Þjóðviljinn - 29.06.1945, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 29.06.1945, Blaðsíða 8
Afturhaldið, -undir forustu Helga Benedikts- sonar, stofnar til kjaradeilu í Vestmannaeyjum 'Þessi skemmdarstarfsemi afturhaldsins verður því sjálfu til háðungar Afturhalclsöflin í Vestmannaeyjum kófu fyrir nokkru deilu við samtök verzlunarmanna þar á staðnum. Nátttröllum afturlialdsins í Eyjum liefur tckizt að fá kaup- menn þar til þess að neita að viðurkenna Verzlunarmannafélag Vestmanneyinga og semja við það um kaup x>g kjör verzlunar- fálks og hafa því verzlunarmenn í E.yjum átt í deilu frá 23. þ.m. Verzlunarmannafélag Vestmannaeyinga hefur nú samið við 6 fyrirtœki, þar á meðal stœrstu matvörubúðina í bœnum. Þessi heimskulega ósvifni afturhaldsins í Eyjum hefur hvarvetna ■verið fordœmd, einnig meðal sœmilegra manna í lcaupmannastétt Eyja. þlÓÐVIUINN Samþykktir skólastjóra héraðs- og gagnfræðaskóla I>að er ekki um að villast að nátttröll afturhaldsins í Vest- mannaeyjum, með Helga Béne diktsson í broddi fylkingar, hafa riú dagað uppi. Sá var sið- ur atvinnurekenda, meðan verkalýðssamtökin voru enn veik, . að neita að viðurkenna þau. Nú er sá tími löngu lið- inn, og ekki nema einstaka steingert nátttröll sem lætur.sér slíka frekju til hugar koma. SMkrar tegundar er aftuniialdið í Eyjum, undir forustu Helga Benediktssonar. Vísir gerði þetta mál að um- talsefni í fyrrad., og sem vænta mátti er frásögn þessa blaðs, sem hefur þíjð að kjörorði að slá verkalýðshreyfinguna niður „í eitt skipti fyrir öll“, fuil af hinum lævíslegustu blekking- um. Vísir segir að kaupmenn í Eyjum hafi samninga við ver'zl- unarmannafélag Vestmanna- eyja, og séu þeir samning- ar „enn í gildi og óuppsagðir af báðum aðilum“. Hvað er nú hið rétta í mál- inu? Verzlunarmannafélag Vest- mannaeyinga var stofnað fyrir rúmu ári síðan. Takmark þess er að bæta kjör verzlunarfólks og gera samninga um þau. Það er eina stéttarfélag verzl- unarmanna í Eyjum, það er meira en 100% fjölmennara en V'ísir segir og það er eldra en „félag“ kaúpmannanna. Skömmu eftir að stofnun þessa félags var kunn orðin boðuðu kaupmenn í Eyjum til fundar (frá þeim hjákátlega fundi hefur áður verið sagt í Þjóðviljanum) og stofnuðu „verzlunarmannafélag“. í þetta „félag“ gengu kaupmenn, for- stjórar og fólk með ýmiskonar titlum, en fáir voru þeir laun- Esja væntanleg heim 9. júlí Esja mun vœntanlega leggja af stað Iheimleiðis frá Kaup- mannahöfn á sunnudaginn kem ur og verður þá vœntanlega í Reykjavík um 9. júU... Ekkert mun yerða af þeirri hreinsun sem fyrirhugað var að fram færi á Esjunni í þessari ferð, því hún fær hvergi við- gerðarpláss, hvorki í Kaup- mannahöfn né Gautaborg. þegar úr verzlunarstétt, sem í þetta klofningsfélag gengu. Þegar þess er gætt, að Félag kaupsýslumanna í Eyjurn er sem heild í þessu „v.erzlunar- mannafélagi“, skyldi engan undra þótt kjarasamningar þess við kaupmenn séu „enn í gildi og óuppsagðir af báðum aðilum“M Hinsvegar neituðu kaup- menn að semja við Vcrzlunar- m a n n a f éla g Ves t man n a ey i n ga, samtök lauriþeganna i verzlun- armánnastétt. Og Helgi Benc- Knattspyrnukapp- leikur við Bretana n.k. sunnudag Á sunnudagskvöldið kemur fer fram knattspyrnukappleik- ur miUi flokks úr brezka hern- um og úrvalsliðs reykvísltra knattspyrnufélaga. íslenzka liðið er nokkuð 'breytt frá því á síðasta kapp- leik og er það þannig skipað: Markvörður er Anton Sig- urðsson Víking, hægri bakvörð- ur: Karl Guðmundsson Fram, vinstri bakvörður: Sigurður Ólafsson Val, h. framv.: Sæ- mundur Gíslason Fram, mið- framvörður: Brandur Brynjólfs son Víkirig, v. framvörður: Óli B. Jónsson K.R., h. útfrám- herji: Birgir Guðjónsson K.R. v. útframherjir Ellert Sölvason Val, h. innfrámherji: Jón Jón- diktsson, se.m' auðsjáanlega hef- ur haldið, allt til ]>essa dags, að duttlungar hans og frekja geti gilt sem lög, svaraði samtökum launþeganna með því að hóta starfsfólki sinu brottrekstri, cf það gengi í þau. í þessari deilu hefur aftur- haldið valið sér verkfæri í sam ræmi við tilganginn, en það hefur mjög beitt fyrir sig hin- um alþekkta Georg Ólafssyni. í heilt ár hefur þcssi ósvífni kaupmanna i Eyjum: að neita að viðurkenna löglegt stétt- arfélag verið látin viðgangast. I heilt ár hafa þeir haft lækifæri til þess að semja við stéttarfélag verzlunarmanna í Éyjum, cins og siðaðir menn í nútímalþjóðfélagi. Þeir hpfa ekki viljað nota þetta tækifæri, cn þvert á móti látið afturhald ið undir forustu Helga Ben. hafa sig til að stofna til yfir- standandi hcimskulegu og von- lausu deilu. Ekkert lát á loft- árásunum á Japan 450 bandarísk risaflugvirki gcrðu í gœr \harðar árásir á þrjár japamskar Juifnarborgir, og varð af mikið tjón, Ein þessara borga er ein mesta .flotahöfn Japana. í Japan eru margvíslegar ráðstafanir gerðar til undir- búnings hervarna gegn innrás. Iíefur t.d. sérstökum hcr ver- ið falið að verja höfuðborgina og nágrenni hennar, og störfum mikilvægustu ráðstafanna verið dreift á stofnanir víðsvegar um landið, svo stjómin fari síður i mola þó einhver hluti landsins verði hernuminn. asson K.R., miðframherji: Al- bert Guðmundsson Val og v. innframherji Sveinn Helgason Val. Dagana 11.—13. júní var haldinn fundur skólastjóra hér- aðs- og gagnfræðaskóla á ís- landi. Atti frasðslumálastjóri frumkvæði að fundi þessum. Fyrir fundinum lágu: 1. frv. skólamálanefndar um gagnfræðastigið, 2. Launamál, 3. .Námsbækur auk annarra mála, Voru málin öll rædd rækilcga og síðar ýsmar tillög- ur samþykktar. Voru þessar helztar: I. Fundur héraðs- og gagn- fræðaskólastjóra beinir þeim tilmælum til milltþinganefndar í skólamálum, að hún geri það ,að tillögu sinnni, að mennta- skóli verði stofnaður í sveit hið fýrsta til þess að auðvelda æskumönnum * sveitanna menntaskólanám, II. Fundúrinn telur, að út- gáfa kcnnslubóka eigi að vera frjáls og öllum lieimil, því að þann veg verði bczt tryggð eðlileg þróun í va-li og i'itgáfu námsibóka, enda verði fræðslu- málastj. jafnan á verði um, að ekki skorti nauðsynl. kennslu- bækur. Þá tclur fundurinn rétt, að nemendur kaupi og eigi þær bækur, er þeir nota við nám. Einnig lítur hann svo á, að æskilegast sé, að fræðslumála- stjóri annist útvegun erlendra kcnnslutækja og kennslubóka. III. .Um 39. gr. frv. Sctja mætti skýrari ákvæði um það, að ýms störf kennara, önnur en bein kennslustörf, megi teljast með í starfsmánaðar- fjölda hans og geti því lengt hann. IV. 44. gr. frv. Ilctt væri að fella niður ákvæði um það, að kennarar dæmi um úrlausnir hver í sinni grein við lands- próf. Skulu öll ákvæði um framkvæmd prófa vera í reglu gerð. V. Um 56. gr. frv. Ákvæði vanta um það, að nemendur í heimavistarskólum skuli greiða húsaleigu. Geta mætti þess, að um fleiri tekjúöflunar- leiðir qn framlög ríkis og sveita mcgi vera að ræða. VI. Um 57. gr. Of lítið riiun vera að ætla einn kennara á 25 ncmendur í skólum, sem hafa verknámsdeildir. Mundi nær, að einn kennara þyrfti á 15—18 ncm. eftir stærð skól- anna. Þá hafa sumir fundar- menn sérstöðu að því leyti, að þeir telja skyldunám frá 13— 15 ára aldurs ekki æskilegt að syo stöddu. Ef skyldunám verð ur lögboðið eftir 13 ára aldur, telja ýrnsir æskilegt, að því þurfi ekki að vera lokið við 15 ára aldur. VII. Fundurinn samþykkir, að upphaf 55. gr. í frumvarpi til laga um. gagnfræðanám orðist svo: „Ríkissjóður greiði allt að þrem fjórðu stofnkostn aðar við heimavistarskóla og heimangönguskóla“. VIII. Fundurinn telur, að héraðs- og gagnfræðaskólar skuli ekki starfa lengur en 7% mánuð á ári liverju, til þess að æskumenn þeir, sem er skól- ana sækja, slitni ckki úr tengsl- um við lífrænt atvinnulíf þjóð- arinnar, XII. Svohlj. till. frá Bene- dikt Tómassyni samþ. með öllum atkv.: Fundur héraðs- og gagnfræðaskólastjóra, haldinn í Rv. dagana 11.—13. júní árið 1945, leyfir sér að skora á hið háa Alþingi að samþykkja frum varp það um gagnfræðanám, er millliþinganefnd í skólamálum hefur lagt fram. XIII. Fundurinn samþykkir að kjósa þriggja manna nefnd, cr vinni að þvi við fræðslu- niá 1 a s t jóra, k en n slu mála ráð- herrra og alþingi, að laun hér- aðs- og gagnfræðaskólakenn- ara og kennara Eiðaskóla verði greidd eins og ákveðið er í 16. og 29. gr. launalaga, þótt kennslubími skólana sé styttri en 9 mánuðir. ðlá benda á það, að skólarnir gcta að öðrum kosti búizt við því, að beztu kennararnir hverfi frá þessmn skóluin og leiti sér starfa, þar sem kcnnslutími cr lengri og árslaun því hærri. Þá felur fund urinn nefndinni að beita sér fyrir því, að héraðsskólnkcnr- arar verði færðir í sama launa flokk og gagnfræðaskólakenn- arar. I nefndina voru kjörnir samhlj.: Þórir Stciúþórsson, Ilanní- bal Valdimarsson og Sigfiis Sig urhjartarson. Samþykkt var að kjósa skóla ráð héraðs- og gagnfræðaskóla með 7 atkvæðum gegn 1. Samþykkt að ráða náms- stjóra með öllum greiddum atkv. Síðasta kvöldið sátu fundar- merin kvöldverð að Hótel Borg í boði fræðslumálastjóra. Var þar mættur kennslumála- ráðherra, Brynjólfur Bjarna- son, og frú hans. Ný bók Sherlock Holmes í gær kom í bókaverzlan- ir ný bók: Sherlock Holmes, eftir Conan Doyle. í þessari bók eru tvær langar leynilögreglusögur: Réttlát hefnd og Týndi fjár- sjóðurinn. Bókin er 330 bls. að stærð og kostar 20 kr.. Bókin mun vera hugsuð ?em hin fyrsta a£ sögunum um. hinn fræga leynilögreglu rnann og ætlunin að gefa hinar út síðar, en sögumar af Sherlock Holmes hafa ætíð verið mjög vinsælt lestrarefni. Þeir fagna sigri Stríðið á Kyrrahafi. — Tvcir Bandaríkjamenn lialda á loft japönskum fána, sem þeir hafa kcrtekið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.