Þjóðviljinn - 03.08.1945, Blaðsíða 5
Föstudagur 3. ágúst 1945
Þ JÓÐVILJINN
6
Framhaldsaðalfundur KRON:
KRON opnar þrjár nýjar sölubúðir í Rvík
Kosningalögunum breytt — Einn framkvæmda-
stjóri — Skilnaður Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
deildanna samþykktur — Viðskiptin aukast —
KRON kaupir Fiðurhreinsunarstöð íslands
Viðtal við Guðberg Kristinsson félagsmálafulltrúa KRON
Framhaldsaðalfundur KRON var haldinn í Lista-
mannaskálanum sl. þriðjudag.
Á fundinum voru samþykktar ýmsar lagabreyt-
ingar, m. a. varðandi deildaskiptinguna og fram-
kvæmdastjórn, verður eftirleiðis einn framkvæmd-
arstjóri fyrir félagið.
KRON mun á næstunni opna þrjár nýjar verzl-
unarbúðir og fleiri eru í undirbúningi. Þá hefur fé-
'lagið keypt Fiðurhreinsunarstöð íslands.
Fréttamaður Þjóðviljans hitti Guðberg Kristins-
son, félagsmálafulltrúa KRON og fer frásögn hans
af gerðum fundarins hér á eftir:
Breytingar á kosninga-
lögunum.
— Hvaða mál voru rædd á
framhaldsaðalfundi KRON,
sem haldinn var á þriðjudag-
inn?
— Það lágu fyrir ýmsar
breytingatillögur við félags-
lögin, einkum varðandi kosn-
ingar og skipulag félagsins.
— Hvaða breytingar voru
gerðar á lögunum?
— Þær breytingar sem
mestu skipta voru: í fyrsta
lagi að deildunum er fækkað
til muna, þannig að hver bær
eða hreppur verður ein
deild. Þannig verður t. d.
Reykjavík ein deild, í stað
þess að áður voru 12 deildir
í Reykjavík. Stærri deild
unum verður svo skipt í
hverfi utan um búðir félags-
ins, þannig, að þeir sem sækja
verzlun í sömu matvörubúð
mynda hverfi utan um þá búð.
í öðru lagi var gerð sú breyt
ing að kosning á fulltrúum til
aðalfundar fyrir deildirnar
fer ekki fram á félagsfundi
eins og verið hefur, heldur á
þar til auglýstum kjörstað og
mun þá kosning í f jölmennum
deildum standa lengur en
einn dag.
Kosið verður um lista, sem
eiga að leggjast fram á tíma-
bilinu 20.—28. febrúar og er
leyfilegt að kjósa menn af
fleirum en einum lista, ef fé-
lagsmönnum sýnist svo.
í þriðja lagi var samþykkt
að í stað þriggja manna fram-
kvæmdarstjórnar, er skipuð
var þrem framkvæmdastjór-
um, komi einn framkvæmda-
stjóri.
Þeir sem ekki verzla
við félagið
— Fleiri lagabreytingar?
— Já, þá er rétt að geta þess
að samþykkt var svohljóðandi
ný málsgrein í 12. gr. félags-
laganna:
„Stjórninni er heimilt að
víkja félagsmanni úr félagipu:
a. hafi hann í orði eða verki
unnið gegn félaginu eða til-
gangi þess.
b. Hafi hann ekki lagt fram
kvittanir fyrir viðskiptum sín
um við félagið, eða fært sönn-
ur á þau á annan hátt í eitt
ár. \
c. Hafi hann að nauðsynja-
lausu haft aðalviðskipti sín
hjá öðrum en félaginu.
Urskurði stjórnarinnar get-
ur hann skotið til aðalfund-
ar.“
Auk þessa voru gerðar fleiri
breytingar, en þetta tel ég
aðalbreytingarnar sem gerðar
voru á félagslögunum, og tel
ég nauðsynlegt að hver félags
maður kynni sér lögin, en þau
verða endurprentuð og send
félagsmönnum.
Skilnaður Hafnar-
f j?rðar- og Keflavíkur-
deildanna við KRON
— Þið hélduð fulltrúafund
strax eftir framhaldsaðal-
fundinn, hvað gerðist þar?
— Sá fundur var haldinn
um hinn margumtalaða skiln-
að Hafnarfjarðar- og Keflavík
urdeildanna við KRON, en
eins og Þjóðviljinn hefur áður
skýrt frá ætla þessar deildir
sér að verða sjálfstæð kaupíé-
lög.
Á fulltrúafundinum var sam
þykkt heimild til stjórnarinn
ar um þennan skilnað í sam-
ræmi við tillögu er áður hafði
verið samþykkt á aðalfundi og
í deildum félagsins. Enn er
þó ekki gengið endanlega frá
samningum um skiptingu á
eignum og lager.
KRON opnar þrjár
nýjar búðir
— Eg hef heyrt að KRON
ætli að opna nýjar búðir bráð-
lega?
— Já, það er verið að setja
upp nýja matvörubúð í Laug-
arneshverfi, á Hrísateig 19
(aður Laugaskálinn), og verð
ur hún væntanlega opnuð um
miðjan þennan mánuð.
Þá hefur félagið keypt sölu-
Guðberg Kristinsson
búð á Njálsgötu 86 og mun fá
hana til afnota í marzbyrjun
næsta vetur.
Þá er ennfremur í undirbún
ingi að koma upp búð í Klepps
holti og verður hún opnuð
snemma á þessu hausti.
Auk þess eru fyrirhugaðar
búðir á fleiri stöðum í bæn-
um, en að svo komnu máli er
ekki tímabært að ræða það
írekar.
Sjálfsölubúðinni á
Vesturgötu 15 breytt í
venjulega sölubúð
— Hvaða breytingu er verið
að gera á búðinni á Vestur-
götu 15?
— Það er verið að breyta
sjálfsölubúðinni, sem svo var
kölluð, í venjulega sölubúð,
og er það gert að fenginni
þeirri reynzlu, að búðin hefur
ekki gefið þann árangur, er
reiknað var með.
Nú verður þarna venjuleg
matvöru- og kjötbúð og er
gengið inn í hana frá Vest-
urgötunni, en á horninu á
Vesturgötu og Garðastræti,
þar sem áður var gengið inn
í búðina kemur einhverskon-
ar sérvöruverzlun, cn ennþá
er ekki búið að ákveða hvaða
varningur það verður.
KRON hefur keypt
fiðurhreinsunarstöð
íslands
— Eg hef heyrt að KRON
hafi sett á laggirnar fiður-
hreinsun?
— Já, KRON hefur keypt
Fiðurhreinsunarstöð íslands
og hafið starfrækslu hennar
og jtel ég að félagsmenn og
bæjarbúar almennt muni, að
fenginni reynzlu nota sér
mjög mikið að láta hreinsa
sængur sínar þar. Eg hef séð
sængur, þegar þær hafa komið
Frh. á 7. síðu
Tangier
gORGIN TANGIER í Marokkó, mikilvægasta hafn-
arborg við mynni Miðjarðarhafsins, hefur um
langt skeið verið stjórnað af alþjóðlegri eftirlitsnefnd,
þar til nú fyrir nokkrum árum að spánska fasista-
stjórnin lét hernema borgina, í skjóli fasistastórveld-
anna, er þá voru mestu ráðandi við Miðjarðarhaf
vestanvert.
J SUMAR hafa Bandamenn gefið Franco til kynna
að þetta ástand verði ekki þolað lengur. Ísvestía,
aðalmálgagn sovétstjórnarinnar, ræðir mál þetta og
afstöðu Sovétríkjanna í ritstjórnargrein.
JJINN 20. JÚNÍ birti utanríkisráðuneyti Banda-
^ ríkjanna yfirlýsingu þess efnis, að fulltrúar
Bandaríkjanna Bretlands og Frakklands væru að
hefja samkomúlagsumleitanir í París um framtíðar-
stöðu alþjóðasvæðisins Tangier.
Við viljum minna lesendur á hina miklu hern-
aðarþýðingu Tangiers, sem áður hefur valdið árekstr-
um milli ríkja, eins og Bretlands, Frakklands, Þýska-
lands, Spánar o. fl. Þess mun minnzt, að 31.marz '
1905, fór Vilhjálmur II. Þýzkalandskeisari áberandi
ferð til Tangier og flutti þar ræðu, krafðist þess að
Þýzkaland fengi hlutdeild í stjórn Tangiers.
Þar sem svo mörg ríki höfðu hagsmuna að gæta
í Tangier, var stjórn svæðisins lengi ákveðin með
samkomulagi helztu ríkjanna, t. d. með samningum
um Marókkomál 3, júní 1880, milli Rússlands Frakk-
lands, Bretlands, Bandaríkjanna og Spánar, og Algier-
as-samningnum 1906, sem Rússland, Þýzkaland, Bret-
land, Ítalía, Marokkó, Holland, Portúgal og Svíþjóð
stóðu að. Þannig var Rússland með í báðum þessum
samningum um Tangiers, 1880 og 1906, og tekið var
tillit til hagsmuna þess.
Þessu var ekki þannig farið 1923. Hinn 18. desem-
ber það ár var undirritað í París samkomulag milli
Frakklands ,Bretlands og Spánar um stjórn Tangi-
er-svæðisins. Var það lýst alþjóðasvæði og löggjafar-
valdið fengið í hendur alþjóðlegri löggjafarsam-
kundu, skipaðri fjórum Frökkum, fjórum Spánverj-
um, þremur Bretum, tveim ítölum, Bandaríkja-
manni, Hollending og Portúgalsmanni.
jgNDA ÞÓTT samningurinn 1923 hefði inni að halda
tilvitnanir í Algecirassáttmálann, sem Rússland
var aðili að, var Sovétríkjunum ekki boðið að senda
fulltrúa á ráðstefnuna 1923. Var það vegna þess," að
1923 hefðu tvö aðalríkin, sem að ráðstefnunni stóðu,
ekki viðurkennt sovétstjórnina, og töldu sér því fært
að láta hagsmuni hennar liggja milli hluta.
Þess má einnig minnast, að 1926 bauð spánska
stjórnin þeim ríkjum, sem aðilar voru að Algeciras-
sáttmálanum að haldin skyldi ný ráðstefna t;l að
endurskoða viss atriði sáttmálans, og var sovétstjórn-
inni ekki heldur þá boðin þátttaka.
Sovétstjórnin tilkynnti eftir diplómatískum leið-
um, að hún áskildi sér rétt tjl að viðurkenna ekki
ákvarðanir þessarar ráðstefnu, ef hún yrði haldin án
þátttöku Sovétríkjanna.
ÞESSU ÁRI, með algerum ósigri verndara Franc-
os, Ilitler, byrjar nýr kafli í sögu Tangier. Franco
taldi sig reiðubúinn til að semja um Tangier við
Bretland, Frakkland og Bandaríkin. Hafa rík'sstjórn-
ir þessara þriggja ríkja ákveðið að halda ráðstefnu
um málið. Sovétstjórninni var tilkynnt að ráðstefnan
ætti að hefjast í París 3. júlí, en ekki boðin þátttaka.
En þar sem enginn efi getur leikið á lögmætum rétti
Sovétríkjanna til aðildar í þessum málum, fór sovét-
stjórnin fram á að ráðstefnunni yrði frestað þar til
það mál hefði verið undirbúið. Það verður að leysa
Tangier-málið með þátttöku Sovétríkjanna."
Ráðstefnunni um Tangier var frestað.