Þjóðviljinn - 07.12.1944, Side 1

Þjóðviljinn - 07.12.1944, Side 1
9. árgangnr. Fimmtudagur 7. desember 1944. 278. tölublað- Baráttuþrek norska flóttafólksins Frá Stokkhólmi er simað: Fréttaritari „Morgentidningens‘,‘ Elsabrita Marcusson, dóttir sænska forsætisráðherrans, skrifar frá sænsk-norsku landamærunum í Norður-Svíþjóð um þrautir norskra flóttakvenna: „Maður fyllist heilagri reiði, þegar maður hittir Norðmennina, sem hafa brotizt í hríðarbyljum yfir fjöllin til sœnsku landamœr- anna“. Elsabrita segir m. a. frá ungri flóttastúlku, sem léþ ekki hótanir Ejóðverja buga sig og sagði þeim •óhikað til syndanna. Hún sagði við S. S.-bófana, sem brenndu heimili hennar: „Ég veit, að þýzka þjóðin er spillt ,en hélt að I'jóðverjarnir væru ekki svo miklir þorparar að kasta sjötugum föður mínum og vanfærri systur mimii út á gaddinn og brenna hús- ið til kaldra kola“. Þessi stúlka ferðaðist 600 km, oftast fótgangandi, með fjórum ungum piltum, áður en hún komst til Svíþjóðar. Enda þótt hún sé næstum upp- gefin af þreytu, lét hún aðeins eina Framhald á 8. síðu. Þeir hafa tvo þri’ju af Saa rememires á sinu valdi Snemma í gærdag barst frétt um að 3. bandaríski herinn hefði komizt yfir Saarána á sex nýjum stöðum og seinna á tveimur stöðum í viðbót, andspænis Saar- lautem. Bandaríkjamenn hafa hrakið Þjóðverja í Saarregue- mines austur yfir ána og þar með náð um % borgarinnar á sitt vald. Staðir þeir, þar sem Bandaríkja- menn eru komnir yfir Saar, eru flestir á milli Saarlautern og Merzig. Manntjðn Þjóðve'ja 3 milljónir Talsmaður frönsku stjórnarinn- ar fullyrðir, að manntjón Þjóð- verja á síðast liðnum 6 mánuðum nemi 3 milljónum. — Þar eru allir taldir, — fallnir, særðir og fangar. Sagði hann, að þeir hefðu misst um helming þessa liðs á vestur- og suðurvígstöðvunum. Fótgönguliðið fór yfir ána í stór- um prömmum og flutti skriðdreka með sér. — Þeir hafa þegar tekizt á við þýzka skriðdreka. Bandamenn eru 8 km frá Saar- brúeken. Frakkar eru komnir í gegnum tvö fjallaskörð á leið sinni til Colmar. Bandamenn tóku í gær virki eitt, 2 km fyrir vestan Metz. ROERVÍGSTÖÐVARNAR. Litlar breytipgar urðu á Roer- vígstöðvunum í gær. — Harðast var barizt á suðurenda þeirra. Orustuflugvélar gerðu harðar á- rásir á varnarstöðvar Þjóðverja í Júlich. Samvinna Rússa og Norð- manna með ágætum Stöðugt berast fréttir af hinni góðu samvinnu rússnesku herj- anna og norsku yfirvaldanna í Norður-Noregi. Norskur blaða- maður átti nýlega tal nð Peder Holt fylkismann. Hann sagði m. a.: „Við tókum á móti Rúss- unum með hrifningu og það hef ur allan tímann ríkt hin ágæt- asta samvinna milli rússnesku hermannanna og íbúanna. Rúss amir hafa margoft iýst því yf- ir, að þeir myndu ekki blanda sér inn í innanlandsmáí Norð- manna og eftir reynslu okkar er ég sannfærður um að þei- muni framfylgja þassu loforði fullkomlega. Rússarnir hafa jafnvel ekki tekið fram fyrir hendur norsku yfirvaldanna í sambandi við hegningu kvisl- inganna en látið það mál al- gerlega í höndum no^sku vfir- valdanna. Þeir munu látnir sæta norskum lögum og dómi. Framhald á 8. síðu. Grískir kvislingar fyrir rétti Tíu kunnir Grikkir, meðlimir leppstjómar Þjóðverja og hátt- settir herforingjar, verða látnir svara. til landráðasaka fyrir sér- stókum herrétti. Á meðal þeirra eru John D. Rallis, síðasti forsætisráðherra grísku leppstjórnarinnar, og Georg Tsolakoglov hershöfðingi, sem undirritaði vopnahlésskilmála Þjóðverja í apríl 1941. Henri Le Man sakaður um landráð Henrí Le Man, sem einu sinni var fjármálaráðherra sósíal- demókrata í Belgíu, er einn af sex öldungadeildarmönnum, sem verða sennilega sviptir þingmannafriðhelgi sinni og dregnir fyrir dómstóla vegna samvinnu við óvinina sam- kvæmt meðmælum dómsmála- nefndar öldungadeildar belg- iska þingsins. í júní 1940 gaf Le Man út á- varp til meðlima flokksins, þar sem hann skoraði á þá að veita Þjóðverjum ekki mótspyrnu. — Næstum ári seinna stofnaði hann blaðið Le Travail, og í þvi varði hann þá stefnu að hafa samvinnu við Þjóðverja. Hann skrifaði líka í þýzku blöðin Kölnischer Zeitung og Neues Wiener Tageblatt. — Ár- ið 1940 birti hann grein í síðar nefndu blaði undir nafninu „Ör- I yrkjar Belgíu“. Kauðí hzrínn 70 bm, frá Auslurríbí Belqiskir sKæruliððr forðuðu Antwe pen frá eyðileggingu Utlaus r bardagar í Aþenu Mófsþyrnuhrcyfíngín brcídfst út Rauði herinn hefur nú mest allan eystri bakka Bala- tonsvatns á sínu valdi. Hann er nú um 70 km. frá landamærum Austurríkis. Rússar og Rúmenar tóku um 100 þorp og bæi í gær í Suðvestur-Ungverjalandi. I fyrrinótt var fremur kyrrt í Aþenu, en snemma í gærmorgun hófust bardagar að nýju. Mótspyrna skæruliðanna er mjög hörð. Allsherjarverkfall hefur nú einnig verið hafið í Patras. — Ókyrrðar verður vart í Salonika. Mestur hluti þríhyrningsins, sem myndast af Drövu, Bala- tonvatni og Dóná, er nú í hönd um Rússa og bandamanna þeirra, Rúmena. Þetta er það landsvæði, sem þýzki yfirhershöfðinginn Lud- endorff spáði skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina að yrði vígvöllur í úrslitaorustunni í næsta stríði á milli Rússlands og Þýzkalands. — Sagði hann, að ef Þjóðverjar biðu ósigur í þeirri orustu, lægi opin leið framundan Rússum inn í Þýzka land. Þjóðverjar segja Rússa vera byrjaða á að umkringja Búda- pest, — hafi þeir farið yfir Dóná á nýjum stað fyrir sunn- an borgina. Rússar segjast vera 40 km. fyrir sunnan Búdapest. Á síðast liðnum tveimur dög- um hafa Rússar tekið 2300 fanga í Ungverjalandi- SID TEKIN Júgoslavar og Rússar tóku 1 gær borgina Sid í Serbíu, um 100 km. fyrir norðvestan Bel- | grad. i Það voru belgiskir skœruliðar, sem forðuðu höfninni i Antwerpen frá eyðileggingu. Um 1500 Þjóðverjum hafði ver- ið falið að eyðileggja hafnarmann- virkin. Þann 4. september s.l. réðust skærulíðarnir á Þjóðverjana og hröktu þá burtu, án þess að þeir gætu unnið verkið. Af Belgíumönnum féllu 81, en um 300 er saknað. < Bretar og hermenn stjórnar- innar hafa nú allan miðhluta Aþenu á sínu valdi. — Beita þeir nú skriðdrekum og bryn- vörðum bílum. í sólarupprás byrjuðu skæru liðar að streyma úr úthverfun- um inn í miðborgina. — En mættu þá brezku hermönnun- um. Bretar beita Spitfireflugvél- um gegn skæruliðunum. Þeir hafa tekið skrifstofur bandalags vinstri flokkanna. Bretar höfðu tekið um 3000 fanga í gærkvöld, en ekkert lát var á bardögum. E L A S hefur afvopnað setu- lið stjórnarinnar í Patras. Scobie hershöfðingi Breta fullyrðir. að yfirgnæfandi meiri hluti þjóðarinnar fylgi stjórn- inni, eigi að síður segja Bretar að allsherjarverkfallið sé al- mennt. Ný stjórn í Rúmeníu Rndescu hershöfðingi hefur myndað stjórn í Rúmeníu. — Meðal stuðningsflokka hennar eru Bændaflokkurinn, Frjálslyndi flokk urinn og Kommúnistaflokkurinn. — Ráðherra Kommúnista er Pat- rascanu. íbúur Sofíu, höfuðborg Bvlnariu fagna rauða hernum, þ'gar hann streymir inn i borgina á sigurför sinni um Balkanskagann.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.