Þjóðviljinn - 18.11.1944, Blaðsíða 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 18., nóvember 1944..
Fréííagreinar þær sem hér fara á eítir eru prent-
aðar upp úr Mjölni, blaði siglfirzkra sósíalista
Kaupfélag Sigifirðinga
færir út kvíarnar
Með aukinni síldarsöltun og
annarri framleiðslu hér í bæ,
þá mun fátt verða meira keppi-
kefli á næstu árum en síldar-
stöðvar og lóðir við sjó. Mikið
af þessum stöðvum er nú í eign
einstaklinga, og má oúast við,
að á þeim verði stórfelld verð-
hækkun.
Æskilegast væri vitanlega. að
bærinn ætti allt þetta land og
leigði síðan út þeim, sem rekur
framleiðsluna. Með því móti
vær? komið í veg fyrir brask
með þessar eignir, sem leitt
gæti til þess, að svo og svo stór
liður í framleiðslukostnaðinum
væru vextir af óhæfilega háu
kaupverði stöðvanna.
En nú er ekki því að heilsa,
að bærinn eigi stöðvarnar og
hafa því margir veiið að tala
um það, hvort ekki gæti verið j
heppilegt, að samtök almenn- j
ings, t. d. Kaupfélag Siglfirð-
inga keypti stöð. Af því hefur
þó ekki, ýmsra orsaka vegna.
orðið fyrr en nú.
Stöð þessi, sem keypt hefur
verið, er með allra beztu stöðv-
unum í bænum, enda hefur salt
að þar einn af allra stærstu salt
endunum, Ingvar heitinn Guð-
jónsson. Stöðin á mikið pláss að
sjó, og mun það sýna sig, að
verða notadrjúgt. Ýmsir hafa
verið að kasta því á milli sín,
að stöðin væri keypt of dýrt
Um það skal ekki rætt hér að
sinni, en þó fullyrt, að þegar
alls er gætt, þá mega kaupin
miklu fremur teljast góð heldur
en að þetta hafi verið nokkrir
neyðarkostir. Ættu menn að at-
huga hvert er fasteignamat
stöðvarinnar, og hvað hún hef-
ur verið talin mikils virði á
undanfömum árum. Annars er
það beinlínis hlægilegt, að vera
að fjargviðrast út af tíu, fimmt-
án eða tuttugu þúsundum, þegar
um er að ræða hlut, sem kostar
milli 300 og 400 þúsund krónur,
ef menn á annað borð eru þeirr-
ar skoðunar, að félagið hefði
átt að kaupa síldarstöð.
Allir góðir kaupfélagsmenn
munu fagna því, að "félagið hef-
ur keypt þessa stöð, og þar með
skapað sér ofurlitla fótfestu í
atvinnulífi kaupstaðarins.
Um rekstrarfyrirkomulag
stöðvarinnar hefur ekki ennþá
verið ákveðið.
Þótt nú sé úr sögunni að
mestu sú áhætta, sem hér áður
lyrr var samfara síldarsöltun, .
virðist þó varla rétt, að kaup-
félagið reki síldarsöltun á stöð-
inni fyrir eigin reikning. Skell-
ur af slíku, sem ekki er útilok-
aður, gæti lamað félagið svo að
örlagaríkt yrði fyrir það. Hins-
vegar væri heldur ekki heppi-
legt, að félagið leigði einhverj-
um stöðina, og ætti enga hlut-
deild í rekstri hennar. Hag-
kvæmast virðist vera, að félag-
ið ætti hlut í rekstrinum, en þó
væri svo um búið, að á því
gæti ekki lent neitt tilfinnan-
legt tap. Yrði þessu fullnægt
t. d- með því að stofnað yrði
hlutafélag, sem félagið væri
stór hluthafi í.
En þetta eru mál, sem betur
þurfa að ræðast af kaupfélags-
mönnum og athugast frá öllum
hliðum.
Þá hefur kaupfélagið keypt
tvær vefnaðarvöruverzlanir,
verzlunina Önnu og Gunnu og
Verzl. Geislann. Um þessi kaup
þarf ekki að fara mörgum orð-
um. Kaupfélagsmenn munu all-
ir fagna því, að félagið dragi til
sín sem mest af verzluninni í
bænum.. Með þessum kaupum
hefur félagið fest sér gott verzl
unarhúsnæði til stækkunar á
vefnaðarvörubúð sinni, þar sem
félagið fær búð þá, sem Verzl.
Geislinn hefur verið í. Er þar
með fengin góð lausn til bráða-
birgða á þessu vandamáli, sem
mörgum kaupfélagsmanni hefur
legið á hjarta. Um verð og gæði
vörubirgðanna, sem keyptar
hafa verið, skal ekki rætt hér.
Verða félagsmenn að treysta
þar framkvæmdastjóranum til
eins og til ^nnarra vöru inn-
kaupa.
Þessar aðgerðir kaupfélags-
stjómarinnar munu gleðja alla
góða félagsmenn og senda þeir
íélaginu árnaðaróskir í sam-
bandi við þær.
Siglfi'zkir verkercenn fýsa
yfir stuðringi við
RíMsstjórnina
Á fundi sem Verkamannafé-
lagið Þróttur Siglufirði hélt
mánudaginn 6. nóvember s 1.
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt með öllum atkvæðum
furidarmanna.
„Fundur haldinn í Verka-
mannafélaginu Þrótti 6. nóv.
lýsir yfir því, að hann er í
öllum aðalatriðum samþykk-
ur stefnuskráryfirlýsingu
hinnar nýju ríkisstjórnar, og
heitir henni fullum stuðningi
í því að framkvæma málefna-
samning stjórnarflokkanna,
sem fundurinn telur, ef fram-
kvæmdur verður, til stórkost-
legra hagsbóta fyrir allan
verkalýð landsins og þjóð-
ina sem heild“.
Ennfremur var samþykkt á
fundinum svohljóðandi tillaga:
„Fundur í Verkamannafé-
laginu Þrótti beinir þeirri á-
kvörðun til ríkisstjórnarinnar
og vegamálastjóra, að þessir
aðilar láti vinna við að
sprengja niður Siglufjarðar-
skarð í vetur, svo hægt verði *
að byrja á sjálfri vegalagn-
Hefja verðnr nú þegaif á næsfa árí aUsherjar
herfeirð tíl ótrýmfingar jmfásjúhdósmtimm
' m
ViOtal við Sigurð Sveinsson garOyrkjoráðnnaut bæjarins
./
í sumar sem leið voru gerðar margskonar endurbætur og lag-
færingar á skemmtigörðum og leikvöllum bæjarins, og skýrðu
blöðin frá þeim framkvæmdum á sínum tíma. M. a. var þá hafin
vinna við að gróðursetja skjólbelti umhverfis Hljómskálagarð-
inn, en næðingurinn þar hefur staðið garðinum mjög fyrir þrif-
um.
Ennfremur voru tveir nýir barnaleikvellir teknir í notkun
og tveir eldri endurbættir.
Það er garðyrkjuráðunautur bæjarins, Sigurður Sveinsson,
sem sér um þessar framkvæmdir. Hann er ungur maður, áhuga-
samur og ötull í starfi sínu. Þjóðviljinn hitti hann fyrir nokkru
að máli og spurði hann hverjar nýjar framkvæmdir hann liefði
í hyggju, og fer frásögn hans hér á eftir:
VERÐUR GRÓÐRARSTÖÐIN
VIÐ LAUFÁSVEG GERÐ
AÐ SKEMMTIGARÐI?
Talið berst fyrst að starfi Sig-
urðar almennt og framkvæmdum
þeim er gerðar voru s.l. sumar,
en síðan spyr ég hann: — Ilverj-
ar nýjar framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar?
— Bærinn mun hafa í hyggju að
yfirtaka þann liluta Gróðrarstöðv-
arinnar sem er lians eign, en hef-
ur undanfarandi verið í leigu frú
Kristínar Guðmundsdóttur ekkju
Einars Helgasonar garðyrkjuráðu-
nauts.
Land það, sem bærinn á þarna,
er hornið milli Laufásvegar og
Hringbrautar að íbúðarhúsi Gróðr-
arstöðvarinnar.
— Á þá frú Kristín ekkert land
þarna?
— Jú, það sem íbúðarhúsið
stcndur á og garðinn er snýr að
Liljugötu, ásamt gróðurhúsunum.
— Ilvað verður gert við þann
hluta sem bærinn á þarna?
— Það er ekki enn ákveðið. Ég
mun leggja til að þarna verði
skipulagður nýr skemmtigarður.
Brekkan er að mörgu leyti vel til
þess fallin, því þar cr fremur skýlt
og eru þarna nokkur fallcg tré.
Eftir fráfall Einars Helgasonar
hcfur garðinum hrakað. Sjúkdóm-
j ur hefur komizt í trén, sem er
| erfiður viðureignar, ef ekki er tek-
ið fyrir hann í tíma. Hef ég látið
hreinsa skemmdir úr trjánum eft-
ir því sem auðið hefur verið.
Einar Helgason var merkur
brautryðjandi á sviði garðyrkj-
unnar og vann mikið og gott starf
fyrir garðyrkjuna á landinu.
Væri ekki minningu hans vel
haldið á lofti einmitt með því að
þarna væri skipulagður fallegur
skemmtigarður?
NÝTT LEIKVALLA-
SKIFULAG.
— Nú er búið að ræsa fram leik-
vallarsvæðið við Héðinshöfða,
heldur Sigurður áfram.
ingunni eins snernma í vor og
veðurfar leyfir“.
Á fundinum var einnig kosin
uppstillingarnefnd og voru þess-
ir kosnir:
Jón Jóhannsson.
Páll Ásgrímsson.
Sæmundur Guðmundsson.
Skipulag þessa vallar hef ég ætl-
að með öðru sniði en áður hefur
tiðkazt, að því leyti að grasflctir,
blórna- og trjáreitir verða utan urn
aðalleiksvæðið á alla vegu. Völlur-
inn verður við það hlýlegri og
skemmtilegri.
PLÖNTUPPELDI FYRIR
SKRÚÐGAllÐA BÆJARINS.
Efst í Bjarkarlundi hafa verið
settir niður til bráðabirgða nokkr-
ir vermireitir. Hafa verið keyptir
um 60 vermireitagluggar. í þess-
um vermireitum eru blómaplönt-
ur, sem ætlaðar eru í skemmti-
garða bæjarins næsta vor.
Þó að hér sé um að ræða plöntu-
uppeldi í smáum stíl, á móts við
það sem þarf til þess að fullnægja
hinni sívaxandi þörf fyrir plöntur
til gróðursetningar í bæjargarðana
á vorin, þá er þetta fyrsta sporið
að því marki að bærinn ali upp
sjálfur þær plöntua. sem hann þarf.
Þá er nú langt komið með að
þekja kantinn á Sóleyjargötunni,
en það var mikið umrót sem skap-
aðist viðs breikkun götunnar á
þeim hluta Illjómskálagarðsins
sem að götunni sneri.
— Bærinn hefur lagt mikið fé
í garðyrkjuframkvæmdir?
— Já, vissulcga og verður von-
andi ekki slakað á þeim fram-
kvæmdum.
FIMM NÝIR
B ARN ALEIK VELLIR.
— Ilvað er að frétta af hinum
fyrirhuguðu barnaleikvöllum?
— Bæjarráð hefur samþykkt að
•byggja barnaleikvelli á eftirtöld-
um stöðum: Hjá Selbúðum, við
Sóleyjargötu og Hringbraut, á
Vitatorgi, við Barónsstíg milli
Njálsgötu og Bergþótugötu og hjá
verkamannabústöðunum inni í
Rauðarárholti.
NAUÐSYN AÐ IIEFJA
A i4.SH EIU ARHERFERÐ
TIL ÚTRÝMINGAR
JURTASJÚKDÓMUNUM.
— Eru ekki allmjög áberandi
jurtasjúkdómar í görðum í bæn-
um?
— Jú. Ég tel brýna nauðsyn að
hajin verði þegar á nœsta ári alls-
herjar herjerð til útrýmingar
jurtasjúkdómunum.
Undanfarandi ár hefur borið
töluvert á jurtasjúkdómum í görð-
Sigurð'uT Sveinsson.
*
um bæjarbúa og vfrðist útbreiðslai
þessara sjúkdóma hafa fárið frem-
ur vaxandi ár frá ári þrátt fyrir-
ýtarlegar Ieiðbeinlngar um það,.
hvernig þessir sjúkdómar liaga sér-
og hvernig bezt og auðveldást er~
að útrýma þeim.
Einkum eru það sveppasjúk-
dómar í trjám, sem erw orðnir all<~
alvarleg plága.
Mikill hluti allra reynitrjáa err
meir og minna sýktur. Ber mest ái
þessu í elztu hverfum bæjarins, em
breiðist út meir og meir ár ftá ári-
Þar eð almenningur gerir sér
ekki Ijóst hvaða hætta er hér á:
ferð er brýn nauðsyn að ganga: tili
róttækari aðgerða í þessu efni. era
áður hafa verið framkvæmdkn;.
ÁIIUGI FYRIR RÆKTUN
OG FEGRUN BÆJARINS
FER VAXANDI.
— Kennir þú ekki garðyrkjur
við námsflokka Reykjavíkur?
— Jú, kennsla byrjaði þar 1.
okt. s.l. Kenni ég þar ræktun
blóma og nytjajurta í gróðurhús-
; um og vcrmireitum. Mun ég Ieggja
I aðaláherzluna á ræktun nytjajurt-
{
anna.
Kennsla þessi er aðallega miðuð1
við það, að sem víðast hér í bæ
geti í framtíðinni risið upp smá-
gróðurhús, upphituð með hvera-
vatni, til ánægju og hagsbóta fyr-
ir bæjarbúa.
Byrjað var með 12 í þessum
flokki, en 7 hafa innritað sig til
viðbótar síðan kennsla hófst, og
sýnir það vaxandi áhuga fyrir þess-
ari grein garðyrkjunnar. Galli við
þessa kennslu er það, að ekki er
hægt — a. m. k. ekki á þessura
vetri — að hafa verklega kennslut
samfara bóknáminu.
— Ilefur þú ekki með höndumt
leiðbeiningarstarf í gróðurhúsum
og skrúðgörðum einstaklinga?
— Jú. Það er umfangsmikið og:
erilsamt starf, sérstaklega á vorin
og fram eftir sumri, og útlit er fyr-
I ir að starf þetta verði æ umfangs-
J meira, og sýnir það vaxandi áhuga
fyrir að prýða bæinn.
Við viljum allir að Reykjavík
vcrði fögur borg og þótta tekst
vissulega þegar það er sameiginlegt
áhugamál okkar allra, segir Sig-
urður — og viðtalinu er lokið.
J. B.