Þjóðviljinn - 16.06.1944, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.06.1944, Blaðsíða 3
4 Föstudagur 16. júní 1944. ÞJðððVILJINN 17. júní Á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 1911, efndu íþrótta- menn til hátíðahalda í fyrsta sinn í tilefni af afmælisdegi forset- ans. Þá um le^ð var efnt til fyrsta almenna íþróttamótsins hér á landi þar sem mörg íþróttafélög stóðu að. Þetta er brautryðj- endastarfið í íþróttahreyfingunni. Fór vel á því að það væri tengt við starf brautryðjandans mikla og að íþróttæska landsins — framtíð þess — tæki að sér að heiðra minningu „mætasta sonar íslands“. Síðan 1911 hefur hver 17. júní verið hátíðisdagur íþrótta- manna. Þeir hafa viðhaldið minningunni um daginn svo að hann er orðinn hugstæður öllum landsmönnum. Þetta hlýtur að vera sérstakt gleðiefni öllum íþróttamönnum og það ætti að vera þeim styrkur og hvöt til dáða. Sá 17. júní sem upp rennur á morgun er þó sá dagur sem mestur er af þeim öllum, sá dagur, sem beðið hefur verið eftir í margar langar og dimmar aldir. Vonirnar rætast. Sagan endurtekur sig. „Þá riðu hetjur um héruð“,-sem valið höfðu Þingvöll fyrir sinn þingstað. Þar mætt- ust og ungir sveinar til leika og íþrótta. Það hélzt í hendur. Þá glímdu þeir Norðlendingar og Vestfirðingar, undan Fangbrekku. Á morgun verður enn haldið til Þingvalla. Á þennan helga stað hópast íslendingar til að vinna eið að því að varðveita frelsi sitt, og enn koma íþróttamennirnir fram til leiks og keppni. Enn er glímt undan Fangbrekku, ekki aðeins Norðlendingar og Vestfirðingar heldur hafa allir þar aðgang að. Syni Víga-Glúms, Má, þótti sigurinn mikils virði er hann segir við mann þann, er fellt hafði flesta: „Ef þú þarft míns formælis, skal ég þér að liði verða“. Þjóðhátíðarnefndin hefur ákveðið að verðlauna sigurvegarann sérstökum sigurlaunum, hann er afreksmaðurinn, sigurvegarinn, góðra launa verður. íþróttirnar hafa hlotið þjóðarviðurkenningu, þær eru skoðað- ar sem sterkur þáttur í uppeldi fólksins. Einn sterkur þáttur í því að gera fólkið að góðum íslendingum; fólki, sem hefur vilja og hefur mátt, bæði andlegan og líkamlegan, til að starfa í anda Jóns Sigurðssonar, og nú einmitt reynir á það. Við íþróttamenn verðum því að stíga á stokk og strengja Jjess heit á þessum degi, að byggja íþróttahreyfinguna það ör- ugglega upp, að þjóðin megi fyllilega vænta þess að okkar þátt- ur eflist og blómgist. Ennfremur að þjóðin megi treysta því að við í framtíðinni sýnum og sönnum að við erum vaxnir þeim vanda að halda uppi minningu „bezta sonar íslands11 á þjóðlegan hátt. Eg lít þannig á, að þeir íþróttamenn sem skundá á Þingvöll <og treysta heit sín við athöfn þessa dags, séu fulltrúar allra íþróttamanna og mundi Jórii Sigurðssyni ekki vera það kærkom- in afmælisgjöf að æska íslands nú, strengdi þess heit á þessum stað að feta í fótspor hans og vera í allri framtíð „sómi íslands sverð þess og skjöldur". Skúli Guðraundssofs f hístökkf Á síðasta afmælismóti K. R. setti Skúli Guðmundsson K. R. glæsilegt met í hástökki án at- rennu. Árangur var 1.51. Til gamans má geta þess að hefði Skúli keppt í meistaramóti Svía s. 1. vetur, hefði hann orð- ið nr. 3, svo að á því sést, að þetta er góður árangur. Eldra metið var 1.42, sett af Sveini Ingvarssyni. Á sama móti setti Halldór Sigurgeirsson drengja- met í langstökki, 6.42, sem er ágætt met. Fréttir frí I. S. f. Ársþing' Í.S.Í. verður haldið dagana 25., 26. og 27. júní í Odd- fellowhúsinu. Þingið verður sett sunnudaginn 25. júní kl. V-k e. h. og er öllum ævifélögum Í.S.Í. íþróttamönhum og íþróttavinum heimill aðgangur. — Fulltrúar eiga að mæta með kjörbréf. Knattspyrnuraolar í knattspyrnukappleik sem fram fór fyrir nokkru, vildi það til að markmaður kastar sér á bolta og leggst á hann. Mót- herji notar tækifærið og leggst við hlið markmanns og hyggst að stjaka honum með boltann inn fyrir marklínuna. Rétt strax flautar dómarinn og gefur aukaspyrnu á sóknarliðið. Að því er virtist voru flestir á- horféndur á sama máli. Hvað segja knattspyrnulögin. um þetta? Þau segja, að þetta sé leyfilegt, en verður auðvitað að framkvæmast löglega. Flest- ir áhorfenda munu álíta að þetta sé ekki löglegt og er það hreinn misskilningur. Hitt er aftur annað mál að þetta er ekki áferðarfagurt, en hinsveg- ar margfalt hættuminna stjak en á sér oft stað úti á velli. Mér er sagt að dómarinn hafi stöðvað leikinn til að forðast slys. í þetta sinn var ekkert það í aðgerðum mótherjans sem or- sakað gat slys en hinsvegar lögðust þrír samherjar mark- manns ofan á hann og gat það verið allalvarlegt. Á hvern á þá að dæma úti þegar svona stend- ur á? Eitthvað á þessa leið féllu orð eins áhorfandans eftir leikinn og svo spyr hann. Hefði ekki verið réttara að láta bolt- ann detta þarna inn í markið? • Eg hef leitað mér upplýsinga um þetta og borið þær saman við mínar skoðanir á þessu. Dómarinn hefur í vissum til- fellum leyfi til að stöðva leik, ef hann álítur að hætta stafi *af leik einhvers, og ef til vill hefur dómarinn byggt dóm sinn á þeim forsendum, en í um- ræddu tilfelli átti sér ekki stað nein sú árás er hætta stafaði af, aðeins liggjandi stjak. Mark- maður má nota hendurnar fram yfir aðra leikmenn og stendur því að öllu leyti betur að vígi. Það er því óeðlilegt að hann fái líka þau hlunnindi að mega leggjast á boltann og liggja þar óáreittur þar til öll hætta er liðin hjá og mótherjarnir farn- ir. Það virðist því eðlilegt að láta boltann falla þar sem stjakið átti sér stað. Hitt er aftur annað mál að þessi leikaðferð er ljót þó að hættulaus sé, og hér hefur hún ekki reynzt sigursæl og má það vera af því að dómarar hafa yfirleitt litið á þetta sem háska- leik og alltaf gefið aukaspyrnu á sóknarliðið. Erlendis eru þess dæmi að mörk hafi verið sett Heilsufræði íþróttamanna Um mataræði Við höfum áður talað um kaff ið, eftir er að minnast á tóbak og áfengi. Meðan á tamningu stendur mega menn alls ekki neita nokkurs áfengis af neinu tagi. Það er sagt að lítill skammtur af áfengi örvi mann og lífgi eftir mikla áreynslu, en von bráðar ber magnleysi að hönd um. Þetta magnleysi sem enda smáskammtar af áfengi hafa í för með sér, stafar af því að áfengið deyfir miðstöðvar tauga kerfisins og þegar af þeim á- stæðum er auðsætt að íþrótta- menn verða að varast það. Þar við bætist það, að áfengið dreg- ur líka þrótt úr hjartanu, taug- um þess og vöðvum. Þetta er mjög alvarlegt mál því hjartað er það líffæri sem bezt þarf að gæta þegar um tamningu og kappraunir er að væða. Það er venjulega auðvelt að fá menn til áð neita sér um á- fengi. Hitt er mikiu erfiðara að fá menn til að neyta sér um tóbak, og varðar það þó mjög miklu. — Þeir sem eru í tamn- ingu bíða tvennskonar baga af tóbakinu. Það skemmir kokið og nefið og hinsvegar er aðal- efnið í tóbakinu, „nikotin“ al- varlegt eitur. Allir þeir sem reykja, fá meiri eða minni kvef þrota í kokið, nefið og hálsinn. Þetta lýsir sér í því að slím- renslið eykst, menn þurfa oft- ar að hrækja og ræskja sig en eðlilegt er. Enn fremur sýkjast kirtlarnir í slímhúðunum svo þær vilja þorna ef menn anda títt, mæðast. Fá þeir þá þurr- an sviða í hálsinn og mega sín ekki eftir mætti. Þó að menn hætti tóbaksnautn þá hverfur ekki tóbakskvefið fvrr en semt | og síðar meir. Þess vegna verða i allir þeir sem ætla sér fyrir ■ alvöru að iðka íþróttir að neita j sér um tóbak að staðaldri. Það á þennan hátt og leikur unnizt á svona stjaki. Um daginn var spurt: Hvern- ig á knötturinn að falla til jarð- ar þegar hann „er gefinn upp“ sem kallað er? Sumir láta hann falla af útréttum armi en aðrir kasta honum niður af afli? Svar mitt var á þá leið að alls staðar þar sem ég hefði leikið, er knötturinn látinn falla af út- réttum armi og er það viður- kennd regla um allan heim. Þó er sú eina 'undantekning, sem staðfestir regluna, að einn dóm- ari hér 1 Reykjavík, kastar hon- um af afli í völlinn. nægir alls ekki að þeir fa.ri í tóbaksbindindi meðan þeir eru í tamningu. Það virðist svo sem reyktóbak, einkum vindlingar og píputóbak valdi einna mest- um baga, mestu tóbakskvefi, en í raun og veru á þetta heima um allt tóbak og þess vegna ber að banna það af hverju tagi sem er. Þó er að gæta þess að tó- bakið er allt annað en mein- laust fyrir hjartað, veldur oft hjartslætti eða þaðan af alvar- legri kvillum. í styrjöldinni (1914—’18) áttu hermenn oft kost á því að reykja gengdar- laust í skotgröfunum. Urðu menn þess varir að alvarlegir hjartasjúkdómar spruttu upp af þessari óhóflegu tóbaksnautn. Tóbak hefur líka ýmiskonar áhrif á taugakerfið. Þess verð- ur oft vart, einkum meðal ung- menna ef þeir nota mikið tó- bak verða þeir mjög þreytulegir, leiðir og letilegir. Það er því ekki að ástæðulausu að öll tóbaksnautn er bönnuð öllum þeir sem eru í tamningu, og það er illt til þess að vita, að oft má sjá ágæta íþróttamenn kveikja sér í vindli þegar að loknum kappleik. Það er óhætt að segja, að þeir sem fara svo ógætilega, dragast bráðlega aft- ur úr og eins hitt að geta þeirra myndi hafa orðið enn meiri ef þeir hefðu algerlega neitað sér um tóbak. Tóbak er talið nokkurs kon- ar þjóðarböl, þegar það barst fyrst hingað í álfuna. Simon Paulli, danskur rithöfundur segir í jurtabók sinni 1648, að hann vilji ekki gera þessa jurt að umtalsefni, „því að það er víst að það sem íllt er, það læra menn sjálfkrafa“, og síðan segir hann að tóbakið sé „réttnefnt illgresi Norðurálfunnar, því það hefur svo margt illt í för með sér“. Meðal íþróttamanna ætti tóbak enn í dag að ganga xmdir „heiðursnafninu" illgresi. Dómaranámskeiði Í.S.Í. í frjáls um íþróttum lauk 8. maí, en það hafði staðið í hálfan mánuð. Þátttakendur sýndu mikinn á- huga og fimmtán þeirra fengu dómaraskírteini, þar af átta sem leikstjórar og yfirdómarar, en sjö sem dómarar í einstökum íþróttagreinum. íþróttaráð Reykjavíkur gekkst fyrir nám- skeiðinu og leysti það verkefnið með prýði. Gert er ráð fyrir, að slík dómaranámskeið verði haldin árlega svo jafnan sé nóg af hæfum og vel þjálfuðum dómurum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.