Þjóðviljinn - 12.12.1944, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 12.12.1944, Blaðsíða 8
,Círbo«'ginnI Næturlæknir er í læknavarðstof- unni, Austurbæjarskólanum, simi 5030. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki. Útvarpið í dag. 18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur. 19.00 Enskukennsla, 2. flokkur. 19.25 Þingfréttir. 20.20 Tónleikar Tónlistarskólans: a) Sinfonia pastorale eftir Tartini. b) Lög úr „Gullna hliðinu" eftir Pál ísólfsson. (Hljómsveit leikur, undir stjórn dr. Urbantschitsch). 20.45 Erindi: Skipulag heimsvið- skipta, I. (Ólafur Björnsson dósent). 21.10 Hljómplötur: Lög leikin á píanó. 21.15 íslenzkir nútímahöfundar: Halldór Kiljan Laxness les úr skáldritum sínum. 21.40 Hljómplötur: Kirkjutónlist. Manntjón af völdum flug- sprengrna / nóvembennánuði jórust 716, en meir en 1700 sœrðust, í Bret- landi af völdum flugsprenyna Þjóðverja. Brezkar flugvélar ráðast nú dag- lega á ílugsprengjustöðvar ÞjóÖ- verja í Hollandi. Sforsa svarar Churchill Framhald af 1. síðu. kom við í Englandi á leið til ítaliu og lagt fast að sér að styðja völd Victors Emanúels konungs á Ítalíu. — Segist Sforsa hafa harð- neitað þessu. Hann kveðst hins vegar hafa fallizt á að styðja Badoglio á með- an þess væri þörf. •— Sagðist Sforza kannast við það, að hann liefði, er til Ítalíu kom, mælt með því að Victor segði af sér. „Kristilegir lýðræðissinnar“ og Kommúnistar hafa lýst sig sam- þykka því, að Bonomi verði for- sætisráðherra. þlÓPVUINN BlDIfiDlei tlBSBðlaslotnBB er Wrlwo Attyglisverflur áraagnr flugnðlaráBstelnBmar Hér birtist yfirlit yfir sáttmála þann um alþjóðleg flugmál, sem fulltrúar 54 þjóða urðu sammála um á alþjóðlegu flugmálaráðstefn- unni í Chicago. — Stjórnir 26 landa þurfa að samþykkja sáttmál ann áður en hann öðlast gildi. í formála sáttmálans er tekið fram, að þar sem .framtíðarþróun flugsamgangna geti stórum stuðl- að að því að skapa og varðveita alþjóðlega vináttu, skilning og samvinnu, hafa ríkisstjórnir þær, sem undirrita sáttmálann, fallizt á vissar meginreglur, sem eiga að tryggja það, að flugsamgöngur geti þróazt örugglega og skipulega, og að hægt sé að koma á flugsam- göngum á milli landa á grundvelli jafnra tækifæra fyrir hlutaðeigandi lönd. Sáttmálinn er í 90 greinum, og fara þær helztu hér á eftir: 1.—2. Viðurkennd eru alger yf- irráð hvers ríkis yfir loftinu yfir landi þess og landhelgi. 3. Sáttmálinn nær aðeins til friðsamlegra flugsamgangna, en ekki hernaðar-, tollgæzlu- eða lög- regluflugvéla. 4. Flugvélar, sem ekki stunda alþjóðleg áætlunarflug, mega fljúga yfir landsvæði erlendra ríkja Viðraður De fiaulles og Stalíns lokið Viðrœðum þeirra Stalíns og de Gaulles í Moskvu er nú lolcið, en elaki hefur árangur þeirra birzt en opinberlega. Þýzka útvarpið segir, að de Gauule liafi gengið „bolsevikum“ álgerlega á hönd. án leyfis, ef það er ekki í atvinnu- skyni. 5. Sérhver þjóð áskilur sér rétt til að lialda uppi samgöngum á milli staða á sínu landi. 6. Banna má flug yfir ákveðin svæði vegna hernaðarlegs öryggis. 7. Þeir flugvellir ríkjanna, sem opnir eru almenningi, verða aðl vera opnir útlendum flugvélum og mega ekki sýna hlutdrægni með tilliti til þjónustu og verðlags. 8. Ríkin hafa rétt til að fremja leit á erlendum flugvélum. 9. Veðurfregnir og aðrar flug- leiðbeiningar eru öllum heimilar. 10. Ekki má fljúga með skotfæri ýfir neinu ríki án leyfis þess, og ríkisstjórnir hafa leyfi tif að setja öllum flugvélum reglur um notk- un Ijósmyndatækja yfir löndum sínum. 11. Mynduð verði alþjóðleg flug málastofnun. Á hún að hafa þing og ráð. — Starfssvið og aðsetur stofnunarinnar verður ákveðið á sérstöku þingi. 12. Stofnunin á að hafa „lög- gjafarvald“, ef þörf krefur. 13. Þing stofnunarinnar á að koma saman árlega. — Hvert ríki á að hafa eitt atkvæði, og meiri hluti atkvæða ræður. 14. Ráðið er ábyrgt gagnvart þinginu. 15. Ríki mega beiðast fjárhags- legrar aðstoðar ráðsins til að end- urbæta flugskilyrði landsins. 16. Aðilar sáttmálans geta ver- ið sameinuðu þjóðirnar, bandaþjóð ir þeirra og hlutlausar þjóðir í þessu stríði. 17. Aðrar þjóðir þarfnast sam- þykkis % félaganna og jákvæðis allra þeirra ríkja, sem þær hafa gert innrás í eða ráðist á. New-Yorkbúar fögnuðu Roosevelt forseta með sínum hætti skömmu fyrir kosningarnar í haust. Forsetahjónin og La-Guardia, borgarstjóri, eru í fremsta bílnum. NÝJA Bft> Viltír tónar („Stormy Weather“) Svellandi fjörug músík- mynd með negrum í öllum hlutverkum. Aðalhlutverk: LENA HORNE BILL ROBINSON CAB COLLOWAY og hljómsveit hans. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. TJAKNABBlÓ Eins og þú villt (Som du vil ha mej) Fjörugur sænskur gaman- leikur. KARIN EKELUND, LAURITZ FALK, STIG JÁRREL. Sýning kl. 5, 7 og 9. KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN! sýnir franska gamanleikinn „HANN" annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag. — Næst síðasta sinn! Sósíalístafélag Reykjavíbur heldur fund þriðjudaginn 12. des. kl. 8yz e. h. á Skólavörðustíg 19. FUNDAREFNI: 1. Félagsmál. 2. Ályktanir flokksþingsins. Málshefjendur: Einar Olgeirsson, Haukur Helgason. . 3. Erlendar fréttir (Sigurður Guðmundsson). Félagsmenn eru áminntir um að mæta stundvíslega STJÓKNIN. Danska fréttastofan í Stokkhólmi tilkynnir, að Albert And- ersen og Albert Rasmussen, sem báðir voru meðal leiðtoga í iðnfélögum málara í Danmörku, liafi verið skotnir s.l. fimmtu- dag á Viborgvej í Árósum. Þjóðverjar flytja lið frá Búdapest Þjóðverjar eru byrjaðir að flytja lið frá Búdapest. Munu þeir ekki œtla að skilja nema tiltölvlega fá- mennt vamarlið eftir. / úthverfunum hafa Þjóðverjar rifið niður hús til að fá svigrúm fyrir fallbyssur sínar. — Jámbraut in og þjóðvegurinn frá Búdapest liggur undir slcothríð Rússa. Rauði herinn nálgast Búdapest á báðum bökkum Dónár. Fyrir norðan þorgina fengu tvö þýzk herfylki ljóta útreið í gær. — Rauði herinn tók bæinn Verves- gjös, 17 km fyrir norðaustan Búda- pest. Rauði herinn sækir fram fyrir vestan Mipkolc. í fyrradag eyðilögðu Rússar 35 skriðdreka og 5 flugvélar fyrir Þjóðverjum. Fréttastofan álítur, að þessi morð séu framin í því skyni aS egna danska verkamenn til verka, sem gefi ÞjóSverjum höggstaS á þeim. ÞjóSverjar hafa samiS víStæk- ar skrár yfir gisla í Árósum. — — Fyrir nokkrum dögum síSan voru 10 gislar teknir þar. senni- lega í sambandi viS þessar skrár. ÞaS er nú kunnugt, aS ÞjóS- verjar hafa komiS 50 dönskum föngum fyrir á efsta lofti Shell- hússins í Kaupmannahöfn. auS- sjáanlega í því skyni aS veinda húsiS fyr>r loftárásum handa- manna. — MeSal þessara fanga eru Mogens Fog prófessor og Palm-Petersen, eftirlitsmaSui hjá ,,Brasilko“. Æ. F. R. 3. sella (Vesturbfer) heldur fund í kvöld kl. 814 á venjulegum stað.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.