Þjóðviljinn - 17.01.1945, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 17.01.1945, Qupperneq 4
ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 17. janiiar 1945 §SIÓÐVILJI Útgefandi: Sameiningarjlplckur alþýðu — Sósialistafkikkurinn. Iíitstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson. Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 18, sími 8870. Afgreiðsla og auglýsingar: Slcólavörðustig 19, simi 818!,. Askriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði. Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja: Víkingsprcnt h.f., Garðastrœti 17. Viðskiptaráðið og heildsalarnir Sum blöð hafa verið að finna að því að Þjóðviljinn hefur gagnrýnt Viðskiptaráð í sambandi við heildsalahneykslið. „Á skal að ósi stemma“ — segir máltækið — og að svo miklu leyti sem hægt er að ráða við ósvífið g'róðabrall í auðvaldsskipulagi, þá var Viðskiptaráð í þessu tilfelli aðilinn, sem byrja þurfti á. Það er rétt að rifja upp í stuttu máli aðalatriðin í því máli: 1. Viðskiptaráð Coca-cola-stjómarinnar er skipað af einum aðalmanni heildsalastéttarinnar, Bimi Ólafssyni heildsala. 2. Alþingi reynir að tryggja það að þetta ráð verði ekki algert handbendi heildsalanna, með því að setja þau ákvæði ínn i lögin, að þeir sem hafi beinna hagsmuna að gæta í sambandi ▼ið innflutninginn megi ekki eiga sæti í því. 3. Viðskiptamálaráðherrann þáverandi brýtur þessi ákvæði — eða „fer í kringum“ þau — með því hvemig hatin skipar full- tróa innflytjendanna sem voldugustu menn í ráðið, en varast að neytendur eigi þar nokkum fulltrúa. 4- Tilgangur þings og þjóðar með lögunum var að stuðla að því að innkaup væru ódýr, álagning sem minnst og unnið væri þannig á móti dýrtíð. 5. Viðskiptaráð Coca-coíá-stjómarihnar framkvæmir þennan þjóðarviljá með því að skipuleggja innflutning og verðlagningu þannig: a) Að innflutningurinn sé í höndum tveggja stofnana. b) Að því dýrar sem menn kaupi inn, því meira fái menn að leggja á. c) Að reyna að hindra að þeir aðiljar, sem hugsanlegt væri að fæm að keppa við innkaupastofnanir heildsala og S. f. S., fái innflutningsleyfi. Með þessari tilhögun innflutnings og álagningar er gróðafíkn heildsalanna beinlínis gefið undir fótinn og dýr þjóðskaðleg inn- kaup verðlaunuð. 6. Allan þann tíma, sem coca-cola-stjómin og Framsóknar- valdið ráða, þá afla því heildsalamir sér of fjár með ýmist ólöglegri eða ósvífinni og þjóðarskaðlegri aukaálagningu vestan hafs — og coca-cola-valdið lætur þetta viðgangast. Það er vitanlegt að eins og almenningur kýs enn að hagað sé verzlunarháttum íslendinga, þá er ekki hægt að koma í veg fyrir gróða einstaklinga á verzlun. En það er hægt að koma í veg fyrir það að opinberar stofnanir beinlínis verðlauni einstaka gróðaménn fyrir að selja þjóðinni sem dýrast og eyða óþarflega, dýrmætum gjaldeyri hennar við innkaupin eða sölsa hann undir sig. Þess vegna er það að Þjóðviljinn leggur áherzlu á að breyta þurfi Viðskiptaráði og stefnu þess algerlega, jafnhliða því sem heildsalahneykslið er rannsakað og dómur látinn ganga í því. Og það er að öllum líkindum fleira en þetta sem athuga þarf i fari Viðskiptaráðs coca-cola-stjómarinnar, ef starfsemi þess er tekin til rannsóknar. En meðal annarra orða: Er Viðskiptaráðið að veita öllum þeim heildsölum, sem það hótar að taka innflutningsleyfin af, ef þeir ekki skila frum- reikningum, innflutningsleyfi fyrir þetta ár, þessa dagana? — eru allar hótanir þess aðeins til að slá ryki í augun á fólkinu? Áœtladar tekjur afveltuskatti 9-10 milljónir króna, aörir tekjuaukar um 5 millj. Þremwr tekjuöjlunarfrumvörjmm ríkisstjómarinnar var útbýtt á Alþingi í gœr, og eru áœtlaðar tekjur samkvœmt þeim ÍJ,—15 múljónir króna. Meiri hluti fjárhagsnefndar efri deildar flytur að tilmælum fjár- málaráðherra frumvarj) um veltuskatt, og frumvarp um gjald af sölu- verði fisks erlendis, en meiri hluti fjárhagsnefndar neðri deildar frum- varp um heimild fyrir ríkisstjórnina til að innheimta ýmis gjóld 191,5 með viðaulca. Frumvörpin og greinargerðir þeirra eru birtar hér í heild. — Þess skal getið að fjárhagsnefndarmennimir í efri deild (Har. G., Kr. Andr., Lárus Jóh., Magn. Jónss.) taka fram að þeir séu óbundnir um frum- vörpin. Veltuskattur Frumvarpið um veltuskatt er svohljóðandi: 1. gr. Einstaklingar og félög, sem hafa með höndum skattskyld- an atvinnurekstur, skulu greiða skatt í ríkissjóð af veltu ársins 1945 eftir reglum þeim, sem settar eru í lögum þessum. ■ 2. gr. Velta merkir í iögum þessum heildarandvirði seldrar vöru og þjónustu, hverju nafni sem nefnist, án frádráttar nokkurs kostnaðar, þar með talið andvirði vöru seldrar í umboðssölu að til- þoðasöfnun meðtalinni, úttekt eig- Cnda ög skiptí gégn vöru eða þjón- ustu. Sala fásteigna, skipa, eínka- leyfa, verðbréfa, krafnft eða ann- arra slíkra verðmæta og iðgjalda- tekjur vátryggingafélaga tdjast þó ekki velta í þessu sambandi og ekki heldur sala eigin vinnu. Til veltu telst hins vegar andvirði vinnu, sem seld er með álagningu (smíði, viðgerðir o. þ. h.), and- virði vinnu, sem gjaldandi hefur umsjón með gegn álagningu (mál- un, raflögn, trésmíði o. þ. h.), greiðslur til verktaka. flutnings- gjöld og afgreiðslugjöld, heildar- tekjur prentsmiðja, bókaútgef- enda, þvottahúsa, fatapressana, rakara- og hárgreislustofa og þess háttar fyrirtækja, sala klæðskera- verkstæða og saumastofa, sala matsölu- og veitinga- og gistihúsa, aðgangseyrir að skemmtunum, sem skemmtanaskattur er greidd- ur af, og yfirleitt heildartekjur þeirra fyrirtækja, sem selja vöru, efni, vinnu eða aðra þjónustu með álagningu. 3. gr. Skattur sá, sem um ræð- ir í 1. gr., skal nema sem hér segir: 1. af heildsölu- og umboðssölu 1%%, þó aldrei yfir 25% af fengn- um umboðslaunum; 2. af smásöluveltu 1%; 3. af veltu iðju- og iðnfyrirtækja sem og allra annarra fyrirtækja, sem hafa gjaldskylda veltu sam- kvæmt 2. gr., 1%. Eigi skal þó greiða skatt af veltu þeirri, sem hér segir: 1. a. andvirði vöru, sem seld er úr landi; b. andvirði mjólkur og mjólkur- afurða, kjöts, nýs, frosins, reykts og saltaðs, fisks, nýs, frosins og saltaðs, að síld meðtalinni, þegar vörur þessar eru seldar af fram- leiðanda þeirra eða í heildsölu; 2. veltu þeirra, sem eru ekki bókhaldsskyldir, sbr. lög um bók- hald, nr. CO 11. júní 1938. 4. gr. Fyrirtæki þau, sem skatt- skyld eru samkvæmt lögum þess- um, skulu innan tveggja vikna eftir .lok hvers ársfjórðungs senda skattstjóra eða skattanefnd skýrslu Um veltu sína á undan- gengnum ársfjórðungi. Skulu hinir síðarnefndu ákveða gjaldið innan tveggja vikna og ,það síðan greið- ast tollstjóranum í Reykjavík eða sýslumönnum og bæjarfógetum ut- an Reykjavíkur fyrsta dag næsta mánaðar. Hafi skatturinn eigi ver- ið greiddur innan eins mánaðar frá gjalddaga, reiknast af honum dráttarvextir. %% á mánuði, og telst hver byrjaður mánuður sem heijl, 5. gr. Skattstjórum og skatta- nefndum er heiinilt að krefjast af gjaldendum hverra þeirra gagna, sem telja má nauðsynleg til skýr- ingar á veltuframtalinu. Gefi gjaldandi ekki skýrslu um veltu sína á tilskildum tíma ,eða telji skattstjóri eða skattanefnd fram- tali ábótavant, skal þeim heimilt að áætla veltu gjaldandans og á- kveða gjaldið eftir því. Komi í Ijós, að veltuskatturinn hafi verið ákveðinn á röngum forsendum, er skattstjórum og skattanefndum heimilt að breyta fyrri ákvörðun sinni. Telji gjaldþegn gjald það, sem honum er gert að greiða, rang- lega ákveðið, hefur hann rétt til að áfrýja þeirri ákvörðun til yfir- skattanefndar og ríkisskattanefnd- ar. 6. gr. Ef skattstjóri eða skatta- nefnd telur það nauðsynlegt til að geta áætlað veltu gjaldanda eða til skýringar á framtali hans, skal þeim heimill aðgangur að skýrsl- um þeim um þessi efni, sem við- skiptaráð og verðlagsstjóri hafa undir höndum. 7. gr. Veltuskatt þann, sem um ræðir í lögum þessum, er ó'heimilt að telja í kostnaðarverði vöru eða taka á annah hátt tillit til hans við verðákvmrðun. 8. gr. Samvinnufélögum og samvinnusamböndum er ekki skylt að leggja í varasjóð gjald af við- skiptaveltu sinni á árinu 1945, sbr. lög um samvinnnfélög nr. 46 13. júní 1937. 9. gr. Skattur þessi er ekki frá- dráttarbær við ákvörðun skatta á tekjur. 10. gr. Ráðherra er heimilt að ákveða í reglugerð, að vissir flokk- ar gjaldenda auk þeirra, sem áður voru nefndir, skuli undanþegnir veltuskatti, ef álagning hans er talin sérstökum erfiðleikum bund- in. í reglugerð skal og ákveða um meðferð kærna og kærufrest. 11. gr. Um viðurlög fyrir brot gegn lögum þessum fer að lögum um tekju- og eignarskatt, nr. 9 6. jan. 1935. 12. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. GREINARGERÐ. Meiri hluti fjárhagsnefndar (IIG, KA, LJóh og MJ) flytur frumvarp þetta að tilmælum fjár- málaráðherra, en nefndarmenn eru óbundnir um frumvarpið. Frv. fylgdu eftirfarandi athugasemdir. „Frumvarp það, sem hér liggur fyrir, er eitt þeirra skattafrum- varpa, sem ríkisstjórnin hefur tal- ið nauðsynlegt að leggja fram. Það er alkunna, að þeir, sem stundað hafa verzdun og viðskipti hvers konar á síðustu árum, hafa búið við góða afkomu. Þess vegna hefur þótt hlýða, að þeir bæru að sínum hluta þá hækkun á skött- um, sem nú er óhjákvæmileg, og miðar frumvarp þetta að því. Gjaldskyldir samkvæmt frv. eru yfirleitt þeir, sem selja vöru, efni, vinnu eða aðra þjónustu með á- lagningu, og hefur skatturinn ver- ið miðaður við veltu þeirra. Þó hefur þótt rétt að undanskilja þessum skatti þá vöru, sem seld er úr landi, og enn fremur ýmsar innlendar afurðir, svo sem mjólk og mjólkurafurðir, kjöt og fisk, þegar framleiðendur selja þessar vörur eða þær eru seldar í heild- sölu. Þá hefur og ekki þótt fram- kvæmanlegt að innheimta skatt- inn hjá þeim, sem ekki eru bók- haldsskyldir. Ekki hefur verið hægt að afla nákvæmra skýrslna um það, hversu miklar tekjur skattur þessi muni færa ríkissjóði, en lauslegar athuganir benda til þess, að þær muni nema ca. 9—10 millj. króna“. Frumvarp til laga um heimild fyrir ríltis- stjórnina til að innheimta ýmis gjöld 1945 með viðauka L gr, Rikissjjórnínni er heim- ilt til ársloka 1945 að innheimta með 100% viðauka vitagjald, þær aukatekjur ríkissjóðs, sem taldar eru í I.—VI. kafla laga nr. 27 27. júní 1921, stimpilgjald samkvæmt lögum nr. 75 27. júní 1921 og síð- ari lögum, sem' hafa ákvæði um stimpilgjald, leyfisbréfagjöld og lestagjöld. Enn fremur heimilast ríkis- stjórninni að innheimta mpð 50% viðauka gjöld samkvæmt lögum nr. 60 30. des. 1939, 2. gr., um gjald af innlendum tollvöruteg- undum, og eignarskatt samkvæmt 14. gr. laga nr. 6 9. jan. 1935. 2. gr. Viðaukann skal reikna þannig, að hver gjaldeining hækki um þann hundraðshluta, sem um ræðir í 1. gr., en broti úr eyri, sem myndast við viðbót þessa, skal sleppt. 13. gr. Með lögum þessum eru lög nr. 54 12. okt. 1944 numin úr gildi. 4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. GREINARGERÐ. Um nokkur undanfarin ár hefur Alþingi heimilað ríkisstjórninni með lögum að innheimta stimpil- gjald, aukatekjur og vitagjald með 40% viðauka, og á s.l. ári var enn veitt sams konar heimild fyrir ár- ið 1945. Síðan þau lög voru sett, hefur komið í ljós, að tekjur þær, sem gert er ráð fyrir í fjárlögum þessa árs; munu engan veginn hrökkva fyrir óhjákvæmilegum út- gjöldum ríkisins á þessu ári. Með frv. þes9u er ætlazt til, að nokkuð verði bætt úr tekjuþörf ríkissjóðs með því að heimila ríkisstjórninni að innhcimta framanskráð gjöld með 100% viðauka í stað 40%, auk þess.sem bætt er við heimild til að innheimta leyfisbréfagjöld og lestagjald af skipum með sama | viðauka. Öll þessi gjöld hafa um álllangt skeið staðið óbreytt, og | mcð tilliti til verðfaiis penmga á undanfornum árum verður ekki talið ósanngjarnt, að þau séu hækkuð um 100% frá því, sem þau voru ákveðin upphaflega. Þá er einnig lagt til, að gjöld af innlendri framleiðslu tollskyldri séu hækkuð um 50%. Þessi gjöld voru ákveðin með lögum nr. 60 1939, áður en styrjöldin skall á, og verður að ætla, að þessi framleiðsla geti vel borið þá hækkun, sem hér er gert vkp fyrir. Enn fremur er lagt til, að eign- arskattur sé hækkaður um 50%. Væntanleg tekjuaukning á þessu ári, ef frv. verður samþykkt, er áætluð sem hér segir: Af vitagjaldi ....... kr. 120000.00 Af aukatekjum .... — 320000.00 Af stimpilgjaldi .... — 680000.00 Af leyfisbréfagjaldi . — 50000.00 Af lestagj. af skipum — 60000.00 Af innl. tollvörugj. . — 750000.00 Af eignarskatti .... — 850000.00 Kr. 2830000.00 Frv. til laga um gjald af söluverði f isks erlendis 1. gr. Einstaklingar og félög, sem selt hafa ísvarinn fisk erlend- is á árinu 1944, skulu greiða gjald í ríkissjóð samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í lögum þessum. 2. gr. Af heildarsöluverði þess fiskafla, sem veiddur hefur verið í skip, er siglt hefur með hann sjálft til sölustaðar erlendis, skal greiða gjald, er nemi 2%. 3. gr. Heildsöluverð samkvæmt 1. gr. telst sú upphæð, sem erlend- ur kaupandi greiðir fyrir fiskinn án frádráttar umboðslauna eða 'nokkurs annars sölukostnaðar. 4. gr. Þeir aðiiar, sem gjald- skyldir eru samkvæmt Iögum þess- um, skulu senda skattstjórum eða skattanöfndum skýrslu um gjaid- Óæðri manntegund? Framhald af 3. síðu. sínar svo langt aftur í tírr.an um. Eg fyrir mitt leytr er ekki í neinum vafa um lyktir þessa máls málanna okkar kvenfólks- ins og þess er skylt að geta, að þeir menn eru ekki allfáir, sem viðurkenna hinn sjálfsagða rétt konunnar til sömu launa fyrir sömu vinnu, en hefðbundnar venjur eru alltaf erfiðastar við- fangs og svo rótgróið er það álit fjölda fólks, að konan se manninum óæðri og eftirbátur hans um flest, að jafnvel okkar eigin kynsystur, margar hverj- ar, fást ekki til að endurskoða orsakir þessa álits. Því ánægju- legra er að sjá þann skilning á málUnum, sem nýi forsætis- ráðherrann okkar hefur sýnt nú nýverið, með því að skipa kven fulltrúa í utanríkisráðuneytið, þann fyrsta í sögu stjórnarráðs- ins. Það gefur góð fyrirheit. Island ætlar sér að verða fyrirmyndarland á sviði ýmsra þjóðfélagsmála. Þetta mál, sem hér hefur verið hreyft að fram- an, hlýtur að verða þar ofarlega á baugi, því að á meðan konan er beinlínis látin gjalda þess að hún er kona, er ekki hægt að tala um fyrirmyndarþjóðíélag, og á meðan fara starfskraftar forgörðum, sem telja verður hreina sóun. Nanna Ólafsdóttir. skylda sölu sína á árinu 1944, og skal hún fylgja franitali til skatts fyrir það ár. Um frest til afhend- ingar á skýrslum þessum gilda sömu ákvæði og um framtöl til tekju- og eignarskatts. Gefi gjaldandi ekki skýrslu um sölu sína á tilskildum tíma, er skattstjórum og skattanefndum heimilt að miða upphæð gjaldsins við skýrslur þær, sem Fiskifélag Is- lands fær um sölu, fisks erlendis, sbr. reglugerð nr. 13 16. jan. 1934. 5. gr. Gjald það, sem um ræðir í lögum þessum, er ekki frádrátt- arbært við ákvörðun skatts á tekj- ur. 6. gr. Um gjalddaga, lögtaks- rétt, viðurlög og innheimtu gjalds þess, sem um ræðir í lögum þess- um, fer að lögum um tekju- og eignarskatt, nr. 6 9. jan. 1935. 7. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. GREINARGERÐ. Frumvarp þetta er flutt af meiri hluta fjárhagsnefndar (HG, KA, LJóh og MJ) að tilmælum fjár- málaráðherra, en nefndarmenn eru óbundnir að öðru leyti um málið. Frv. fylgdu eftirfarandi athuga- semdir. „Frumvarp þetta gerir ráð fyrir, að lagt verði sérstakt gjald á afla- sölu þeirra 'skipa, sem sigla með eigin veiði á erlendan markað. Það er vitað, að afkoma þeirra skipa, sem haft hafa slíka aðstöðu, hefur verið góð og að ýmsu leyti betri en annarra veiðiskipa. Þykir því eðlilegt, að þeir aðilar, sem hér ejga hlut að máli, greiði á þennan hátt nokkurn hluta af skatta- hækkunum þeim, sem óhjákvæmi- legar eru. Tekjur ríkissjóðs samkv. frum- varpi þessu munu nema rúmlega £.1 milljón króna“. FIÚBielllF H Framhald af 2. síðu. b. í ísafjarðarkaupstað. c. Á Akureyri. d. Á Austfjörðum. é. Á Vestfjörðum. 4. gr. Tfl öryggis flugsamgöngum skulu vera þráðlausar talstöðv- ar á 1. og 2- flokks flugvöllum, svo og annarsstaðar er nauðsyn krefur. 5. gr. Atvinnumálaráðuneytinu er heimilt að gera samninga við einstaka landeigendurtilþess að tryggja lendingarstaði fyrir smáflugvélar á landi, sem til þess henta, án þess að gerðar verði rennibrautir. 6. gr. Kostnaður við gerð, rekstur og viðhald þeirra flugvalla, og lendingarstaða, sem um getur í Jögum þessum, ásamt nauð- synlegum mannvirkjum, tækj- um og búnaði, greiðist úr rík- issjóði eftir því serrt fé verður veitt til í fjárlögum. Áður en fé er veitt til nefndra framkvæmda, skal hafa farið fram nákvæm rannsókn °g liggja fyrir kostnaðaráætlun um framkvæmd verksins. 7. gr. Atvinnu- og samgöngumála- ráðherra skal setja á stofn sér- staka stjóm flugmála, þegar tímabært þykir, og fellur þá niður starf flugmálaráðunautar ríkisins. Forstöðumaður þessar- ar stofnunar nefnist flugmála- stjóri. Þar til þessi skipan verð- ur gerð, hefur atvinnu- og sam- göngumálaráðuneytið stjórn þeirra mála, sem greinir í lög- um þessum, og er vegamála- stjóri og flugmálaráðunautur ráðuneytinu til aðstoðar við framkvæmd þeirra. Ríkisstjórnin setur með reglu gerð ákvæði um afnot og rekst- ur þeirra flúgvalla og lending- arstaða, sem um getur í lögum þessum. Kostnaður við stjórn flugmála og rannsóknir og undirbúning þeirra framkvæmda, er í lögum þessum getur, greiðist úr ríkis- sjóði. 8. gr. Ríkisstjóminni er heimilt að taka eignarnámi vegna loft- ferða lóðir, lóðarréttindi og mannvirki. Landeiganda er skylt, gegn hæfilegu endurgjaldi, að láta af hendi jarðefni til nauðsyn- legra mannvirkja vegna loft- ferða. 9. gr. Bætur fyrir eignamám á landi og mannvirkjum til flug- vallargerðar í Reykjavík skulu metnar af dómurum hæstarétt- ar ásamt tveimur mönnum, er hæstiréttur nefpir. Að öðru leyti skal fara eftir lögum nr. 61 14. nóv. 1917 um framkvæmd eignamáms á landi og mann- virkjum svo og um bætur fyrir jarðrask samkvæmt 8. gr. 10. gr. Landeigandi á bætur allar fyr ir landnám, jarðrask og átroðn- ing, en sé jörð leigð öðmm, skal matsnefnd meta, hve mik- ill hluti bótanna skal ganga til leiguliða. 11. gr. Skaðabóta er leiðir af ■ gerð mannvirkja, er um ræðir í lög- um þessum, skal krefjast innan árs frá því, er verk það var unnið, sem skaðanum olli, ella fellur réttur til skaðabóta nið- ur. 12. gr. Með lögum þessum em úr gildi numin lög nr. 20 28. maí 1941, um breyting á lögum nr. 39 14. iúní 1929, um loftferðir. tAWVWVVVrtftTiA/VV^nAiVWWV'i 'Miðvikudagur 17. janúar 1945 — ÞJÓÐVILJINN Húseigendur og hús- ráðendur í Reykjavík eru alvarlega áminntir um, að tilkynna nú þegar Manntalsskrifstofunni, Austurstræti 10, ef einhver í húsum þeirra hefur fallið út af manntali síðastl. haust, svo og» ef ein- hverjir hafa síðan flutt í hús þeirra. Sömuleiðis ber öllum að tilkynna brott- flutning úr húsum þeirra, og hvenær hann varð og hvert var flutt. Vanræksla við þessu varðar sektum. BORGARSTJÓRINN. í—I cö C/D 03 crj 'O X < 04 H t/i 04 < H Z < > < o 2 >—< O z D !S * § S .s ^ *© n oo 3 S 'S % .. ,Q ° <M Sc« *s S - .s ‘S afs © s > be C/2 03 S I 1 > V 3 A *© Sh '3 ri :© bfi > S « 3 S 'O “ *© cj ;o s A a -3 *© *© u pS O) © -° & bB S & s 05 I-H _ 3 «© S3 -*£ *e? -m :© > Ballkjólar á 1 árs, 2 ára og 3 ára.. Verð 30 kr. til 50 kr. ERLA Laugaveg 1 2 MUNIÐ Kaffisöluna Hafnarstræti 16 Kaupum tuskur allar tegundir hæsta verði. HÍJSGAGNA- VINNUSTOFAN Baldursgötu 30. Simi 2292. Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur SKEMMTIFUND $ £ fyrir félagsmenn og gesti þeirra föstud. 19. jan. n. k. kl. 8.30 e. h. í samkomuhúsinu Röðli, Laupraveg 89. f Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu félagsins á morgnn f (fimmtud) kl. 4—7. J. í Dagskráin verður auglýst í Þjóðviljanum á morgun. *í £ Nefndin. MvvuiAmwuwwvmwwwvwwvvwwvvwwwuvvmwM SKRIFSTOFUPLÁSS ■ ÓSKAST. LOFTLEIÐIR H. F. Símar 5535 og 1485. ■ Höfum fyrirliggjandi VETRARFjRAKKA * Mjög lágt verð. Verzlun H. Toft Skólavörðustíg 5.'— Sími 1035. iWAíWWtf 6 manna ávaxtasett Verð kr. 11.50. Gjafasett verð kr. 29.00 3 stk. Skálasett — — 17.30 3 stk. ísskápas. — — 20.00 Ölsett — — 135.00 Sykursett — ,— 2.40 Vinglös — — 4.65 Vatnsglös verð kr. 1.00—1.20 Bollapör — — 5.00—5.70 Kaffistell kr. 48.20—135.00 Verzlunln NÓVA Barónsstíg 27. — Sínii 4519. Uilartausgallar á 2 til 8 ára. Verð 60 kr. ★ ERLA Laugaveg 12. Málflutningsskrifstofa Áki Jakobsson Sigurhjörtur Pétursson. Lögfræðingar Jakob J. Jakobsson Klapparstíg 16- Sími 1453. Málfærsla, innheimta, reikningshald, endur- skoðun.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.