Þjóðviljinn - 01.07.1944, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.07.1944, Blaðsíða 8
Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, sími 5030. Næturvörður er í Reykjavíkurapó teki. Næturakstur: B.S.B., sími 1720. Útvarpið í dag: 19.25 Hljómplötur: Samsöngur. 20.20 Útvarpshljómsveitin leikur nor ræn lög. 20.45 Leikrit: Þættir úr „Melkorku“ eftir Kristínu Sigfúsdóttur (Leikstjóri: Haraldur Björns- son). 21.35 Hljómplötur: Klassiskir mars- ar. 22.00 Danslög. Félagar! Vinna hefst við Rauðhólaskál- ann nú um helgina. Unnið verð- ur að standsetningu skálans og vegagerð. Þeir sem eiga verk- færi eru beðnir að taka þau með. Að loknu dagsverki verð- ur kvöldvaka og dans. Þess er fastlega vænst að þið mætið all- ir. Lagt verður af stað í dag kl. 3 e. h. frá Skólavörðustíg 19. STJÓRNIN. Vinnu- og skemmtiferð verður farin í dag, laugardag, austur í land Dagsbrúnar. Lagt verður af stað kl. 3 e. h. frá skrifstofu félagsins. Þátttakend- ur eru beðnir að hafa með sér nesti, viðleguútbúnað og tjöld, ef þeir eiga. Haður bfður bana af slysförum Síðastliðinn mánudag slasað- ist maður, nálægt Hvítárvöllum, í Borgarfirði. Var hann fluttur til Reykjavíkur í flugvél, lézt hann hér í Landsspítalanum á þriðjudaginn. Maður þessi hét Ragnar Teits- son og var frá Stíflu í Vestur- Landeyjum. Slysið vildi til með þeim hætti, að Ragnar var að flytja skurðgröfu á vagni með öðrum manni. Mun Ragnar hafa hras- að og orðið undir vagninum er skurðgrafan var á. Ragnar heit- inn var 35 ára gamall, kvæntur og átti eitt barn, hann átti aldr- aða fofeld&i á lífi. KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN lte!É8!fl,í» Sfldveiðsrnar að heffast En síldarveirlzsmidíur ríkisins faka ekki á mófi síld Syir en $. fúfí Síldarverkstniðjur ríkisins á Siglufirði, Raufarhöfn og Húsa- vík byrja að taka á móti síld til vinnslu 8. júlí n.k. Hefur ríkisstjómin samþykkt þá tillögu stjómar rjkisverk- smiðjanna að greiða á komandi síldarvertíð kr. 18.00 fyrir síldar- mál til bræðslu. Þeir sem það vilja, geta lagt síldina inn til vinnslu og fengið kr. 15.30 fyrir mál við afhendingu, en endan- legt uppgjör fari fram síðar. Allar síldarverksmiðjur ríkis- ins á Siglufirði, Raufarhöfn og Húsavík verða reknar í sumar. Sjóflugvél h.f. Loftleiða héf- ur verið ráðin til síldarleita í sumar. Nú er síldveiðin hafin. Sæ- finnur frá Norðfirði kom til Siglufjarðar í fyrrakvöld með 80 tunnur síldar, er hann hafði veitt út af Skagafirði. Var síldin mikil og sprengdi Sæfinnur nótina. Er síldin mis- feit. Reyndist meðal bolfita hennar 13,75%, en um svipað leyti í fyrra var bolfitan 13,25% að meðaltali. Óttast menn að síldin hverfi snemma, vegna þess hve hún er feit strax í byrjun veiðitímans. Er talið fullvíst að síldin sé mikil og eru veiðarnar undir- búnar af miklu kappi á Siglu- firði. Allsherjarverkfallið- Framh. af 1. síðu. arnir, sem innivistarákvæðin bitn- nðu illa á, hiifðu gert verkfall, og var rúgbrauð ófáanlegt í Kaup- mannahöfn í tvo daga. Það fór einnig að ganga illa með rafmagnið og vatnslaust varð. Þjóðverjum varð ljóst að taka varð óeirðirnar nýjum tökum. Grimmd hafði ekki tilætluð áhrif á Danina, og Werner Best, hefur alltaf verið þeirrar skoðunar, að rétta aðferðin við Dani væri sú að hóta einstaklingum en með- höndla þá með skjalli og inndregn- um klóm þar sem við fjölda væri að eiga. Werner Best vanmat and- lega hæfileika Dana, en þetta var í fyllsta samræmi við kenningar hans um stjórn „herraþjóðarinn- ar“ í Neu-Europa, sem hann ritaði lieila bók um áður en hann fékk tækifæri að framkvæma þær í Danmörku. Best barði í borðið frammi fyrir lögregluherliði sínu og ]>ýzku liðsforingjunum til að koma þeim í skilning um að ein- mitt þýzka „herraþjóðin“ væri nú svo illa stödd, að hún yrði að láta undan.) Áður en Þjóðverjum varð þetta ljóst, eða kannski éinmitt samtím- is því, að Best var í þann veginn að sannfæra landa sína í Dagmar- hus, fóru Hafnarbúar á miðviku- dagskvöld strax eftir klukkan átta út á götur og gatnamót og kveiktu bál á miðri akbrautinni. Það voru eindregin mótmæli gegn því að vera læstir inni í' húsum kl. 8 á sumarkvöldum (sem raunar er kl. 7, vegna sumartímans). Mörg hundruð bál loguðu í Kaupmanna- höfn, og í miðri borgiipú var hengd ur risastór enskur fáni yfir fjöl- farna götu. Þýzku varðflokkarnir höfðu sig á kreik, cn með fyrirskipunum um að forðast alvarlega árekstra við Hafnarbúa. Þjóðverjar gátu illa stillt sig að fylgja þeirri fyrirskip- un, og 25 Danir særðust meira eða minna áf kúlum Þjóðverja. En | enginn beið bana á miðvikudags- i kvöld. i Sá eini sem féll á miðvikudag- inn var nazistiskur Gestapoagent, maður að nafni II. Svanberg, 27 ára gamall. Hann kom hjólandi eftir Gammel Kongevej er annar hjólreiðamaður náði honum og skaut á hann úr skammbyssu. Svanberg datt og var látinn, áður en þýzki sjúkravagninn, sem til var kvaddur, kom honum til spítal ans. í vasa Svanbergs fundust skil- ríki er sönnuðu að hann var einn af þjónum þýzku leynilögreglunn- ar. — Aðrir þjónar Þjóðverja brenndu niður hina • stóru Bella- höjesýningarbyggingu nóttina eft- ir að Hafnarbúar höfðu fyrst mót- mælt með því að kveikja bál á göt- unum. Á Vafalaust að kenna það dönsku ættjarðarvinunum. Á tæpasta vaði Sýnd laugardag og sunnudag kl. 9. GEORGE RAFT BRENDA MARSHALL SIDNEY GREENSTREET PETER LORRE Bönnuð börnum innan 16 ára KRISTALSKÚLAN (The Crystal Ball). Bráðskemmtilegur gamanleik ur um spádóma og ástir. PAULETTE GODDARD, RAY MILLAND, VIRGINIA FIELD. Sýnd kl. 3, 5 og 7. Sala aðgöngumiða hefst kl. 11 Hrakfallabáfkar („It Ain ’t Hay“). Fjörug gamanmynd með skopleikurunum BUD ABBOTT og LOU COSTELLO. ÍSýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. AUGLYSIÐ í ÞJÓÐVILJANUM S. G. T. - dansíeikur verður í Listamannaskálanum í kvöld kl. 10. Sala aðgöngumiða kl. 5—7. Sími 2428. Danshljómsveit Bjarna Böðvarssonar spilar S.K.T. dansleíkur í G. T.-húsinu í kvöld kl. 10. Aðeins gömlu dansarnir. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4. Sími 3355. Það tilkynnist vinum og vandamönnum að faðir minn STEINGRÍMUR JÓHANNSSON. andaðist í gær, föstudaginn 30. júní. Fyrir hönd mína og annarra aðstandenda. Júlíus Steingrímson. Mfr sðsialWMir M nlisr fnrlr naslHani Rjúfa ssfflfylkiDfu viostri flokkanna gegn sankonalagi Rytis og Ribbentrops í Stokkhólmsfregn segir að Sósíaldemókrataflokkurinn í finnska Ríltisdeginum (þinginu) hafi eftir mjög mikla þvingun hætt við að láta þingmenn sína segja af sér í mótmælaskyní gegn síðustu finnsk-þýzku samningunum. Þetta þýðir að nazistaöflin hafa enn völdin, og að Þjóðverja- vinurinn Tanner ráðherra, sem er fulltrúi finnsku sósíaldemókrat- anna í ríkistjóminni, fer ekki frá eins og fyrr var talið, segir í fregninni. Auslirvígstöðvarnar Framh. af 1. síðu. blaðsins Times talaði í útvarp frá London um sóknina í Hvítarúss- landi, og lagði áherzlu á að þetta væri stórkostlegasta og mesta sókn sem Rússar hefðu framkvæmt í styrjöldinni, og segðu Þjóðverjár það einnig. Sérstaklega taldi her- fræðingurinn það dæmi um sókn- arhraðann að Þjóðverjum skyldi ekki takast að komast undan með her sinn, en missa mörg herfylki, bæði við Vítebsk og Bobrúisk vegna þess að Rússar lokuðu und- anhaldsleiðum þeirra. Hinir flokkarnir tveir sem eru andstæðir síðasta finnsk-þýzka samkomulaginu og vilja mynda friðarstjórn, Frjálslyndi flokk- urinn og sænski þjóðflokkurinn, halda fast við ákvörðun sína um að draga þingmenn sína til baka. (Fregn frá norska blaða- fulltrúanum). Alþýðublaðið birti í gær, sennilega eitt allra blaða heims- ins, þá fregn að; átrúýaðargoð þess, Tanner, væri á móti finnsk -þýzka samkomnulaginu! Eng- ar fréttastofnanir aðrar virðast hafa komizt að þeirri fregn, svo hér hlýtur að vera um hug- skeyti að ræða milli þeirra Tann ers og Stefáns.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.