Þjóðviljinn - 02.03.1945, Side 1

Þjóðviljinn - 02.03.1945, Side 1
10. árgangur. Föstudagur 2. marz 1945. 51. tölublað. Þessí míkla ídnadar- og samgöngumíðsiöd var tékín naesium án bardaga Árnaðaróskir Banda- ríkjaforseta til forseta íslands og íslenzku þjóðarinnar Forseta íslands barst þ. 27. þ. m. svohljóðandi sím- skeyti frá forseta Banda- rikjanna: ,,Leyfiö mér aö færa yð- ur einlœgar árnaðaróskir mínar í tilefni af afmæli yð- ar og beztu óskir um ham- ingju yður til hanfia og vel- farnað íslenzku þjóðarinn- ar. Franklin D. Roosevelt“. 9. bandaríski herinn, sem litlar opinberar fregnir hafa farið af að undanförnu, tók borgina Miinchen- Gladbach í gær næstum bardagalaust. Borgin er mikilvæg vefnaðariðnaðarmiðstöð og sam- göngumiðstöð. — Koma bar saman 5 jámbrautir og 3 þjóðvegir. — Borgin hafði 120.000 íbúa fyrir stríð, en hefur haft a. m. k. 200.000 íbúa á stríðsárunum. 1. herinn færðist nær Köln í gær, þrátt fyrir harð- vítuga mótspyrnu, og tók 26 bæi og þorp á leiðinni. 3. herinn er kominn inn í úthverfi Triers. Mundhen-Gladbach er 20 km. fyrir suðvestan borgina Diisseldori' sem er á eystri bakka Rínar. — Seint í gærkveldi fréttist, að 9. herinn héldi á'fram sókn í átt til Rínar. — Hann tók 9 bæi að auki. Miinchen-Gladbach var ein af aðalvarnarstöðvum Þjóðverja vestan Rínar. — Miklar loftárás- ir hafa verið gerðar á hána, m. a. var varpað niður á hana 240000 íkveikjusprengjum nótt cina í septembér s. 1. Fótgöngulið 9. hersins tók borg- ina klukkan 6 í gærkveldi. Virð- ist þýzki herinn þá hafa verið hörf aður úr henni að mestu. 8 KM. FRÁ KÖLN 1. bandaríski herinn tók 26 bæi og þorþ á leiðinni til Kölnar og er nú um 8 km. frá borginni. Yfirherstjórn Bandamanna lét útvarpa í gær ávarpi til íbúa Kölnar. Voru þeir varaðir við að flýja borgina, — miklar loftárásir . yrðu gerðár á járnbrautir og brýr austan börgarinnar. 1. herinn er kominn yfir ána Erft á 3 stöðum og hefur 22 km. kafla af ánni á sínu valdi. í ÚTHVERFUM TRIERS 3. lierinn komst í gær inn í út- liverfi Triers frá tveimur hliðum. — ILann tók 50 bæi og þorp í gær og um 3000 fanga. BARIZT í KREWENIIEIM OG WESSEL , Nyrzt á vésturvígstöðvunum Her Rokossovskis sagður vera í þann veg inn að króa íjölda Þjóðverja inni Hersveitir Rokossovskis héldu áfram sókn í gær norðvestur og norður frá Neustettin. — Segja frétta- ritarar, að þær séu komnar nálægt borginni Köstin, sem síðustu járnbrautirnar, sem enn eru á valdi Þjóð- verja milli Danzig og Stettin, liggja í gegnum. — Flug- vélar eru þegar sagðar hafa stöðvað alla umferð eftir þessari leið. > Er talið, að 250.000—300.000 þýzkra hermanna séu í innikróunarhættu. Iler Rokossovskis hefur breikk- að svo mjög fleyg sinn í Pommern, að þar er í rauninni ekki lengur um fleyg að ræða, heldur stóra geil, 30—50 km breiða, sem veitir þeim mikið svigrúm. — Sóttu þær fram um a. m. 8 kpi í hvorum fylk- ingararníi í gær samkvæmt opin- berum fréttum. VIÐBÚNAÐUR í DANZIG. Forstet, héraðsstjóri nazista í Danzig, hefur skipað öllum, sem vettlingi geta valdið, að vinna að því* að efla víggirðingar Danzigs. — Flóttafólki er líka skipað að vera með. Þjóðverjar segja þýzka flotann hafa flutt 650.000 fÍóttamenn frá Austur-Prússlandi. 2 ÚTHVERFI BRESLAUS. Raúði herinn tók enn 2 af út- hverfum Breslauí og 10 húsasam- stæður í borginni. VINNUR Á í SLOVAKÍU. Rauði herinn sækir fram fyrir vestan Lucinets í Tékkoslovakíu yfir mjög torvelt land. — Tók harin 7 bæi þar. SlÐUSTU fréttir. Ostaðfestar fregnir herma, að her Kohéffs sœlci fram á 60 km víglínu í Slésíu og geri áhlauy á borgimar Cottbus og Görlitz. framsókn Bandamanna að undan- förnu. Þarna eru háðir harðir fótgöngu- liðsbardagar. / febrúar tóku Bandamenn nœst- um 76.000 fanga á vesturvígstöðv- unum. ; . / gœr komu helztu hershöfðingj- amir saman til viðrœðna í aðal- stöðvum Montgomerys. Álit 2500 Dana á dauðarefsingu í Danmörku hafa 2500 menn í öllum stéttum verið spurðir, hvort þeir óskuðu eftir, að dauðahegning væri lögtekin aftur. — 33% svör- uðn já, 55% svöruðu nei. Á meðal verkamanna vom að- eins 30% meðmæltir dauða'hegn- ingu, og meðal kvenna aðeins 22%. Aftur á móti svöruðu 74% af öll- um aðspui'ðum því játandi. að rétt væri að gera 'dönsku hegning- arlögin miklu strangari. Innrás á Palawan Hersveitir MacArthurs hafa ráðizt til landgöngu á Palawan, fimmtu stærstu ey Filippseyja. Bandaríkjamenn hafa eytt helmingi setuliðs Japana á eynni Oví. Kínverjum í strandhéruðum Kína, sem eru á valdi Japana, hefur verið sagt að vera við því búnir, að Bandamenn geri innrás þar, — og hjálpa þeiin þá eftir mætti. Cripps verður leyft að ganga aftur í Verka- mannaflokkinn Einn af starfsmöpnum brezka Verkamannaflokksins hefúr skýrt svo frá, að Sir Stafford Cripps flugvélaframleiðsluráðherra yrði bráðlega leyft að ganga aftur i flokkin n. Sir Stafford sótti fyrir nokkrtim mánuðum síðan um inngöngu aft- ur í flokkinn. Honum var vikið úr flokknum fyrir nokkrum árum vegna þess að flokksstjórninni þótti hann of róttækur. hafa Bandamenn brotizt inn í bæina Krewenheim og Wessel. — Eru þeir meðal þeirra virkja Þjóðverja, sem mest hafa tafið. manndrápafangabúðum Þúsundum bjargað úr Rauði herinn hefur bjargað all- mörgum þúsundum af fólki úr hinni alræmdu manndrápaverk- smiðju nazista í Oswiecim’ í Pól- landi, þar sem þeir eru taldir hafa myrt hálfa aðra milljón manna. Þetta sláturhús nazistanna var búið fljótvirkum tækjum, hafði nokkra gasklefa og rafmagnaðar rennibrautir, sem drápu fólkið og fluttu það ^amstundis inn í lík- brennsluofnana. Það hafði sjérstak- an útbúnað til að drepa ungbörn. Á meðan fangabúðirnar voru í Fimm Islendingar komnir beim frá Svíþjóð Fimm íslendmgar eru nýkommr heim frá Svíþjóð. i Eru það þeir dr. Sigurður Þór- arinsson, Sigurður Jóhannesson veikfræðingur, Þorbjörn Sigur- gei sson magister, Ásgeir Einars- son og Regína Metúsalemsdóttir. notkun komu þangað 5—8 lokaðar járnbrautarlestir með fólk frá her- numdum héruðum Sovétríkjanna, Póllandi, Frakklandi, Júgoslavíu og Tékkoslovakíu. — Lestirnar fóru alltaf tómar aftur frá fanga- búðunum. Arshátíð Sósíalistafélags Reykjavíkur ij Sósíalistafélag Reykjavíkur minnist 6 ára afmælis fé- lagsins með árshátíð í Listamannaskálanum í kvöld. Hefst árshátíðin kl. 8.30 með því að formaður félagsins, Ársæll Sigurðsson, flytur ræðu um Sósíalistafélag Reykja- víkur 6 ára. Einar Olgeirsson talar um Krím-ráðstefnuna og Sígfús Sigurhjartarson um prent- smiðju handa Þjóðviljanum. Þá sýnir Sif Þórz listdans og leikið verður á guitar. Að lokum verður dansað. Aðgöngumiðar að árshátíð- inni eru seldir í skrifstofu Sósíalistafélagsins á Skóla- vörðustíg 19, og verður það sem óselt kann að vera selt þar í dag kl. 4—7. Er því ekki seinna vænna fyrir þá, sem ætla að tryggja sér að- göngumiða, að gera það á þeim tíma, því lítið er óselt.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.