Þjóðviljinn - 16.05.1945, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.05.1945, Blaðsíða 2
2 ÞJÓÐVIL JINN Miðvikudagur 16. maí 1945» Húsavíkurhöfn á að verða fullgerð árið 1946 Þingey - fyrsta prentaða blaðið gefið út í Þingeyjarsýslu Viðtal við Arnðr Kristjánsson, iormann Verkamannafél. Húsavíkur Amór Kristjánsson, formaður Verkamannafélags Húsavíkur, var nýlega staddwr hcr í bœnum. í eftirfarandi viðtali rœðir Amár um ýmis mál og viðhorf á Húsavík. Ákveðið hefur verið að hafnargerðinni á Húsavík verði lokið 1946, en hafnargerðin er sú framkvœmd sem Húsvíkingar leggja nú mesta áherzlu á. Þingey, blað þingeyskra sósíalista, hóf göngu sína 1. mai, og er hað fyrsta prentað blað, sem gefið er út t Þingeyjarsýslu. HÚSAVÍKUR.HÖFN Á AÐ VERÐA FULLGERÐ 1946. Fyrsta spurningin verður vitan- lega um ha'fnargerðina. — Eruð þið byrjaðir aftur á höfninni? — Já, vinna hófst við hafnar- gerðina 24. apríl s.i., en þá hafði hún legið niðri frá því um mán- aðamótin sept.—nóv. s.I. haust. — Hvað ætlið þið að koma henni langt áleiðis í'sumar? — Það er ákveðið að 50 menn vinni stöðugt að hafnargerðinni í sumar, og ákveðið að vinna fyrir 900 þús. kr. Ætlunin er að vinna i sumar það sem háfegt er að vinna með stórstraumsfjöru, ennfremur að steypa tvö kör — Meiningin cr að hafnái’gerðinni verði lokið árið 1946. Hafnarbryggjan, sem er úr tré, er orðin allmikið skemmd af maðki og hefur nú verið sendur kafari norður, og fór aðalverkstjór- inn við hafnargerðina með honum. ATVINNULEYSI — FISKILEYSI. — H'vað um atvinnu og afla? — Það hefur verið mikið at- vinnuleysi frá því á s.I. hausti og fiskileysi í vetur en sæmilegar gæftir. — Tveir bátar frá Húsavík fóru til Sandgerðis á vertíðinni. Á fundi, ,sem haklinn var í Verkamannafélaginu, og oddviti Húsavíkuixhrepps og Einar Reynis verkstjóri við hafnargerðina voru mættir á, bar stjórn Verkamanna- félagsins frarn tillögu um vinnu- skiptinigu þess éfnis, að ráðnir væru 50 manns í vinnu við hafn- argerðina, en að þeir sem ekki kæmust að þar yrðu látnir sitja fvrir allri bæjar- og skipavinnu. Var sú tillaga einróma samþykkt. HÚSVÍKINGAR ÆTLA AÐ KAUPA 2 VÉLBÁTA HJÁ NÝBYGGINGARRÁÐI. — Þið fiafið ákveðið að kaupa vélbáta? —- Já, það var samþykkt á al- mennum borgaraifundi 16. apríl, að panta 2 vélibátíi af 55 tonna stærð hjá nýibyggingarráði. Enn- fremur var samlþykkt að leita eft- ir hlutafé og að hrepptirinn legði einnig fram hlutafé í bátakaupin. Hreppsnefndin Kaus nefnd til þess að héfja hlutafjársöfnun. Kaupfé- lag Þingeyinga samþykkti á aðal- fundi sínum að leggja fram 25 þús. kr. í bátakaupin. Arnór Kristjánsson. Hlutaibráfin hljóða upp á 100 kr., 500 kr. og 1000 kr. í samibandi við þetta mál má geta þess, heldur Arnór áfram, að sósíalistum á Húsavík þykir það nokkuð langt gengið þegar odd- viti Húsavíkur fer á opinberum fundi að líkja mömnnu við hunda. Þeim þótti það einnig nokkuð langt gengið, að hann skyldi. eftir margStrekaða áskorun hrepps- ndfndarmanns, skorast undan að lesa tillögu sem sambykkt var við síðustu niðurjöfnun — eftir að uppvíst er að búið er að birta í opiniberum blöðum einkamál úr bókum Húsavíkurhrepps. — En við fyrrnefnda niðurjöfnun neit- uðu tveir nefndarmenn að skrifa undir útsvarsskrána eins og hún var þá. SLÍKRA VINNUBRAGÐA EKKI A« VÆNTA AF ÖÐRUM EN FRAMSÓKNARMÖNNUM. — Þú sagðir áðan að birt hefðu verið í blöðum einkamál úr bók- um Húsavíkurhrepps. Hvenær var það? — Síðastliðið haust birtist grein í Samvinnunni, sem Jónas frá Hriflu skrifaði, en þvaðrið í grein- inni var haft eftir kaupfélagsstjóra K. Þ. og varaoddvita Húsavíkur- hrepps. Það mun vera algert eins- dæmi hér á landi, að oddvi'tar hreppanna séu að gefa blöðum upp lýsingar um einkamál sem geymd eru í bókum hreopsins, aðeins í því skyni ef verða mætti til þess að ófrægja póþtískan andstæðing. Enda mun óhætt að fullyrða að slíkra vinnubraigða sé ekki að vænta af öðrum en Framsóknar- flokksmönnum. Það, sem haft er eftir sama manni, í fyrmefndri grein, um sjó- j mannastétt Húsavikur og Pönt- unarfélag verkamanna, er vægast sagt ærulaust þvaður og mun hann fá að svara fyrir það á öðrum vett- vangi. Þá koma aðfarirnar við Magnús Jónsson, fyrrverandi skrifstofu- mann K. Þ., mörgum Hxísvíking- um spánskt fyrir sjónir, og ég veit ekki betur en finna megi það ein- hversstaðar í bókum K. Þ., að auglýsa eigi starfið, en hef hins- vegar hvergi séð það auglýst að þessi staða væri laus. ÞEGAR ODDVITINN VEIFAÐI TÍMANUM. — Það mun hafa verið sendi- nefnd frá ykkur Húsvíkingum hér í bænum í vetur en ég komst nú raumar aldrei í kallfæri við þá néfnd? — Jiá, rétt er það, og mér kom það skrftilega fyrir sjónir, þegar néfnidin, sem fór til Reykjavíkur vegna hafnarmála og i-afmagns- m'ála Húsavíbur, var hér, að ekk- ert skyldi heyrast frá nefndinni um þessi mál í bæjarblöðunum hér. Ég keypti öll dagblöðin i Reykjavík þenna tíma sem nefnd- in var hér og sá þar ekkert um þessi mál, og ræddi um það við varáfoi-mann Verkamannnfélags- ins, þegar hann kom norður, hvers vegna nefndin hefði ekki átt við- tal við þlöðin. Oddviti Húsavíkur frétti þetta og rak framan í mig biað af Tímanirm(!) þar sem var grein um Húsavíkurhöfn og við- tal við oddvifiaún — sem var dag- sett daginn eftir að nefndin fór úr Reykjavík(l). Það sýnir einmitt það sem sló mig lengi, að sam- vinnan muni ekki hafa verið of góð í þessum stóru málum okkar Húsvíkiniga, enda mun honum ekki hafa verið eins ljúft að fara til viðræðna við þessa ríkisstjórn eins og árinu áður. Nú hefur okkur verið falið að vinna saman í at- vinnumálum Húsavíkur og get ég sagt að mér hefur þótt semjast vel. EIGNARNÁM Á LÓÐ K. Þ. — Nú hefur verið matin af ó- vilhöllum mönnum hafnarlóðin sem Kaupfélag Þingeyinga keypti af Einairi Guðjohnsen, og heftir hreppshefndin ákveðið að taka hana eignarnámi í ár, en kaupfé- lagsstjórinn lýsti því yfir á full- ínúafundi K. Þ„ að hann myndi ekki sleppa lóð þessari nema sam- kvæmt dómi og kvaðst myndi fara í mál. Þogar hreppsnefndin sem nú sit- ur kom sarnan á fyrsta fund sinn lýsti Þórhallur kaupfélagsstjóri því yfir, að hann væri aldursfor- seti hreppsnefndar Húsavíkur og lofaði því að vinna vel og óskaði eftir góðri samvinnu, en í öllum þeim málum, sem að hreppsmál- um lúta segi ég fvrir mig, sem Tuliníusarmótið Hl. IMw i:i - M fru i:i Fyrsti kappleikur sumarsins milli K.R. og Víkmgs var yfir- leitt mikið betri en búast hefði mátt við, með tilliti til þess hve snomma á sumrinu leikurinn var. Það brá oft fyrir rnjög laglegum samleik hjá báðuri liðum, þau búa yfir furðu mikilli Ieikni, og er Víkingur þar fullt svo stei-kur, en aftur á mó'ti búa K.R.-ingar yf ir meiri krafti og voru yfirleitt sterkari í návígi. Hinsvegar var leikux-inn svo jgifn. að það var nokkur heppni hvor setti sigur- rnarkið. Fram'herjar og framverðir Vík- ings voru driffjaðrir liðsins, aft- asta vörnin var nokkuð sein í vöfum en sæmilega örugg, þó Vík ingur hafi fengið góðan liðsmann þar sem er hinri kunni skíðakóng- ur, Jónas Ásgeirsson frá Siglu- firði. K.R liðið féll vel saman bæði í sókn og vörn. Bar Birgir höfuð- þunga varnarinnar sem hefur nú misst markmann undanfarinna ára en hann er meiddur og lík- legt hann verði það fram eftir sumri. Hinn nýi markmaður er ungur og enn óreyndur. borgari Húsavíkúrhrepps, að mér hefur þótt hann vinna „aðdáan- Iega'‘ illa. Enda mun það þykja einsdæmi að K. Þ. skuli selja Húsavíkuiihöfn éfni (sement) í 'höfnina, en ac% höfnin skuli ekki fá þessar vörur án milliliða. BYGGINGAFÉLAG VERKAMANNA STOFNAÐ Á HÚSTVÍK. Leikur Fram og Vals var ekki nærri eins góður og fyrri leikur- inn. í hann vantaði yfirleitt hugsaðan og uppbyggðan sam- leik. Sem sagt of mikil spörk og hlaup, og var þetta atriði, eins og allur leikurinn mjög svipaður- á báða bóga. Valur átti fleiri skot á mark, en flest þeirra voru á of löngu færi og varði Magnús það auðveldlega. Framarar sóttu oft nokkuð jafnt á en flest þau: áhlaup voru án þess að hafa, hættulegan endir. Bæði liðin báru rneira keim af 11 einstæðingum en einni heild. Af einstaklibgum sýndu þeir Albert hjá Val ágætan leik og einnig Karl Guðmundsson hjá Frarn. Leik þennan varð að tvífram- lengja og náðust eigi að heldur úrslit, svo heyja verður nýjan; leik eitt'hvert næsta kvö'ld. Báðir þessir leikir voru mjög; prúðmannlega leiknir enda veitt- ist dómurunum, Hrólfi Benedikts- syni (K.R. - Vík.) og Sigurjóní Jónssyni (Val - Fi*am) auðvelt að> hafa vald á þeim bvaða áriugamál verkamanna hafa verið til umræðu á fundun- um. En þrátt fyrir það, að Fram- sókn sé alltaf að lirópa urn of- beltli sósíalista í félaginu voru kosnir !Franisóknar- og Alþýðú- flokkgmenn í fulltrúaráð félagsins á síðasta fundi, þrált fyrir það að Framsóknarmenn hefðu lítinn á- huga fyrir að sækja fundinn. Þann- ig er nú „ofbeIdið“ í framkvæmd. — Héfur ckki verið skortur á húsnæði á Húsavík? — Jú, það he'fur verið mikil húsnæðisekla og er mikill áhugi fyrir byggingu nýrra ibúða á Húsavík og var stofnað þar bygg- ingafélag verkamanna 23. apríl s.l. Stöfnendur voru 28. VANTAR GAGN- FRÆÐASKÓLA. — Hvernig er með skólabygg- ingar? — Það er mikill áhugi fyrir því að íá gagnfi-æðaskóla á Húsavík. '• Síðastliðinn vetur var starfrækt þar gagnfræðaskóladeild, en það stendur á húsnæði að hægt sé að sfcarfi-ækja þar gagn'fræðaskóla og menn óska eftir því að unnið verði með krafti að hrinda þessu rnáli í framkvæmd nú þegar. ÞEGAR SALTIÐ DOFNAR. — Verkaxnannafélagið á Húsa- vílc gerði nýja samninga í vor? — Já, það gerði nýja samninga s.I. vor og gekk það ágætlega og eru það að ýmsu levti bcztu samn- ingar á landinu. Og fyrst við minnumst á Verka- mannaifélagið er rétt að minnast á það, að eftirtektarvert er, að síð- ain kosningar fóru fram til Al- þýðusambandsþings á s.l. hausti og Framsóknarmenn smöluðu inn í félagið, hafa ekki margir Fram- sóknanmenn sézt á fundum í fé- > laginu, og hefur verið alveg sama | NÝ BIFREIÐASTÖÐ. — Hvað er fleira í fréttum af Húsavík? — Nú eru tvær vörubifreiða- stöðvar á Húsavík. áður var ekki nema ein. Framkvæmdastjóri fyr- ir Bifreiðastöð Þingeyinga er Valdimar Árnason. en Páll Kristj- ánsson fyrir Biíeriðastöð Húsavík- ur. Urðu nokkur átök utn það h\-or stöðin skyldi halda gamla naffninu: B. S. H. Abvinnui'ekendur hafa viðui- kennt jöfn vinnui'éttindi beggja stöðvanna, en verði bílum sankað inn í þoi-pið skulu Hiísvíkingar ganga fyrir vinnu. FYRiSTA PRENTAÐA BLAÐ- 1Ð í ÞINGEYJARSÝSLU. ,— Þið eruð farnir að gefa út 'blað á Húsavík? — Já, Þingev. blaða sósíalista í Þingeyjarsýslu, hóf göngu sína 1. maí. Ákveðið er-að það verði mán- aðarblað, er ræði um öll áhuga- mál héraðsins og önnur mál. Út- géfanidi eru sósíalistafélögin í Þingeyjarsýslu. Ritstjórar eru Páll Krirtjánsson og Valdimar Hólm Haflstað. Þetta er fyrsta prentaða blaðið sem gefið er út í Þingcyjarsýslu. — Hvernig var Þingey tekið? — Blaðinu var biátt áfram fagnað — en þó með einstaka undantekningu. Framsóknarmenn höfðu mikið lagt á sig við að Framhald á 5. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.