Þjóðviljinn - 03.08.1945, Side 8

Þjóðviljinn - 03.08.1945, Side 8
Gjaíir Rockeíellersjóðsins til Háskóla íslands Brúarverðir við Ölfosárbrá fá Stjórn Rockefellersjóðsins í New York hefur nýlega á- kveðið að gefa Háskóla íslands allt að 150.000 dollara, gegn jafnmiklu framlagi annarsstaðr frá, til að koma upp til- raunastofnun í sjúkdómafræði og kaupa áhöld til hennar. Er gert ráð fyrir að stofnun þessi starfi aðallega að rannsókn- um á búfjársjúkdómum. Þar sem síðasta Alþingi veitti 1.000,- 000 kr. í sama tilgangi, ef framlag fengist annarsstaðar frá, eru nauðsynleg skilyrði fengin til að þetta mál komist í framkvæmd. Hér á landi hefur lengi ver-! vísindum ið vakandi áhugi fyrir að koma upp sérstakri stofnun ítil rannsókna búfjársjúk- dóma, einkum vegna skæðra sjúkdóma, sem undanfarinn áratug hafa hrjáð bústofn laidsmanna. Nú getur þessi hugmynd komizt í fram- kvæmd með þeim myndar- skap, sem æskilegt er um slíka stofnun, og verður vænt anlega ekki lang't að bíða unz unnt verður að hefja fram- kvæmdir í málinu. Afskipti Rockefellersjóðsins byrjuðu 1941, er dr. George K. Strode, forstjóri alþjóða- heilbrigðisdeildar Rockefeller sjóðsins, kom hingað til lands beinlínis í þeim tilgangi að kynna sér, með hverjum hætti Rockefellerstofnunin gæti helzt orðið íslendingum að gagni. Kynnti hann sér ýmis- legt í sambandi við lækna- menntun og heilbrigðismál og átti tal við kennara lækna- deildar Háskólans, landlækni og aðra er forustu hafa í hbil- brigðismálum þjóðarinnar, m. a. þáverandi heilbrigðis- og landbúnaðaráðherra. Var af öllum þessum aðilum lögð mest áherzla á, að unnt væri að koma upp vandaðri til- raunastofnun fyrir búfjár- sjúkdóma, auk þess sem bent var á ýmislegt fleira, sem vantaði, m. a. til að bæta kennslu í lífeðlisfræði, lyfja- fræði og heilbrigðisfræði. í ýmsum löndum víðsvegar um heim. Hafa margar af stofnunum þeim, sem hlotið hafa stuðning Rockefellersjóðsins, reynzt giftudrjúgar, og er vonandi, að svo verði einnig um þá stofnun, sem nú er svo rausn- arlega til stofnað. Háskólinn hefur að sjálf- sögðu þakkað þessa miklu gjöf og virðir mikils það traust sem Rockefellersjóður- inn hefur sýnt honum. Skipuð hefur verið nefnd til að undirbúa byggingu þessarar stofnunar og eru horfur á, að húsagerðin geti hafizt á næsta ári. kjarabætur Skömmu eftir þessa heim- sókn barst Háskóla íslands 15.000 dollara gjöf til kaupa á tækjum handa læknadeild, og var með bví fé unnt að bæta úr áhaldaskorti kennar- anna í lífeðlis- og lyfjafræði. Fjárframlag til búfjársjúk- dómastöfnunar kom til mála, en frestað var að taka ákvörð- un um það, sumpart vegna þess hve tímar voru erfiðir. Málinu hefur samt verið haldið vakandi, bæði af fyrr- verandi og núverandi ríkis- stjórn, og mun ákvörðun Al- þingis, um myndarlegt fram- lag í þessum tilgangi, hafa valdið miklu um hve rausn- arleg gjöf Rockefellersjóðs- ins varð. Björn Sigurðsson læknir, sem í sumar var send- ur til New York af ríkisstjórn- inni til að gefa ýmsar upp- lýsingar í málinu, átti sinn mikilsverða þátt í að málið fékk þessa endalykt. Samið um smíði 31 fiskibáts við innlmdar skipasmíðastöðvar Að íillilutun 'atvunnaimúlaráðuneytisina liefur Nýbyg-gingaráð aflað tilboða í smíði á vélskipum iimanlands, en ráðuneytið síðan gert samninga um smíði á 31 vélskipi, 16 skipum 35 rúml. og 15 skipum 55 rúml. Samningar þessir eru á SkipasmíðastöS Siglufjarð- þá leið, að skipasmíðastöðv- arnar leggja til allt efni og vinnu við smíði skipanna ásamt öllum tækjum og vél um að undantekinni aflvél. aflvélina kaupir ráðuneytið sérstaklega. Verð 35 rúml. skipanna án aflvélar er kr. 265.000,00 en 55 rúml. skipanna er kr. 423.500,00. Umsamið er að 12 skip 35 fúml. og 7 55 rúml. verði tilbúin á árinu 1946, en hin 12 árinu 1947. Skipasmíðastöðvar, sem samiö hefur verið við, eru þessar: Landssmiðjan, Reykjavík. Skipasmíðastöð Þorgeirs Jósefssonar, Akranesi. Skipasmíðastöö Einars Sigurðssonar, Fáskrúðsfirði. Mánaðarblaðið „Þing- ey“ komið út Mánaðarblaðið „Þingey“, sem sósíalistafélögin í Þing- eyjarsýslu annast útgáfu á, kom út 29. f. m. og var það 3. tölublað 1. árgangs. — Auk stjórnmálagreina flytur blað- ið ýmsar fréttir úr héraðinu og ættu því Þingeyingar, sem dvelja hér í Reykjavík, að veita því sérstaka athygli. „Þingey“ fæst á afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustíg 19. Þeir sem óska eftir að ger- ast áskrifendur blaðsins, geta snúið sér til afgreiðslumanns Rockefellerstofnunin ver ,Þingeyjar‘ Jóhannesar Guðna miklu fé árlega til eflingar1 sonar Húsavík. Eins* og kunnugt er, hefur verið haldið uppi vörslu við Ölfusárbrú síðan gert var við brúna aftur eftir bilunina í fyrra. Vörsluna háfa annast fjórir .menn og staðið tveir í senn á v verði. Vinnutími þeirra hef- ur verið 12 klst. í hverjum sól- arhring jafnt sunnudaga sem virka daga. Mánaðarkaup varðanna hefur verið kr. 420.- 00 og á það greidd verðlags- uppbót. Þann 31. júlí var gerður samningur um vörsluna, milli verkamannafélagsins „Þór“ á Selfossi og vegamálastjóra. Verður samkvæmt samningn- um bætt við tveimur mönn- um, þannig að hægt sé að koma við 8 stunda vinnudegi. Grunnkaup varðanna verður kr. 550.00 á mán. Þeir menn, sem verið hafa við vörsluna sitja fyrir vinnunni áfram. Alþýðusambandið annaðist samningagerðina fyrir hönd verkamannafélagsins. ar h.f., Siglufirði. Skipasmíðastöð Kristjáns Nóa Kristjánssonar, Akur- eyri. Dráttarbrautin h.f., Nes- kaupstað. Englandsbanki þjóðnýttur Harold Laski, formaður mið stjómar brezka Verkamanna- flokksins hélt rceðu í fyrra- dag og lýsti áformum flokks- ins. Ræðu hans var útvarpað til Ameríku. Laski sagði, að Englands- banki mundi verða þjóðnýtt- ur, svo og kola,-járn-, og stál- iðnaðurjnn. Englandsbanki er nú raunverulega í höndum fárra auðmanna, þótt ríkið eigi mikið af hlutabréfum hans, enda hefur hingað til ekki slegið í odda milli brezku auðmannastéttarinnar og ríkis stjórnarinnar. Brezki sendiherrann flytur forseta íslands hamingjuóskir „ Brezki sendiherrann, herra Gerald Shephard, hefur flutt forseta íslands hamingjuósk- ir brezku stjórnarinnar í til- efni af embættisföku hans. Ennfremur bar sendiherra fram persónulegar hamingju- óskir sínar til forseta og þjóð- arinnar. Frétt frá ríkisstjórninni. ivyrrahafsslyr jöidin í fullum gangi Kyrrahafsstyrjöldin hefur vakið sívaxandi athygli síð- an Evrópustyrjöldinni lauk, og hafa Bandamenn snúið sér af alefli gegn Japan. — Efri myndin: Tveir banda- rískir hershöfðingjar, Alexander M. Patch (til vinstri, fremst) og Alexander A. Vandegrift (til hægri) og R. Hall Jeschke ofursti á vígstöðvum ónafngreindrar Kyrrahafseyjar. — Neðri myndin: Kranar lyfta sprengj- um af flutningabílum Bandaríkjahersins á bækistöðv- um B-29 risaflugvirkja, sem skila þeim áleiðis til hern- aðarstöðva og iðnaðarborga Japans. „Kyrrahafseyjar“ nefnir bandaríski teiknarinn Jensen þessa mynd, er birtist í Chicago News.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.