Þjóðviljinn - 03.12.1944, Side 8
Næturlaeknir er í læknavarðstof-
unni, Austurbæjarskólanum, sími
5030.
Ljósatími ökutækja er frá kl. 3.20
til kl. 9.10 f. h.
ÚTVARPIÐ í DAG:
11.00 Morguntónleikar ( plötur):
Operan „Rigoletto" eftir Verdi, 1.
og 2. þáttur.
14.00 Messa í Hallgrímssókn (Séra Sig-
urjón Árnason, prestur í Vestmanna-
eyjutn.
15.15—10.30 Miðdegistónleikar (plötur):
Operan ,.Rigoletto“ eftir Verdi, 3.
og 4. þáttur.
18.30 Barnatími (Pétur Pétursson o. fl.)
19.25 Hljómplötur: Dansar eftir Schulhoff
o. fl.
20.20 Samleikur (Óskar Cortes og Fritz
Weisshappel): Sóntita í D-dúr eftir
Handel.
20.35 Erindi: Jóhannes skírari (Eiríkur
Albertsson, dr. tlieol.).
21.00 Kirkjukór Laugarnesssóknar syngur
(Kristinn Ingvarsson stjórnar):
a) „Dvel hjá oss, er dagur hnígur“
eftir Weyse.
b) „Atburð sé ég anda mínum nær“
eftir Áskel Snorrason.
c) „Lofið drottinn" eftir Friðirk
Bjarnason.
d) „Stjarnan" eftir Sigvalda Kalda-
' lóns.
1 e) „Þitt orð, vor guð" eftir Bortni-
ansky.
f) „Nú fjöll og byggðir blunda",
raddsett af Bach.
21.25 Upplestur: Kafli úr „Don Quixote“
eftir Cervantes (Jón Norðfjörð leik-
ari).
21.50 Hljómplötur: Klassiskir dansar.
ÚTVARPID Á MORGUN:
20.30 Úlvarp frá Alþingi: Framh. 1. umr.
í sameinuðu þingi um frumvarp til
fjárlaga fyrir 1945 (Eldhúsdagsum-
ræður).
Leiðrétting. í ræðu Brynjólfs
Bjarnasonar, sem birt var í blaðinu
í gær hafði misprentazt bændaskóla
í stað barnaskóla í upphafi fyrstu
málsgreinar síðasta dálks greinar-
innar. Málsgreinin átti að byrja
þannig: Til barnaskóla og héraðs-
skóla mun verða veitt allmikið fé,
o. s. frv.
VesturvígstöBvarnar
Framhald af 1. síðu.
eytt 4 þýzkum herfjdkjum á hálf-
unt mánuði og leikið önnur fjögur
illa.
Þjóðverjar hafa sprengt upp
'brýrnar þrjár yfir Rín á milli
Straáburg og Ivehl. — Ein þeirra
var járnbrautarbrii, en hinar fyr-
ir önnur ökutæki.
Þjóðverjar hafa nú aðeins tvær
fastar brýr á sínu valdi fyrir sunn
an Strasburg.
Italir gramir Eden
Bonomi er enn að leitast við
að mynda stjórn á Ítalíu.
Ummæli Eden utanríkisráðheiTa
Breta uni Íta'líu hafa vakið mikl-
ar umræður í ítölskum blöðum.
Vinstriblöðin eru liarðorð. Segja
þau, að Eden hafi sýnt Ítalíu lít-
ilsvirðingu, og að Bretar styðji aft-
urhaldsöflin á Ítalíu, eins og þeir
geri í Frahhlandi og Belgíu.
Eden hafði sagt, að þar sem
Ítalía hefði gefizt upp skilyrðis-
laust yrði hún að sætta sig við,
að Bretar skiptu sér af skipun rík-
isstjórnar þar.
þJÓÐVILIINN
Stðkan „Víkingor“40ára
Viðtal við Jöh. Ögm. Oddsson æðsta templar
Embœttismenn stúhunnar Víhings
Stúhan Víhingur varð 40 ára s. I. föstudag. í tilefni af þvi sneri
tíðindamaður blaðsms sér til Jóhanns Ögm. Oddssonar, núverandi œðsta
templar stúkunnar og spurði hann sitt hvað um sögu og starf henn-
— Geturðu sagt mér eitthvað af
aðdraganda að stofnun sbúkunn-
ar?
— Hugmyndin að stofnun stúk-
unnar kom fyrst fram í Bárufélag-
inu og voru það þeir Sigurður
Eiríksson, regluboði, Ottó N. Þor-
Iáksson og Þorsteinn Egilsson, sem
komu fram með hana. En þannig
stóð á, að hér í bænum var starf-
andi stúkan Dröfn, og voru mest-
megnis skipstjórar og stýrimenn í
henni. Hinum óbreyttu sjómönn-
um mun hafa þótt nokkuð þröngt
um sig þar og viljað vera sínir
eigin herrar. En drykkjuskapur
var mikill meðal sjómanna á þess-
um tíma og því ekki vanþörf á
bindindisstarfsemi íneðal þeirra.
Umdæmisstúkan nr. 1. vann að
stofnun stúkunnar og stofnaði
Þórður J. Thoroddsen læknir, þá-
verandi stórtemplar hana. Stofn-
endur voru rúm'lega 80, og var
Þorsteinn Egilsson fyrsti æðsti
templar hennar.
— Stúkan hefur starfað mikið?
— Já, óhætt mun að fullyrða
að starf stúkunnar hofur verið
mikið og heillaríkt. Hún hefur
haldið um 1000 íundi, svo eitthvað
sé nefnt. í marz 1905 var barna-
stúkan Unnur stofnuð að tilhlut-
un stúkunnar. Vík. átti mikinn
þátit í stofnun Dýraverndunarfé-
lags íslands og þegar Eimskipafé-
lagið var stofnað, hélt stúkan fund
um málið og hvatti fólaga sína til
að kaupa hlutabréf í félaginu.
FLOKKURINN
Tilkynning til trúnaðar-
manna Sósíalistafélags
Reykjavíkur.
Trúnaðarmannafundinum,
sem boðaður hefur verið á
morgun (mánudag), er fres(-
að til mánudags 11. þ- m.
vegna útvarpsumræðnanna.
Stjóm Sósíalistafélags
Reykjavíkur.
Og nú síðustu árin hefur stúkan
gert mikið í sambandi við land-
nám templara að Jaðri. Og stúk-
an sem slík hefur borgað út í
þarfir bindindismálsins um 60000
krónur. Mig langar til að minnast
á það mikla stanf, sem konurnar
unnu í stúkunni fyrstu árin, sem
hún var starfandi, en þá kom starf
ið hálft árið að mestu leyti á þær,
vegna þess að karlmennirnir voru
á sjó. Frú Karólína Siemsen, kona
Ottós Þorlákssonar, var oft æðsti
tomplar á þeim árum. Auk þeirra
mála sem stúkan beitti sér fyrir,
mætti einnig minnazt á það, þeg-
ar til umræðu kom að templar-
ar keyptu Hótél ísland. Það var
árið 1906. Stúkan Víkingur beitti
sér þá gegn því, að það yrði gert,
og vildi, að sú leið væri heldur
farin að vinna að því að koma upp
framtíðarhúsnæði fyrir regluna.
Hafði stúkan augastað á lóðinni,
þar sem Rey.kjavíkurapótek stend-
ur nú, en sú lóð bauðst þá með
góðum kjörum.
Eg held ég geti sagt, að ef að
ráðum Víkings liefði verið farið
þá, væri húsnæðismálum reglunn-
ar betur komið en nú er.
— Hvað ha'fa margir gengið í
stúkuna þessi 40 ár?
— Þeir munu vera eitthvað um
3000, en nú eru í stúkunni rúm
400 og er hún nú næstfjölmenn-
• a'sta stúka landsins.
— Eru nokkrii* af stofnendum
stúkunnar enn starfandi í henni?
— Já, þeir eru tveir, þeir Jón
Guðnason, fisksali og Ottó N. Þor-
láksson.
— Þið haldið auðvitað upp á
afmælið.
— Já, það verður hátíðafundur
hjá okkur í dag og á morgun höld-
um við svo kaffisamsæti í Lista-
mannaskálanum.
— Iívað geturðu svo sagt mér
að lökum?
— Aðeins þetta: Stúkan liefur
sömu hugsun og hún hafði í önd-
verðu, að beita sér ekki eingöngu
fyrir bindindismálinu, heldur einn-
ig að taka þátt í öllum menning-
ar- og þjóðþrifamálum, sem til
heilla geta horft.
NÝJA BÍG
Kafbátur í hernaði
(„Crash Dive“)
Stórmynd í eðlilegum litum
Aðalhlutverk:
TYRONE POVER,
ANNE BAXTER,
DANA ANDREWS.
Bönnuð bömum yngri en
12 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kL 11 f. h.
TJARNARBlÓ
Það geTöist á morgun
(It Happened Tomorrow).
Einkennileg og skemmtileg
gamanmynd-
DICK POWELL,
LINDA DARNELL,
JACK OAKIE.
Sýning kl. 3, 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11.
Daglega
NÝ EGG, soðin og hrá.
Kaffisalan
H AFN ARSTRÆTI 16.
ft
HANN"
Sýning í kvöld kl. 8
Sýning annað kvöld kl. 8
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 2 í dag.
Venjulegt leikhúsverð.
FJALAKÖTTURINN
sýnir revýuna
,,Allt í lagi, lagsi“
í dag kl. 2.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1 í Iðnó.
Næsta sýning þriðjudag. Aðgöngumiðar seldir á
morgun frá kl. 4—7.
Innilega hjartans þakkir til allra þeirra fjær
og nær, sem sýnt hafa okkur samúð og hluttekn-
ingu við fráfall og jarðarför míns elskaða eigin-
manns og föður,
FRIÐRIKS HALLDÓRSSONAR, loftskeytamanns.
Sérstaklega vil ég þakka Félagi íslenzkra loft-
skeytamanna, skipverjum á m.s. Esju og v.s. Ægir,
svo og Þórnýju og Sveini Pálssyni.
Helga I. Stefánsdóttir og dætur.
AUGLÝSIÐ I ÞJÓÐVILJANUM
vvwwuvwvvuwyvviftíWuvvyvwuwsíWvwuwuvuwLftnAíwvwi
Æ. F. R. Æ. F. R.
Æskulýðsfylkingin
í Reykjavík heldur skemmtifund í kvöld kl. 9.
DAGSKRÁ:
1. Ræða: Þóroddur Guðm. (alþni.). !;
2. Upplestur: Hanna Magnúsdóttir. ;!
3. ? ? ?
4. Dans.
;! Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.