Þjóðviljinn - 22.04.1945, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.04.1945, Síða 1
10. árgangur. Sunnudagur 22. apríl 1945. 90. tölublað. m h í mm m\w so Moskva bíður með eftirvæntingu sameiningu herjanna að austan og vestan Rauði herinn berst í uthverfum Berlínar og mikili hluti borgarinar liggur undir skothríð rússneska stór- skotaliðsins. Þetta var opinberlega tilkynnt í miðnæt- urtilkynningu sovétstjórnarinnar. Sovétherirnir sækja að höfuðborg Þýzkalands úr norðaustri og austri, og jafnframt hafa rússneskar og brezkar sprengjuflugvélar gert stórkostlegar loftárásir á borgina. Sovétherirnir sem sækja úr norðaustri voru um 20 km. frá miðju Berlínar í gærkvöld og um 6 km. frá útborgunum. Þýzkar fregnir sögðu Rússa komna inn í norðurúthverfin Pankow og Weissensee. Að austan hefur sókn sovétherjanna verið mjög hröð. Snemma í gær tóku þeir bæina Buckow, Munce- berg og Fiirstenwalde, fóru yfir aðalþjóðveginn frá Berlín til Frankfurt og inn í austurúthverfin. Þar eru nú háðir harðir bardagar og reyna Þjóðverjar að verja hverja götu og hvert hús, en hafa ekki getað stöðvað hina þungu sókn sovétherjanna. Suður af Berlín sækja sovétherirnir hratt fram og tóku í gær Júterbog, en þaðan eru aðeins 50 km. til Dessau, sem Bandaríkjaher tók ígær. Her Konéffs sækir fram í tveim fylkingarörmum og stefn ir annar til norðvesturs, og eru framsveitir hans um 70 km. suðaustur af Berlín. í Catbus er varnarlið Þjóð- verja einangrað, og á sér ekki undankomu von. Syðri fylkingararmur hers Konéffs stefnir til suðvesturs og var í gærkvöld kominn að Königsbruck. Á Dresdensvæðinu hefur her Konéffs tekið Bautzen og er á þeim hluta vígstöðvanna að- eins 50 km. milli sovétherjanna og Bandaríkjahersins. Hernaðartilkynning Rússa skýrir einnig frá sigrum norður og norðvestur af Vín. 345 flu.gvéiar síðustu þrjá dagana í horðum loftbardögum. Rauði herinn nýtur nú árang- nrs af rnargra mánaða undirbún- ingi. Iiin vitfirrta vörn þýka naz- istabersins aiustan Berlínar er bar inn niður og þungi sovétsóknar- innar vex með hverjum degi. Sunnar er baráttan um Dresd- en að hefjast. Her Konéffs. mar- skálks^er kominn vesbur yfir Spree. Það líbur út fyrir að það verði á þessum hluta vígstöðvanna að sovétherir og bandamahhaherirn- ir að vestan mætast. Þess fundar er beðið í Moskva með mikilli eft irvætingu, og hann mun haldinn hátíðlegur í Sovétríkjunum sem ein af mestu hamingjustundium sty r j a 1 darin n ar“. Berlín og útborgir hennar. Pankow, sem minnst er á í jréttum í dag, sést á miðri myndinni. Bandaríkjaher sækir fram á 300 km samfelldri víglínu Bandamannaher sækir austur og suður eftir Þýzka- landi á yfir 300 km. samfelldri víglínu. „Rauði herinn hamrar á hlið Berl'ínar, fallbyssuskol dynja á norða ustu rúthverf um borgarinn ar“, sagði rússneskur fréttaritari í Moskvaútvarpið í gær. „Rússn- eski iflugherinn á aninríkit yfir víg stöðvunium og gtyður sókn land- hersins. Er nú um litla mótspyrnu í lofti að ræða fyrir austan Berlín, því þýzki flugherinn hefur misst Kol frá Ruhr Byrjað er aftur að starfrækja sumar hinna miklu kolanáma í Rúhr, en í þetta skipti fyrir hergagnaiðnað Bandamanna. Fyrsti járnbrautarfarmurinn er þegar lagður á stað vestur yfir Rín. Bandaríkjaher sækir í átt tii Dresden gegn harðri mót- spyrnu, og þaðan nær víglínan vestur fyrir Berlín í stórum boga. Borgin Dessau er á valdi Bandamanna. Suður af Magde- burg eru háðir harðir bardagar Bandamenn taka Bologna 8. brezki herinn og 5. banda ríski herinn hafa tekið borgina Bologna á Ítalíu. Pólskar hersveitir komust ínn í borgina í gærmorgun og banda rískar skömmu seinna frá ann arri hlið. Sigur þessi er mjög mikilvæg ur. Setulið Þjóðverja í Bologna hefur tafið framsókn Banda- manna í 8 mánuði. Brezkur fréttaritari segir, að taka Bologna hafi verið loka- mark mikillar, samræmdrar sóknar Bandamanna. Tóku þátt í henni brezkar, bandarískar, pólskar og nýsjálenzkar her- sveitir og auk þess herdeildir Gyðinga og Brasilíumanna. — Segir hann, að þetta sé mikill sigur, af því að borgina hafi verið mikil birgðamiðstöð og virki Þjóðverja. ' og vinur Bandaríkjaherinn þar stöðugt á. Her Montgomerys sækir norð ur að hafnarborgunum miklu. Brezkur her berst í Bremen og er kominn svo nærri Hamborg að brezku fallbyssurnar ná til borgarinnar. í Hollandi veret þýzka setu- liðið harðlega. Bandamannaher sækir nú inn í Tékkoslóvakíu og tók banda- rískur her í gær bæinn Asch, sem er um 150 km. vestur af Prag. 7. þýzki herinn sækir frá Nurnberg í átt til Regensburg og Munchen og verður vel á- gengt þrátt fyrir harða mót- spyrnu. Franskur og bandarísk- ur her hefur umkringt Stútt- gart. ----^--------------------- Dentz hershöfðingi dæmdur til dauða • / Franski hershöjðinginn Dentz, s emvar landstjóri í Sýrlcmdi og Lihanon árið 1941. og stjómaði þá hernaðaraðgerðum gegn Bret- um og jrjálsum Frökkum, var í gœr dœmdur til dauða í París. Hofur enginn j.afn háttsettuir hershöfðingi fransikur verið dæmd ur til dauða. t--------------------------- Vísir krefst lækk- unar fiskverðsins Vísir segir í leiðara í gœr: „Liggur þvi eklci annað jyr- ir en að stöðva skipin, nema því aðeins að ríkisstjómin hlutizt til um að verðlœlclcun á fiski verði komið á liér á inn- anlandsmarkaðinum“. Þar með er gríman faUm. Visir hcjur vonast ejtir verð- lœkkun á jislci á erlenda mark- aðinum, spáð slíkri verðlœkk- un, beðið um hana — en elcki jengið. Visir hejur krajizt þess að spekúlantar jengju jisk- jlutningaskipin í hendur— en elcki jengið það. Og nú lieimt- ar Vísir að skipin verði stöðv- uð nema ríkisstjómin láti lœkka jiskverðið! Þannig er innrœti Coca-cola blaðsins í garð sjómanna. ^--------------------------1 Bandamenn kynnast fangabúðum Þýzka- lands Bandamenn hafa náð á vald sitt ýmsum illræmdustu fanga- búðum Þýzkalands, þar á með- al íangabúðunum í Buchen- walde. Þar hafa nú verið staðfestar þær ægilegu lýsingar, sem þýzk- ir andfasistar hafa gefið af þess- um fangabúðum. Þar hefur þús undum karla, kvenna og bama verið misþyrmt á hinn hryUi- legasta hátt, og haft á allan hátt sóðalegan og heilsuspillandi að- búnað. Taugaveiki geisar í fangabúð unum og hafa þúsundir manna látið lífið. Fjöldi manna hefur látið lífið úr hungri. Eisenhower hershöfðingi hef- ur boðið nefnd brezkra og bandarískra þingmanna til Þýzkalands, til að kynmast af eigin raun ástandinu í fanga- búðunum. Útflutningurinii í marz Samkvœmt skýrslu Hagstof- unnar nam verðmœti útfluttra ajurða í marz kr. 36 187 450,00 og og innjluttar vörur á sama tíma verzlunarjöfnuðurinn í ryiánuð- inum verið hagstœður um 18,8 millj. kr. Á tímabilinu jan.—marz. nam útflutningurinn kr. 66 934 300,00. en innjlutningurinn 58 032 000,00 um 8,9 millj. kr. — Á sama tíma s. I. ár nam útjlutningurinn kr. 47,6 millj., en innflutningurinn kr. 47,9 millj. Af útflutningnum nemur ís- fiskurinn mestu, 18,4 millj., freð- fiskur 8,1 mill., lýsi 4,3 millj., saltsíld 2,8 millj. og saltaðar gær ur 1,4 millj. Mest hefur verið flutt til Bret- lands, eða fyrir 26,9 millj., þar næst til Bandaríkjanna, fyrir 5,2 millj. og til Frakklands fyr- ir 3,9 millj.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.