezku flugmennirnir frarn-
kvæmdu fyrirskipunina nákvæm-
lega.
Tvær sprengjur þeirra fóru inn
um aðaldyrnar og aðrar tvær inn
uin glugga. Enda flugu Bretarnir
eins lágt og óhætt var.
Húsið var kolsvört rúst, er frá
var horfið.
Vér munum koma aftur 1 Arabiskar nætur
(We will come back) (Arabian Nights)
Rússnesk mynd úr ófriðn- ® um. Litskreytt ævintýramynd úr 1001 nótt. Aðalhlutverk:
Aðalhlutverk: JON HALL
J. VANIN MARIA MONTEZ
MARINA LADYNINA LEIF ERIKSON
Bönnuð fyrir börn innan SABU.
16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum yngri en 12 ára.
TÓNLISTAFÉLAGIÐ
„í ALOGUM”
Óperetta í 4 þáttum.
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag kl. 4—7.
ÞjóðhátíSiii 17. júní
Framhaid af 1. síðu
Verður gangan og athöfnin við
stjórnarráðið aðalatriði hátíða-
haldanna 18. júní.
FLUTNINGAR TIL
ÞINGVALLA.
Hæ’tt er við að nokkrir erfið-
leikar verði á flutningum til
Þingvalla, og gerir þjóðhátíð-
arnefndin ráð fynr að setja
þurfi alla almenningsbíla undir
eina stjórn, en með því móti
gætu um 15 þúsund manns kom
izt frá Reykjavík til Þingvalla
með því að hver bíll fari tvær
ferðir. Hvetur nefndin alla þá
sem þess eiga kost að fara
kvöldið fyrir 17. júní til Þing-
valla og eins að þeir sem eigi
einkabíla fari tvær ferðir og
flytji kunningja sína.
Nefndin telur sig ekki geta
útvegað mönnum utan af landi
húsnæði þjóðhátíðardagana, og
sé því óvarlegt fyrir aðra að.
koma til Reykjavíkur þessa
daga en þá sem geta verið til
húsa hjá kunningjum sínum.
Hátíðahöld verða í hverri
sýslu og hverjum bæ, og hefur
hátíðanefndin bent héraða-
nefndunum á að láta útvarpið
frá athöfninni að Lögbergi
verða þátt í hátíðahöldunum.
SÝNINGAR í REYKJAVÍK.
í sambandi við hátíðahöldin
verður sögusýning í Mennta-
skólanum, er géfa á mynd af
frelsis- og menningarbaráttu
íslenzku þjóðarinnar. Verður
hún sennilega opnuð um 10.
júní. Sérstök nefnd, þeir Ólaf-
ur prófessor Lárusson, dr. Ein-
ar Ól. Sveinsson, Guðlaugur
Rósenkranz og Einar Olgeirsson
hefur undirbúið þessa sýningu.
Um sama leyti verður opnuð
málverkasýning í Listamanna-
skálanum, samsýning íslenzkra
málara, en sú sýning er á veg-
um málaranna sjálfra.
SAMKEPPNI UM LÖG VIÐ
HÁTÍÐALJÓÐIN
Þjóðhátíðarnefndin hefur efnt
til samkeppni um lög við hátíða
ljóð Huldu og Jóhannesar úr
Kötlum, og er samkepþnin til-
kynnt í blöðunum og útvarpi í
dag.
Hugleidíngar,., -
Framh. af 2. siðu.
Það er jafnvel hægt að fyrir-
gefa einhverjum Godtfredsen
kjafthátt um oss íslendinga, kjaft-
hátt um það, að vér fáum greitt,
of hátt kaup fyrir .vinnu vora. En
þegar íslendingar — angurgapar
— eru að þenja sig í blöðum og
útvarpi, hrópandi hástöfum um of
hátt kaupgjald og hæfnisleysi ís-
lenzkrar fiskframleiðslu, haldandi
])ví fram, að fiskur vor sé of dýr
á heimsmarkaðinum, þá skyhli
engi trúa því, að þeim væru falin
trúnaðarstörf. Heggur sá, er hlífa
skyldi. Kjaftháttur þessi getur
hæglega leitt til þess, að þjóðir
1 þær sem vér skiptum við og sem
sennilega þekkja eigi til hlítar skil-
yrði þau, sem íslenzk framleiðsla
á við að búa, álitu, að liér sé of
lítið haft fyrir lífinu. Auðvitað
mega angurgapar þessir vita, að
það eru flciri en íslendingar, sem
heyra til þeirra. Ef þessum rnönn-
um ætti ekki að refsa, hverjum
ætti þá að refsa?
Utv arpshlus tandi.
Eimreiun
Framh.af 3. síðu
son, SnæDjörn Jónsson, Þórir Bergs
son o. s. frv. Við þjóðveginn eftir
ritstjórann um ýms mál, einnig
grein, sem nefnist ísland 1943, rit-
sjá eftir ýmsa og nýr greinaflokkur
eftir dr: Alexander Cannon er með-
a! efnis þessa heftis. Halldór K.
Laxness ritar grein, sem nefnist
Föstuhugleiðingar, Kristmann Guð-
mundsson sögu, Gisting í Reykjavík
og Snæbjörn Jónsson grein, sem
nefnist Hvers á (Thomas) Hardy
að gjalda? Margt fleira er til fróð-
leiks og skemmtunar í heftinu.