Þjóðviljinn - 17.01.1945, Blaðsíða 1
Hvirfingsfundur
í kvöld á venjulegvm
stað og tíma.
10. árgangur.
Miðvikudagou* 17. janúar 1945.
13. tölublað.
Súkoff byrjar sókn i Msð~PóUandi
í
Her Konéffs cr 19 km frá Krakow
Bandaríkjamenn
komnir þrið jung leið
arinnar til Manillu
Á Lúzon eru Bandaríkjamenn
komnir ya leiðarinnar til Man-
illu. Eru þeir komnir rúml. 50
km. upp í landið á 112 km.
langri víglínu.
Gagnáhlaup Japana, sem
lengi hafði verið búizt við, er
tlú hafið. — Eru nú háðar harð-
ar orustur.
Búið að ákveða
stund og stað
Roosevelt forseti sagði á
hlaðamannafundi í gær að bú-
ið væri að ákveða stund og stað
fyrir næsta fund þeirra Churc-
hills, Stalíns og hans.
Kvaðst Roosevelt leggja af
stað innan skamms.
1. Hvíta-Rússlandsherinn undir stjórn Súkoffs
marskálks hefur sótt fram í þrjá daga með miklum
hraða fyrir sunnan Varsjá.
Stalín tilkynnti í gærdag í dagskipun til Súkoffs,
að rauði herinn hefði brotizt gegnum varnarlínur Þjóð-
verja á vestari bakka Vislu á 120 km. kafla og sótt fram
allt að 65 km. á þrem dögum.
í annarri dagskipun í gærkvöld var tilkynnt að
her Súkoffs hefði tekið borgina Radom og samtals um
1400 bæi og þorp.
Her Konéffs er aðeins 19 km. frá Krakow og 64
km. frá Þýzkalandi.
Sóknin er hafin frá tveimur
stöðum á vesturbakka Vislu. —
50—100 km fyrir sunnan Varsjá.
— Báðir hlutar sóknarhersins hafa
nú náð saman og sækja fram 'á
samfastri, 120 km langri, víglínu.
—Sökum óveðurs hefur sóknarher-
I inn ekki notið neins stuðnings frá
flughernum, en stórskotaliðið lét
þeim mun meir að sér kveða.
Borgin Radom er við þjóðveg-
inn og aðaljárnbrautina frá Varsjá
til Karkow. — Ilún hafði 80.0000
íbúa fyrir stríð og var mikil iðn-
aðarborg. — Radom var afar mik-
Bretar í sókn fyrir norðvestan
/ Geilenkirchen
2. brezki herinn hóf sókn í gærmorgun á eystri
bakka Maas, skammt frá borginni Sittard, sem er 14
km. fyrir norðvestan Geilenkirchen.
Ráðast Bretar á fleyg, sem Þjóðverjar höfðu rekið
inn í varnarbelti bandamanna og er mjög annt um að
halda.
Sóknin gekk vel í gærkvöld.
Bandamenn hafa tekið Houffalize.
Messa í Rendalen
í norska héraðinu Österdalen,
sem er eitt af stærstu dalaher-
uðum Noregs, hafa nú næst-
um allir prestar verið settir af
eða gerðir útlægir. — í stað-
inn hafa söfnuðumir fengið
kvislingapresta.
En á þriðja jóladag kom
heiðarlegur prestur í heimsókn
til Rendalen í Österdalen og
messaði og skírði á eftir. —
Kirkjan var þéttskipuð og
margir komust ekki inn. —
Skímimar urðu ódæma marg-
ar, því að 32 böm 2—4 ára
gömul, voru skírð. — Flest
þeirra gengu sjálf inn kirkju-
gólfið til prestsins.
Sókn Breta hófst með stórskota-
hríð, en svo réðst fótgönguliðið
fram til atlögu. — Mótspyrna
Þjóðverja varð öflugri því lengra
sem Bretar sóttu fram.
Sökum þoku gat flugher Banda-
manna ekki veitt Bretum stvrk. —
Þeir eru þegar komnir gegnum öfl-
ugar varnarlínur.
Bandamenn tóku Houffalize
snemma í gærdag. — Miklir bar-
dagar eru háðir við veginn frá
Houffalize til St. Vith.
Bandamenn eru komnir yfir ána
Salm og eru um 10 km frá St.
Vith.
7. bandaríski herinn hefur unn-
ið á í áhlaupum sínum á land-
'svæði Þjóðverja á vcstari bakka
Hínar, fyrir norðan Stras'búrg.
Bandamemí nálgast Herlesheim'.
ilvægt virki og samgöngumiðstöð
í varnarbelti Þjóðverja. — Þar
komu saman varnarsvæði tveggja
þýzkra herja.
Rauði herinn er kominn fram-
hjá Radom á breiðum kafla og
stefnir til stórborgarinnar Lodz.
50 KM MlLLI
SÓKN ARHER JANNA.
Sá hluti hers Konéffs, sem berst
nálægt Kielce, er aðeins 50 km frá
her Súkoffs, og þrengist bilið óð-
um.
Sá fyrri tók um 500 bæi og þorp
í gær og er aðeins 19 km frá Kar-
kow og 64 km frá Þýzkalandi. —
Konéff er nú hálfnaður til þýzka
héraðsins Sohlesíu frá þeim stað,
sem sóknin hófst frá og hefur sótt
fram um næstum 160 km á 5 dög-
um.
Meðal borga þeirra, sem her Sú-
koffs tók í gær, eru Warka, Zwolen,
Dolets og Deblin.
Rauði herinn tók um 3000 fanga
í Búdapest í gær.
Þjóðverjar halda áfram að tala
um áihlaup Rússa á ýmsum öðrum
stöðum frá KarpatafjölLum til
Eystrasalts. — Þeir játa, að rauði
herinn hafi tehið bœinn PILL-
KALLEN, 15 km vestan landa-
mœra Austur-Prússlands, við járn-
brautina frá Tilsit til Eydtkuhnen.
Rauði herinn eyðilagði 277 skrið-
dreka fvrir Þjóðverjum á austur-
vígstöðvunum í gær.
■~"~r
Francostjórnm
sleppir ítöskum her-
skipum
Francostjórnin á Spáni hefur
látið laust eitt ítalskt beitiskip
og 4 ítalska tundurspilla, sem
hafa legið í höfn á Baleareyj-
um síðan Ítalía gafst upp.
Kotiéff marslcállcur stjómar sókn-
inni í Suður-Póllandi, — Bilið
milli hans og Súkoffs styttist óð-
um, — og Þýzkaland er aðeins 6Jj
km jramundan.
Franskt-þýzkt
samstarf
Nefnd frjálsra Þjóðverja í Vest-
ur-Evrópu hefur haft samvinnu
við franska heimaherinn. — Þjóð-
verjar þessir hafa tekið þátt í ýms-
um hemaðaraðgérðum franskra
skœrvliða, m. a. frelsun Parísár.
Tuttugu og þrír fulltrúar nefnd-
arinnar starfa nú með 1. franska
hernum í Alsace-Lorraine, og
flokkar Þjóðverja berjast með
frönsku hersveitunum, sem herja
á hina innikróuðu hópa Þjóðverja
í Atlanzhafshöfnum Frakklands.
í nefndinni eru um 2000 ^kipu-
lagðir félagar, en þeir reka áróður
meðal þýzkra stríðsfanga, sem
Frakkar hafa tekið, og ber hann
vaxandi árangur, sérstaklega með-
al menntamanna, verkamanna og
kaþólskra manna.
Þýzka nefndin útvarpar líka
reglulega frá Toulouse.
Yfirherstjórn Bandamanna á
vesturvígstóðvunum hefur ekki
leyft nefndinni ennþá að halda
uppi- áróðri meðal sinna fanga eða
með hátölurum á vígstöðvunum-,
eins og fulltrúar nefndarinnar gera
á vígsvœði 1. franska hersins.
Bandaríkjðmenn veita 170000 norsk-
um börnum mjóik og önnur matvæii
Frá því í ágúst 1943 hefur félag
Bandaríkjamanna til hjálpar
Norðmönnum (American Relief for
Norway) haft leyfi fjármálaráðu-
neytis Bandaríkjanna til að senda
50000 krónur í hverjum mánuði
til hjálparnefndarinnar í Stokk-
hólmi. — Þessir peningar hafa ver-
ið notaðir til að kaupa matvæli,
sem ábyrgar nefndir í Noregi út-
hluta til norskra skólabarna og
roskinna einstæðinga, sem geta
ekki séð fyrir sér sjálfir.
Þetta mánaðarlega framlag hef-
ur auðvitað alls ekki vérið nóg og
var send beiðni til Bandaríkja-
stjórnar og yfirvalda Bandamanna
yfirleitt um leyfi til að senda
stærri upphæð í hverjum mánuði.
— Eftir langar umræður fékk
American Relief for Norway þá
gleðifrétt í september s.l., að það-
an í frá mætti senda 150000 krón-
ur til Stokkhólmsnefndarinnar í
hverjum mánuði eða þrefalt meira
en áður.
1 Stokkhólmsnefndinni, sem nú
hefur starfað í 4y% ár, eru þrír
ágætir, sænskir Noregsvinir, þeir
Gösta Klemming, Erilc Lenender
ffg Oskar Sileen. — A meðan Nor-
egur er hérnuminn af Þjóðverjum,
leyfa þeir auðvitað ekki neinni
nefnd i Svíþjóð, sem Norðmenn
væru í, að úthluta styrknum frá
B a n d arí k j un um.
Opinberlega er tilkynnt, að
sænska Noregssöfnunarnefndin,
sem hefur safnað állt að einni millj.
króna mánaðarlega á stríðsárun-
um, hafi átt erfitt ineð að safna
jafnmiklu fé á síðast liðnu hausti.
— Það var því mjög mikilvægt,
að hið aukna tillag Bandaríkja-
manna byrjaði að koma einmitt
þá. — Fyrir mánaðartillagið frá
Bandaríkjunum fá 170000 norsk
börn mjólk og eina góða máltíð
daglega.
Bandaríska hjálparfélagið hefur
líka sent álitlegar birgðir af nauð-
synlegustu lyfjum fyrir milliaöngu
ameríska rauða krossins. — Hjálp-
arnefnd norsku stjórnarinnar hafa
einnig borizt miklar birgðir af nýj-
um og notuðum fötum frá Banda-
ríkjunum. — Er mestur hluti
þeirra kominn til enskrar hafnar
og verða þau sertd þaðan til Nor-
egs tafarlaust, þegar stundin er
komin.
Norskur her sækir
fram í Finnmörk
Norskur her hefur sótt fram
í Finnmörku frá Tana, sem
rauði herinn1 • frelsað, og til
Porsangerfjarðar.
Hann á nú í orustum við
Þjóðverja fyrir sunnan fjörðinn
Þjóðverjar hafa haft stöðvar
í Porsangerfirði fyrir flugvél-
ar til að ráðast á skipalestir á
leið til Murmansk.
Norðmenn 'hafa sótt fram
þarna yfir torsótt land, m. a.
tvö fjallaskörð.
Mestur hluti íbúanna í Finn-
mörku hefur komizt hjá nauð-
ungaflutningi Þjóðverja.