Þjóðviljinn - 22.03.1945, Side 1

Þjóðviljinn - 22.03.1945, Side 1
VILJINN 10. árgangnr. Fimmtudagur 22. marz 1945. 68. tölublað. 3. htrin tinin im i Sbillnlir iHlarillMHii vili Hr illt land iiíIíi Ifnr 3. bandaríski herinn er kominn inn í stórborglna Ludwigshafen, sem er við Rín, 20 km. fyrir sunnan Worms, sem hann tók í gær. Miklir götubardagar geisa í Mainz, og eru um tveir þriðju hlutar borgarinnar á valdi Bandaríkja- manna. Á svæðinu milli Saars og Rínar taka herir Banda- ríkjanna hvern bæinn á fætur öðrum. Varnir Þjóðverja eru víðast skipulagslausar, og sumstaðar eru þeir á stjórnlausum flótta í átt til Rínar, en ólíklegt er að margir þeirra komist að fljótinu eða yfir það. Þjóðverjar hafa þegar eyði- lagt Rínarbrýrnar á milli Lud- wigshafe'ns og Mannheims. Er ljóst, að þeir ætla ekki að láta það henda sig aftur að vera of seinir á sér að eyðileggja brýrn- ar eins og hjá Remagen. Skriðd'rekar Bandaríkjamanna hafa farið yfir mestallt svæðið á milli fljótanna Saars, Mosels og Rínar. Hafa þeir umkringt f jölda þýzkra herflokka eða lok- að undanhaldsleiðum þeirra. Mikill hluti Siegfriedvarnar- beltisins er í höndum 7. hersins. En allstór hluti þess austast er enn á valdi Þjóðverja. Flugmenn Bandamanna eru mikilvirkir. Segja þeir, að orustu svæðið líkist mest Falaise-fleygn um í Normandí á sínum tíma. — í gær eyðilögðu þeir 1700 flutn- ingabíla fyrir Þjóðverjum og löskuðu 1500. Þjóðverjar gefast upp þúsund um saman. — Síðast liðna tvo Hverjir verða stofn- endur Þjóðvilja- prentsmið j unnar ? Fyrsti hluthafafundur Þjóöviljaprentsmiðjunnar verður n. k. sunnudag á Skólavörðustíg 19. Á fundinum verður geng- ið frá ýmsum atriðum varð- andi stofnun hlutafélagsins. Þeir, sem œtla að gerast fyrstu stofnendur prent- smiðjunnar, ættu að kaupa hlutabréf i dag eða fyrir hluthafafundinn, þeir sem vilja geta einnig keypt hlutabréf á sunnudaginn. Kvittanir fyrir innborguðu hlutafé, gilda sem aðgöngu- miðar að stofnfundinum. Hlutabréfin fást á Skóla- vörðustíg 19, í afgreiðslu Þjóðviljans og skrifstofu Sósíalistaflokksins. daga hefur 3. herinn tekið 30 þúsund fanga, en 7. herinn 1700. Þeir hafa frelsað 20 þúsund er- lenda verkamenn úr ánauð. íbúarnir í Worms tóku á móti Bandaríkjamönnum með hvít- um fánum og hrópuðu: Danke! BÆR vTEKINN AUSTAN RÍNAR Hersveitir 1. hersins, sem eru fyrir austan Rín, hafa tekið bæ- inn Beuel, sem er gegnt Bonn. — Bandaríkjamenn eru komnir 5 km austur fyrir bílabrautina miklu. Sundmót K. R Sundmót K.R. fór fram í Sundhöllinni í gærkvöld. Þátt- takendur voru nær 60 frá 6 fé lögum. Keppt var um nýja bik- ara í 100 m. frj. aðferð, 200 m. bringusundi kvenna og 100 m. bringusundi karla. Úrslit urðu þessi: 100 m. skriðsund karla. 1. Sigurg. Guðjónss. K.R 1,07,0 2. Rafn Sigurvinss. K.R. 1,09,1 3. Einar Hjartarson 1,10.7 100 m. bringusund karla. Sigurður Jónsson, K.R. 1,20,7 Halldór Láruss., Aftureld. 1,22.5 Hörður Jóhannesson, Æ. 1,22,3 50 m. frjáls aðferð drengja. Guðm. Ingólfsson Í.R. 31,4 sek. Gunnar Valgeirss. KR. 33,9 sek Magnús R. Gíslas. K.R. 34,2 sek. 200 m. bringusund, konur Anna Ólafsdóttir, Á. 3,32 Unnur Ágústsdóttir, K.R 3,32,5 Halldóra Einarsdóttir Æ. 3,41 100 m. bringusund drengja Atli Steinarsson, Í.R. 1,27,9 Þórir Konráðsson, Æ. 1,34,9 Sæmundur Óskarsson, KR 1,36,3 Skorað á Bandamenn að bjóða Sýrlandi og Lýbanon til San Fran- cisco Fundur arabiskra utanríkis- ráðherra í Kairo hefur skorað á forystuþjóðir bandamanna að bjóða Sýrlandi og Lýbanon, sem bæði höfðu sagt Þjóðverjum stríð á hendur fyrir 1. marz, á ráðstefnu í San Francisco. Öðr um arabiskum ríkjum hefur þegar verið boðið. Japanar búast við innrás Japanski hermálaráðherranr. i hélt ræðu í þinginu í gær og sagði, að Japan sjálft mynd; verða stríðsvettvangur í úrslita þætti styrjaldarinnar. Sagði. hann, að búið væri að koma upp miklum varnarvirkjum, en fleiri væri þó þörf. Smuts fer sjálfur Smuts, forsætisráðherra Suður- Afríku, tilkynnti nýlega að hann myndi sjálfur sitja á ráðstefnunni í San Francisco. En á undan mun hann taka þátt í ráðstefnu brezka heimsveldisins í London. F ræðslunámskeið Æskulýðsfykingar- innar Fræðslunámskeið Æsku- lýðsfylkingarinnar hefst 1 kvöld að Skólavörðustíg 19 kl. 9. Erindin, sem flutt verða að þessu sinni eru: 1. Fyrstu ár verklýðshreyf- ingarinnar á íslandi, flutt af einum af elztu for- vígismönnum ísl. verklýðs- hreyfingar. 2. Hin nýja Evrópa 1. (Frakkland, Grikkland, Ítalía), flutt af Sigurði Guðmunds- syni, ritstjóra. Námskeiðið er fyrst og fremst miðað við meðlimi Æskulýðsfylkingarinnar en 5 öllum sósíalistum er heim- ij ill aðgangur meðan húsrúm I| leyfir. Fulltrúar norsku stjórnarvaldanna flytja burtu nokkuð af íbú- unum frá Gamvík á Finnmörk. (Sjá grein á 4. síðu blaðsins). Húsi Gestapos I Kaupmanna- höfn jafnað við jörðu - Mosquito-flugvélar réðust á ,,Shellhúsið“ í gær. Rétt fyrir hádegi í gær réðust 5—6 brezkar Mosquitoflug- vélar á „Shellhúsið“ í Kaupmannahöfn. Hefur það um langt skeið verið aðalmiðstöð þýzku lögreglunnar og margir danskir föðurlandsvinir verið kvaldir til bana í kjallara þess. — Húsið eyðilagðist að mestu. Flugvélarnar komu úr vestri og rétt fyrir ofan þök húsanna. Köstuðu þær sex sprengjum á húsið, og hæfðu þær allar mark ið. Fjórar sprungu strax, en 400 m. baksund karla Guðihundur Ingólfsson, ÍR 6,35,5 Leifur Eiríksson, KR 6,59,8 Einar Sigurvinsson, KR, 7,31,3 50 m. frjáls aðferð, konur Villa María Einarsdóttir, Æ, 38,7 Ingibjörg Pálsdóttir, KR, 39,0 Auður Pálsdóttir, KR, 46,0 4 x 50 m. bringusund, boðsund karla Sveit KR, 2,24,7 Sveit Ægis 2,28,4 Sveit Ármanns 2,29,5 tvær (tímasprengjur) sprungu nokkru síðar. Húsið var fimm hæða hátt. Eyðilagðist önnur álma þess al- veg, en hin heldur minna. Flugvélarnar flugu aftur til vesturs, og hafði árásin staðið í þrjár mínútur. Ein þeirra kom of nærri hús- þaki, og laskaðist annar væng urinn. Reyndi flugmaðurinn að lenda í Friðriksbergsgarði, en tókst ekki og hrapaði á götu. — Önnur flugvél sást hrapa í sjó niður. Ekki er enn kunnugt un, afdrif áhafnanna. Flugmennirnir sáu stóran hóp vopnaðra borgara saman kom- inn nálægt húsinu og halda þangað að árásinni lokinni, en ekki er kunnugt um erind! þeirra. Rauði herinn í Heiligenbeil Rauði herinn heldur áfram að þrengja að þýzku herflokkunum fyrir suðvestan Königsberg. Er hann kominn inn í Heiligenbeil við Frisches Haff, — síðustu jámbrautarstöðina d ualdi Þjóð verja. Mörg þorp voru tekin þarna í gær. í Braunsberg tók rauði herinn mikið herfang, — m. a. næstum 200 skriðdreka, 1000 vörubíla og 600 járnbrautarvagna. 136 skriðdrekar voru eyðilagð ir fyrir Þjóðverjum í gær á aust urvígstöðvunum. Onnur söngskemmtun ungfrú Guðrúnar A. Símonar í kvöld Ungfrú Guðrún Á. Símonar hélt fyrstu söngskemmtun sínaí fyrrakvöld í Gamla Bíó, fyrir fullu húsi áheyrenda', er klöpp- uðu söngkonuna fram aftur og aftur. Varð Guðrún að syngja mörg aukalög. Söngkonunni bár ust um 30 blómvendir og blóma karfa að gjöf fyrir sönginn. Ungfrú Guðrún endurtekur söngskemmtun sína í kvöld kl. 11.30 í Gamla Bíó.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.