Þjóðviljinn - 18.11.1944, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.11.1944, Blaðsíða 7
7 =i Laugardagur 18. nóvember 1944. PJOUVILJINN IACK LONDON: Skipsdrengurinn á Blossa Jóa var forvitni á að vita, hvað nú mundi gerast.' Þetta voru vafalaust ostrumiðin, en hvernig í ósköpun- um átti að fara að því, að veiða nokkuð í þessum sjó- gangi? Hann fékk brátt svar við því. Franski Pési lyfti hlemmi í stýrisrúminu og tók þaðan tvær þríhyrndar járngrindur. í hornið á annarri þessari grind festi hann digran kaðal í þar til gerðan hring. Armar járngrind- anna voru fjögra til fimm feta langir og gengu í rétt horn niður á sköfubotninn, sem festur var í þriðja arm þríhyrnunnar. Sköfubotninn var flöt stálþynna, rúman metra á lengd og voru á henni hvassar tannaraðir, einn- ig úr stáli. Poki úr grófu netjagarni var festur við þrí- hyrnuna og Jói sá að í hann mundu ostrurnar eiga að fara, sem var rakað frá botni með stgltindunum. Báðar skcfurnar voru festar við langan kaðal og þeim varpað útbyrðis, sinni hvoru megin við Blossa. Þegar þær námu við botn og drógust eftir honum með hæfilega langri taug, hleyptu þeir skriði á skútuna. Jói tók um annan kaðalinn og fann glöggt hvernig sköfurn- ar sörguðu botninn. Draga upp! hrcpaði Franski Pési. Drengirnir gripu í kaðalinn og drógu upp sköfuna. Netið var fullt af þara og slími, smáum ostruskeljum og nokkrum stórum innan um. Þessum hrærigraut fleygðu þeir á þilfarið og leituðu í honum, meðan skaf- an rann aftur til botns. Stóru skeljunum fleygðu þeir í stýrisrúmið, en mokuðu hinu útbyrðis. Þeir höfðu eng- an tíma afgangs, því að nú þurfti að vitja um hina sköf- una. Þegar búið var að því, og að aðskilja ostrurnar, varð að draga upp feáðar sköfurnar, svo Franski Pési gæti snúið Blossa við. Allar hinar sk'úturnar fóru að eins og þeir. Stundum komu þær fast að þeim, og var þá skipzt á nokkrum orð- um eða hlegið liranalega. En þetta var erfitt verk, og eftir klukkutíma strit verkjaði Jóa sáran í hrygginn, og það blæddi úr fingrunum, vegna óhöndugleika Jians við hvassar skeljaraðirnar. Þetta gott, sagði Franski Pési, þú læra fljótt. Bráð- um þú kunna. Jói brosti aumlega og óskaði þess, að kominn væri miðdegisverðartími. Stöku sinnum, þegar lítið kom í vörpuna, fengu drengirnir tíma til að kasta mæðinni og skiptast á fáum orðum. Þetta er eyjan Asparagus, sagði Friskó Kiddi og benti. Að minnsta kosti kalla sjómennirnir hana það. Eyjaskeggjar kalla hana Bay-Farm-eyju. Hann benti til hægri: Og þarna er San-Leandro. Þú sérð hana ekki, en hún er þar. Hefurðu nokkurn tíma komið þangað? Friskó Kiddi kinkaði kolli og gaf honum merki um að varpa stjórnborðskörfunni útbyrðis. Þetta eru kölluð eyðimiðin, mælti hann síðan, eng- inn ræður yfir þeim, og því koma ostruræningjarnir hingað og látast veiða á þeim. Af hverju látast? Af því að þeir eru ræningjar, og af því að það borg- ar sig betur að skafa á einkamiðunum. Hann baðaði út höndunum í austur og suðaustur. Þarna eru einkamiðin, og ef ekki hvessir, munu allar skúturnar halda þangað og veiða ostrur þar. En ef hvessir? spurði Jói. Ja, þá verður ekkert af því og Franski Pési verður trylltur af illsku. Hann verður alltaf óður, ef veður hindrar hann. En það lítur ekki út fyrir að það ætli að lægja og þetta er versti legustaður, sem hægt er að ANTON P. TSEKKOFF; GRESJAN úska hóstaði og spýtti, og þeg- ar hann opnaði augun sá hann glottandi andlitið á Dímoff. Hinn ósvífni náungi náði varla andanum og eftir augnaráði hans að dæma, var hann til í allt. Hann hélt um fótinn á Jegorúska og lyfti hendinni til að grípa um hálsinn á honum, en Jegorúska reif sig af hon- um, hræddur og fullur við- bjóði og hélt, að hann ætlaði að drekkja honum. Hann grenj- aði: Slepptu, asninn þinn, ég skal berja þig. Svo bættj hann við, af því að honum fannst hann ekki hafa látið nógu vel í ljós hatur sitt: Óþokkinn þinn, tíkarsonur! En Dímoff synti burt til Kírúa og lét sem hann heyrði ekki. Við skulum veiða fisk, kallaði hann hlæjandi. Já, það skulum við gera, það er nóg af honum hér, sagði Kír- úa. Stjopka. hlauptu inn í þorp- ið og fáðu lánað net. Eg fæ það ekki lánað. Jú, ef þú biður vel um það, segðu þeim að við séum eins konar pílagrímar. Stjopka fór upp úr ánni og klæddi sig í snatri, svo hljóp hann af stað berhöfðaður og buxurnar flöxuðust um fætur hans. Eftir árþksturinn við Dímoff fannst Jegorúska ekk- ert gaman að vera í vatninu, hann fór í land og klæddi sig. Pantelí og Vassja sátu á ár- bakkanum og horfðu á þá, sem voru að baða sig. Emeljan stóð nakinn upp í hné í vatninu og hélt sér með annarri hendinni í grasið til þess að detta ekki, en strauk sér um kroppinn með hinni. Hann var skringilegur á- sýndum með herðablöðin út í loftið og kýlið undir auganu, og hann var mjög alvarlegur á svipinn. Hann leit reiðilega á vatnið, eins og hann væri að ásaka það fyrir, að hann hafði ofkælzt í Donetsánni og tapað röddinni. Af hverju ferðu ekki út í? spurði Jegorúska Vassja. Mig langar ekki til þess. Af hverju er kinnin á þér bólgin? Það kom til af slæmu. Eg vann í eldspýtnaverksmiðju, og læknirinn sagði, að það mundu rotna á mér kjálkarnir. Það er óhollt að vinna þar. Það voru þrír náungar fyrir utan mig, sem kinnarnar bólgnuðu á, og einn þeirra rotnaði alveg lif- andi. Stjopka kom aftur með net. Dímoff og Kírúa voru orðnir bláir af kulda og hásir, en þeir íóru að reyna að veiða fisk í netið. Fyrst fóru þeir þangað er djúpt var, vatnið náði Dímoff upp í háls, en upp fyrir höfuð á Kírúa, sem hvapsti og spýtti, en Dímoff flækti sig í sefrót- unum, datt og vöðlaðist inn í netið, þeir brutust um í vatn- inu og gerðu hávaða, en ekkert varð úr veiðinní. Hér er of djúpt, við veiðum ekkert, hrópaði Kírúa. Vertu ekki að neinu kjaftæði, fjandinn þinn, öskraði Dímoff og reyndi að greiða úr netinu. Þið veiðið ekkert hér, sagði Pantelí, þið fælið bara fiskinn, aularnir ykkar, farið þangað sem grynnra er. Einu sinni blikaði á stóran fisk yfir netinu, þeir stóðu alf- ir á öndinni, en þegar fiskur- inn var horfinn, lamdi Dímoff vatnið með hnefanum og varð illilegur á svip. Svei, sagði Pantelí og stapp- aði niður fætinum, þú hefur látið hann sleppa. Hann er far- inn. Dímoff og Kírúa fluttu sig þangað sem grynnra var og fóru að reyna þar. Þeir höfðu fjarlægzt vagnana um nokkur hundruð fet og drógu netið þegjandi um vatnið sem næst sefinu, svo fluttu þeir sig yfir að hinum bakkanum og tóku hátt upp fæturna þegar þeir óðu, en þar var ekkert að hafa heldur og þeir komu aftur. Þeir voru. að tala eitthvað saman. Sólixt brenndi þá á bakinu og þeir voru orðnir rauðir á skrokkinn. Stjopka gekk á eftir þeim með fötu í hendinni, hann hafði brett skyrtunni upp und- ir hendur og beit í hana. Þeg- ar þeim tókst að handsama fisk, hélt hann honum á lofti og hrópaði: Líttu á þennan! Við erum búnir að fá fimm svona. í hvert skipti sem þeir drógu saman netið, grufluðu þeir í því og létu eitthvað í fötuna, sumu fleygðu þeir burtu, stund um fengu þeir eitthvað sem þeir skoðuðu í félagi og köstuðu síðan í ána aftur. Hvað var þetta? kölhiðu mennirnir á árbakkanum. Stjopka svaraði einhverju, sem ekki skildist. Svo klifraði hann upp á bakkann með föt- una í hendinni og hljóp yfir að vögnunum með skyrtuna uppi undir höndum. Hún er full! kallaði hann, við þurfum að fá aðra. Jegorúska horfði ofan í föt- una, hún var full af margs kcn ar fiski, þar á meðal var ein gedda. Vassja horfði líka í skjóluna. Vot augun urðu full af einkennilegum áhuga, hann tók eitthvað upp úr fötunni og stakk því upp í sig. Félagar, hrópaði Stjopka undr andl, Vassja er að éta karpa- seyði. Það er ekki karpaseyði, held- ur minningur, sagði Vassja og tuggði. Hann tók sporðinn út úr sér, leit á hann og stakk honum upp í sig að nýju. Meðan hann var að éta hráan fiskinn, fannst Jegor hann vera einhver skepna en ekki maður, og hann hrædd- ist hann- Þeir voru nú hættir að fiska og Jegorúska labbaði aftur til vagnanna, en honum leiddist og hann hélt inn í þorp- ið. Litlu síðar var hann kommn inn í kirkju, stóð þar og hvíldi höfuðið upp við bak einhvers manns og hlustaði á sör.ginn. Honum þótti ekkert gaman að sálmasöng, hann hlustaði dá- litla stund og fór svo að geispa og glápti á bökin og höfuðin fyrir framan sig. Eitt höfuðið þekkti hann, það var rautt og ÞETT4 Málverkafölsun er list sem lengi hefur staðið í miklum blóma, en hún hefur aftur skap að sérstaka fræðigrein, sem sé þá, að geta dæmt um, hvort málverk er gamalt eða nýtt. Falsararnir hafa nefnilega margs konar aðferðir, til þess að gera eftirlíkingar sínar þann ig úr garði, að þær virðist mörg hundruð ára gamlar. Og það er list út af fyrir sig. Ofast nota þeir til þess ýmisar efnablönd- ur og sýrur, að gera tréð eða léreftið ellilegt- Einn notaði þá aðferð með ágætum árangri, að falsa myndir effir Tizian og hengja þær upp í reykháf, þar til komin voru á þær hin réttu ellimörk. Oftast hafa málarar gert þetta að beiðni málverka- kaupmanna fyrir fátæktar sak- ir og lítið grætt á því sjálfir. Oft hefur líka verið líkt eft- ir fornum húsgögnum, þau eru þá lögð í til þess gerðar sýrur og stundum skotið á þau úr haglabyssu til þess að viðurinn virtist maðksmoginn! Þannig var listasafni í Berlín einu sinni seldur skápur fyrir 60.000 mörk. Átti hann að vera úr Vetrarhöllinni í Pétursborg og eftir frægan listamann, en reyndist við nákvæma athugun spánnýr.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.