Þjóðviljinn - 18.11.1944, Side 8
,Ur* bopgitxnl
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólaanum, sími
5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Ljósatími ökutækja er frá kl. 3.55
e h. til kl. 8.25 f. h.
Næturakstur: Hreyfill, sími 1633.
Útvarpið í dasr:
20.20 Útvarpstríóið: Einleikur og
tríó.
20.40 Einsöngur: íslenzk og skozk
lög (frú Davína Sigurðsson).
21.00 Upplestur: Lárus Pálsson leik-
ari les.
21.25 Hljómplötur: Karlakórinn „Vís
ir“ syngur (Þormóður Eyjólfs-
son stjórnar).
21.50 Gömul danslög (plötur).
22.00 Fréttir.
TIL KAUPENDA ÞJÓÐVILJANS!
Þeir kaupenáur hlaðsins, sem vilja
styrkja það með því að borga októ-
bermánuð, eru beðnir að koma á
afgreiðsluna, Skólavörðustíg 19, eða
Láta hana vita. Blaðinu væri að
þessu hinn mesti styrkur, en hvern
einstakan kaupenáa munar það ekki
mikhi.
Skíðafélag Rsyíijavíkur ráðgerir
að fara skíðaför upp á Hellisheiði
næstkomandi sunnudag. Lagt á stað
kl. 9 árdegis. Farmiðar seldir hjá
L. H. Miiller, til félagsmanna kl. 4
í dag, en kl. 4 til 6 til utanfélags-
manna, ef afgangs er.
Lýðveldisiagnaðtir
Breiðíirðingafé-
lagsins
Breiðfir'&intjafélagið ejndi til
lýðveldisfagnaðar í Sýningarskála
myndlistarmanna hann 5. okt. s.
I.
Formaður félagsins. Jón Emil
Guðjónsson. setli samkomuna og
stjórnaði henni.
í byrjun fagnaðarins var vígð-
ur félagsfáni fvrir Breiðfirðinga-
félagið. Þykir fáninn mjög falleg-
ur; gerð Hans er ]>rír fljúgandi
svanir í bláum feldi. Þau Ingveld-
ur Á. Sigmundsdóttir frú og Magn
ús Þorláksson, símamaður, fluttu
fánanum frunis'r.min kvæði. Á und
an fánavígslunni var einnig sung-
ið nýtt kvæði. lileinkað Breið-
firðingafélaginu, e[túr' Jón frá
Ljárskógum.
Kristján Gil' imuson ritstjóri
mælti fyrir minni lýðveldisins.
Frú Jónína Guðmundsdóttir flutti
ræðu, er hún nefndi: Konan og
lýðveldið.
Jóhannes skáld úr Kötlum las
upp Islendingaljcð, verðlauna-
kvæði sitt frá Jýðveldishátíðinni.
Breiðfirðingakórinn söng einnig
sama kvæði með nýju lagi eftir
Gunnar Sigurgeirsson, söngstjóra
kórsins. Haraidur Kristjánsson
kaupmaður söng einsöng.
Þá fluttu eftirtaldir menn stutt
ávörp: Oskar Bjartmarz, forstjóri,
Sig. Hólmsteinn Jónsson, ritari
Breiðlfirðingafélagsins, Guðmund-
ur Gíslason, skóiastióri, Gísli Jóns-
son, alþingism. og séra Árelíus
Níelsson.
Forseta Islands, herra Sveini
Björnssyni. var .sc'iit heillaóska-
skeyti frá fagnaðinum.
Að síðustu var svo stiginn dans.
Samkoma þessi var vel sótt og
þótti takast ágætlega.
þiÓÐVIUIN
Mynd þessi, „drengwr“ er á samsýningu þeirra Gunnfríðar Jónsdótt-
ur og Grétu Bjömsson. Er þetta fyrsta mynd Gunnfríðar Jónsdóttur. —
Sýning þessi hefur vakið töluverða athygli og umtal og þykir niörg-
um uppstilling sýningarinnar smekkleg og margar myndanna góðar.
í gœrkvöld liöfðu ta’p tvö þiisund manna sótt sýninguna. Hún verður
opin til mánudagskvölds.
Híiikrunavkvennafélagíð
Framhald af 1. síðu.
'hugamál hjúkrunarkvenna að kom
ið verði upp góðum fiíllkomnum
h júkrunarkvennaskóla.
Kjör hjúkrunarkvenna hafa á
undanförnum árum verið á marg-
an hátt hrakleg, en verði launa-
lagafrumvarpið nýja samþykkt ó-
breytt verðiir bætt úr því, hvað
kaiupið snertir, en auk þess þarf
að bæta aðbúnað þeirra. T. d. eru
nú hjúkrunarkonur spítalanna oft
látnar vera margar saman í einu
herbergi, en starf hjúkrunarkvenn-
anna er mjög erfitt og þrevtandi
og til þess að geta leyst það vel
af hendi þurfa þær að njóta hvild-
arstundanna í ró og næði í góð-
um húsakynnum.
í samningi sem gerður var í jún'í
1942 var ákveðið að vinnutími
ihjúkrunarkvenna skyldi vera 8
stundir á dag, en það hefur hvergi
verið framkvœmt vegna þess að
nœgilega nvargar hjiíkrunarkonur
eru ekki til, og ein afleiðingin af
hjúkrunarkvennaeklunni er því sú,
að þœr verða að vinna langt frarn
yfir eðlilegan og hœfilegan starfs-
tíma.
Á þessu þarf að verða breyting
og hún verður því aðeins, að stofn
aður verði fullkominn hjúkrunar-
kvennaskóli og að kaup og kjqj-
hjúkrunjirkvenna og hjúkrunar-
nemanna verði verulega bætt.
Aðallrvatamaður að stofnun Fé-
lags íslenzkra hjúkrunarkvenna
var Christophine Bjarnhéðins,
hún var dönsk að ætt og réðist
að LaugarneSspitala og giftist síð-
ar yfirlækni spítalans, Sæmundi
Bjarnhéðinssyni.
Fyrsta lærða íslenzka hjúkrun-
ark. var Þóra J. Einarsson er réð-
ist að Kleppi 1907. Hún hafði
lært í Edinborg.
Islenzkar hjúkrúnarkonur voru
fáar fyrstu árin og þótt Vífilsstaða-
hælið væri stofnað 1910 var það
ekki fyrr en 1922 að fyrst var
ráðin þar ísl. yfirhjúkrunarkona,
IMagdalena Guðjónsdóttir. Það
var fyrst á árunum 1914—1922
að skriður komst á nám íslenzkra
hjúkrunarkvenna, en á þeim ár-
ium stunduðu nokkrar stúlkur
nám erlendis og hófu síðan braut-
ryðjendastarf er þær komu heim.
Með starfrækslu Landspitalans
1930 var Hjúkrunarkvennaskóli
íslands settur á stofn og tók til
starfa 1932, en skorti þó enn við-
unandi húsakynni. — Námstím-
inn er 3 ár.
F. í. H. gerðist aðili í samvinnu
(hjúkrunarkvenna á Norðurlönd-
um og fvrir milligöngu þeirra sam-
taka hafa íslenzkar hjúkrunarkon-
ur, að námi loknu, átt kost á dvöl
við sjúkrahús á Norðurlöndum
og getað kynnst þar nýjungum í
starfi sínu\ Félagið hefur ennfrem-
ur sent fulltrúa á mót hjúkrun-
arkvenna á Norðurlöndum. Félag
ísl. hjúknunarkvenna gekk í Al-
þjóðasamband hjúkrunarkvenna
árið 1933 og hefur sent fulltnia á
mót sambandsins.
Árið 1943 gerðist félagið aðili
í Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja og fyrir atbeina sambands-
ins var hjúkrunarkvennastéttin
tekin inn í launataxta ríkisins.
í félaginu eru nú 206 félags-
konur og 33 aukafélagskonur.
Fyrsta stjórn félagsins var skipuð
þessum konum: Formaður Harriet
NÝJA BÍG
lÆvintýriíleikhúsinu
(„Lady of Burlesque")
Sérkennileg og spennandi
Itnynd- Aðalhlutverk:
Ibarbara STANWYCK og
MICHAEL O’SHEA.
Börn fá ekki aðgang.
Sýning kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala aðgöngum. hefst kl. 11.
| Kaupum tuskur
i allár tegundir hæsta verði.
I
HÚSGAGNA-
VINNU STOFAN
Baldursgötu 30.
Sími 2292.
TJARNARðlÓ
Síóhetjur
(Heros of the Sea).
Rússneskur sjónleikur um
jjSvartahafsflotann í orustu.
S. D. STOLYAROV,
A. M. MAKSIMOVA,
A. A. ARKADEV.
Sýning kl. 7 og 9-
FIESTA.
Skrautleg söngva- og dans-
Imynd frá Mexikó í eðlilegum
ilitum.
Sýning kl. 3 og 5.
|3ala aðg.miða hefst kl. 11.
KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN
lireisslinlsal losið-lsnimyr
PemngasSínunlnni hætt En tekiö verður á móii fainaði
Guðlaugur Rósinkranz skýrði blaðamönnum í gœr frá Noregs-
söfnuninni, en henni er *nú lokið og nemur pcningasöfnunin kr. 8ý2 þús.
466,80 og verður féð geyrnt hér þar til leiðir opnast til Noregs, en fest
liafa verið kaup á 100 smálestum af mcðalalýsi.
Auk þess hefur safnazt mikið af allskonar ullarfatnaði sem nemur
a, m, k. 40 þúsundum króna.
Síðastliðinn vetur sendi Noregs-
sÖfnunarnefndin bréf til allra kven
félaga á landinu og óskaði aðstoðar
þeirra, við fatasöfnun, árangurinn
hefur orðið ágætur eins og raun
ber vitni, því mest af fatabirgð-
unum er sent frá kvenfélögunum.
Er þetta allskonar ullarfatnaður,
einkúm barna og unglingafatnað-
ur og mestallt af fötunum nýtt og
■handprjónað. Verið er nú að flokka
fatnaðinn og pakka niður, svo
hægt sé að hafa liann tilbúinn til
sendingar þegar leiðir opnast til
Noregs og verður söfnuninni ráð-
stafað í samráði við Rauða kross-
inn í London og Norræna félagið
í Noregi.
Peningasöfnuninni er nú lokið,
en hatdið verður áfram að taka
á móti fatnaði ennþá og ættu þeir,
sem ekki hafa getað komið því
við áður að senda gjafir sínar á
„í álögum44
Óperettan „f álögum“ var sýnd
í fyrsta sinni á þessum vetri s. 1.
miðvikudag við góða aðsókn. Bár-
ust leikendum allmargir blóm-
vendir.
Næsta sýning verður á morgun '
kl. 3. |
Kjær og Aldís Ilelgadóttir, Jór-
unn Bjarnadóttir, Kristín Thor-
oddsen og Sigríður Magnúsdóttir.
Núverandi stjórn ,skipa: For-
maður: Sigríður Eiríksdóttir, vara-
form'aður: Elísabet Guðjolinsen,
ritari: Sigríður Badimann, gjald-
keri: Guðrún Árnadóttir og Sig-
rún Straumland.
í tilefni 25 ára afmælisins hef-
ur félagið látið gera minjagrip:
hjúkrunarkonu er Guðmundur Ein
arsson frá Miðdal hefur mótað í
leir, og fá þær einar minjagrip
þennan, sem nú eru meðlimir í
Félagi íslenzkra hjúkrunarkvenna.
næstunni, þeim er veitt móttaka
hjá Haraldi Faaherg í Hafnar-
stræti 5.
Formaður Noregssöfnunarnefnd
arinnar er Guðlaugur Rósenkranz,
en hinir tveir eru Sigurður Sig-
urðsson berklayfirlæknir og Har-
ald Faaberg.
Umsækjendur um
Sundhallarfor-
stjórastöðuna
Eins og kunnugt er, hefur for-
stjórastaðan við Sundhöll Reykja-
víkur verið auglýst laus til um-
sóknar. Þessir hafa sótt um stöð-
una:
Albert Guðmundsson E’fsta-
sundi 51.
Árni Helgason Borgarnesi.
Austmar. Þorsteinn Akureyri.
Bergsveinn Jónsson Barónsstíg
30.
Friðjón Guðbjörnsson Grettis-
götu 63.
Hermann Hermannsson Njáls-
götu 92.
Jón Brynjólfsson Grettisgötu 54.
Jón 'B. Jónsson Efrihlíð.
Jón Rósmundsson Reykjavík.
Jón Þórðarson Seljavegi 25.
Kjartan Berginann Bragagötu
30.
Ólafur S. Ólafsson Ilafnarfirði.
Rögnvaldur Sveinbjörnsson
Samtúni 16.
Snorri Jónsson loftskeytamaður
Reykjavík.
Þorgeir Sveinbjörnsson Reykja-
vik.
Þorgils Guðmundsson, Reyk-
hotli.
Hallgrímssókn á niorgun. Bama-
guðsþjónuzta á morgun kl. 11 f. h.
í Austurbæjarskólanum. Séra Jakob
Jónsson. Messa á sama stað kl. 2
e. h.~ Séra Jón Þorvarðarson, pró-
Eastur í Vík.