Þjóðviljinn - 22.03.1945, Síða 4

Þjóðviljinn - 22.03.1945, Síða 4
ÞJÓÐVIUINN. — Fimmtudagur 22. marz 1945. Fimmtudagur 22. marz 1945. — ÞJÓÐVILJINN þlÓÐVlLlEMN Útgefandi: Sameinmgarjlokkur alþýSu Sósíalistaflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Svgwrður GuSmundssan. Stjórnmálaritstjórar: Etnar Olgetrnaon, Sigfús Sigurhjartarscm. Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 12, sími 2270. Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðusiíg 19. sími 21 ttk. Áskriftarverð: f Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði. Éti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja: Víkingsprent h.j., Garðastrœti 17. lmkoman iil Moroysí Bókamarkaðirinn f fullum gangi Staðnir að verki Það væri synd að segja að hátt sé risið á blöðum stjómar axidstöðunnar um þessar mundir. * Eftir að blöð þessi hafa mánuðum saman, dag eftir dag, boðað hrun og verðfall, og þannig beinlínis gert sitt til að spilla fyrir hagstæðum árangri af samningnum um sölu sjávarafurð- axma, eftir að þau hafa birt með fögnuði sérhverja fréttaátyllu um versnandi markaðshorfur, ætla þau óð og uppvæg að verða þegar þeim er sagður sá blákaldi sannleikur að þau hafi bein Mnis óskað eftir verðfalli, og æðiskastið fá þau nú þegar búið er að selja sjávaraflann við sæmilegu verði. Ekki verður á milli séð hvort Vísir eða Tíminn ber sig ver undan þessum sann- leiksorðum, en bæði bera blöð þessi sig illa, bæði afneita þau fyrri afstöðu, þegar sýnt er svart á hvitu að á. þessu ári kemur ekkert verðfall. • Það kunna að vera til menn, sem eiga erfitt með að átta sig á að nokkur íslendingur skuli í alvöru óska eftir verðfalli á íslenzkum útflutningsvörum, en þessir menn skilja ekki eðli stéttabaráttunnar, eða að þeir gleyma að Vísir og Tíminn eru blöð þeirra manna sem vilja skefjalausa baráttu yfirstéttann--. gegn vinnustéttunum, þeirra manna, sem eru andvígir því. sam- komulagi þjóðfélagsstéttanna sem núverandi stjómarsamvinna hvílir á. Hér kemur dæmi til skýringar. • Fyrir áramótin höfðu fjórir braskarar hér í bæ náð tökum á öllum þeim skipum, sem Bretar vildu ljá til fiskflutninga héðan. Ríkisstjóminni var Ijóst að gróði af flutningum með þess- um skipum var mjög mikill. Hún beitti því harðfylgi til að ná þessum skipum úr klóm braskaranna, með þeim árangri að kleifi var að hækka fiskverðið þá þegar um 15% til útgerðarmanna og fiskimanna. Stjómarandstaðan varði málstað braskaranna, henn- ar kappsmál var að þessir fjórir menn græddu milljónir, þó það þýddi lægra fiskverð til útgerðarmanna og sjómanna. • Þetta dæmi géfur tæmandi skýringu á óskunum um lágt afurðaverð. Allar þessar óskir voru bornar fram sem forsend?. fyrir launalækkun, forsenda fyrir að skerða hlut verkamanna til sjós og lands, með því átti að gera hlut þeirra manna stærn sem hugsa og starfa eins og fjórmenningamir með brezku skip- in. Hugsunin var: „Við þurfum dálitla lækkun á fiskverði til þess að geta knúð fram mikla launalækkun11. Þannig voru hags- munir fárra gróðamanna settir hærra en hagsmunir heildar- innar. Það er ekkert nýtt í þessari afstöðu stjórnarandstöðunnar, þetta hefur verið aðstaða braskaranna og raunar meginþorra stóratvinnurekenda frá ómunatíð, barátta yfirstéttanna gegn launastéttunum hefur verið sett ofar þjóðarhag. • Núverandi stjórnarsamvinna byggist meðal annars á því, að meginþorri atvinnurekendastéttarinnar hefur yfirgefið þessi sjón- armið. Þetta kom berlega fram í deilunni við skipabraskarana. Stjórnin var þar sammála um að láta hagsmuni hinna fáu víkja fyrir hagsmunum fjöldans. Fulltrúar stóratvinnurekenda sem að stjóminni standa hugsa sem svo: „Við skulum i fyrsta lagi reyna að fá eins mikið og auðið er fyrir framleiðslu okkar á erlendum markaði og framleiða og selja eins mikið og mögulegt er. Til þess að ná þessu marki skulum við hafa samstarf við stéttarand stæðinga okkar og reyna að jafna allar deilur um skiptingu arðs- ins innan þjóðárbúsins á friðsamlegan hátt.“ Það er þetta sjónarmið sem Vísis- og Tímaliðið gat ekki fallizt á, en fyrir þetta lið var launalækkunin númer eitt, til þess að ná því marki þótti því ekki of dýrt að lækka fiskverðið. Það er að vonum að þeir bera sig nú illa ritstjórar Vísis og Tímans, er þeir standá berir að verki og finna ískaldann fyrir- litninga:gust fjöldans leika um sig. Við fórum til Vaðseyjar, ann- arrar mestu hafnar Finnmerk- ur, í rússneskum fallbyssubát. Vaðsey hafði ekkert simasam- band við Kirkjunes, svo að fólk- ið hafði ekki frétt um komu okk- ar nema á skotspónum. En orð- rómurinn er fljótur að berast, og þegar við komum að bryggj- unni í Vaðsey, var þar fullt af fólki. Bærinn Vaðsey er fremur á- litlegur í samanburði við rúst- irnar í Kirkjunesi. Hér mátti þó a. m. k. sjá hús uppi standandi, þótt 60% þeirra hefðu verið jöfnuð við jörðu. í Vaðsey átti Dahl ofursti tal við bæjar- og sýslufulltrúa, og ekki leið á löngu áður en Peder Holt, bæjarstjóri í Vardö fyrir stríð, nú 46 ára að aldri, var skipaður bráðabirgðafylkisstjóri í Finnmörku. — Hann var fyrr- um hafnarverkamaður og varð seinna ritstjóri. — Þessi ungi fylkisstjóri virtist vera lifandi tákn um ástandið í Norður-Nor- egi. Þegar ég sá hann, slútti úf- ið hárið niður yfir ennið, og hann var í fötum, sem fóru hon- um illa, — sat við borð í skrif- stofu, sem lýst var upp með kar- bidlampa, og hafði eina stúlku sér til aðstoðar við stjórnarstörf- in í hinu hrjáða Finnmerkur- fylki. ,,Eg á ekki einn einasta eyri“, sagði hann, „og hef mestöll föt- in, sem ég er í, að láni. Börnin mín eru horfin og konan dáin“. „Fólkið hérna“, sagði hann, „hefur orðið fyrir miklu áfalli, en hefur tekið því hetjulega. — Fyrsta verk okkar er að finna alla þá, sem hafa falið sig uppi í f jöllum, og útvega þeim þak yf- ir höfuðið. Þetta tekst allt sam- an einhvern veginn, og sú stað- reynd, að fulltrúar konungs og ríkisstjórnar eru aftur á norskri grund, hlýtur að skapa trúnaðar- traust og bjartsýni. Konungur og ríkisstjórn njóta nú meiri lýð- hylli en nokkurn tíma fyrr“. Hérna hitti Dahl ofursti líka Granaas lautinant frá Jakobselv. Þessi gamli norski hermaður hafði safnað saman 50 sjálfboða liðum, áður en Þjóðverjar hörf- uðu burt, til að forða þorpinu sínu frá eyðileggingu. Árangur- inn var sá, að meiri hluta þorps- ins var bjargað. — Jafnskjótt og Þjóðverjar voru farnir, klæddist Granaas einkennisbúningnum sínum, sem hann hafði falið all- an hernámstímann. — Hann var greinilega mjög hrærður, þegar ftfurstinn tók á móti honum og gat varla stunið upp: „Velkom- inn“. „Við höfum beðið og beðið eftir ykkur“, sagði hann, „en nú þegar stundin er komin, veit ég varla, hvernig ég á að láta gleði mína í ljós“. Við hittum Helgu Mardalen hjúkrunarkonu í berklasjúklinga hælinu í Nýborg. Hælið var lýst upp með rafmagni frá rafstöð þess sjálfs. — Helga hafði bjarg að öllu. Hún hafði hlaupið út á veginn fyrir framan hælið, þeg- ar Þjóðverjar komu til að brenna það. Hún hafði fórnað höndum og hrópað, að myndi verja sjúklinga sína með lífi sínu. „Skjótið mig í staðinn, ef þið viljið“, kallaði hún. Þjóð- verjunum féllust hendur, og hælinu var borgið. Síðan hafði hælið verið notað sem sjúkrahús og heimili fyrir alla þá, sem komu aftur ofan af fjöllunum. Eina nótt hafði hún hýst fimmtíu flóttamenn auk berklasjúklinganna sextán. All- ir fengu mat og húsaskjól. Rétt eftir, að Þjóðverjar fóru hafði hún farið yfir jarðsprengjusvæði til að ná í tvo hveitisekki og hafði því nóg handa sjúklingun- um í bili. er svo gerólíkt hefur þekkzt“. því, sem áðuriur hinn rétti hugsunarháttur I orðið ráðandi, — birgðir smjörs Það hefur reynzt hér, og mun reynast um allan Noreg, að smá- ar félagslegar umbætur eru vinsælli en miklar, margra ára viðreisnaráætlanir. Fólkið met- ur mest að fá góða norska lækn- ishjálp, reglulegan matar- skammt, lítið norskt dagblað, þó að það sé fjölritað, — umfram allt rétt til að tala frjálslega. Flest fólk gerir sér ekki mikla grein fyrir, hvað það er mikið verk að koma rafmagninu í lag aftur. í Suður-Varanger höfðu allar rafstöðvar og rafleiðslur 0nmir greín jörgens (uve AUSTUR-FINNMORK í DESEMBER Norsku hersveifirnar eru nú í fremstu víglínu. Hermennirnir, sem eru ennþá að baki víglín- unnar í frelsuðu landshlutun- um, eru þar til að taka á móti, ef Þjóðverjar skyldu gera árás á ströndina, og til að hjálpa al- menningi að hreinsa til, — fyrst og fremst að taka í sínar hendur þýzku liðhlaupana og njósnar- ana og reikningsskilin við kvisl- ingana. Norskar hersveitir eru 1 öllum hlutum frjálsu héraðanna og byrjað er að safna sjálfboða- liðum í stórum mæli. Samvinnan við Rússa á hern- aðarsviðinu heldur áfram að vera ágæt. Bandamenn okkar höfðu frá því fyrsta mikinn á- huga á, að allir norsku sjálfboða liðarnir fengju þá aukaþjálfun og þau vopn, sem hæfa norsku landslagi, og mikið hefur áunn- izt. Rússarnir hafa ekki skipt sér af innanlandsmálum Norð- manna, en það þarf ekki mikla skarpskyggni til að sjá, að þeir fylgjast af áhuga með reiknings- skilunum við kvislingana. — Þeir hjálpa almenningi, hvenær , sem þeir geta, sérstaklega á sviði flutninga og samgangna. Það er mjög algengt að ferðast staða á milli í rússneskum bíl- um, því að þeir hafa alltaf auka sæti handa almenningi. Sérfræðingunum, sem voru í för með norsku hersveitunum, fannst e. t. v. í fyrstu, að þeir gætu lítið hjálpað fólkinu, sem var svo lamað eftir þýzka her- námið og í héraði, sem var svona gersamlega lagt í auðn, efl þeir tóku ósmeykir til starfa. Og þeir hafa öðlazt traust íbú- anna. Bæja- og sveitastjórnirnar vinna við erfið skilyrði, en batn-' andi. Þjóðverjar voru búnir að kæfa áhuga íbúanna á opinber- um málum svo algerlega með gerræðislegum tilskipunum sín- um og tilkynningum, að fólkið hefur orðið að venjast þeirri vissu, að nú væru þess eigin menn búnir að taka við. — Maður nokkur sagði: „Þeir voru góðir náungar fyrir stríð. Þeir héldu sköttunum niðri. Við skul- verið eyðilagðar eða fluttar burt. 2. desember, mánuði eftir að Þjóðverjar höfðu verið hraktir burt, var raflýsingin komin 1 lag aftur. Og nú er aftur byrjað að vinna í stærstu vélsmiðjunni á tveimur vöktum og byrjað að gera við bíla og bifhjól, sem menn smám saman draga fram í dagsljósið. Það er mikils virði fyrir hernaðarsendinefndina, því að hún hefur orðið að komast af án bíla hingað til. Meir að segja Dahl ofursti, foringi nefndarinn- ar, hefur ekki bíl. Sendinefndin hefur auðvitað rétt til að taka eignanámi hvað sem er, en hún beitir náttúrlega ekki þeim rétti, nema þegar það er til hagsbóta fyrir allt fólkið. Það er líka ekki alltaf auðvelt að gera fólki skiljanlegt, að það verði að hjálpa hvað öðru, þegar það hefur orðið að bjarga sér eins og það hefur bezt getað 1 fjögur ár og orðið að hugsa fyrst og fremst um sjálft sig og sín heimili. En smám saman hef- og hveitis eru afhentar yfirvöld unum, bifhjól og bíll við og við, bárujárn, forði af borðviði, — fréttir berast af þýzkum her- mannaskálum á afskekktum stöðum, kolabirgðum o. s. frv. Öllu er skipt á milli fólksins. Peder Holt, nýja fylkisstjór- anum, hefur víðast hvar tekizt að koma bæja- og sveitastjórn- um á fastari grundvöll. En sam- tímis því, að áreiðanlegir menn eru látnir taka við stjórn, verð- ur að halda hreinsuninni áfram, og hreinsunin tekur tíma, því að Þjóðverjar og kvislingar hafa troðið sínum mönnum inn alls staðar. „En allt er nú að komast í lag“, segir Peder Holt, „allt vðltur á flutningunum. Við verð - um að fá fleiri báta, nokkra bíla og bifhjól. Fleiri bátar tryggja okkur nýjan fisk, og betri flutn- ingatæki á landi hraða flutningi fisksins til fólksins, sem verður ennþá að láta sér nægja salt- fisk“. Mikilvægasta hlutverk yfir- valdanna er nú að afla sér áreið- anlegra upplýsinga um ástand-( ið í héruðunum, sem eru næst vígstöðvunum. Ástandið í Aust- ur-Finnmörku er nú orðið ljóst, og við óskum fyrst og fremst að senda hjálp til þeirra .héraða, sem Þjóðverjar eru nýbúnir að yfirgefa og bera enn merkin eft- ir járnhæl þeirra, þótt þessi merki séu reyndar nógu greini- leg á stöðum eins og Kirkjunesi og Vaðsey, þar sem skipsflök og bátar liggja meðfram ströndun- um og jarðsprengjur springa daglega. Hvergi er hægt að ganga óhultur fyrr en jörðin hef Auk áðurauglýstra bóka hafa okkur bætzt eftirtaldar: 12 einsöngslög, sprengjunum fyrr en snjó hefur tekið af. fSvífðu seglum þöndum. Ferðaævintýri eftir |j Jóhann Kúld ób. 6.00 ib........... 8.00 ^ Frá Japan og Kína, ferðasaga eftir Steingr f Matthíasson ....................... 6.00 Álfar kvöldsins eftir Guðm. Böðvarsson 12.00 Út um vötn og velli, eftir Kristinn Helgason. í skrautbandi .................... 10.00 Ævisaga Jóns Þorkelssonar skólastjóra í Skái holti. I.—II., yfir 700 bls., aðeins .. Árbækur Ferðafélagsins, complete. Lesbók Alþýðublaðsins, complete. 1 eint. af Harmoníu (Hóla-útgáfan). 1 eint. af Gluntarne, eftir Venneberg. Faust, eftir Goethe. Skinnb........ 15.00 Syngið strengir, eftir Jón frá Ljárskógum 15.00 Hænsarækt, eftir Einar Helgason .... 3.00 BÓKAMENN! Örfá eintök höfum við fundið af 4. hefti Sagnaþátta Gísla Konráðssonar, sem alla nefur vantað. AF MÚSÍK EIGUM VIÐ EFTIRTALH): Vestrænir ómar, 18 sönglög, eftir Þórarinr. Jónsson. Raddsett hefur Sveinbjöm Svein- bjömsson .........................• 8.00 Að Lögbergi. Sigfús Einarsson ...... 2.00 Ad ginaram. Magnús Árnason ......... 2.50 Bamasöngvar. Elín og Jón Laxdal .... 6.00 Bæjargöngin. Magnús Ámason ......... 2,50 Hið deyjandi barn. Sveinn Jónsson .... 2.00 Heimhugi N. L. Sagnér .....!....... 2.50 Hörpuhljómar. ísl. lög fyrir 4 karlm.raddir Sigfús Einarsson .................. 6.00 íslenzk sönglög. Safnað hefur Helgi Helga- son ................................ 6.00 ur verið könnuð með leitartækj- ;■ Jónas Hallgrímsson. Sigfús Einarsson um. Og það verður ekki hægt * að ljúka við að hafa upp á jarð- Kaldalónsþankar. Sigvaldi Kaldalóns Klukknahljóð. Sigvaldi Kaldalóns .... 2.00 2.50 2.50 Ljúflingar. 12 einsöngslög. Sigvaldi Kalda- lóns .............................. 7.50 Minni verzlunarstéttarinnar. Jón Laxdal 2.50 Our songs. Magnús Ámason .............. 6.00 Hljómboðar, eftir Þórarinn Jónsson, I—III 10.00 Organtónar, II. hefti. Brynjólfur Þorláksson, organisti .......................... 10.00 Pétur Guðjohnsen. Lag og kvæði, eftir Einar P. Jónsson ....:.................... 2.00 Pétur Guðjohnsen. Lag fyrir sopran solo, kór og orgel. Sigfús Einarsson .......... 3.00 Safn af sönglögum. Jón Laxdal bjó undir prentun .......................:..... 6.00 Sjómannasöngur. Sigvaldi Kaldalóns 3.00 Svanasöngur á heiði. Sigvaldi Kaldalóns 3.00 Svanurinn. Einrödduð lög. Steingrímur Thor- steinsson skáld valdi kvæðin, en Brynjólf- ur Þorláksson lögin ................. 8.00 Söngvar úr Trilby ..................... 2.00 Skólasöngvar, I.—IV. Sigfús Einarsson safn- aði ............................... 5.00 Tólf sönglög. Magnús Einarsson ........ 4.00 Tvö sönglög. Sólskríkan og Fuglar í búri. Jón Laxdal .......................... 4.00 Tvö kvæði, eftir Stephan G. Stephansson, fyrir karlakóra. Jón Laxdal ......... 2.50 Tvö sönglög. Sjáið hvar sólin hún hnígur og Látum sönginn glaða gjalla. Sigfús Ein- arsson .............................. 3.00 Til Fánans. Við kvæði Einars Benediktsson- ar, „Rís þú unga íslands merki upp með þúsund —“ o. s. frv. Sigf. Einarss. 2.50 Vögguljóð. Jón Pálsson ................ 2.00 Þar sem háir hólar. Árni Thorsteinss. 2.00 Þekkti ég marga fríða frú. Magnús Jónssor 2.00 Þótt þú langförull legðir. Sigvaldi Kaldalóns 3.00 Þrjú sönglög. Árni Thorsteinsson ...... 2.50 **** * *in—i fLn i n ■ ■ ■ af Ha sgMif farir ar. i.so Rekord býður ydur Kirsuberjakjarnaduft. 1 pakki nægir til framleiðslu á heilflösku af lituðu sykurvatni á páskaborðið. Ljúffengt ódýrt fljótlagað. Fæst í næstu búð. ■ Dömukápur FJÖLBREYTT URVAL. ■ Ragnar Þórðarson & Co. Aðalstræti 9. Sími 2315. bandsmit! ItMlW linmhissi Bókaverzlun Guðmundar Gamalíelssonar Lækjargötu 6 B, sími 3263- H.K.R.R. H.K.R.R. ■ ' > ■ Úrslitaleikir mótsins fara fram dagana 22., 23. og 24. þ. m. í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar. Fimmtud. kl. 10 e. h.: Kvfl. Ármann—Haukar. Úrslit. II. fl. Vikingur—F.H. I. fl. Fram—Ármann. Föstud. kl. 10 e. h.: II. fl. Armann—Haukar. Úrslit. I. fl. Valur—Víkingur. Mfl. Valur—Í.R. Laugard. kl. 10 e. h.: I. fl. Fram—F.H. I. fl. Haukar—Víkingur. Úrslit. Mfl. Ármann—Víkingur. Úrslit. Fylgizt með úrslitum í öllum flokkum. Spennandi keppni! Aðgöngumiðar við innganginn. ■ Bankarnir verða lokaðir laugardaginn fyrir páska Athygli skal vakin á því, að víxlar sem falla í gjalddaga þriðjudaginn 27. marz, verða afsagðir miðvikudaginn 28. marz, séu þeir eigi greiddir eða framlengdir fyrir lokunartíma bankanna þann dag. Landsbanki íslands. Búnaðarbanki íslands. Útvegsbanki íslands h.f. Aðalfundur Islendinga- félagsins í London Islendingafélagið London hélt aðalfund 18. marz og voru þessir kosnir í nýja stjórn: Björn Th. Björnsson stúdent, formað- ur, Elinborg Ferrier ritari, Þor- steinn Hannesson gjaldkeri, og meðstjórnendur Ólafur/Björns- son starfsmaður í sendiráði ís- lands í London og dr. Grace Thornton fulltrúi 1 Ministry of Information. FLOKKURINN Fræðsluerindi verða flutt kvöld (föstudag) kl. 8.30 á kwa vörðustíg 19. annað Skóla- ÆSKULÝÐSFYLKINGIN OG SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKUR halda Æskulýðsfylkingin ogr Sósíalistafélagf Reykjavíkur fyrir meðlimi sína og gesti þeirra í Listamannaskál- anum, föstudaginn 23. þ. m. kl. 9 e. h. um vona hún , ið bót á að þeir geti líka ráð- J» núverandi ástandi, sem 1. 2. 3. Aðgöngumiðar seldir í skrifstofu Æ.F.R. Ræða: Skúli H. Norðdahl. 4. Upplestur: Þorbergur Þórðarson, rithöf. 5. Verklýðsmálaráðstefnan í London: Bjöm 6. Bjamason. kl. 4—7 á morgun. Töframaður sýnir listir sínar. Láms Ingólfsson syngur gamanvísur. Dans. -./VUWUVWWWMWAAMWVWM5MM ; ÁRSHÁTfÐ Barðsfrendíngafélagsins verður haldin að Hótel Borg laugardaginn 24. marz næstkomandi. Hefst með borðhaldi kl. 7.30 síðdegis. Aðgöngumiðar eru seldir hjá: Eyjólfi Jóhannssyni, rakarastofu, Bankastræti 12, sími 4785, og í verzl. Magnús Benjamínsson & Co., Veltusundi 3, sími 3014, og eru menn beðnir að vitja aðgöngumiða sinna strax. Til skemmtunar: Einsöngur: Guðmundur Jónsson. Stuttar ræður. — Kórsöngur. — Dans. UNDIRBÚNIN GSNEFNDIN. Nýkomið: NAGLALAKK litlaust. Verzlun H. Toft Fjölbreytt úrval af glervörum, búsáhöldum og matvöru. Verzlunin Nova Barónsstíg 27. — Sími 4519.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.