Þjóðviljinn - 03.12.1944, Page 8

Þjóðviljinn - 03.12.1944, Page 8
Næturlaeknir er í læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum, sími 5030. Ljósatími ökutækja er frá kl. 3.20 til kl. 9.10 f. h. ÚTVARPIÐ í DAG: 11.00 Morguntónleikar ( plötur): Operan „Rigoletto" eftir Verdi, 1. og 2. þáttur. 14.00 Messa í Hallgrímssókn (Séra Sig- urjón Árnason, prestur í Vestmanna- eyjutn. 15.15—10.30 Miðdegistónleikar (plötur): Operan ,.Rigoletto“ eftir Verdi, 3. og 4. þáttur. 18.30 Barnatími (Pétur Pétursson o. fl.) 19.25 Hljómplötur: Dansar eftir Schulhoff o. fl. 20.20 Samleikur (Óskar Cortes og Fritz Weisshappel): Sóntita í D-dúr eftir Handel. 20.35 Erindi: Jóhannes skírari (Eiríkur Albertsson, dr. tlieol.). 21.00 Kirkjukór Laugarnesssóknar syngur (Kristinn Ingvarsson stjórnar): a) „Dvel hjá oss, er dagur hnígur“ eftir Weyse. b) „Atburð sé ég anda mínum nær“ eftir Áskel Snorrason. c) „Lofið drottinn" eftir Friðirk Bjarnason. d) „Stjarnan" eftir Sigvalda Kalda- ' lóns. 1 e) „Þitt orð, vor guð" eftir Bortni- ansky. f) „Nú fjöll og byggðir blunda", raddsett af Bach. 21.25 Upplestur: Kafli úr „Don Quixote“ eftir Cervantes (Jón Norðfjörð leik- ari). 21.50 Hljómplötur: Klassiskir dansar. ÚTVARPID Á MORGUN: 20.30 Úlvarp frá Alþingi: Framh. 1. umr. í sameinuðu þingi um frumvarp til fjárlaga fyrir 1945 (Eldhúsdagsum- ræður). Leiðrétting. í ræðu Brynjólfs Bjarnasonar, sem birt var í blaðinu í gær hafði misprentazt bændaskóla í stað barnaskóla í upphafi fyrstu málsgreinar síðasta dálks greinar- innar. Málsgreinin átti að byrja þannig: Til barnaskóla og héraðs- skóla mun verða veitt allmikið fé, o. s. frv. VesturvígstöBvarnar Framhald af 1. síðu. eytt 4 þýzkum herfjdkjum á hálf- unt mánuði og leikið önnur fjögur illa. Þjóðverjar hafa sprengt upp 'brýrnar þrjár yfir Rín á milli Straáburg og Ivehl. — Ein þeirra var járnbrautarbrii, en hinar fyr- ir önnur ökutæki. Þjóðverjar hafa nú aðeins tvær fastar brýr á sínu valdi fyrir sunn an Strasburg. Italir gramir Eden Bonomi er enn að leitast við að mynda stjórn á Ítalíu. Ummæli Eden utanríkisráðheiTa Breta uni Íta'líu hafa vakið mikl- ar umræður í ítölskum blöðum. Vinstriblöðin eru liarðorð. Segja þau, að Eden hafi sýnt Ítalíu lít- ilsvirðingu, og að Bretar styðji aft- urhaldsöflin á Ítalíu, eins og þeir geri í Frahhlandi og Belgíu. Eden hafði sagt, að þar sem Ítalía hefði gefizt upp skilyrðis- laust yrði hún að sætta sig við, að Bretar skiptu sér af skipun rík- isstjórnar þar. þJÓÐVILIINN Stðkan „Víkingor“40ára Viðtal við Jöh. Ögm. Oddsson æðsta templar Embœttismenn stúhunnar Víhings Stúhan Víhingur varð 40 ára s. I. föstudag. í tilefni af þvi sneri tíðindamaður blaðsms sér til Jóhanns Ögm. Oddssonar, núverandi œðsta templar stúkunnar og spurði hann sitt hvað um sögu og starf henn- — Geturðu sagt mér eitthvað af aðdraganda að stofnun sbúkunn- ar? — Hugmyndin að stofnun stúk- unnar kom fyrst fram í Bárufélag- inu og voru það þeir Sigurður Eiríksson, regluboði, Ottó N. Þor- Iáksson og Þorsteinn Egilsson, sem komu fram með hana. En þannig stóð á, að hér í bænum var starf- andi stúkan Dröfn, og voru mest- megnis skipstjórar og stýrimenn í henni. Hinum óbreyttu sjómönn- um mun hafa þótt nokkuð þröngt um sig þar og viljað vera sínir eigin herrar. En drykkjuskapur var mikill meðal sjómanna á þess- um tíma og því ekki vanþörf á bindindisstarfsemi íneðal þeirra. Umdæmisstúkan nr. 1. vann að stofnun stúkunnar og stofnaði Þórður J. Thoroddsen læknir, þá- verandi stórtemplar hana. Stofn- endur voru rúm'lega 80, og var Þorsteinn Egilsson fyrsti æðsti templar hennar. — Stúkan hefur starfað mikið? — Já, óhætt mun að fullyrða að starf stúkunnar hofur verið mikið og heillaríkt. Hún hefur haldið um 1000 íundi, svo eitthvað sé nefnt. í marz 1905 var barna- stúkan Unnur stofnuð að tilhlut- un stúkunnar. Vík. átti mikinn þátit í stofnun Dýraverndunarfé- lags íslands og þegar Eimskipafé- lagið var stofnað, hélt stúkan fund um málið og hvatti fólaga sína til að kaupa hlutabréf í félaginu. FLOKKURINN Tilkynning til trúnaðar- manna Sósíalistafélags Reykjavíkur. Trúnaðarmannafundinum, sem boðaður hefur verið á morgun (mánudag), er fres(- að til mánudags 11. þ- m. vegna útvarpsumræðnanna. Stjóm Sósíalistafélags Reykjavíkur. Og nú síðustu árin hefur stúkan gert mikið í sambandi við land- nám templara að Jaðri. Og stúk- an sem slík hefur borgað út í þarfir bindindismálsins um 60000 krónur. Mig langar til að minnast á það mikla stanf, sem konurnar unnu í stúkunni fyrstu árin, sem hún var starfandi, en þá kom starf ið hálft árið að mestu leyti á þær, vegna þess að karlmennirnir voru á sjó. Frú Karólína Siemsen, kona Ottós Þorlákssonar, var oft æðsti tomplar á þeim árum. Auk þeirra mála sem stúkan beitti sér fyrir, mætti einnig minnazt á það, þeg- ar til umræðu kom að templar- ar keyptu Hótél ísland. Það var árið 1906. Stúkan Víkingur beitti sér þá gegn því, að það yrði gert, og vildi, að sú leið væri heldur farin að vinna að því að koma upp framtíðarhúsnæði fyrir regluna. Hafði stúkan augastað á lóðinni, þar sem Rey.kjavíkurapótek stend- ur nú, en sú lóð bauðst þá með góðum kjörum. Eg held ég geti sagt, að ef að ráðum Víkings liefði verið farið þá, væri húsnæðismálum reglunn- ar betur komið en nú er. — Hvað ha'fa margir gengið í stúkuna þessi 40 ár? — Þeir munu vera eitthvað um 3000, en nú eru í stúkunni rúm 400 og er hún nú næstfjölmenn- • a'sta stúka landsins. — Eru nokkrii* af stofnendum stúkunnar enn starfandi í henni? — Já, þeir eru tveir, þeir Jón Guðnason, fisksali og Ottó N. Þor- láksson. — Þið haldið auðvitað upp á afmælið. — Já, það verður hátíðafundur hjá okkur í dag og á morgun höld- um við svo kaffisamsæti í Lista- mannaskálanum. — Iívað geturðu svo sagt mér að lökum? — Aðeins þetta: Stúkan liefur sömu hugsun og hún hafði í önd- verðu, að beita sér ekki eingöngu fyrir bindindismálinu, heldur einn- ig að taka þátt í öllum menning- ar- og þjóðþrifamálum, sem til heilla geta horft. NÝJA BÍG Kafbátur í hernaði („Crash Dive“) Stórmynd í eðlilegum litum Aðalhlutverk: TYRONE POVER, ANNE BAXTER, DANA ANDREWS. Bönnuð bömum yngri en 12 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kL 11 f. h. TJARNARBlÓ Það geTöist á morgun (It Happened Tomorrow). Einkennileg og skemmtileg gamanmynd- DICK POWELL, LINDA DARNELL, JACK OAKIE. Sýning kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11. Daglega NÝ EGG, soðin og hrá. Kaffisalan H AFN ARSTRÆTI 16. ft HANN" Sýning í kvöld kl. 8 Sýning annað kvöld kl. 8 Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag. Venjulegt leikhúsverð. FJALAKÖTTURINN sýnir revýuna ,,Allt í lagi, lagsi“ í dag kl. 2. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1 í Iðnó. Næsta sýning þriðjudag. Aðgöngumiðar seldir á morgun frá kl. 4—7. Innilega hjartans þakkir til allra þeirra fjær og nær, sem sýnt hafa okkur samúð og hluttekn- ingu við fráfall og jarðarför míns elskaða eigin- manns og föður, FRIÐRIKS HALLDÓRSSONAR, loftskeytamanns. Sérstaklega vil ég þakka Félagi íslenzkra loft- skeytamanna, skipverjum á m.s. Esju og v.s. Ægir, svo og Þórnýju og Sveini Pálssyni. Helga I. Stefánsdóttir og dætur. AUGLÝSIÐ I ÞJÓÐVILJANUM vvwwuvwvvuwyvviftíWuvvyvwuwsíWvwuwuvuwLftnAíwvwi Æ. F. R. Æ. F. R. Æskulýðsfylkingin í Reykjavík heldur skemmtifund í kvöld kl. 9. DAGSKRÁ: 1. Ræða: Þóroddur Guðm. (alþni.). !; 2. Upplestur: Hanna Magnúsdóttir. ;! 3. ? ? ? 4. Dans. ;! Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti. STJÓRNIN.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.