Þjóðviljinn - 07.01.1945, Blaðsíða 1
I
10. árgangur. Sunnudagur 7. janúar 1945. 5. tölublað.
Myndasaga
hefst í blaðinu í dag.
Fylgist með þessari
skemmtilegu mynda-
sögu frá byrjun.
SBS
ssaai
ffa?rðír bardagar í Ardennafleygssieoi
Síðastliðinn sólarhring hafa bardagar mjög harðnað á Ar-
dennavígstöðvunum, og sækja Bretar og Bandaríkjamenn fram
á 50 km. víglínu á norðurhlið fleygsins, og eru komnir nálægt
einum aðalbirgðaflutningaveg Þjóðverja í fleygnum.
Vörn þýzka hersins er mjög hörð, og er talið að Þjóðverjar
hafi um 30 herfylki í Ardennafleygnum.
ELAS flyfur her sínn burt úr Aþenu og Píreus -
Alexander og MacMílIon komnír tíi Grikklands
Bardögum er hætt í Aþenu og Pireus. Stjórn grísku
þjóðfrelsishreyfingarinnar hefur ákveðið að fiytja her
sinn burt úr borgunum, og hafa komizt undan með meg-
inher sinn ósigraðan.
Hetjuvörn grísku ættjarðarvinanna í Aþenu hefur
borið þann árangur að brezka herstjórnin hefur neyðzt
til að falla frá úrslitakostum þeim, er hún setti ELAS-
hersveitunum, en þeir kostir voru í rauninni krafa um
skilyrðislausa uppgjöf.
Scobie hershöfðingi tilkynnti í gær, að hann hefði
íallið frá úrslitakostunum og væri nú reiðubúinn til
viðræðu við foringja þjóðfrelsishreyfingarinnar um
samkomulag.
Scobie færði sem ástæðu fyrir
þessari breyttu afstöðu þá stað-
reynd. að ELAS-hersveitirnar
væru á brott úr Aþenu og Pireus,
en játaði jafnframt, að þessi á-
kvörðun he'fði einnig verið tekin
vegna þess, að nú hefðu ELAS-
menn á valdi sínu fjölda brezkra
stríðsfanga, og þyrfti að ná sam-
komulagi um mál þeirra.
stjórnargrein um málið, og leggja
til með hörðum orðum, að hreins-
að verði almennilega til meðal
þeirra sem hafa með útlendingana
að gera. Morgentidningen segir, að
þetta sé smánarl)lettur, sem ekki
sé áuðvelt fynir Svíþjóð að þvo af.
Bh'iðin hafa yfirleitt sýnt. Pauls-
Tveir háttsettir Bretar, Mc-
Millan, fulltrúi Bretakonungs, og
Alexander marskálkur. komu til
Aþenu í gær og ræddu við Dama-
skínos ríkisstjóra og Plastiras h'ers-
höfðingja, sem nú gegnir forsætis-
ráðherrastörfum.
Brezka útvarpið flutti í gær þá
fregn, að ELAS-h ersveitirnar
hefðu haldið burt úr Aþenu á
ið hafa fram ýms óskemmtileg
smáatriði.
*
Paulsson var meðlimur sænska
Nazistafjokksins frá stofnun lians
1926, náinn vinur sænska „föringj-
ans“ Sven Olaf Lindholm, en kom
ekki opinberlega fram.
föstudagsnótt, og hafi brezkt her-
lið síðan unnið að því, að yfir-
vinna einstakar leyniskyttur, sem
cftir hefðu orðið, og leita að vopn-
um.
Brezkar sprengjuflugvélar réð-
ust á fylkingar ELAS-liða á veg-
unum -norður frá Aþcnu. og t()kst
að eyðileggja um hundrað farar-
tæki skæruhersins, að því er segir
í brezkri útvarpsfrétt.
Lét í Ij ós aðdáun
sína á Islandi
Laugardaginn 16. desember
flutti brezka útvarpið samtal við
James Wihittaker, sem dvalið hef-
ur á íslandi í tæp þrjú síðastliðin
ár sem fulltrúi berzku stjórnarinn-
ar hjá amerís'ku flotayfirvöldunum
á íslandi.
' Samtalið var flutt í þættinum
,,The World Goes By“ (um víða
veröld), og lét. Whittaker i ljós
mikla aðdáun á náttúrufcgurð Is-
lands, einlcum vetrarríki landsins,
tign öræfa, ]>ögn næturhúmsins og
logaleik norðurljósanna, scni hann
segir að sé 'yfirnáttúrlega fögur.
(Fréttatilkynning jrú ríkisstjórninni).
Grein um ísland í
málgagni Guðspeki-
félaganna
Blaðið „Theosophy in Action“,
málgagn Evrópudeildar Guðsþeki-
félaganna, flutti í desembcr grein
um Island eftir Viggu Jónsdóttur
hjúkrunarkonu. Segir þar frá sögu
ísland s og sjálfstæðisbaráttu, og
lýkur hcnniiineð þessum orðunr:
„Þegar horft er um öxl yfir sögu
ísla’nds, verður það ljóst, að fram-
farir hafa orðið því meiri. sem
kyndill frelsisins hcfur logað bjart-
ar. Því trúa íslendingar á mátt
frelsisins og héldu hátíðlegan fæð-
ingardag lýðveldisins 17. júní.að
Þingvöllum, þar sem þjóðþing vort
var fyrst sett“.
(Fréttatilkynning jrá ríkiss(jóminni).
Sunnar á vesturvígstöðvun-
um í Norður-Elsass, hefur 7.
bandaríska hernum tekizt að
stöðva sókn Þjóðverja.
Á Strassburgsvæðinu tókst
Þjóðverjum að brjótast vestur
yfir Rín og ná á vald sitt
pokkrum þorpum, en voru
hraktir úr þeim öllum nema
einu, 13 km. norður af Stras-
burg.
Rússar stöðva þýzka
gagnsókn norðvest-
ur af Búdapest
Það er nú Ijóst, að á víg.stöðv-
unum norðvestur af Búdapest hafa
Þjóðverjar hafið öfluga gagnsókn,
í því skyni að brjótast fram til
hins innikróaða setvliðs í borg-
inni.
t sovétfregnum er viðurkennt,
að í fyrstu hafi Þjóðverjum orðið
nokkuð ágengt, en sóknin hafi nú
verið stöðvuð og Þýóðverjar beðið
mikið hergagnatjón og manntjón.
I Búdapest sjálfri vinnur sovét-
herinn stöðugt á, en Þjóðverjar
i reyna að verja hvert hús. Hafa
þeir kveikt i heilum húsaröðum
til að reyna að stöðva Rússa, en
úrangurslaust.
S.S.-menn fyrir rétti
í Lúblin
Sex þýzkir S. S.-menn, sem rauði
herinn tók höndum í Póllandi, hafa
verið dregnir fyrir sérstakan dóm-
stól í Lúblin sem stríðsglæpamenn,
ákærðir fvrir morð og nauðgaiiir.
Mennirnir heita: Herman Vogel,
Anlhon Ternes, Wilhelm Ilarten-
meier, Theodor Schallen (allir
undirforingjar), og Heinz Stahl og
Edmund Pohlman.
Hartenmeier var kærður fyrir að
hafa kvalið konur með villimann-
legum hætti og myrt þær.
Schallen var „sérfræðingur" í að
brjóta tennur úr föngum.
Vogel hafði neytt fanga til að
gefa sér fé.
En Sthal og Pohlman nauðguðu
kvenföngum.
Roosevelt leggur á-
herzlu á samheldni
Bandamanna
Roosevelt Bandaríkjaforseti
sendi í gær þinginu hinn árlega
boðskap um heimsástandið og
innanlandsmál.
Lagði forsetinn áherzlu á, að
samvinna héldist með Banda-
mönnum einnig eftir stríð. Ár-
ið 1945 gæti orðið ár úrslitasig-
urs yfir nazismanum og á því
yrði að leggja grundvöll varan-
legs friðar.
Japanar óttast
innrás á Luzon
Japanir óttast nú mjög nýja
innrás á Filippseyjar og halda
í að í þetta skipti verði árásinni
beint að Luzon, þar sem höfuð-
borg eyjanna, Manila, stendur.
Segir í japönskum fregnum
að sézt hafi'til þriggja banda-
rískra innrásarflotadeilda í
nánd við Filippseyjar.
Það var á Luzon, sem Banda-
ríkjaherinn varðist fyrir þrem-
ur árum svo að frægt er orðið,
einkum í vörninni gegn ofurefli
liðs á Baatan og Corregidor.
Fyrstu bæjarstjórn-
arkosningar f Ólafs-
firði fóru fram í gær
Fyrstu bæjarstjórnarkosningarn-
ar fóru fram í Ólafsfirði í gær, og
var kosið um þrjá lista, frá Sósíal-
istajlokknum, Sjálfstœðisfloklcnum
og Framsókn. A kjörskrá voru um
490, en noklcru fyrir miðnœtti
höfðu 336 lcosið. Var ráðgert að
atkvœði yrðu talin í nótt.
Veður var slæmt í Ólafsfirði í
gær, hvasst og mikil snjókoma, og
hamlaði það kjörsókn nokkuð,
einkum úr sveitinni.
i lOFSKra ttt
flann afhenti Gsstapo upplýsingar um Korðmenn
Það hefur vakið gífurlega athygli í Svíþjóð, að það hefur
komizt upp um skrifstofustjóra í sænsku útlendinganefndinni,
Robert Paulsson, að hann hefur rekið njósnir um flóttamenn í
samvinnu við nazistanjósnarann John Lönnegren, forstjóra
Skandinavisk Telegrambyrá, er nýlega var handtekimf ,
Paulsson hefur útvegað upplýsingar um pólitíska flóttamenn
í Svíþjóð, sem komust til þýzku leynilögreglunnar gegnum
Lönnegren. Þessar upplýsingar sem einkum voru um flóttamenn
frá Noregi, hafa verið notaðar af Þjóðverjuin til að hefna sín á
ættingjum flóttamannanna.
Flest sænsku blaðanna birta rit-
son-málinu mikinn áhuga, og'kom-
♦
I