Þjóðviljinn - 23.05.1944, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 23.05.1944, Blaðsíða 4
ÞTOl'VILJINN — Þriðjuclagur 23. maí 1914 Þriðjuáagur 23. maí Íö44 — IÓÐ'.UI 'tiNN (IIÓÐVILIIHN Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistajlokkurinn. Ritstjóri: Sigurður Ouðmundsson. Stjórnmálaritsi.jórai’: Einar Olgdrsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 12, sími 2270. Afgreiðsla og augiýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 218ý. Askriftarverð: I Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði. Uti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja: Víkingsprent h.f., Garðastrœtí 17. Þjóðin svarar öll Þjóðaratkvæðagreiðslan fer langt fram úr öllu því, sem hinir bjart- sýnustu bjnggust við. 1 mörgum tugum hreppa út um sveitir og í mörg- um götum kaupstaðanna hefur þegar hver einasti kjósandi greitt at- kvæði, Sumar sýslur eru nú eins nærri 100% og hægt er að búast við að komist sé. Og augljóst er að þátttakan verður yfir 90%. Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er íslenzku þjóðinni til sóma! Hún sýnir að þjóðin hefur öll áhuga á því stórmáli, sem hér er verið að út- kljá. Hún sýnir að meðvitundin um hvað er að gerast er ríkari en nokk- ur hafði þorað að vona. Gagnvart öðrum þjóðum, — þeim þjóðum, sem sjálfar standa í fórnfreku stríði fyrir sínu þjóðfrelsi, er það ómetanlegt að íslendingar sýna allir vilja sinn til að ákvarða stjórnarfar sitt. Ein- mitt svona almenna tjáningu viljans þurfti til að aðrar þjóðir skildu til fulls, hver hugur fylgir máli hjá þjóð, sem kúguð hefur verið í 7 aldir. Þátttakan í þjóðaratkvæðagreiðslunni sannar líká annað. Ilún sannar, að einmitt þessi aðferð, sem þingflokkarnir ákváðu 1942, var rétt. Nú lætur svo að segja hver einasti maður á landinu uppi skoðun sína urn hvort hann vill lýðveldi á Islandi. Ef kosnir hefðu verið full- trúar á þjóðfund, hefði þátttakan ekki orðið líkt því eins mikil og kjós- endurnir verið sviptir möguleikanum til þess að láta upp persónulega skoðun sína beinlínis, og orðið að fá öðrum mönnum umboð til að tjá vilja sjnn. En nú velur hver kjósartdi eða hafnar sjálfur. Það hefur skapazt heilbrigð keppni milli hinna einstöku hreppa, sýslna og bæja um að komast sem fyrst upp í 100% eða m. a. að komast sem lengst. — Það er langt síðan svo ánægjtdeg samkeppni hefur farið fram á Islandi. Hve stoltir og glaðir myndu ekki hundruð og aftur hundruð af gömlum brautryðjendum íslenzks frelsis vera, ef þeir mættu nú líta upp úr gröf sinni og sjá niðja sína rækja skylduna við þá, skylduna við sjálfa sig, — skylduna við fortíðina og framtíðina í senn? Hve stoltir og klökkir munu þeir ekki hafa verið margir íslending- arnir undanfarna daga, er þeir fengu tækifæri. til þess að vinna það verk með atkvæðagreiðslunni einni saman, sem þúsundir af undan- gengnum áum vorum hefðu viljað fórna lífi sínu til að vinna: skapa sjálfstætt lýðveldi á íslandi? Og þér, sem enn eigið eftir að greiða atkvæði, gerið það í dag. Rækið skyldur yðar við þjóðina! Krossið við bæði já-in á kjörseðlinum. Þér Reykvíkingar, sem enn eruð eftir! Munið að ekki má höfuðborgin láta sitt eftir liggja. Ekki má hún standa hreppum eða smábæjum að baki. Fyrir hundrað árum var þessi bær danskur smábær. — Fyrir baráttu og starf íslendinga heila öld er hann orðinn íslenzk höf- uðborg. Haldið uppi heiðri hinnar komandi höfuðborgar íslenzka lýðveldisins! Sækið þjóðaratkvæðagreiðsluna í dag, hver einasti einn! í dag eru síðustu forvöð! m íslendingar, karlar og konur! Dansk-norski rithöfundurinn Aksel Sandemose gerði nýlega grein fyrir því í sænsku blaði, hvernig það væri að flytjast úr hinum strið- andi, blæðandi veruleika Noregs, og í hinn friðsæla hversdagsleika Svíaveldis. „Við bjuggumst við að koma heim, en gerðum það ekki. Við ásökum. engan fyrir það. En ég fór að hugsa um“, segir hann, „að skilyrði þess að einn aðili geti skil- ið annan, er að annaðhvort hafi hann lifað samskonar atburði sjálf- ur, eða þá að hann hafi mikið hugmyndaflug, því að hugmyndá- flugið er einmitt hæfileikinn til þess að setja sig inn í tilfinningar og hugsanir annarra, eða skilja eigin aðstöðu í stærra samhengi“. Marga skortir þennan liæfileika, og sá skortur er alveg jafnalgeng- ur meðg.1 einstaklinga hjá hvaða þjóð sem er. Mér virðist oft sami skortur á skilningi koma fram í afstöðu kynjanna, hvors til annars, og þar sem mér sem íslenzkri konu oft hefur fundizt liinar norrænu skála- ræður ofurlítið minna á kvenna- minni þau, sem haldin eru hér á héraðsmótum, get ég ekki látið hjá líða að draga fram skyldleikann. Karlmaðurinn hyllir konuna sem hina rómantízku mynd yndisleik- ans, jafna sér og sjálfstæða á allan hátt. En um leið og hún sýnir citt- hvert ytra tákn því til sönnunar, segir hann oftast: Uss, þetta er svo ókvenlegt, góða mín. Norrænu frændþjóðirnar hylla ísland sem Sögueyjuna, þar sem býr frelsiselskandi þjóð eins og þær sjálfar. En um leið og íslend- ingar hyggjast að lögfesta sjálf- stæði sitt og stofna liér fullvalda lýðveldi — berst okkur svipað svar frá sumum frændum vorum: Dæmalaust er þetta ónorrænt, elskurnar mínar. Eitt af sænsku blöðunum sagði, að það væri sýnilegt að ísland hyggðist halda fast við ákvörðun sína um að skilja við gamla „móð- urlandið“. Mér clatt í hug sagan um Adam og rifið. Það er alveg sami skortur á landfræðilegri og sögulegri þekk- ingu að kalla Danmörku móður- land íslands — eins og það er ó- fyrirgefanleg fáfræði í lífeðlisfræði að telja karlmenn fæða af sér kon- ur. Og andsvör hinna misskildu að- ila eru ákaflcga áþekk. ísland ætl- ar sér að afneita íhlutunarvaldi danskra stjórnarvalda um utanrík- ismál sín, og Kristjáni konungi, sem höfði þjóðarinnar af guðs náð. A nákvæmlega sama hátt og hin nýja kona vill hafa fullkomið lög- legt og athafnalegt frelsi, geta val- ið sér starf og rekið þannig eigin ut- anríkispólitík. Ilún afneitar einnig hinni guðfræðilegu arfsögn um að maðurinn sé höfuð konunnar, án þess þó að henni nokkurntíma detti í hug að hætta að vera kona eða umgangast karlmenn. Island ætlar sér ekki heldur að hætta að vera norrænt ríki þó það Rannveig Kristjánsdóttir. (Myndin tekin í ræðustólnum). verði frjálst lýðveldi, og íslending- ar munu ekki heldur hætta að um- gangast liinar Norðurlandaþjóð- irnar. Við íslendingar eigum nú innan fárra daga að sýna heiminum hinn ódrepandi vilja smáþjóðarinnar til þess að vera sjálfstæð þjóð. Við þurfum aðeins að ganga til at- 'kvæða og vera sammála. Slík atkvæðagreiðsla kann að virðast Iítilfjörleg í samanburði við allar þær blóðfórnir, sem smáríki Evrópu nú færa á altari þjóðfrels- isins. En þeir sem líða og liðið hafa undir oki erlendrar þjóðar munu skilja afstöðu íslands í þessu máli, og svo þeir, sem ekki hafa gert það, en hafa hugmyndaflug, eins og Sandemose segir. ★ íslendingar góðir! Látum ekkur ekki skorta hugmyndaflug til þess að skilja okkar eigin sögu og mæta á kjörstað við lýðveldiskosningarn- ar 20.—23. maí. Eldri kynslóðin þarf ef til vill ekki á því að halda, því að hún man svo vel sjálfstæðisbaráttuna og veit svo vel, hve mikla þýðingu það hafði, að stjórn allra innan- landsmála fluttist inn í landið — og hlýtur því einnig að skilja að síðasta sporið verður að stíga ó- hikað áfram. En við, sem alin erum upp eftir 1918, höfum ekki lifað hina raun- verulegu erlendu kúgun. Við höf- um oft á tíðum ekki gert okkur grein fyrir, hvílík stakkaskipti hafa orðið á högum þjóðarinnar síðan allt vald í innanlandsmálum flutt- ist inn í landið sjálft. Við höfum oft varla gert okkur grein fyrir, að enn var ekki allt fengið. Persónulega varð mér þetta t. d. ekki ljóst fyrr en ég dvaldist með erlendri þjóð, og reyndi að sann- færa kunningjana um að ísland væri sjálfstætt ríki. Það tókst sjaldan. Þá fórnmér sem mörgum landa, og Sigurður Nordal hefur lýst svo vel í innganginum að arfi íslendinga. — Ég byrjaði að meta afstöðu mína sem íslendings gagn- vart öðrum þjóðum, og komst að þeirri niðurstöðu m. a., að fyrr en sjálfstæði íslands — innlend stjórn þess og lýðveldi á íslandi væri fullkomlega viðurkennt í orði og verki , gætum við ekki án stöðugr- ar viðkvæmni og vanmetakenridar tekið þátt í samvinnu við aðrar þjóðir, allra sízt hinar norrænu þjóðir sem næst okkur stóðu. Þetta má kalla hinn mannlega skilning málsins og hann er cngan- veginn auvirðilegur. Það er hin óstöðvandi sefga, sigrancli barátta undirokuðu smáþjóðanna stöðugt að sýna okkur. Þegar svo öll aðstaða út á við hin síðustu ár hefur lagt allt það vald, sem íslendingar ennþá áttu óheimt, í hendur þeirra sjálfra, getum við ekki lengur efazt um hvað gjöra skuli. ★ Og nú beini ég máli mínu sér- staklega til kvennanna. íslenzku konunum ber, ef mögu- legt væri, að vera ennþá ákveðn- ari en karlmönnunum, af því að konan ætti að hafa ennþá skarpari skilning á því hvað skerðing frelsis er, en nokkurntíma karlmaðurinn. Islenzku konurnar hafa heldur ekki verið afskiptalausar í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar. Okkur eru minnistæð dæmi eins og Grundar-Helga, sem lét safna liði og drepa Smið hirðstjóra, í- mynd hinnar erlendu kúgunar. — Við vitum, að þær frænkur Þorbjörg Sveinsdóttir og Ólafía Jóhannsdóttir börðust af eldmóði miklum bæði í ræðu og riti fyrir endurheimtu sjálfstæði íslendinga. Af núlifandi konum má t. d. nefna Theodóru Thoroddsen og Guðrúnu Pétursdóttur, sem báðar hafa lifað sjálfstæðisbaráttuna fyrir 1918, og sem ennþá eiga hugmyndaflug til þess að vera eldheitar í málinu. Ungu íslenzku konur! Látið ykkar ekki eftir liggja. Bregðizt ekki landi ykkar og þjóð og sjálfum ykkur. Látið sjá að þið hafið öðlazt hinn tvöfalda skilning sem aðstaða konunnar og hugmyndaflug æsku ykkar á að veita ykkur. Fylkið ykkur á kjörstað. Takmark okkar er, allir á kjör- stað og ísland lýðveldi 17. júní. Gjafir til vinnuheimilissjóðs S.Í.B.S. Hallgrímur Benediktsson og Co. hefur gefil Vinnuheimili S. í. B. S. 10 þús. kr. Einnig hefur KEA gefið 10 þús. kr. Auk þess hafa eftirtald- ar gjafir borizt nýlega í vinnuheim- ilissjóðinn: Frá Jón Helgasyni, frú og tengdasyni, Hafnarfirði kr. 400.00, Til minningar um Valgerði Kapraksíusdóttur kr. 300.00, Frá Einari Eyjólfssyni Sigluf. til minn- ingar um veru hans á Vífilsstöðum kr. 1000, H. J. kr. 1500, Frá starfs- fólki í Ingólfsapóteki kr. 360. Ræða Rannveigar Kristjánsdóttur á æskulýðsfund- inum við Austurvöll vvwvwvuwwwwvwwvwwwuw Fyrsti sigur minn Niðurlag greinar eftir TERJE WOLD, dómsmálaráðherra norsku stjómarinnar, er birtist hér í blaðinu 18. maí s. 1. undir sömu fyrirsögn. IIVERJIR ERU STRÍÐSGLÆPAMENN ? En þetta er ekki einu erfiðleik- arnir í sambandi við stríðsglæpa- mannamálið. Það, sem að mínu áliti verður erfiðast að ráða fram úr, er, hvort draga eigi fyrir dóm- ara alla þá, sem hafa verið við- riðnir glæpina, eða hvort þörf sé fyrir takmörkun. Ég nefni sem dæmi líflát gisla. Sá glæpur er drýgður í öllum hernumdu löndun- um. Eiga Bandamenn að refsa öll- um þeim, sem átt liafa þátt í líí- látinu, frá þeim, sem ber ábyrgð á fyrirskipuninni til hermannanna í aftökusveitinni? Ennfremur eru það fjöldabrott- flutningar Gyðinga frá hernumdu lÖndunum með eftirfylgjandi ger- eyðingu þeirra í fangabúðum og Gyðingahverfum í Póllandi og annars staðar. Það er augljóst, að þetta er ekki gert án þess að meiri hluti opin- berra embættismanna og starfs-' manna þýzka ríkisins hafi verið við þetta riðinn. Þeir hafa af fús- um vilja látið nota sig sem verk- færi til að vinna þessa svívirðilegu glæpi. Þeir eru allir glæpamenn og eiga hegningu skilið. Svo er það Gestapo. Við þekkj- um aðfarir hennar }>ví miður of vel. Ilún er heill her, sem í mörg ár hefur myrt og kvalið saklaust fólk í öllum hernumdu löndunum í Evrópu. Allir meðlimiruir eru glæpamenn. Heilir bæir og þorp hafa verið lögð í auðn og íbúarnir, —■ karlar, lconur og börn, myrtir. Allir, háir sem lágir, er hafa tekið þátt í þessum grimmdarverkum, eru stríðsglæpamenn. En er mögu- legt að draga þá fyrir dómara? Ekki má gleyma loftárásunum á borgir eins og Varsjá og Rotter- dam, sem eingöngu voru fram- kvæmdar í því skyni að drepa íbú- ana og valda skelfingu og eyði- leggingu. Öll þessi dæmi munu sýna greini- lega, hvaða erfiðleikar bíða Banda- manna. Það er auðséð, að ekki er hægt að sigrast á þessum erfið- leikum með því að hvert einstakt land glími við þá út af fyrir sig án samvinnu við hin Iöndin. Þegar rætt hefur verið um strjðs- glæpi á seinni árum, hefur laga- lega hliðin verið lögð til gruncl- vallar. Þessar umræður hafa verið mjög gagnlegar, en allir þeir örð- ugleikar, sem fram koma viðvíkj- andi framkvæmdaratriðum, stefnu og lögum, verða ekki leystir ein- göngu á stjórnmálalegum grund- velli. Losar t. d. fyrirskipun yfirmanns undirmanninn við alla ábyrgð á glæp sínum? 1 einræðisríki gæti hver maður sagt, að hann hefði ekki drýgt glæp, heldur aðeins framkvæmt fyrirskipun. Ef það ætti að fara eftir þessari reglu, yrði Hitler sjálfur einasta ábyrga per- sónan, og jafnvel hann gæti kraf- izt ábyrgðarleysis sér til handa með þeim rökum, að hann sé þjóð- höfðingi og sé því ekki ábyrgur samkvæmt alþjóðalögum. Allir munu vera sammála um, að svona rökfærsla sé vitlaus. Það er til- tölulega auðvelt að ákveða, hvaða þýðingu fyrirskipanir yfirmanna eiga að hafa, þegar um er að ræða héraðsstjóra, lögreglustjóra, hátt- setta herforingja o. s. frv., en hvað skal segja, þegar í hlut eiga ó- breyttir hermenn i aftökusveitun- um? ERAMKVÆMDAR- ÖRÐUGLEIKAR. Við þetta bætast allir þeir örð- ugleikar, sem sjálf réttarhöldin yf- ir stríðsglæpamönnunum munu hafa í för með sér. Hugsið ykkur hvað það þýðir í rauninni að draga hundruð þúsunda ákærðra fyrir dómstóla. Taka verður hvert mál fyrir út af fyrir sig, kalla menn til að bera vitni, yfirheyra o. s. frv. Það er auðskilið mál, að þetta er næstum óframkvæmanlegt, jafn- vel þótt við notum bæði innlenda og alþjóðlega dómstóla. Það hlýt- ur að taka tíma, og eins og 1918 er hætta á að málin dragist á lang- inn. En ég er sannfærður um, að hinar sameinuðu þjóðir munu ekki sætta sig við, að málin dragist á langinn í þetta skipti. En jafnvel þótt fjöldi stríðs- glæpamanria valdi því, að ekki sé hægt að draga þá alla fyrir dóm- ara, er á hinn bóginn ekki nóg að refsa aðeins foringjunum og þeim sem bera aðalábyrgðina. Við verð- um að framkvæma þetta sam- kvæmt einhverjum meginreglum, sem gera sameinuðu þjóðirnar á- nægðar og sannfæra þær alveg um það, að réttlætinu sé fullnægt að svo miklu leyti sem í mannlegu valdi stendur, og að það gerist fljótt og með góðum árangri. Ef þetta verður ekki gert, er áreiðanlegt, að fólkið tekur hefnd- ina í sínar hendur og afleiðingin verður óeirðir og aftökur án dóms og laga. Muncli það vera í and- stöðu við þann grundvöll, sem sið- uð þjóðfélög verða að byggja á. Og verstu glæpamennirnir mundu bara fá tækifæri til að forða sér. ÞÖRF FYRIR SAM- EIGINLEGAR GRUND- VALLARREGLUR. Hin rétta lausn hinna mörgu vandamála í sambandi við stríðs- glæpina þarfnast fremur stjórn- málalegs mats en lögfræðilegs, og verða hinar sameinuðu þjóðir að framkvæma það í sameiningu. Auðvitað dettur engum í hug að skipta sér af réttarfari hinna frjálsu, sjálfstæðu ríkja, en á hinn bóginn cr bráðnauðsynlégt, að við komum okkur saman um vissar, sameiginlegar grundvallarreglur um meðferð stríðsglæpamannanna. Við höfum háð þetta stríð saman fyrir frið, frelsi og réttlæti. Eftir stríðið verður friður og frelsi að vera mál, sem kemur öllum sam- Framh.af 3. síðu sagði hæðnislega: „Jæja, drengur- inn er hneigður fyrir tónlist, — drengurinn semur lög. Stórmerki- legt!“ Svo opnaði hann hurðina inn í riæstu kennslustofu, kallaði á kennarann þar og sagði við hann: „Hér er dálítið að skoða. Þessi litli snáði er tónskáld“. Báðir kennararnir flettu blöðunum i nótnabókinni minni með áhuga. Allir stóðu í báðum bckkjum. Ég var viss um stórsigur, en það ætti maður aldrei að vera of fljótt. Því að hinn kennarinn var ekki fyrr farinn, en kennarinn minn breytti skyndiíéga um aðfcrð, greip svo fast í hárið á mér, að mér sortn- aði fyrir augum og sagði með ruddalegum málróm: „Næst kem- urðu með þýzku orðabókina eins og vera ber, en skilur þessa vit- leysu eftir heima“. — Vei! að vera svona nærri tindi gæfunnar og steypast svo allt í einu niður í hyldýpið! Hversu oft hef ég ckki orðið fyrir því seinna á ævinni! Og alltáf hefur mér dottið fyrsta skiptið í hug. Andspænis skólanum bjó ungur liðsforingi, sem var ástríðufullur tónlistarunnandi og góður píanó- leikari. Iljá honum leitaði ég hælis og færði honum tónsmíðatilraunir mínar, en hann varð svo hrifinn af þeim, að ég varð alltaf .að gefa honum afrit af þeim. — Það var sigur, sem ég var ekki lítið lirif- inn af. Sem betur fór tókst mér seinna a& fá afritin aftur hjá hon- um til að fleygja þeim í bréfa- körfuua, þar sem þau áttu heima. Ég hef oft hugsað með þakklæti til vinar niíns, liðsforingjans, sem seinna varð hershöfðingi, fyrir þá uppörfandi viðurkenningu, sem hann veitti fyrstu tilraunum mín- um á listabrautinni. Tilfinningum unglingsins var hún hugljúf mót- setning við allt það andstreymi, sem mætti mér í skólanum. O Um þetta leyti datt mér aldrei í hug, að ég kynni að verða lista- maður. Ég hugsaði ckki svo hátt. Ef einhver spurði mig, hvað ég ætlaði að vera, svaraði ég Kik- laust: „Prestur“. Ég ímyndaði mér, að svartklæddi sálnahirðir- inn væri dýrlegasti maðurinn. Mér einuðu þjó'ðunum við, og sama verður að gilda um réttinn. — Við höfum ekki barizt fyrir norskum, pólskum, júgoslavncskum cða brezkum rétti. Við höfuin barizt fyrir réttarfari hinna sameinuðu þjóða, og þær reglur, sem við fylgj- um um meðferð stríðsglæpamann- anna í þessu stríði, er því mál, sem kemur okkur öllum við. Við verðum að móta sameiginlega stefnu, sem ákveður meginreglurn- ar, er fylgja verður í réttarhöld- unum gegn glæpamönnunum. Að mínu áliti er áríðandi, að fulltrúar hinna sameinuðu þjóða, með nauðsynlegt umboðsvald, komi saman til að útkljá öll þessi víðtæku, pólitísku vandamál. Hér er um mál að ræða, sem hinar hátíðlegu yfirlýsingar sameinuðu þjóðánna eru samhljóða um. Þar sem okkur cr ljóst, hvað það ,er mikilsvert fyrir framtíð menningar okkar, að þetta mál verði leyst, er ástæða til að halda, að hægt sé að ákveða sameiginlega stefnu núna og framkvæma hana. fannst það vera mjög háleitt að geta prédikað eða talað frammi fyrir hlustandi mannfjölda. Að vera spámaður, boðberi. það lang- aði mig til að vera. Og hvernig ég þuldi yfir aumingja foreldrum mínum og systrum! — Ég kunni öll kvæðin í lestrarbókinni utan að. Og þegar faðir minn ætlaði að fá sér dálítinn blund í hæginda- stólnum eftir miðdegisverð lét ég hann ekki í friði, heldur fór á bak við stólinn, sem var prédikunar- stóll minn og þulcli kvæðin mis- kunnarlaust. Allan tímann hafði ég gát á honum, sem virtist blunda, en hló stundum dálítið, og þá var ég ánægður, — það var viðurkenn- ing! —: Og hvernig ég gat kvalið hann endalaust. — „Ó, aðeins eitt stutt kvæði enn“. „Nei, þetta er nóg“. „Aðeins eitt!“ Lok skólaáranna og um leið brottför min að heiman kom fyrr en ég bjóst við. Ég var næstum 15 ára, en hafði ekki verið lengi í efsta bekk. En svo vildi til, að einn sumardag þeysti reiðmaður á stökki upp veg- inn til Landaas. Hann kom í hlað, tók taumana á gæðing sínum og stökk af baki. — Það var hann, — álfakóngurinn, sem mig hafði dreymt um, en aldrei séð. Það var Ole BuII. Mér líkaði það ekki vel, að þessi guðdómlega vera fór blátt áfram af baki og kom fram eins og vana- legt fólk, kom inn í stofuna og heilsaði brosandi okkur öllum. Ég man vel, að um mig fór eitthvað, sem líktist rafstraumi, þegar hann tók í hönd mína. En þegar þessi guð gat lagt sig niður við að segja skrýtlur, varð mér Ijóst, mér til hryggðar, að hann var bara mað- ur, þegar allt kom til alls. — Því miður hafði hann ekki fiðluna sína með sér, en hann gat talað, og það gerði hann ósvikið. Við hlustuðum öll orðlaus á hin- ar furðulegu sögur af Ameríkuför hans. Það var sannarlega nokkuð fyrir hið barnslega ímyndunarafl mitt. — En þegar hann heyrði, að ég hefði fengizt við tónsmíðar, varð ég að setjast við píanóið, — öll undanbrögð mín voru árang- urslaus. Nú get ég ckki skilið, hvað Ole Bull gat þá séð við æskuverk mín. En hánn var mjög alvarlegur og talaði lágt við foreldra mína. — Umræðuefnið var alls ekki óþægi- legt fyrir mig, því að allt í einu kom Ole Bull til mín, hristi mig til á sinn hátt og sagði: „Þú átt að fara til Leipzig og verða tón- Iistarmaður“. — Allir horfðu ást- úðlega á mig, og ég skildi, að heilla- dís hafði snortið mig, og ég var sæll. Og blessaðir foreldrar mínir! ekki augnabliks mótspyrna eða hik. — Öllu var komið í kring, og mér virtist þetta vera sjálfsagður hlutur. ;— Ég sá ekki skýrt fyrr en seinna, hvað ég stend í mikilli þakklætisskuld við þau — og Ole Bull. Ég var sem heillaður, og ekkert annað komst að. — Og þá, — metnaður var líka til, — því get ég varla neitað. Og metnaðurinn virðist vera eitt af aðalefnunum, sem mynda málmblendu þá, sem kallast „listamaður", því að ósjálf- 10 Framh. af 1. síðu. Úr Vestur-Húnavatnssýslu: Torí'astaðahreppur fremri Torfastaðahreppur ytri Úr Austur-Húnavatnssýslu: Áshreppur Sveinsstaðahreppur Svínavatnshreppur Úr Skagaf jarðarsýslu: Fellshreppur Rípurhreppur Staðahreppur Úr Eyjafjarðarsýslu: Árskógsstrandarhreppur Grímsey Hrafnagilshreppur Öngulsstaðahreppur Öxnadalshreppur Úr Suður-Þingeyjarsýslu: Aðaldalshreppur Bárðdælahreppur Ljósavatnshreppur Reykdælahreppur Svalbarðsstrandarhreppur Tjörneshreppur Úr Norður-Þingeyjarsýslu: Axarfjarðarhreppur Fjallahreppur Kelduneshreppur Úr Norður-Múlasýslu: Loðmundarfjarðarhreppur Úr Suður-Múlasýslu: Breiðdalshreppur Norðfjarðarhreppur Helgustaðahreppur Mjóafjarðarhreppur Geithellnahreppur Úr Austur-Skaftafellssýslu: Bæjahreppur Nesjahreppur Úr Vestur-Skaftafellssýslu: Dyrhólahreppur Hvammshreppur Hörglandshreppur Leiðvallahreppur Skaftártunguhreppur Kirkjubæjarhreppur Álftavershreppur Úr Rangárvallasýslu: Djúpárhreppur Austur-Eyjafjallahreppur Austur-Landeyjahreppur Hvolshreppur V estur-Landey jahreppur Landmannahreppur Rangárvallahreppur Úr Ámessýslu: Gaulverjahreppur Sandvíkurhreppur Grafningur Skeiðahreppur V illingaholtshreppur Þingvallahreppur Hraungerðishreppur Eyrarbakkahreppur rátt hvíslaði eitthvað inni í mér: „Sigur“. — En hvað segir lesari minn um það? Hef ég unnið sigur? — Mér finnst það a. m. k. sjálfum, með réttu eða röngu. Og hér lýk ég skrá minni yfir hina virðulegu og síður virðulegu sigra bernsku minnar. í söfnun handa hjónum í Mos- fellssveit er misstu eigur sínar við húsbruna, hefur Þjóðviljanum bor- izt 50 kr. frá Guðmundi frá Mið- dal, áður höfðu borizt 100 kr. Gjafir í barnaspítalasjóð Hringsins: Frá A. f. L. kr. 1000.00, frá G. R. (afh. Vísi) kr. 100.00, frá Guggu Káradóttur (10 mán.) Mánagötu 4, kr. 500.00. Áheit: Frá Stjána Bláa kr. 20.00.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.