Þjóðviljinn - 02.03.1945, Síða 2
2
Þ JÓÐVIL JINN
Föstudagur 2. marz 1945.
Framtíðarhöfn á Suðurnesjum
í' eftirfarandi grein, sem Þjóðviljanum hefur borizt til birt-
ingar ræðir greinarhöfundur um byggngu nýtízku útgerðarbæj-
ar í Sandgerði. Þá deilir hann og allhart á aðbúnað þann sem
sjómenn í verstöðum á Suðunmesjum verða nú við að búa.
Um langan tíma hefur verið
útvegur á Suðurnesjum, rekinn
við mjög erfið skilyrði, en þó
af mjög miklum dugnaði af
þeim, semfrar hafa búið. Hafnir
hafa engar verið. svo þar af
hefur leitt mjög mikla skiptapa
og skaða inni á legustöðvum
bátanna.
Fyrir utan það hve það hefur
verið torsótt að sækja sjó undir
þeim kringumstæðum, sem sjó-
menn hafa gert á áratugi svo
sem flutning á stömpum, og
áður fyrr á fiski, á litlum bát-
um út í bátana í misjöfnu veðri
í- svarta myrkri um hávetrar-
í tímann, er merkilegt hvað vel
hefur til tekizt að ekki hafa
fleiri slys af þeim ferðalögum
hlotizt. Við þessi skilyrði hefur
í- áratugi verið ausið upp afla
milljónakróna virði. Fiskitæki,
milljónakrónavirði, skókust fyr
ir vindi og sjó rétt fyrir utan
strand brotsjóina, tilvera þeirra
hangandi á hálmstrái og mann-
anna með sem í bátunum voru.
Áratugir eru liðnir^ engar
hafnir; milljónir króna á land
af verðmætum úr sjónum á , ó-
beizlaða ströndina. Hafnarmann
virki hafa komið annarsstaðar.
Sumst. á þýðingarminni staði.
Borgarnes — Sandur — uppi á
landi að mestu leyti — Bolung-
arvík^— Hnífsdalur — Skaga-
strönd, sem vafalaust á mikla
framtíð fyrir sér síðar, en Suð-
urnesin eru nær, og fleiri staði
er hægt að telja upp sem fyrir
hafa gengið í hafnarbótum.
Nú er komið að Suðurnesjun-
um með hafnargerð, Hvar á sú
höfn að vera? Eg tel margt
mæla með því að beri að velja
öllum stöðum frekast Sand-
gerði.
Vil ég leitast við að færa mín
rök fyrir skoðun minni.
1. Frá Sandgerði er stytzt á
ffekimið að öllum jafnaði.
2. Hafnarstæði er sízt lakara
hvað snertir dýpt og stærð lík-
lega heppilegri botn, sennilega
betri til dýpkunar ef marka má
við núverandi bryggjur, og síð-
ast: að skerin, sem hingað til
hafa verið notuð sem varnar-
virki, gætu verið sem brimbrjót
ar áfram og hin nýju hafnar-
rr^annvirki yrðu sett innan við
þau.
3. Sandgerði er góð, jafnvel
öruggasta og bezta veiðistöð
landsins, hefur verið það og
verður það líklega langan ald-
ur ennþá.
Þar er lítið farið að gera sem
raskaðist þótt hafizt væri
handa méS stórar framkvæmd-
ir, gerðar án tillits hvar eldri
mannvirki stæðu.
Það er nú svo, að aðgerðar-
hús, beitingarhús, geymsluhús
og líka hraðfrystihúsin hafa
verið sett niður út um hvippinn
og hvappinn, þar sem útvegs-
mönnum hefur hentað í það og
það sinnið, án þess að litið væri
til þess, sem hagnýtast væri og
mest til frambúðar.
Það hefði vafalaust verið
heppilegast í upphafi að ákveð-
in teiknistofa hefði farið hönd-
um um öll byggingarplön allra
sem byggt hafa vinnuhús. frysti
og niðursuðuhús, og ekki leyft
nema þau sem möguleiki var á
að setja í öll tæknileg þægindi
og tryggt væri að kostnaður
við væntanlega vinnu yrði sem
minnstur.
í Sandgerði ætti ríkið eða ný-
byggingarráð að koma upp full-
komnustu verbúðum með hrað-
frystitækjum, niðursuðu, herð-
ingu, lýsisbræðslu og nýtingar-
tækjum til að nota allt sem úr
sjónum kemur. í hverju húsi
séu rennibönd sem varan er
flutt til og frá á vinnustað, frá
bát að bát, svo sljulu vera kran j
ar við'hvert skip. !
Það eru dæmi til þess að bif- |
reiðakostnaður á bát yfir ver- |
tíð hefur orðið 20 þúsund.
Milli verstöðva syðra þyrfti
að vera járnbraut sem gengi
fyrir rafmagni með vogum sem
hæglega er hægt <|ð keyra á
þá staði sem þörf ér fyrir þá og
þá.
í fyrsta sinn á íslandi skal
skapa íiugmynd að verstöð og
nauðsynlegum verksmiðjum í
nánu sambandi við höfnina,
byggt upp af vísinda- og tækní-
legri þekkingu, án þess að horft
sé í hvern eyri sem í verstöðina
fer. Eftir að stöðin er fullreist
skal hún vera til afnota fyrir
útvegsmannafélag, rekið á sam
vinnugrundvelli, þó þannig, að
vel menntaðir sérfræðingar, svo
sem í niðursuðuefnafræði og
matvælaframleiðslu, verkfræð-
ingur og viðskiptafræðingur
stjórnuðu fyrirtækinu og væri
stöðin verkleg deild frá Háskóla
íslands eða Fiskifélaginu, er l
tæki að sér að útskrifa fagmenn
til annarra stöðva er tækju upp
svipaða starfstilhögun
Ef ísland á áfram að vera
stórt í framleiðslu á fiski verð-
ur sú framl'eiðsla alltaf að vera
rekin af nýjustu þekkingu á
efnafræðilegum möguleikum í
nýtingu þess sem við öflum úr
sjónum; gjörnýtingu alls og sí-
felldri leit að nýrri leið í fram-
leiðslu fyrir matborð neytand-
ans.
I þessari verstöðvamýbygg-
ingu skal vera góð tveggja
manna herbergi fyrir sjó- og
verkamenn, er séu búin ékki
minni þægindum en venja er á
góðum gisti'húsum fyrir menn
sem vinna minna en íslenzkir
sjómenn og verkamenn við land
róðrabáta.
Það er eitt af því óhugnanleg
asta hér á landi hvað vermönn-
um hefur verið boðið upp á:
10—15 menn látnir sofa í einni
stofu, loftræstingarlausri, þar
er einnig eldað og þurrkuð föt
— alt á sama stað, enda hafa
umferðarpestir gert sig heima-
komnar á þessum stöðum.
Það á að vera sérstakt fata-
þurrkunarherbergi og búnings-
hefbergi sem sjómenn gætu
geymt stígvél og vinnugalla
þær stundir er þeirra eru til
hví'ldar.
Sameiginlegt eldhús ætti að
vera og það rekið með vísinda-
þekkingu á því hvaða mat og
hversu mikinn menn þurfa sem
vinna harða vinnu við vosbúð
og kulda, en ekki hafa það sem
nú er að í þetta starf ráðist
stúlkur sem enga faglega þekk-
ingu hafa á efnasamfsetningu
fæðunnar og í fáum tilfellum
hafa auga fyrir góðri fram-
leiðslu á mat. Af eðlile^um á-
stæðum hafa ekki fengizt stúlk-
ur undanfarin ár nema hátt
kaup væri í *boði, því það er
ekki fýsileg aðbúð, sem þær
eiga við matseldun og þrifn-
að á húsum innanum allt það,
sem fylgir 10—15 manns í einu
herbergi, með fatnað hangandi
til þerris við eldavélina og
kring og í lofti.
Þessi mörgu eldhús sem nú
eru, eru líka það dýr að ó-
skaplegt er, mér telst til, að
handa ráðskonum fari ekki
minna í kaup yfir eina vertíð
en frá kr. 180 000,00 til kr.
250 000,00 í Sandgerði. Minna
má nú gagn gera?
Ekki væri ólíklegt að heilsa
sjómanna batnaði, ef matartil-
búningur og samsetning væri
undir vísindalegu eftirliti. Mat-
stofan ætti að geta útskrifað
nokkra starfsmenn í matartil-
búningi, sem gætu flutt þekk-
inguna út til þjóðarinnar. Ann-
ars, þótt það komi ekki þessu
máli við, hefur aðbúnaður
manna í verstöðvum á íslandi
verið okkur til stórháðungar.
Mönnum ðr hrúgað í kös í eitt
herbergi, köld, jafnvel í kjallara,
þakhæðir og illa gerða bragga,
með aðgerðarhús á neðstu hæð.
Upphitun engin nema frá mask-
ínu, sem hrúgað er þá að og við
blautum og skítugum fatnaði.
Gullgrafarar hafa alla tíð ekki
átt sjö dagana sæla.
Margiy mun víst segja: ekki á
að gera lítið. En ég vil aðeins
segja það, að dýrara getur ver-
ið að gera þetta ekki. Bátaflot-
inn í Sandgerði og á Suðurnesj-
pm getur einn vondan dag und-
dr núverandi ástandi allur verið
í klettunum eða á botninum, ef
ekki kemur höfn og það hið
bráðasta. Milljónir verðmæta
auk mannslífa hrekjast innan
við brimgarðfnn hangandi við
hálmstrá, á sama tíma látum við
eftir okkur í stjórnarlcostnað
um eða jafnvel yfir 100 milljón-
ir króna, verjum mjög miklu í
fánýt skrifstofu- og verzlunar-
hús að ógleymdri kirkjubygg-
ingarplágunni og síðast hug-
mynd biskups að byggja kirkju-
lega byggingu á Skólavörðu-
hæð, sem hann og hans skrif-
stofur eiga að búa í með sauma-
stofum á klæðnaði presta í land-
inu.
Má ég biðja um það hagnýta
fyrst: nýtízku höfn með stórvirk
ari, hagkvæmari frystihúsum,
íshúsum, lýsisbræðslum, lýsis-
hreinsunarstöðvum, herzluhús-
um, beitingarhúsum, aðgerðar-
húsum og veiðarfærageymslum,
fullkomnustu bröggum ásamt
.*-• l,
Ui* feo**g!nni
i
Næturl'eknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegsapó-
teki.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
18,05 til kl. 7,15.
Næturakstur: Hreyfill, sími 1633.
Noregssöfnunin
Sigríður Sigfúsdóttir frá Arn-
heiðarst. kr. 100. N. N. kr. 50.
Anna Sveinsdóttir, Laugaveg 97
kr. 200. Guðbjörg Guðbrandsd.,
Týsg. 1 kr. 100. Ásm. Magnússon
og fjölsk., Týsg. 1 kr. 600. Einar
Ólafsson, Freyjug. kr. 500. Jó-
hannes Jónsson kr. 50. N. N kr.
200. Kona á' Rangárvöllum kr.
50. Frá Trésmíðafél. Reykjavík-
ur, samskot á Hótel Borg í af-
mæli kr. 2.535. Jón Kristjánsson
trésm., ísafirði kr. 1.000. Páll
Sigurðsson, prestur, Bol.v. kr.
200. Kristinn Daníelsson kr. 100.
Frá vinnuflokkum í flugvellin-
um í Rvík kr. 6.042. María Hjart-
ar, Þingeyri, frá Kvenfél. Von
kr. 500. Thóra Friðriksson kr. 50.
Guðrún, Frakkast. 21 kr. 50. N.
N. kr. 50. N. N. kr. 100. Kristín
Eyjólfsdóttir, Fjólug. 25 kr. 25.
K. G. kr. 1|L Frú Halldóra Guð-
mundsd., Miðengi kr. 100. Hjón-
in í Selkoti, Þingv. kr. 150. G. í.
Á. kr. 75. Sigurbjörg Kristjánsd.
Hafr^arf. kr. 500. Ingunn og
Hjalti, Hofi, Vatnsd. kr. 150. Frá
sjómanni kr. 300. N. N. kr. 170.
Vilhj. Þorsteinsson, Meiritungu,
Rangárv. kr. 100. Frá kennurum,
nemendum og starfsfólki
Reykjaskóla í Hrútaf. kr. 3.000.
Astrid, Wivi, Guðbjörg og Mika-
elj Berufirði, Reykhólahr. kr.
200. Þ. Briem kr. 100. Jónína
Jónatansd. kr. 100. Guðfinna
Hannesd. kr. 300. Ingólfur Jóns-
son kr. 50. Rauðakrossdeild
Akraness kr. 3.133. Ingvar Þór-
oddsson, Hrútaf. kr. 20. Starfs-
menn Olíustöðvarinnar í Hval-
firði kr. 620. Grétar, Ottó, '
Gunna, Erlingur kr. 100. Guðrún
Jóhannsd. frá Brautarh. kr. 100.
Áheit kr. 50. Saumastofa Henry
Ottoson kr. 200. Ól. Guðnason,
Miðtún 38 kr. 100. Afhent af
Þorst. Björnsson, Þing. kr. 110.
Pétur Björnsson, skipstj. kr. 300.
Til minningar um Ole Tynes kr.
50. Timburverzl. Völundur h.f.
kr. 5.00. Magnús Ólafsson og
fjölsk., Eyja, Kjós kr. 100. N.
N. kr. 50. Kapt. I. C. Nielsen,
Hardal kr. 500. Guðbr. Sigurðs-
son, Svelgsá kr. 120. Frá sveita-
konu, sem jólakortin náðu ekki
til kr. 100. Gjöf frá Laugarvatns
skólanum kr. 500. Kvenfélágið
Brynja, Flateyri kr. 200. U. M.
F. Svarfdæla, Dalvík (og föt) kr.
1.500. Halldóra Sigurjónsdóttir,
Varmahl., S.Þing. kr. 100. Frá
Rotaryklubb Siglufjarðar, til
minningar um óle Tunes kr.
1.400. Til minningar um Betsy
Petersen kr. 200. Áheit frá N. N.
kr. 30. Júlíanna Sigmundsdóttir
kr. 30. Áheit frá N. N. kr. 125.
Sigrún Sveinsdóttir kr. 40. Sip-
valdi Ragnarsson kr. 5. Ingólf-
, ur Ragnarsson. kr. 5. Ragnar
j Jónsson kr. 60. Hildur Guð-
i mundsdóttir kr. 25. Evelía, Vil-
borg og Ellen Þóra kr. 16. Kona
sameiginlegu eldhúsi fyrir alla
þá sem vilja.
Þessu verkefni ætti nýbygg-
ingarráð að beita sér fyrir það
allra fyrsta og ef það ekki vill
sinna þessu, ættu Suðurnesja-
menn allir að hefjast handa og
framkvæma planið.
Fs.
Frú Churchill fer til
Sovétríkjanna
Frú Churchill jer í vor í heim-
sókn til Sovétríkjanna í boði rúss
neska rauða krossins og sovét-
stjómarinnar. — Mún hún jyrst
og jremst kynna sér starjsemi
rauða lirossins og heimsœkja
sjúkrahús.
Frú Ohurcíhill er formaður néfnd
ar þejrrar í Bretlandi, sem safnar
>fé handa rússneska rauða krossin-
um til lyfja og lækningaáhalda-
kaupa. — Ilafa safnazt margar
milljónir króna.
í Hafnarf. kr. 50. Áheit frá S.
S. kr. 25. Frá Gunnu litlu, Hafn-
arf. kr. 100. Frá Magga litla kr.
100. Frá pabba og mömmu
þeirra kr. 1.000. Söfnun á Ak-
ureyri hjá Norræna fél. kr.
2.380. Kjartan Konráðsson, í
minningar um Ole Tynes kr.
Þorgrímur Eiríksson, Sogamýr-
arbl. 33 kr. 22. Tvær konur í
Rauðasandshr. kr. 200. Þórhall-
ur Gunnlaugsson, símstj., Vest-
mannaeyjum kr. 200. Þprbjörg
Sigurðard. kr. 200. Steinunn Sig-
urðard., Elliheimilinu kr. 10.
Heimilisiðnaðarfél Seyðisf. kr.
1.000. Þ. J. kr. 50. Þrjú börn kr.
30. J. J. kr. 200. Kvennadeild
Slisavarnafél. Sæljós, Flateyri,
kr. 500. Safnað af sr. Einari Stur-
laugssyni, Patreksf. kr. 830.
Kristinn Jónsson, Dalvík kr.
200. K. S. kr. 100. Eftirgefin
gjöld af lýsi kr. 672. Guðrún
Olafsd. kr. 50. Til minningar um
Ole Tynes kr. 100. Safnað af
Rauðakrossdeil Sauðárkróks kr.
1.130. Kvenfél. Líkn, Vestm.eyj-
um kr. 2.200. Anna Hertvig,
Siglufirði kr. 1.850. Norræna fél.
á Isafirði, söfnun kr. 2.480.
Samtals kr. 49.090,60.
Útvarpið í dag:
18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
20.25 Útvarpssagan: „Kotbýlið og
Kornsléttan“ eftir Johan Boj-
er, XV. (Helgi Hjörvar).
21.00 Píanókvintett útvarpsins:
Kvintett í Es-dúr eftir Schu-
mann. j
21.15 íþróttáerindi Í.S.Í. (Úlfar
Þórðarson læknir).
21.40 Spurningar og svör um ís-
lenzkt mál (dr. Bjöín Sigfús-
son).
22.05 Symnfóníutónleikar (plötur):
a) Mazeppa-symfónía eftir
Liszt.
b) Píanókonsert nr. 1 í d-moll
eftir Brahms.
Verðlagsbrot
Nýlega hefur William F. Pálsson,
kaupmaður, Laxárdal, verið sektað-
ure fyrir of hátt verð á vefnaðar-
vöru.
Sekt og ólöglegur hagnaður nam
kr. 200.00.
(Frá skrifstofu verðlagsstjóra).
Bálför
Frá Edinborg Crematorium er til-
kynnt, að bálför Björns Ólafssonar,
fjtrrverandi símritara, hafi farið
fram þann 21. febrúar.
(Frá Bálfarafélagi fslands).
KAUPID
ÞJÖÐVILJANlV
/VW/WW/.V/.V.-AV.VA-^V