Þjóðviljinn - 01.12.1944, Qupperneq 1
«
9. árgangrur.
Föstudagur 1. desember 1944.
243. tölublað.
laoöi Mm tefeur Eoer
Nálgast Presov í Slovakíu. — Borgír teknar i Serbíu
Stalín marskálkur tilkynnti í sérstakri dagskipun
í gær töku borgarinnar Eger, 100 km. fyrir norðaustan
Búdapest.
í Tékkoslóvakíu nálgast rauði herinn Presov.
Rússar og Júgoslavar tóku í gær borgirnar Kraljewo
og Novipapar í Serbíu.
Eger e.r mikilvæg samgöngumið-
stöð í ungverska hálendinu á leið-
inni inn i Slovakíu.
Her Malinovskis tók borgina.
í Tékkoslovakíu tóku Riissar
meir en 50 þorp og bæi.
Tolbúkin marskálkur tók meir
en 50 bæi í Suðvestur-Ungverja-
landi, þar af 8 járnbrautarbæi.
Hægra armi sóknarhersins varð
vel ágengt á milli Pecs og árinn-
ar Sarviz.
Mýrlendi tefur sums staðar för
, rauða hersins.
RÉTTARHÖLD 1 LUBLIN
Sex þýzkir starfsmenn mann-
drápsverksmiðjunnar í Lúblin
(Maidanek) eru nú fyrir rétti Pól-
verja þar í borg.
Malinovskí hershöfðingi
Einn þeirra hefur játað, að Þjóð-
verjar hafi myrt 00 000 manns í
gasklefunum einum.
WMíif bðFfa tll Im oi Roef
PLhöí loftsóko Bandamaooa
9. bandaríski herinn er nú við
Roer á 25 km kafla fyrir norðan
Jiilich.
Fyrir austan Geilenkirchen er
hann kominn inn í tvö þorp.
ílann hefur tchið þorpin Lind-
ern, 3 km frá Limmich, Lammers-
dorf á milli Duren og Jiilich og
Grossdorfs fyrir suðvestan Duren.
Her Pattons sótti fram um 3
km nálægt Merzig og er um 3 km
frá þeirri borg.
Ilann er kominn að Saaránni
fyrir sunnan Merzig.
Bandaríkjamcnn eru 3 km frá
Saarlautern.
Frakkar nálgast Colmar frá
Strasburg.
LOFTSÓKNIN
Bandamenn gerðu árásir á 7
oHuvinnslustöðvar í Þýzkalandi í
gær.
Um 1250 „flugvirki" og „Liber-
ator“flugvélar réðust á olíuverk-
smiðju nálægt Leipzig.
Þjóðverjar veittu enga mót-
spyrnu með flugvélum, en loft-
varnaskothríð var hörð nálægt
olíustöðvunum.
Frá þriðjudegi til fimmtudags-
kvölds fóru meir en 10 000 flug-
vélar til árása á Þvzkaland.
V OPNASKORTUR
Stimson hermálaráðherra Banda
ríkjanna gagði við blaðamenn í
gær, að Eisenhower hefði orðið að
fresta núverandi sókn vegna skot-
færaskorts.
Sagði hann Bandamenn eyða 10
sinnum meiri skotfærum en Þjóð-
verja.
Churchill 70ára
gær
Curchill forsœtisráðherra Bret-
lands varð 70 ára í gœr.
Hann fæddist 1874. — Er son-
arsonur sjötta hertogans af Marl-
borough.
Faðir hans, Randolph Churchill
lávarður var atkvæðamikill stjórn-
málamaður.
Móðir Iians var ættuð frá Banda
ríkjunum.
Churchill hefur alla ævi látið
mikið til sín taka í stjórnmálum.
Iíann varð fyrst ráðherra árið
1905 (aðstoðar nýlendumálaráð-
herra), síðam hefur hann gegnt
ýmsum ráðherraembættum svo
sem flotamálaráðherra 1911—15
og fjármálaráðherra 1924—29.
Fundur þýzkra for-
ingja í Narvik
Frá Noregi hefur frétzt, að hátt-
settir Þjóðverjar frá yfirherstjórn-
inn'i og frá lögreglunni hafi hald-
ið fund í Narvík 16.—18. nóvem-
ber.
Meðal þátttakendanna var æðsti
herforingi Þjóðverja í Noregi, von
Falkenhorst, — sem samkvæmt
síðari fréttum hefur verið settur
af, — ennfremur Moser, yfirfor-
ingi í Norður-Noregi, flotaforingj-
arnir Brinckman og von Gerlac,
Rendulic hershöfðingi, sem var yf-
irforingi hersins í Finnl., Joseph
Terboven, landstjóri, hinn alræmdi
Gestapomaður Fehlis og fleiri.
Fundurinn var mjög leynilegur
og er ekkert kunnugt um það enn,
hvað þar gerðist.
Rétt fyrir fundinn voru virki
Þjóðverja við Björnafjell. nálægt
landamærum Svíþjóðar, skoðuð
mjög vandlega.
Þjóðverjar hamast nú við að
efla víggirðingár sínar í Narvíkur-
héraði.
(Frá norska blaðafulltrúanum).
„Norsk Tidend“ um
framtíð Finn-
merkur
Blað norsku ríkisstjórnarinnar,
„Norsk Tidend" birtir ritstjórnar-
grein undir nafninu: „Framtíð
Finnmerkur“. — — Þar segir m.
a.: „Ilugur allra Norðmanna leitar
nú til Norður-Noregs, til þeirra
landa okkar, sem urðu fyrstir til
að fagna kornu hersveita banda-
manna okkai' og okkar eigin til
Noregs. Og hugsanir okkar dvelj-
ast ennþá meir hjá þeim löndum
okkar, sem eru hraktir suður á
bóginn frá lieimilum sínum.
Mikill hluti af landi okkar hef-
ur verið lagður í algjöra auðn. —
Þarna norður frá er búið að gjör-
eyðileggja öll lífsskilyrði. — Við
verðum að gera okkur ljóst, að eft-
ir stríðið er viðreisn Finnmerkur
eitt af þeim atriðurn, sem verða að
vera efst á blaði".
(Frá norska blaðafulltrúanum).
Ilann hefur lengst af fylgt í-
haldsflokknum, en sagði sig ]ró úr
honum um tíma og .gekk í þann
„frjálslynda“.
Scinna hvarf hann aftur í llralds
flokkinn.
Kvislingar líflátnir
í Jugoslavíu
Júgoslavneska þjóðfrelsisnefndin
1 tilkynnir, að damidir liafi verið til
dauða og telcnir af lífi 105 kvisl-
ingar.
Einn var áður ráðherra í lepp-
stjórn Þjóðverja, annar var hers-
höfðingi.
„Hjálpin má ekki
koma of seint44
Við höfum einnig fengið mikla
hjálp frá Bretum og Bandaríkja-
mönnum.
Þjóðverjar reka ekki aðeins al-
menning burt úr þeim héruðum,
sem þeir herja í, heldur flæma þeir
líka lækna og hjúkrunarkonur
burt. Og þeir brenna sjúkrahúsin
og lyfjabúðirnar og aðrar lækninga
stofnanir.
Þessi burtrekstur fólksins veld-
ur of miklu fjölmenni á þeim stöð-
um, sem fólkið er rekið til, og
ef þessu heldur áfram, mun sá
dagur koma, að Þjóðiverjar og
kvislingar geta ekki á nokkurn
hátt tekið tillit til almennings.
Það er því mjög nauðsynlegt,
að hinir sænsku vinir okkar og
hlutlausar stofnanir svo sem rauði
krossinn geti skorizt í leikinn.
Á meðan ég dvaldist í Svíjrjóð,
bar mjög á hinni miklu gremju,
sem þar ríkir vegna framferðis
Þjóðverja í Noregi. Svíar eru líka
fúsir til að veita okkur alla þá
hjálp, sem stendur í þeirra valdi.
— Við verðum bara að vona, að
sú hjálp komi ekki of seint“.
(Frá norska blaðafulltrúanum).
Bonomi reynir að
mynda stjórn
Bonomi hefur fallizt á þá til-
lögu Umbertos ríkisstjóra, að hann
reyni að mynda stjórn.
Talið er sennilegt, að hann reyni
að byggja hana á sex flokka grund
velli eins og þá fyrri.
Komið hefur til tals að Orlando,
liinn aldurhnigni stjórmnálamað-
ur Itala, taki sœti í stjórninni.
Sósíalistaflokkurinn er mótsnú-
inn Bonomi.
Arnaðaróskir Dana
til Norðmanna
Þann 28, október sendi danska
ráðið í London eftirfarandi kveðju
til Hákonar konungs:
Danir í Stóra-Bretlandi, komn-
ir saman á aukafundi Pann 27.
okt. 1944, biðja yðar hátign að
ta'ka á móti hjartanlegum ham-
ingjuóskum Dana í tilefni af því,
að frelsun Noregs er byrjuð. Við
fögnum því, að sú stund virðist ná-
læg, er ýðar hátign getur horfið
heim til frjáls Noregs, og allir
Danir sameinast um að bera fram
hinar beztu óskir um framtíð Nor-
egs. — Hin glæsilega barátta
norsku þjóðarinar í meir en fjögur
ár hefur verið okkur öllum skín-
andi fordæmi.
Norski sendih. þakkaði fyr-
ir kveðjuna fyrir hönd konungs.
59 fðiost í Burton-
- Trent
Brezki flugmálaráðherrann hef-
ur gefið skýrslu um sprenginguna
í Burton-on-Trent.
Samtals hafa 59 manns farizt
eða er saknað og talið látið.
18 flugvélastarfsmenn fórust, 10
eru í sjúkrahúsi.
Af almenningi fórust 32, — 9
er saknað, 3 eru særðir.
Sérstakur rannsóknarréttur hef-
ur verið stofnaður vegna slyssins.
Stúdentablaðið og 1. des.
merkið verður selt á göt-
unum í dag. Sölubörn komi
í Menntaskólann frá kl. 9
f. h.
^AAAA/V'WWWVVUWUVVWVVWWWWJWtfWUV'b^V'^S^VVWWii
Alþýðusambandsþingið skorar á Alþingi
að tryggja jafnrétti karla og kvenna
í launalögunum
5 A nýafstöðnu 18. þingi Alþýðusambands íslands var
!; eftirfarandi tillaga samþykkt einróma:
í; „18. þing Alþýðusambands Islands skorar á Alþingi að
■I tryggja í launalögum þeim, er nú liggja fyrir Alþingi,
§ fullkomið jafnrétti karla og kvenna og sömu hækkunar-
í möguleika og að vinna kvenna sé ekki metin lægra en
I; karla.“
í Flutningsmenn tillögunnar voru allir kvenfulltrúar, er
=; þingið sátu, en þær voru: Laufey Valdimarsdóttir, Jóhanna
I’ Egilsdóttir, Sigríður Hannesdóttir, Bryndís Sigurðardóttir,
>; Jóna Guðjónsdóttir, Guðrún Agústsdóttir, Sigurrós Sveins-
dóttir, Auður Vigfúsdóttir, Sigríður Erlendsdóttir, Hólm-
■J fríður Helgadóttir, Sigríður Jóhannesdóttir, Elísabet Eiríks-
dóttir, Guðrún Nikulásdóttir, Elísabet Kristjánsdóttir, Guð-
>’ munda L. Ólafsdóítir, Guðlaug Vilhjálmsdóttir, Ingibjörg
;• Jónsdóttir, Hólmfríður Ingjaldsdóttir, Kristín Kristjánsi-
*,* dóttir, Þuríður Friðriksdóttir, Aðalheiður S. Hólm, Ríkey
;« Eiríksdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Ásta Magnúsdóttir, Ólöf
i Friðfinnsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Guðmunda Gunnarsdótt-
3 ir, Guðbjörg Brynjólfsdóttir, Ragnhildur snædal.